Vísir - 13.03.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 13.03.1971, Blaðsíða 1
61. árg. — Laugardagur 13. marz 1971. — 60. tbl. „HANN sigldi þráðbeint á bryggjuna og það var eins og hann ætlaði bara að klifra upp á hana“, sagði einn hafnarverka- mannanna, sem var sjónarvottur að því, að brezka eftirlitsskipið Miranda sigldi inn í Reykjavíkur höfn um kl. 5 í gær og rakst á Faxagarð. Skarð brotnaði í Faxagarð, en engin spjöl'l virtust hafa orðið á olfu- eða vatnsleiðslum í bryggj- unni, þegar gætt var að. Astæðulaust uð bætu fyrir hundritin — segir lögmaður d'ónsku stjórnarinnar LOKIÐ er í Kaupmannahöfn málflutningi í máli því sem nú er fyrir hæstarétti þar úti um hvort danska menntamálaráðu- neytið skuli dæmt til að greiða Árnasafni skaðabætur vegna heimsendingar íslenzku handrit anna. Vísir hringdi í gær í Sigurð Bjamason, ambassador, en hann hefur fylgzt vandlega með mál- flutningnum. „Málflutningur hófst á miðviku dagsmorgun með þvi að Good- man Carlsen, sem flytur málið fyr- ir Ámasafn, flutti sína greinar- gerð, og tók það hann tæpar 7 klukkustundir", sagði Sigurður Bjarnason, „hann rakti sögu hand ritamálsins og reyndi með öllu hugsanlegu móti að sanna, að rík ið væri bótaskylt í þessu máli, sérstaklega fyrir þann hfuta a-f , sjóði Árnasafns, sem ætti að fyigja með i afhendingunni. Paul Schmidt, lögmaður stjórn- arinnar talaði öllu skemur. Hann hóf mál sitt klukkan 12 á fimmtu- dag og talaði til klukkan 14. Hann byrjaðj síðan aftur í morgun og lauk þá máli sínu á 30 minútum. Var þá málið tekið í dóm, og er búizt við að dómur verði kveðinn upp eftir viku.“ Sagði Sigurður Bjarnason, að skemmtilegt hefði verið að hlusta á málflutninginn. einkum hefði honum fundizt Paul Schmidt flytja málið með glæsibrag, og i morg- un, hefði Berlingske Tidende sleg ið upp í frétt megininntaki úr ræðu hans: „Det er ikke noget at erstatte" — það er ekikert til að bæta — vegna þess að Árnasafn hefur ekki beðið fiárhagslegt tiön. Krafðist Paul Schmidt að dóm- urinn frá 13. marz í fyrra yrði staöfestur, að rfkið yrði ekki taliö bótaskylt. „Það hefur verið þéttsetið á áheyrendapkjllum hér meðan á mál flutningi stóð,“ sagði Sigurður Bjamason, „þótt ekki hafi Islend- ingar verið mjög margir. Aðallega við úr sendiráöinu, en einnig rni'k- ið af Dönum, t. d. nokkrir gaml- ir ráðíherrar, og svo auðvitaöokk ar helzti andstæðingur, prófessor Vo«teBt!iaatid-MieIseíii.“ — GG Skipið átti að leggjast upp að bryggju við Faxagarð, en þegar það nálgaðist bryggjuna og hægja átti ferðtna með því aö láta vél- arnar vinna aftur á bak, gerðist óhappið. í stað þess að stöðvast eða hægja ferðina hélt skipið beina stefnu á bryggjuna, og gekk stefn ið í gegnum allmarga bita. Engin slys urðu á mönnum, — hvorki um borð né á brvggjunni. — GP urezKa enmussKipio ivuranaa erur areKsturinn í gær. Reyna að opna skreiðamarkað Nigeríu með sendiherraaðstoð Skreiðarmenn slcst i f'ór mcá Guðmundi I. Guðmundssyni, sem afhendir trúnaðar- bréf i Nigeriu Þrír aðilar í skreiðarsölu íslendinga slógust í för með Guðmundi í. Guð- mundssyni, sendiherra í London, til Nígeríu, til að freista þess að opna aftur markaðinn fyrir ís- lenzkri skreið, en hann hefur að mestu leyti ver ið lokaður, alveg frá 1967, að styrjöldin brauzt út í Bíafra. Guð- mundur í. Guðmunds- son er þarna staddur til að afhenda þarlendum aðilum trúnaðarbréf sitt en nýlega var ákveðið, að Nígería og ísland skiptust á sendiherrum. Þremenningamir, Stefán Gunn laugsson, deildarstjóri í við- skiptaráðuneytinu, Bragi Eiríks- son, Skreiðarsamlaginu og Bjarni Magnússon, íslenzku um boðssölunni munu reyna að fá innflutningsleyfi fyrir skreið með aðstoð sendiherrans. Slík leyfi hafa ekki fengizt undan- farin ár, sem hefur komið mjög illa við íslenzka skreiöarfram- leiöendur, enda var Nígería langstærsti skreiðarmarkaður okkar fyrir Bíafrastriðið. Eina skreiðin, sem farið hefur til Nígeríu hin seinni ár hefur far ið í gegnum Rauða krossinn en einnig hefur Nígeriuher keypt smávægilegt magn. Keppinautum okkar, Norð- mönnum hefur tekizt aö koma nokkru magni af skreið inn á Nígeníumarkað í gegnum brezka aöila, sem hafa haft vöruskipta verzlun við Nígeriumenn eða aðstoðað þá við uppbyggingu landsins, en eins og að Ifkum lætur standa þeir höllum fæti fjárhagslega, eftir hina lang- vinnu styrjöld. Vísi er kunnugt um einn aðila islenzkan, a. m. k. sem nú vinnur að því að finna sambærilega leið fyrir ís- lenzku skreiðina inn á Nígeríu- markað. —*VJ Daprir yfir geirfugismissinum Danir treystu sér ekki til að efna til landss'ófnunar Tæpar 7.9 milljónir hafa borizt i söfnunina „MEÐAN menn kætast á íslandi yfir því að hafa skotið Dönum ref fyrir rass, fyrst í handrita- málinu og nú síðast í kapphlaup inu um uppstoppaða geirfuglinn frá Aalholm-höllinni, eru þeir miður kátir á Zoologisk Muse- Kviknaði i ýtu ■ í gærkvöldi á sjöunda tim- anum, varö talsvert bál í jarðýtu sem stóö mannlaus og jdirgefin við Sævarland hjá Blesugróf Ekki vissi lögreglan um eldsupptök né hver skilið hafði viö ýtuna þarna, en hún brann talsvert aö innan, sætiö og annaö það sem brunnið gat. — JII um (dýrasafninu) í Kaupmanna höfn“, skrifar Politiken á þriðju daginn. — Blaðið hefur það eft- ir dr. phil. Finn Salomonsen, að 162 þúsund krónurnar (1.927.600 kr. íslenzkar), sem íslendingar hafi greitt fyrir fuglinn á uþp- boðinu í London hafi ekki aldeil is verið of mikið fyrir svo gott eintak“. Það er dapurlegt til þess að hugsa, að ofckur hér á safninu var boðinn fuglinn á 150 þús. kr., en urðum að aifþakka hann, þar sem við gátum ekki treyst því, að yfir völd litu hann velþóknanlegum augum, sagði dr. Salomonsen og bætti þvi við, aö þeir á safninu heföu verið að hugsa um að hleypa af stokkunum landssöfnun fyrir fuglinum, en ekki treyst sér til bess. „Hugsanlegir gefendur hefðu eflaust átt í erfiðleifcum meö að skilja verðið.“ Hér á íslandi áttu menn þó ekki i neinum vandræðum meö að skMja verðið. Geirfuglssöfnuninni höfðu borizt I gær tæpar 1.9 milljónir króna frá þúsundum einstakling- inga út um allt land auik all margra fyrirtækja. Talið er að mjög lítiö sé nú eftir útistandandi, svo að 'þaö stendur á endum, aö söfnanin dugi fyrir fuglinum og smávægilegum kostnaði við söfn- unina. Stærstu ffamiögin komu frá Keflavíkurverktökum, Fiskanesi hf, sem gerir út Geirfuglinn í Grinda vík, Kaupfélagi Eyfirðinga, sem gáfu 100.000 kr. hvert og Ölgerð Egils Skallagrímssonar, sem gaf 50.000 kr. Nákvæmt kaupverð á geirfuglinum var 1.927.600 kr. Töluvert á 9. þúsund manns höfðu komið i Þjóðminjasafniö í >;ær til að skoða þennan træga fugl.i en búast má við miÁilJi ös nú um helgina, síöustu dagana, sem fuglinn verður til sýnis að sinni, en safnið verður opið kl. 13.30 til 22 báða dagana. —VJ Shady í heimsókn. Sjá bls. 3. „Fæ ekki frið fyrr en sá seki finnst“. Sjá viðtal viö Sveinbjörn Gísla son, seni nú hefur verið sýknað- ur fyrir hæstarétti af morðákær unni og ummæíi rjögurra íög- fræðinga um dóminn á bls. 9. SKIPIÐ VILDI UPP Á BRYGGJU

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.