Vísir - 04.01.1971, Blaðsíða 5

Vísir - 04.01.1971, Blaðsíða 5
Wt &Í R . Mánudagur 4. janúar 1971. Sjúkrabílamir óku rakleiðis inn á leikvöllinn, þar sem menn lágu slasaðir og látnir í hrönnum. Myndir sýnir að þoka grúfði yfir. 66 fórust þegar áhorfenda- stæði hrundi á Ihrox Park — hörmulegasta slys i brezkri knattspyrnu- sögu i Glasgow á laugardaginn MARK, sem skorað var á lokasekúndunum í viðureign jötnanna í skozkri knattspyrnu, Giasgowliðanna Rangers og Celtic^ í Ibrox Park á laugardaginn, varð orsök hörmulegasta slyss, sem um get- ur í brezkri knattspymusögu, og hafa þó mörg alvarleg siys orðið á brezkum knattspyrnuvöllum. 66 áhorfendur fórust og tugir slös- uðust alvarlega, þegar áhorfendastæði á austurhluta valiarins hrundu og tugir manns steyptust af stæðunum — margra metra fall — sumir áhorfendur, sem stóðu í stiga undir stæðunum og aðrir niður á gaddfreðna jörðina. Skelfing greip um sig og margir slösuðust, þegar þeir tróðust undir í örvæntingarfullum tilraun- um að komast frá hinum föllnu og fallandi pöllum — Áttatíu þúsund áhorfendur vom á vellinum. Ölium sjúkrabifreið- um Glasgow-borgar var beint til Ibrox-Ieikvangsins strax eftir slysið og allt hjúkrunarlið borgarinnar var hvatt út. — Margir klukkutímar liðu þó áður en ljóst var, hve slysið var alvarlegt. Björgunarstarfið reyndist mjög erfitt. Flest líkanna voru hroða- lega Ihnlest og 12 klukkustundum eftir slysið hafði aðeins tekizt að bera kennsl á 17 af þeim, sem fórust. Meðal þeirra var kanad- ískur ferðamaður í Glasgow og 17 ára sonur hans. Lýsingu á leiknurn var útvarpað beint í ÐBC og einnig í skozku heimastööinni. Leikurinn var jafn og spenningur áhorfenda mikill eins og ávallt þegar þessi tvö lið eigast við í Glasgow. Ekkert mark hafði verið skorað, þegar rúm mín úta var til leiksloka, en þá náði Celtic snöggri sóknarlotu. Bobby Lennox spyrnti á mark og knött- urinn lenti í þverslá Rangersmarks ins og hrökk þaðan fyrir Jimmy Johnstone, útherja Celtic, sem sendi knöttinn í mark. Fagnaðarlæt in á áhorfendasvæðunum, þar sem Celtic-aðdáendurnir héldu sig voru mikil, en þúsundir af fylgjendum Rangers fóru þegar að yfirgefa á- horfendasvæöin. Nokkrar sekúndur voru til leiksloka og sigur Celtic virtist öruggur og ekkert er verra fvrir Rangers en að tapa fyrir Celtic. En leikurinn byrjaði að nýju og fagnaðaróp Celticmanna voru vart þögnuð, þegar Coiin Stein jafnaði fyrir Rangers meö síð ustu spymunni f leiknum. Aftur fagnaðariæti og. nú á öðrum stöð- um á vellinum, og þær þúsundir, sem yfirgefið höfðu áhorfenda- svæðin sekúndum áður, þustu inn aftur til að fagna markinu. Troðn- ingur varð mikill og það var meira en gamlir, fúnir viöir á austurstæð inu þoldu. Mikill brestur heyrðist, þegar þverbitar undir nokkrum pöllum á stæðunum brotnuðu með þeim hörmulegu afleiðingum, sem áður er getiö. Þulurint i útvarpinu hélt í fyrstu að slegið ^efði í brýnu milli að- dáendahópa liðanna — eins og svo oft á sér stað — en honum varð fljótt Ijóst eins og öðrum fréttamönnum í blaðamannastúk- unni, að alvarlegri atburðir höfðu gerzt. Otsendingum' var hætt enda ómögulegt að henda nokkrar reiöur á það, sem var að gerast á hinum risastóra leikvangi, auk þess sem þoka, sem læðzt hafði yfir loka- mínútur leiksins, byrgði útsýnið. En riokkrum mínútum síöar var þó útvarpað aftur beint frá vellinum 'og skýrt frá því að alvarlegt slys hefði orðið og þrír áhorfendur væru þá þegar látnir, en fréttamað urinn ðttaðist að mun fleiri hefðu slasazt til ólífis. Og kiukkutíma síðar var tala látinna komin f sjö, en hækkaði ört, þegar fré-ttir fóru að berast frá hinum ýmsu sjúkra- húsum í Glasgow, sem hinir slös- uðu voru fluttir til. Glasgow-borg var í sárum og örvænting mikil, því þúsundir söknuðu sinna nán- ustu í þeirri ringulreið, sem skapað ist á vefiinum og í næsta nágrenni hans. Þetta er ekki í fyrsta skipti, sem alvarlegt slys verður á Ibrox Park, leikveili Rangers i Glasgow. Áriö 1902 var háður þar iandsleikur milli Skotlands og Englands. Tíu mínútum eftir að leikurinn hófst hrundi áhorfendasvæði og 25 manns fórust og yfir 500 slösuðust. Áhorfendur annars staðar á vellin um, og þeir, sem að hjörgunarstarf inu unnu, gerðu sér ekki grein fvr ir hve alvarlegt slysið var, því eft- ir nokkurra mínútna töf hélt Ieik- urinn áfram eins og ekkert hefði í skorizt og iauk með jafntefli. — Áhorfendur þá voru miklu fleiri en riú, því völlurinn var til þess að gera nýlegur og yfir 100 þúsund áhcrfendum hleypt inn á völlinn. Mesti áhorfendafjöldi, sem þar hef ur verið, var 118.567 á leik Rang- ers og Celtic 1989, en eftir styrj- .öldina var áhorfendafjöldi takmark aður við 80 þúsund, en sú slysaráð stöfun hefur ekki komið að því gagni, sem ætlast var til. Vegna slyssins á laugardag skipaði skozka knattspyrnusambandið þeg- ar sérstaka nefnd, sem rannsaka á alla velli á Skotlandi oa á að lát.a <>era ráðstafanir. sem eiga i fram- tíðinni að koma i veg fvrir slíka hrvllinvcatburði. =em nú hafa át,‘ sér stað Glasgow-liöin Rangers og Celtic hafa um ár’atugi borið ægishjálm yfir önnur skozk knattspyrnulið og’ oft hefur komið til alvarlegra á- taka eftir leiki þeirra innbyrðis. Það var föst venja í áratugi, að lið- in mættust á leikvelli Rangers á fyrsta degi hvers nýs árs — og dagana -á undan var um lítið annað rætt i Glasgow en væntanlegan leik „erkifjendanna". Og á þessum frídegi var völlurinn ávafit þéttskip aður áhorfendum og oft mikil á- tök á vellinum og í borginni eftir leikina. Margir hafa látiö lífið í þeim átökum — eitt sinn myrti ungur piltur bróöur sinn vegna deilna um leikinn — og það er ekki aðeins að deilt sé ui«s atburði á knattspymuvellinum, þar bland ast oft trúarbrögð inn i. Fylgjend ur Celtic eru kaþólikkar, Rangers mótmælendur. Fyrir tveimur árum voru átökin óvenjuhörð og um 50 manns slösuðust í átökunum og mun fleiri voru settir 1 fangelsi. Þá var ákveöið að leikurinn skyldi háður á virkum degi, en þó fyrstu dagana í janúar. 1 fyrra fór ailt fram í friði og spekt, og hið sama virtist ætla að verða uppi á ten- ingnum nú, þegar örlögin gripu skyndilega inn f. Ihrox-leikvangurinn er þriðji stærsti knattspymuvöllur á Bret- landseyjum, aðeins Hampden-Park f Glasgow og Wembley í Lundún- um rúm fleirj áhorfendur, og völl- urinn er mjög miðsvæðis f Glasg- ow. Aðeins nokkurra mínútna akst ur er tii hans frá St. Enock-torg- inu f Glasgow, þar sem Flugfélag íslands hefur skrifstofur sínar. — Margir íslendingar hafa lagt leið sína á þennan fræga völl og árið 1945 steig Albert Guðmundsson þar sfn fyrstu spor sem knatt- spymumaður á erlendri grund, — vakti feykilega athygli og va'rð skozkur meistari með Rangers. — Tæpum tveimur áratugum síðar keypti Rangers Þörólf Beck frá St. Mirren — en örskammt er á milli valla þessara féiaga — fyrir 20 þúsund pund og um tíma var Þór- ólfur fastur maður í aðalliði Rang- ers. Tbrox hefur þvi oft haft sér- stakt aðdráttarafl fyrir Islendinga, sem farið hafa um Glasgow, og þeir eru orðnir margir, sem lagt hafa leið sína á völlinn og staðið á þeim stað, sem -nú hefur orðið vettvangur hörmulegasta slyss í sögu brezkrar knattspymu. hsfm. Það hefur oft veriö róstursamt á leikjum Glasgow-liðanna Rang- ers og Celtic á nýársdag. Myndin var tekin á Ibrox fyrir tveimur árum, Þegar til alvarlegra óeirða kom eftir Ieik þar, og tugir manns slösúðust

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.