Vísir - 11.12.1970, Blaðsíða 6
6
VÍSIR . Föstudagur 11. desember 1970.
^ sæigætissuguuirin
rennur til aldraðra
Mynddn sem fylgir þessari
klausu var tekin eftir kvöld-
langa vinnu Kiwanis-félaganna í
Hafnarfirði. Þeir pakka árlega
úrvali af sædgæti í paka, Eld-
borgarfélagamir, og leggja
síðan út klyfjaöir af varningnum
og knýja dyra hjá borgurum
Hafnarfjarðar. Allur ágóði af söl
unni er aflhentur Styrktarfélagi
aldraðra í Hafnarfirði. Viilja
Kiwanismenn með þessu láta í
ljós hug sinn og virðingu fyrir
aldraða fólkinu í bænum og
vonast þeir til að fá góðar
mótíökur baejarbúa sem fyrr.
Stjóm Eldborgar er skipuð
þeim Bjama Magnússyni, sem
er forseti klúbbsins, Þór Gunn
arssyni varaforseta, Sveini Guð
bjartssyni, Guðbirni Ólafssyni,
■Hervaldi Eirikssvni, Sigúrbergi
Sveinssyni og Guðmundi Óla
Ólafssyni.
H Skagfirzka
söngsveitin
Norðlendingar þykja mestir
söngmenn okkar íslendinga —
og eitt er víst, Stefán fslandi er
Skagfirðingur I húð og hár og
hefur hans fagra söngrödd ef-
laust fyrst notið sín, þegar hann
gætti búpeningsins heima hjá
sér í Seyluhreppi. Nú hafa hdns
vegar sveitungar hans, Skag-
firðingar, myndað söngsveit hér
í Reykjavík, Skagfirzka söng-
sveitin heitdr hún, blandaður kór
fólks úr ýmsum starfsstéttum
og m.a. eru þar húsmæðraskóila
kennarar. Með þá kunnáttu inn
an kórsins ákváöu Skagfirðing
amir að ráðast f kökubasar mik-
inn, sem haldinn verður á morg
un, laugardag, f félagsbedmili
Haddgrímskirkju kl. 17. Er þetta
gert í fjáröflunarsikyni fyrir fé-
lagsstarfið. Nú, Skagfirðingar
teljast lfka skáld góð og láta
flljóta með þessa vísu:
Þann 12. des er tækifæri
með tertusneið á diskinn þinn.
I Hallgrímskirkju ég held að
væri
heillaráð að líta inn.
$$ 4889 og 36173
Dregið hefur verið f‘ skyndi-
happdrætti Sjálfstæðisflokksins
hjá borgárfógéta. Volvo de' luxe-
bifreiðin kom upp á miða númer
4889 og SAAB-bi'freiðin kom
upp á númer 36173. Þeir, sem
eru þeirrar gæfu aðnjótandi að
hafa þessd númer á miðum sín-
um geta sótt farkostina eftir
heimsókn á skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins að Laufásvegi
46.
m Dvrin gefa góð skinn
Rekstur minikabúsins að
Lykkju gengur með ágætum.
Þar hafa verið f vetur um 4400
dýr, sem hinn norski bústjóri
segir að hafi þrifizt mjög vel
og muni gefa góð skinn, segir
í fréttatidkynningu frá Loðdýr
hf. Loðdýr hf. hefur nú selt og
aflhent 300 þessara dýra minka
búd sem nýlega hóf rekstur.
Tvö önnur minkabú hafa nú
gerzt samstarfsaðilar að rekstri
fóðurstöðvarinnar með Loðdýr
hf., og samstarif er á mdldi
•••••••••••»•••••••••••
tveggja þessara búa um sfcinna-
verkun, sem hófst sdöastliöinn
föstudag, og' lýkur um miöjan
mánuðinn.
Skinnin verða mest seld á
erlendum markaði. en nokkur
hluti þeirra verður sútaður og
seldur hér innanlands.
Fyrirhugað er aö stækka búið
og fjöilga læðum úr 900 í 1500
og er fyrirhugaö að byggingar-
framkvæmdum vegna þess á-
fanga ljúki næsta sumar.
m Loftleiðir minnast
flugmannanna
Stjórnendum Lofltleiða hf. er
þaö mikið hryggðarefni að þurfa
á bak að sjá fjórum ágætis
mönnum úr flugliði félagsins,
sem fórust f flugslysi við Dacca
í Pakistan. Það eru þeir:
Ómar Tómasson, flugstjóri
Birgir öm Jónsson, flugmaður
Stefán Ólafsson, flugvélstjóri
Jean Paul Tompers, hleðsdustjóri
Allir höfðu þessir flugliðar
starfað um árabil hjá félagiriu,
þótt þeir að þessu sinni flygju
á vegum annars félags og hefðu
ráðizt til þess um stundarsakir.
Þessara manna verður aetíð
ítarlega af öðrum og starfsiferiill
þeirra rakinn. 1 þakklátri. minn-
ingu vdlja stjómendur Loftleiða
hf. votta aðstandendum allra
þessara manna innilega hluttekn
ingu. I... .
Kristján Guðlaugsson.
Kynnizt
Klæðizt
Gefið
GLOBE
GLOBi
GL0BE
Skyrtan sem uppfyllir allar kröfur
hinna vandlátu. — Ótrúlega lágt verð.
□ Að selja táragas
í leikfangabúð
„Nýlega gerðist það í skóla hét
í nágrenni Reykjavíkur að börn
voru komin með táragas, kláða-
duft, ólyktarkúlur og fleira
Ei-tt barnanna veit ég að þurfti
að liggjh í rúminu eftir táragas-
sprengju, sem sprengd var i
skólastofu. Nú veit lögreglan
hvaða verzlunarmaður var svo
smekklegur að setja þetta á
markaðinn. Er ástæða til áð
leyfa mönnum sem þessum að
verzla áfram með bamaleik-
föng? Ég hefði haldið að sér-
hver maður í þjóðfélaginu hefði
einhverju hlutverki að gegnh til
að byggja upp og hlúa að þjóð-
félaginu, einnig þeir sem selja
bamaleikföng. Hvernig getur þá
mönnum, sem hafa opinbert
Ieyfi til slíkrar sölu dottið ann-
að eins og þetth í hug? Heyrt
hef ég að verzlunarmaður þessi
hafi eftir heimsókn lögreglunn-
ar selt kláðaduftið og eitthvað
fleira í þá áttina, — undir
borðið, eins og það mun kallað.
Ekki veit ég hvað hið opinberh
gerir (eða gerir ekki) í málinu,
en eitt er alveg víst. Ég kem
ek&i til með aö tilheyra við-
m skiptamannahópi þessarar verzl
unar I framtíðinni".
Móðir.
□ Seinvirk neyðarvakt
lækna á nóttinni
HJK símar:
„Mér var á dögunum nhuð-
ugur einn kostur að hringja 1
neyðarþjónustu læknanna, þeg-
ar eitt bama minna veiktist
skyndilega. f þennan síma hring
ir fólk víst yfirleitt ekki að
g'amni sínu, endá kom á dag-
inn að full þörf var fyrir lækn-
inn. En það sem mér gramdist
var það hversu kuldalega var
tekið á móti mér í símanum
af konunni sem svaraði. Mér
liggur við að segjh aö hreytt
hafi verið í mig skætingi. Fólk,
sem svarar í síma í stofnun sem
þessari hlýtur að skilja að þeir
sem snúa sér til neyðarþjónustu
eru oft mjög uggandi og óróieg-
ir vegna skyndilegra veikindh á
heimilinu. Það verður því aö
svara fólki nærfæmislega og
reyna að róa það, en ekki hið
gagnstæða. Nú, læknirinn kom
■reyndar ekki fyrr en 2 tímum
eftir khlliö, — seinvirk neyðar-
þjónusta það, fannst mér“.
Sá, sem þennan þátt annast,
getur tekíð undir með bréfrit-
ara, að það er gremiulegt að
mæta tómum kaldrana og nap-
urð undir slikum kringumstæö-
um, þegar uggvænleg veikindi
steðja að. Og óafsakanlegt er
að hreyta i fólk skætingi, þótt
að það kunni — ef til vill í
sumum tilvikum — að vera i
hugaræsingi vegna aðstæðna.
Þegar maður hefur hættulega
veikan sjúkling, kannsld ung-
bam, á höndum sér, er það ekki
beinlínis róandi, þegar hringt
er í neyðarsíma eftir lækni, að
þurfa fyrst að sæta yfirheyrsl-
um um, hvort búið sé að reyna
að ná i heimilislækninn. Og
hvort það sé nú alveg vist og
satt, ef símhringjandi segir svo
vera. Og fá þá loks að þeim
formála öllum liðnum einhver
loðin vilyrði um, að næturlækn-
ir muni fá skilaboðin, þegar
hann komi næst, en að hann
eigi þó að visu eftir að koma
við fyrst hjá 10 eða 20 öörum,
sem safnazt hafi á biölistann
um nóttina.
Það er ekki beinlinis tii þess
fallið að fylla menn öryggis-
kennd — frekar öfugt. Og sím-
svarar verða undir slíkum kring
umstæðum að reyna að stilla
ögn skap sitt og sýna þolin-
mæði, ef símhringjendur láta
i ijós furðu sfna eða kannski
hneykslun. Það eru ekki óeðli-
leg viðbrögð, að fólki ægi siík
bið. Það er frekar hitt sem
þykir óeðiiiegt, að það þurfi
slika bið tiL
□ Birgðatalningu líka
fyrir hækkanir
Engilbert simaði:
„Mikið þótti mér til um tU-
litssemi yfirvalda við kaup-
menn, þegar þau létu fram-
kvæma birgðatalningu bjá kaup
mönnum, svo að þeir biðu ekki
sklaða af verðlækkuninni. Það
má segja, að slíkt sé sjálfsagt
réttlætismál, en þaö er þó sama.
Það þurfti að gera það. Ekki
er nóg að tala um réttlæti, held
ur verður að sýna þhð i verki.
En um leið kom mér f hug,
að aldrei varð maður þess var,
að S'Mk bráðabirgðatalning sé
gerð fyrir vöruHÆKKANIRN-
AR. Slíkt hefði þó verið ekki
síður sjálfsagt réttlætismál i
mínum augum. Reynslan hefur
kennt okkur að ghmlar vðru-
birgðir kaupmanna endast þeim
alveg ótrúlega illa i kringum
slíkar veröhækkanir.
Það getur haft f för með sér
skaða fyrir kaupmenn, ef birgð-
ir liggjri ekkí alveg á hreinu.
í misgáningi gætu þeir selt
gamlar birgðir á nýju verði,
gleymt að reikna sér gróðann
til t,ekna og lent svo í skatta-
lögreglunni fyrir bragöið.
Nei, slík vanræksla ber vott
um álfka mikið tillitsleysi og
hitt var tillitssemi“.
HRINGID í
SÍMA1-16-60
KL13-15
VERÐLÆKKUN
Meöan birgöir endast
seljum við þessa vönd-
uðu símastóla á hag-
kvæmasta verði.
Með einu sæti kr. 4950.
Meö tveimur sætum
kr 7950.
HUSGAGNAVERZLUN
ÁRNA JÓNSSONAR
Laugavegi 70 . S. 16468