Vísir - 13.03.1971, Blaðsíða 7
V í S IR . Laugardagur 13. marz 1971.
7
cTMenningarmál
Gunnar Björnsson skrifar um tónlist:
Að klappa Guði á öxlina
Sínfóníuhijómsveit íslands,
12. tónleikar — 11. marz
1971.
Stjómandi: Bohdan Wod.
iczko.
Einleikari: Ral'ael Orozco.
Efnisskrá:
Herbert H. Ágústsson:
Concerto-Breve op. 19,
Serge Prokofjeff:
Píanókonsert nr. 2,
L, v. Beethoven:
Sinfónía nr. 2.
rT'vö fáheyrð verk og ný af
nálinni hafði verið ákveðið
að flytja á þesáum tónleikum:
Les offrandes oubliées eftir
Messiaen og Les Fresques eftir
Martinu. Næstum að segja á
síðustu stundu urðu þau þó að
víkja. Tónleikagestir fá enga
skýringu. Að visu áskilur fram-
kvæmdastjórn hljómsveitarinn-
ar sér rétt til breytinga á efnis-
skrá, en þessi frávik eru orðin
mörg og snögg. Samt er þetta
engan veginn með öllu illt: í>að
er spennandi happdrætti að
bíða og sjá hvaða verk við fáum
í staðinn fyrir hið fyrirheitna.
/'’oncerto-Breve (ihvers vegna
bandstrik í nafninu?) Her-
berts H. Ágústssonar kom gleði-
lega á óvart Ég hygg, að ekki
hafi ennþá heyrzt betra verk
eftir Herbert. Á norrænu kirkju-
tónlistarmót; í sumar var flutt
tóniist við Davíðssálma eftir
sama höfund, og minntist ég á
það verk í annarri grein. Er
mikill munur á, hversu hér er
allt mikiu hnitmiðaðra og í
einu orði sagt skemmtilegra. Sá
drungi, sem oft er tryggur fylgi-
nautur innlendrar tónlistar, var
hér víðs fjarri. Kannski entist
ekki andagiftin allt verkið í gegn
og það má þess vegna segja. að
það hafi verið nokkuð of langt,
en í minningunni er verkið gott
í heild. Herbert skrifar af góðri
kunnáttu fyrir hin ýmsu hljóð-
færi og kann að „registrera"
þetta stóra organ, hljómsveitina.
Spánverjinn Rafael Orozco,
sem lék píanókonsert nr. 2 eftir
Prokofjeff, er mikill kraftajöt-
unn f píanóspili. Skortir þó ekk-
ert á flngerða tækni heldur.
Lágvaxinn og snaggaralegur
(dálítið líkur Aszkenasí!) ber
hann og lemur pfanóið af því-
líkum fítonskrafti, að ég man
ekki eftir að hafa séð annað
eins. Pianókonsert Prokofjeffs
er ekki heldur neitt lamb að
leika sér við, Kadensan í fyrsta
þætti er nóg til þess að brjóta
hendurnar á hverjum meðal-
manni. En verkið er ofhlaðið af
tónum; litlum og stórum löng-
um og stuttum, háum og lágum.
Svona barningur mundi sjálfsagt
lítið setja ofan, þótt tálgað væri
utan af honum á allar hliðar. 27
mínútur af æðisgengnu píanó-
spili upp og niður hljómborðið,
meðan hljómsveitin gleymir öl!-
um hömlum í hrikalegri viður-
eign við strengi og pípur; og á
eftir hafði maður á tilfinning-
urtni, að pianóleikarinn gæti
leikið konsertinn tíu sinnum i
viðbót sama kvöldið.
'P'ftir hlé ruslaði Wodiczko af
^ einni Beethoven-sinfóníu.
Ég segi „ruslaðj af“, þvf að
flutningurinn var með ölhi heill-
um horfinn. Ekkj eitt einasta
augnablik var unnt að hrífast
af þessu verki. Óhreinleiki tré-
blásaranna i upphafinu Iíkt og
markaði stefnuna allt til enda.
Þótt enn hafj Beethoven ekki
sprungið út til fulls í þessu
verkj (sbr. Sinfonia Eroica, sem
er nr. 3). þá er hér engu að
síður um Beethoven að ræða.
Beethoven er ekki nafn á
manni, sem dó fyrir 150 árum,
ekkj heldur eitthvert allragagn,
sem hver og einn getur nálgazt
í kjánalegum kumpánahætti.
Beethoven er stofnun Beethov-
en er konungur í ríki andans.
Það sem slikur maður skrifar,
ættu aðrir ekki að snerta í jafn
tilfinningasömum gleypugangi
og fiutningurinn á upphafi
Larghetto-kaflans bar vitni um.
Hvar er virðuleikinn? Hvar virð-
ingin? Hið stórbrotna er aldrei
nákomið. Við klöppum ekki
Bohdan Wodiczko.
Guði á öxlina. En ætli hann sé
ekkj jafngóöur vinur okkar fyr-
ir þvi?
Laust embætti, er
forseti Islands veitir
í
Héraðslæknisembættið í Patreksfjarðarhér-
aði er laust til umsóknar, laun samkvæmt
launakerfi starfsmanna ríkisins og önnur kjör
samkvæmt 6. gr. læknaskipunarlaga nr.
43/1965.
Umsóknarfrestur er til 12. apríl n.k.
Embættið veitist frá 1. maí n.k.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
10. marz 1971.
BORGAR-
bvottahúsið
biður yður að athuga
eftirfarandi:
1. að það er ótrúlega hagkvæmt
að senda i stykkjaþvott
2. að þar er útbreiddur mis-
skilningur að við séum á mófi
því að þvo smábarnaþvott —
sendið fatnaö af smábarninu í
blautþvott eða stykkjaþvott
3. að við tökum á móti þvotti
og fötum til hreinsunar ofi press
unar
4. að við sækjum o% sendum
þvott frá kl. 6 til 10 á kvöldin
alla virka daga
5. að við leggjum mikla áherzlu
á snyrtilegan frágang og að
gera viðskiptavinum okkar til
hæfis
6. MUNIÐ AÐ VIÐ ÞVOUM,
STRAUJUM, PRESSUM, STlF-
UM OG HREINSUM — komið
meö allan þvott og aílan fatnað
til okkar.
Shni 10135
BORGAR-
bvottahúsið
Borgartúni 3
TIL SOLU
byggingarlóð í Arnarnesi
Ein bezta lóðin við Móvanes
er til sölu, upplýsingar í
síma 18700 og 21394