Vísir - 14.12.1970, Page 1

Vísir - 14.12.1970, Page 1
/ Mánudagurinn 14. desember 1970 BLAÐ II ÞREIFAD AFTUR UM 60 ÁR 0 Þennan dag fyrir sextíu árum byrjuðu sölu- strákar að hrópa á götum Reykjavíkur: Vísir! Vísir! — Þetta var í þann mund að fyrstu bílarnir komu til landsins. íbúar bæjarins voru aðeins rúm- lega 11 þúsund. Síðan hafa þessi köll strákanna fylgt skarkala borgarinnar og raunar gróið í eitt með honum. 0 Nærri má geta að á ýmsu hefur gengið við útgáfuna á þessum langa ferli blaðsins. Sú saga hefur nú verið skráð og er væntanleg í bók, sem út mun koma í febrúar, þegar Vísir á sextíu ára afmæli sem dagblað. ^xel Thorsteinson hefur safnaö saman brotum úr sögu blaös- ins í þessa bók. Hann ætti að vera öllum hnútum kunnugur, því enginn hefur starfaö jafn- lengi við Vísi. Hann hóf störf viö blaðið árið 1924 sem auka- maður og hefur verið handgeng- inn Visi síðan og starfað við blaðið lengst af, aðeins gert þar stutt hlé á. Axel þekkir því öðrum betur sögu blaðsins frá fornu fari, því hún er jafnframt starfssaga hans sjálfs. Hann hefur undanfkrið ár unnið að — Skyldi vera óháð auglýsinga- og frétta- blað — Fyrsti blaða- maðurinn fór á hjóli austur í Grafning að afla frétta — Vikuútgáfa með öllum fréttum Vís- is fyrir landsbyggðina — Þá var farið í viðtöl við fólk, sem kom frá útlöndum gerö bókarinnar, svo sem glöggt má sjá, þegar heim til hans er komið að Flókagötu 15. Þar eru innan dyra fyrirferðarmiklir hlaðar af gömlum Vísi, inú- bundnum. Blaðið hlýtur auðvitað sjálft að vera bezta heimildin um sögu þess. — En Axel skyggnist hins vegar bak við tjöldin og er raunar lengst af að tjaldabaki sjálfur. Þess vegna fengum við hann til þess að rifja upp sögu blhðsins í stuttu spjalli og segja lítillega frá vænt anlegri bók. Á gamlar slóðir — Rit þaö sem frá minni hendi kemur er bundið við tím- ann fram að seinni heimsstyrj- öld, segir Axel. — Gamli tím- inn heillaði mig. Tímabilið, þeg- ar Vísir var að vbxa úr grasi og árin þar á undan eru eins og lokuð bók fyrir nútímanum. Og mér finnst óheppilegt að þannig skapist óbrúanlegt bil milii unga fólksins og gamia tímans. Fyrir mig er þetta eins og að hverPa á gamlar slóðir. Ég er alinn upp í andrúmslofti þessa tíma. Allar götur ætti ég að þekkja hann, hvernig hér var umhorfs og hverjar hræringar hér voru í lofti. Ég lauk við bók, sem spannar tímabilið fram til seinnh stríðsins, en þar verður svo bætt viö stuttu yfirliti til þess að tengja það nútímanum. Fyrsta tilraunin til stofnunar dagblaðs á íslandi var gerð 1896, en mistókst. Að þessum tilraunum, stóðu þjóðkunnir menn og ritfærir í bezta lagi, skáld og áhugamenn um fram- flarir. En skilyrðin voru þá enn ekki fyrir hendi, enda íbúar fá- ir í Reykjavík þá, aðeins 5000 árið 1896. En Reykjavík var í örum vexti. Og það var mikið framfaraskeið í sögu þjóðarinn- ar. Jafnframt óx þörfin fyrir dagblbð, sem léti almenningi i té þá þjónustu, sem því er skyít aö veita og gæfi borgurun- um rýmri kost en vikublöðiri, landsmálablöðin svokölluðu, gátu. Það er þó ekki fyrr en í des- ember 1910, sem stórhuga maö- ur, fjölhæfur gáfumaður og ham hleypa við öll störf, Einar Gunn arsson cand. phil. „tekur stökk- ið“ eftir langa umhugsun „og þreifar fyrir sér hvort tiltök séu að stofna hér dagblað'1. Og 14. desember 1910 kemur svo fyrsta tölublaðið út og þar sem þar er um tilraun að ræða, ber það nafnið: Vísir til dagblaðs í Reykjavík Það heiti bar hlaðið fram að jólum. Blaðið liggur þar næst niðri til 14. febrúar 1911 og kem ur eftir það út sem dagblaðið Vísir. Þann dag á næsta ári á Vísir sextugsafmæli sem dhg- blað en í dag eru 60 ár liðin frá stofndegi þess. Stofnandi Vísis, Einar Gunn- arsson, hafði margra ára reynslu aö baki sem ritstjóri og útgefandi. Hann flanbr ekki að neinu, „fer stillt af stað“. Þaö eru hyggindi hans að gera til- raunina, þegar beztu auglýs- ingavikur ársins eru framundhn. Undirtektimar urðu framar öll- um vonum. Samt þurfti stór- hug til þess að halda áfram. Þann stórhug átti Einar Gunn- arsson. Hann stofnaði Vísi sem óháð blað, auglýsinga- og fréttablað, gerði það að vettvangi, þar sem mönnum gafst kostur á aö láta skoðanir sínar í ljósi, hverjar sem þær voru og hvar í flokki sem menn stóðu. Einar Gunnarsson var Land- vamarmaður, samherji Bjarna frá Vogi og Benedikts Sveins- sonar. Hann vhr einn þeirra, er AXEL THORSTEINSSON — hér blaðar hann f innbundnum Vísi frá fyrstu dögum blaðsins. Forsíðumyndin er teikning af minnsta loftfari heims, sem -ænskur verkfræðingur hafði Iátið smíða í Þýzkalandi. 0 STIKLAÐ Á STÓRU MEÐ AXEL THORSTEÍKSSYNI í 60 ÁRA SÖGU VÍSIS fyrst reistu Landvamarflokkinn með Einari Benediktssyni 1902. Gerðist hann ábyrgðarmaöur blaösins Landvemdar og rit- stjóri þess með Einari og Bene- dikt Sveinssyni. Hann átti jafn- an hriuka í horni þar sem þess- ir menn voru, eftir aö hann stofnaði Vísi. Þetta setti svip á Vísi í hug- um fólks, en Einar fylgdi alla sína ritstjómartíð trúleg^ þeirri stefnu, að Vísir skyldi ivera ó- háö blað. Svo vel treysjti hann grunninn, að dughö hefur f sex- tíu ár, þrátt fyrir veöur öffl válynd. Ef litið er á fyrstu blöö Visis má sjá að mikil áherzla hefur verið lögð á að afla innlendra frétta. Þar má sjá upplýsingar um sólaruppkomu og sólsetur, tungl f hádegisstað, flóð og fjöru, um afmæli, veðráttuna, póstferðir og aðrar hagnýtar upplýsingar. Vísir vann sér þeg- ar í byrjun álit sem auglýsinga- blað og á þeim bar talsvert í blaðinu. Ritstjórinn tók einnig þann sið að birta í stuttu máli glefs- ur um efni landsmálablaðanna, þannig að lesendur gætu fylgzt meö stjómmáíaumræöum þeirra tíma. Vísir kostaði í fyrstunni þrjá aura. Þar af fengu strákamir, sem seldu hann 1 eyri, sem þótti gott. Þá nægði aö selja tíu blöð til þess að eiga fyrir bíóferð. Þlar réöi dugnaðurinn einn úrslitum. Sumir drengj- anna unnu sér inn álitlegar fjár hæðir. Þetta voru synir ríkra jafnt sem fátækra og ýmsir þeirra urðu síðar meir ráöa- merm þjóðarinnar. Gengið um bæinn að afla frétta Vísir var prentaður í prent- smiöju Östlunds við Kolasund, en afgreiðsfen var á ýmsum stöðum í bænum fyrstu árin. Einar var algjör einyrbi fyrsta hálfa annað árið og sá einn um að skrifa og gefa út blaðið. 1. júní 1912 stækkar hann blaðið og þá er Guðmundur skáld Guð- mundsson ráðinn að bfeðinu. Hann skrifar síðan mikið f það og yrkir ljóð. Hanri hafði eins og Einar talsveröa reynslu af blaöamennsku. Um þessar mundir er einnig ráðinn að blaðinu fyrsti eigin- legi fréttamaöurinn, Magnús Gíslason, skáld og ljósmyndari. Þessi fyrsti blaðamaður við íslenzkt dagblað aflaði frétta með þeim hætti að ganga um bæinn og spyrja menn tíöinda, gangh niður að höfn og hyggja að skipakomum og svo fram- vegis. Og auövitað þurfti einnig að afla frétta af landsbyggöinni. Magnús var skömmu eftir að hann kom hð blaðinu fenginn til aö fara auStur í sveitir og spjalla viö bændur og afla frétta. — Hann axlaði mal sinn og snaraðist á b'ak reiöhjóli. Síðan hjólaði hann austur i Grafning og víðar um sveitir í nágrenninu. Kom svo heim hlað inn af fréttum og viðtölum við menn. Þannig var fyrsti frétta- leiöangur fslenzks dagjblaðs á lsfendi. 9—y

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.