Vísir - 11.12.1970, Qupperneq 13
• r 7
VÍSIR « FöstucLagur 11. desember 1970.
13
Barnaíífeyrir hækkaður og
greiddur til 18 ára aldurs
Tillögur aðalfundar Bandalags kvenna
■p'jöldamargar tillögur voru
samþykktar á síðasta
aðalfundi Bandalags kvenna
aö venju. Margar þess
ara tillagna koma við heimilin
á einhvem hátt og fjölskyldu-
líf.
Þær fjalla um áfengisv'arnir,
tryggingar, safnaðarstarfsemi,
verðlagsmál, uppeldismál og
heil'brigðismál.
Aðalfundurinn beinir tilmæl-
um til Sjúkrasamlags Reykjavík
ur, að það dreifi upplýsingum
sínum mevfel félagsmanna. Einn
ig er óskað eftir því að Trygg
ingastofnun ríkisins láti greiða
fjölskyldubætur, örorku- og eili
styrki á fleiri stöðum en nú er
og helzt sem viðast. Heppilegt
sé að frá bankana til að annast
þessa þjónustu.
>á er skorað á Heilbrigðis-
eftirlitið að fylgfast betur með
matvælaeftirliti, öryggi og holl
ustu á vinnustöðum og hættu á
áhrifum eiturefna. Þá skorar
fundurinn á alþingi og ríkis-
stjóm að banna tóbaksauglýs-
ingar og hefja áróður gegn reyk
ingum.
>að er mælzt tii þess, að úti
vist'artíma barna verði breytt,
þannig að börn yngri en 8 ára
megi ekki vera ein úti eftir kl.
19 og börn frá 8—12 ára ekki
lengur en til kl. 20 og ungling
ar á aldrinum 12 — 16 ára ekki
nema til M. 22.
£>að er skorað á foreldra að
þeir leyfi bömum sinum ekki
útivist eftir þann tíma, sem lög
reglus'amþykktin kveði á um og
að þeir og aðrir kenni ungling
um góða umgengni t.d. um
strætisvagnaskýli og aðra al-
menningsstaði. Og að fjölmiölar
birti daglega áminningu til for-
! ddra um lögleg'an útivistartíma
ama.
Það er skorað á borgarstjórn
ð koma upp sorpiiátum við öll
öluop og sjoppur borgarinnar
>g herða mjög á hreinlætiseftir
iti í kringum slfka staöi, og
sett verði upp áminningarspjöld
um þrifnlað í öll strætisvagna-
skýli.
Ty& skora konur á forráða
menn sjónvarps að vanda
eftir því sem tök em á málfar
talls og texta í útsendingum sjón
varpsins. Þá er því beint til
borgarstjórnar að hún gangist
fyrir því að sem fyrst verði
stofnuð skól'aheimili fyrir ungi-
ingsstelpur, sem eigi við hegð
unarvandræði að búa.
Því er fagnað að tilraun með
almenna skólagöngu 6 ára
barna er hafin og er þess vænzt,
að tilraunin verði undanfari
þess að skólaskylda færist nið
ur um eitt ár.
Konur em ánægðar með það
að vísir að skólasjónvbrpi skuli
vera kominn hériendis og vona
að það mælist vel fyrir og verði
aukið strax og tök séu á.
Þá er skorað á alla þá, er
standa að verMegum fram-
kvæmdum í borginni að búa svo
um hnútana frá upphafi, að slys
geti ekki hlotizt af, jafnframt
er skorað á lögregluyfirvöld
borgbrinnar, að þau heröi enn á
eftirliti með þessum stöðum og
á fbúa borgarsvæðisins, að þeir
hafi vakandi auga á öllum
hættusvæðum, hver í sinu ná-
grenni, og aðvari hlutaðeigandi
aðila, ef þeim finnst úrbótb
þörf.
Konur viija láta lækka aö
verulegu leyti toila af brýnum
nauðsynjum heimilannb s.s. bús
áhöldum og borðbúnaði, raf-
magnstækjum, hreiniætistækj-
um, hreinlætisvörum o. fl. en
samkvæmt gildandi tollskrá eru
þessi tæki öll i 80—100% toll-
flokki. Er skorað á alþingi og
ríkisstjóm að lækka tollana, —
einnig að gera viðhlíthndi ráð-
stafanir nú þegar til þess að
gildandi eftirlit með verðlagi
verði virkara í framkvæmd en
nú er.
Kvenfélagasambandið fær á-
skorun um að beita sér fyrir
neytendafræðslu með erinda-
flutningi í ríkisútvarpinu og á
námskeiðum.
I sambandi við safnaðarmál-
in beinir Bandalagiö þeirri ósk
til skófastjóra og kennara í
Reykjavík að hefja starfsdag
skólanna með helgistund, að
sMpuleggja bekkjarheimsóknir
til guðsþjónustu undir leiðsögn
kennara í samráði við sóknar-
presta. Einnig þeirri áskorun
til foreldda að sækja kirkju
reglulega með bömum sínum,
þó sérstaklega meöan á ferm-
ingarundirbúningi stendur. Sú
hugmynd að einstakir söfnuðir
stofni dvalar- og hjúkrunar-
heimili fyrir aldraö fólk er
studd.
í tryggingamáium vill Banda-
fagið, að barnalífeyrir veröi
hækkaður þannig að hann nái
fullum helmingi af eölilegum
framfærslukostnaði barna. Að
bamalífeyrir verði greiddur, ef
bam hefur misst móður sína,
eða ef hún er öryrki á sarrfa
hátt og lífeyrir er nú greiddur
með bami látins föður eða ör-
yrkja. BáVnaíifeyrir ‘‘og fjöl-
skvidubætur verði gfceiíjdar til
18 ára aldurs. Hjón fái elli- og
örorkubætur sem trveir einstakl-
ingar. Ellilífeyrir haldist við
sjúkrahúsavist, ’aiit að 6 mán-
uði. Bótagreiðslur trygginga
verði vísitölutryggöar. Húsmæð-
ur fái jafnháa sjúkrapeninga og
aðrir þjóðfélagsþegnar og sé
miðað við almennt kaup verkb-
kvenna. Tannviögerðir verði
teknar inn í hinar almennu
sjúkratryggingar. Bætur eftir
látinn eiginmann verði greiddar
í 6 mánuði í stað 3 áður en 12
mánuði Wafi ekkjan barn á fram
færi í stað 9 áður. 1 stað 1000
kr. á mánuði í þrjá mánuði
komi 3500 á mánuði f 3 mánuöi.
Slysadagpeningar séu þeir sömu
og dagpeningamir úr atvinnu-
leysistryggingasjóði.
Bandalagið heitir á öll fé-
lög innan sinnfe. vébanda að
kynna sér áfengis- og eiturlyfja-
málin með það fyrir augum að
vekia þjóðina til umhugsunar
um þann mikla vanda, sem hér
sé á ferðinni. Áríðþndi sé að
öllum tiltækum ráðum verði beitt
til þess að koma í veg fyrir
innflutning og neyzlu fíkni- og
eiturlyfja. Þá er skorað á Al:
þingi og ríkisstjóm að sam-
þykkja ályktun sem nú liggi
fyrir Alþingi þar sem, farið er
fram á það að frfamlag til gæzlu
vistarsjóðs verði tvöfaldað á
næsta ári, svo að unnt verði að
hefja undirbúning að stofnun
lokaðs hælis fyrir drykkju-
sjúklingfa.
dan
Forstöðukona
Félagdmálastofnun Reykjavíkurborgar aug-
lýsir laust starf forstöðukonu við vöggustofu
Thorvaldsensfélagsins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf þurfa að hafa borizt stofnun-
inni fyrir 1. janúar 1971.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Teitur
Finnbogason, Tjamargötu 11, viðtalstími
milli kl. 11 og 12.
Auglýsing
um takmörkun á umferð í Reykjavík
11.—23. desember 1970.
Ákveðið hefur verið að gera eftirfarandi ráð-
stafanir vegna umferðar á tímabilinu 11.—
23. desember n.k.:
I. Einstefnuakstun
Á Vatnsstíg frá Laugavegi til norðurs að Hverfisgötu.
II.
1)
2)
3)
4)
III.
Vinstri beygja bönnuð:
Af Laugavegi suður Barónsstíg.
Af Klapparstíg vestur Skúlagötu.
Af Vitastíg vestur Skúlagötu.
Af Laugavegi norður Nóatún nema S.V.R.
Bifreiðastöðubann á virkum dögum
kl. 10—19:
Á Skólavörðustíg norðan megin götunnar, frá Týs-
götu að Njarðargötu.
IV. Bifreiðastöður takmarkaðar við hálfa
klukkustund á almennum verzlunartíma:
1) Á eyjunum á Snorrabraut frá Grettisgötu að Flóka-
götu.
2) Á Frakkastíg austan megin götunnar, milii Grett-
isgötu og Njálsgötu.
3) Á Klapparstíg vestan megin götunnar frá Lindar-
götu að Hverfisgötu og frá Grettisgötu að Njáls-
götu.
4) Á Týsgötu, austan megin götunnar frá Skólavörðu-
stíg að Þórsgötu. j
Frekari takmarkanir en hér eru ákveðnar verða sett-
ar um bifreiðastöður á Njálsgötu, Laugavegi, Banka-
stræti og Austurstræti. ef þörf krefur.
V. Ökukennsla í miðborginni er bönnuð milli Snorra-
brautar og Garðastrætis á framangreindu tímabili.
VI. Umferð bifreiða annarra en strætisvagna Reykja-
víkur er bönnuð um Austurstræti, Aðalstræti og Hafn-
arstræti laugardaginn 19. desember frá kl. 20,00 tjl kl.
23,00 og miðvikudaginn 23. desember frá kl. 20,00 til
kl. 24,00.
Sams konar umferðartakmörkun verður á Laugavegi
frá Rauöarárstíg og í Bankastræti á sama tírna, ef
ástæða þykir til.
VII. Athygli skal vakin á takmörkun á umferð vöru-
bifreiða, sem eru yfir 1 smálest að burðarmagni og
fólksbifreiða 10 farþega og þar yfir, annarra en stræt-
isvagna, um Laugaveg, Bankastræti, Austurstræti og
Aðalstræti. Sú takmörkun gildir frá kl. 13,00 þar til
almennum verzlunartíma lýkur alla virka daga nema
laugardaginn 19. og miövikudaginn 23. desember, en
þá gildir bannið frá kl. 10,00.
Ennfremur er ferming og afferming bönnuð á sömu
götum á sama tíma.
Þeim tilmælum er beint til ökumanna, að þeir forðist
óþarfa akstur um Laugaveg, Bankastræti og Austur-
stræti og að þeir leggi bifreiðum sfnum vel og gæti
vandlega að trufla ekki eða tefja umferð.
Þeim tilmælum er beint til gangandi vegfarenda, að
þeir gæti varúðar í umferðinni, fylgi settum reglum
og stuðli með því að öruggri og skipulegri umferð.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 10. desember 1970.
Sígurjón Sigurðsson.