Vísir - 31.03.1971, Side 1
61. árg. — Miðvikudagur 31. marz 1971. — 75. tbl.
Hermdarverkamálið i Kópavogi:
Forsprakkinn sendur í geðrannsókn
RANNSÓKN stendur enn yfir í
máli henndarverkaflokksins, sem
uppvís varð að því að stela sprengi
efni úr birgðageymslum Kópavogs..
Hafa 6 eða 7 piltar verið yfir-
heyrðir vegna áformana um að
nota sprengiefnið til skemmdar-
verka og ráðagerða um að ræna
manni og krefjast fyrir hann iausn
argjalds.
4 piltar um tvítugt voru haföir
í gæzluvarðhaldi seinni hluta síð-
ustu viku — 3 þeirra i fanga-
geymslum lögreglunnar í Reykja-
vík — en þeim var sleppt lausum
um helgina.
íRU FJÓRIR 6CIRFUCL-
AR FALIR ILONDON?
— tveir voru falir i verzlun i London,
jbegar uppbobið fór fram
— Ég sá geirfuglana ívo fyrsta daginn, sem ég
í búðarglugga hjá því
virta sölufyrirtæki
var í London, en það var
á laugardaginn í fyrri
son heildsali, sem kom
heim með þær fréttir nú
um helgina, að tveir geir
fuglar væru falir í Lon-
don og hafa trúlega ver-
ið til sölu meðan upp-
boðið stóð í Sotheby þar
sem íslendingar keyptu
sinn fugl á tæpar tvær
milljónir ísl. — Auk þess
eru til sölu hjá verzlun-
inni 13 geirfuglsegg.
— Ég fór að athuga þetta
betur, vegna fréttar, sem ég
mundi eftir úr Vísi um tvo geir-
fugla, sem sagðir voru til sölil
f London ásamt þrettán eggjum.
Þetta var talin slúðurfrétt. —
Auk þess þótti mér ótrúlegt að
jafnvirt fyrirtæki og Spink &
Sons Ltd. væru með falsaða
fugla, en þetta fyrirtæki selur
ýmsa safngripi, og er ekki sízt
þekkt fyrir myntsölu og hefur
til dæmis flestar orður, sem
gefnar eru út { heiminum til
sölu.
Óðara er ég kom inn í verzl-
unina og það kvisaðist að þarna
væri kominn fslendingur að
spyrja um geirfuglana, átti að
drffa mig inn til forstjórans og
selja mér fuglana. — Ég vildi
að sjáifsögðu efcki láta þau kaup
ganga of langt. Ég ræddi aðeins
við einkaritara forstjórans, en
mér skildist á henni að fyrir-
tækið hefði fjóra fugla undir
höndum eöa eigandi ætti tvo
fugla auk þessara tveggja, sem
þarna væru til sölu. En ég sel
það ekki dýrara en ég keypti
það. — Fuglarnir eru búnir að
vera nokkuð lengi þama til sölu
og sagðj einkaritarinn mér að
því miður væri ekki hægt að
segja neitt ákveðið um verðið,
þar sem eigandinn væri erlend-
is. — En hún reiknaði með að
hann myndj hækka verðið á sfn-
um fuglum upp í sama verð og
Islendingar gáfu fyrir sinn fugl
á uppboðinu í Sotheby.
Verzlun Spink & Sons er á
horni Kings Street og Duke
Street í London. Fuglarnir og
eggin 13, sem þarna eru til sölu
voru í eigu Vivian Hewitts,
kapteins, frá Norður-Wales, en
hann lézt fyrir nokkrum árum
og hafa fuglarnir síðan haldizt
í eigu dánarbúsins.
Fullyrðir forstjóri Spink &
Sons að þetta séu betri eintök,
en þaö sem keypt var hingað til
lands. Hewitt kapteinn mun
hafa keypt þessa fugla á upp-
boði 1924. Keypti hann annan
fuglinn, kvenfugi í sumarskrúða
á 480 gíneur, en hinn, karlfugl í
sumarskrúða, á 500 gíneur.
Fuglar þessir eru skráðir i
náttúrufræðibókum meðai ann-
ars „English Birds“ sem er í
eigu Náttúrufræðistofnunarinn-
ar. Kapteinninn mun hins vegar
hafa verið einrænn maöur og
ekkj hafa haft neitt samband
við safnara eða fuglafræðinga
um eigur sínr.
Spink & Sons hafa haft þessa
fugla undir höndum í nokkur
ár, en ekki sett þá til sölu fyrr
en nýiega, þar sem dánarbú
kapteinsins hafði ekki verið gert
upp.
Þetta kemur að vonum flatt
upp á menn, ekki kannskj sízt
þá, sem gáfu fé til þess að
kaupa til landsins „síðasta geir-
fuglinn i einkaeign" — og 1.
apríl er vn'st ekki fyrr en á
morgun. — J!H
Ýmsar getgátur hafa verið með-
ai fólks, sem almennt hefur veitt
þessu máli mikla athygli, um að
þarna hafi verið að verki pólitískir
ofstækismenn, og þá jafnvel ein-
hverjir þeirra, sem ætlu'ðu að
kveikja í bragga í herstöðinni í
Hvalfirði á sínum tíma. Engir
þeirra, sem þar voru að verki, eiga
hérna hlut að máli.
Vangaveltur eru um, hvort þama
séu á ferðinni einhverjir aðdáend
ur og áhangendur Ohe Guevara,
skæruliðans fræga, sem féll í S-
Ameríku.
Hið rétta í málinu mun vera
það, að um sé aö ræða afbrota-
pilta, og þó einkum einn ungan
mann, sem var aðalhvatamaður
hópsins. Hefur sá allmörg afbrot
að baki sér allt frá unglingsárum.
Hann hefur nú verið látinn ganga
undir geðrannsókn, sem ekki er
lokið, og veidur það drætti á rann
sókninni, meðan málavextir munu
að mestu upplýstir.
Saksó'knara hefur verið sent mál
ið til frekari ákvörðunar, en beðið
er eftir niðurstöðu geðrannsóknar-
innar. — GP
• Dr. Finnur Guðmundsson fuglafræðmgur með geirfuglinn, sem
íslendingar keyptu á 9000 pund hjá Sotheby.
Samningar við Þór-
isós h.f. tókust í nótt
Frumsýiting á
Hárinu á múnudug
— allir velkomnir nema
Ijósmyndarar blaðanna
; Fá 11.60 kr. ofan á timakaup og friar ferðir
0
• Samningar tókust kl. 4 í
morgun milli Þórisóss h.f.
og sérsambandanna innan Al-
þýðusambands Islands, sem fór
með samningana fyrir hönd
starfsmanna Þórisóss. Verkfall-
ið, sem hófst á miðnætti aðfara-
nætur mánudags, er því með
þeim stytztu í verkfallasögu
landsins, — stóð aðeins í rúma
tvo sólarhringa.
Samkvæmt nýgerðum samning-
uiu fá starfsmenn Þórisós 11.60 kr.
ofan á hverja unna stund, jafn-
fyrir dagvinnu sem næturvinnu. —
Auk þess fá þeir fríar ferðir hálfs
mánaöarlega frá og að Þórisvatni
°g leggur fyrirtækiö til bifreiöir
til flutningsins. — Þessi samning-
ur er sambærilegur við samninga
annarra verktaka, sem hafa verk
með höndum inn á ótoyggðum. —
Auk þess, sem að ofan greinir fá
starfsmenn frítt húsnæði og fæði,
en að öðru leyti eru samningamir
ein,s og gildir á almennum vinnu-
markaði í byggð. — VJ
Frumsýning á söngleiknuni HÁR
INU verður n.k. mánudagskvöld í
Glaumbæ. Æfingar hafa gengið
mjög vel og snúaist nú orðið aðeins
um Ijósastiliingar og það, að þjálfa
sviðs- og búningaskiptingar, en
j>að verður að því er leikaramir
álíta einn erfiðasti þátturinn í
flutningnum, þar sem þáttaskil eru
svo tíð í söngleiknum og lítilli tími
fyrir leikarana „að skipta um
ham“.
Stúdentum verður gefinn kost
ur á að sitja aðalæfingu söngleikj
arins annað kvöld, einnig blaða-
mönnum, en Ijósmyndurum strang-
lega baunaður aógangur. —ÞJM