Vísir - 12.05.1971, Page 2
Erich Segal ætlar í felur — e
orðinn þreyttur á frægðinni
1000 bækur á
Þýzka lögreglan fann
fermillimetrum
Glæpahringur stundabi rán, peningafölsun, eifurlyfjasmygl og manndráp
Erich Segal er búinn að fá nóg.
Hann stendur nú á hátindi frægð-
arinnar. Hann á núna metsölu-
bók, sem lengi hefur verið efst
á vinsældalista, kvikmynd, sem
slær Öll met i aðsókn og minnsta
athöfn hans vekur alþjóðlega eft
irtekt.
Nú segir höfundur ,,Love
Story“ að hann sé búinn að fá
meira en nóg af frægðinni og
hann ætli að flytja burt hið bráð
asta.
„Ég ætla í felur“, sagði Segal
I viðtal; við blaðamann, sem
tókst að króa Segal af á skrif-
stofu hans í Yaleúiáskóla, þar
sem hann er prófessor í forn-
um fræðum. „Þegar vormisserinu
lýkur, sting ég af“.
Þessi 34 ára gamli rithöfundur,
sem sumir segja, að hafi haft mik
il áhrif á nútíma hugsun með
hinni einföldu ástarsögu sinni,
segir, að velmegunin hafi haft
slæm áhrif á sig eða að minnsta
kosti lifnaðarháttu sína.
„Það er ótrúlegt, hvað mér
gefst lítið næði til að vera út af
fyrir mig. Ég á ekkert einkalíf
lengur. íbúðin mín er eins og
fiskabúr úr gleri, sem allir geta
horft inn í“.
Honum fannst fyrst kasta tólf
unum, þegar flugfreyjur byrjuðu
Erich Segal: Ætlar að hverfa af sjónarsviðinu að loknu vormissermu.
að lauma til hans húslyklunum
sinum, þegar hann fór út úr flug
vélunum, og hann er búinn að
fá sinn skerf af blaða- og sjón-
varpsmönnum.
„Nú er ég hættur að veita við-
töl. Mig langar til að fara eitt-
hvað út I buskann. til að fást
við fræðistörf“.
Að sjálfsögðu lætur hann ekk-
ert uppi um, hvert ferðinni er
heitið.
„Eitthvert, þangað sem ég gét
verið út af fyrir mig. Vonandi!"
hefur aðeins gerzt í fá skipti til
þessa að peningaprentsmiðjur
hafi fundizt, því að falsarar hafa
yfirleitt þann háttinn á, að eyði-
leggja prentsmiðjumar áður en
þeir koma seðlunum I umferð. —
Þessi varnaglj gerir það að verk-
um, að oft hefur reynzt ákaflega
erfitt að koma upp um peninga-
falsara, og yfirleitt hafa glæpa-
menn getað stundað þá iöju án
þess, að komizt hafi upp um þá.
Þessi peningaprentsmiðja, sem
nú er fundin prentaði 100 marka
seðla, 20 dollara seðla og ferða-
tékka.
Falsaöir ferðatékkar eru á síð
ari árum orðnir allalgengir, og
meðal annars hefur orðið vart við
ferðatékka frá þessari prent-
smiðju I Danmörku, þótt seðla-
tegundirnar tvær < hafi ekki ver
ið 1 umferð þar.
í allflestiun löndum
Evrópu
Það er skoðun lögreglunnar, að
mörg hundruð meðlimir séu I
þessum glæpahring, og enn hefur
ekki unnizt tími til að komast
fyrir um, hversu umfangsmikil
starfsemin er, á þeim stutta tíma,
sem liðinn er síðan innrásin var
gerð í peningaprentsmiðjuna.
Alþjóðalögreglan, Interpol, er
þó þeirrar skoðunar, að einkum
séu meðlimir glæpahringsins frá
Vestur-Þýzkalandi, Frakklandi og
Ítalíu. Lögreglumennimir eru
sömuleiðis sannfærðir um, að
glæpahringurinn hafi starfað'iöll
um eða allflestum löndum
Evrópu.
Deild Interpol f Vlsbaði f Vest-
ur-Þýzkalandi upplýsir, að glaepa-
hringurinn hafi unnið I mjög ná-
iníii samvinnu við glæpafélög I
öðrum Evrópulöndum, einkum
Hollandi og Italíu.
Vestur-þýzka glæpalögreglan
hafði á miðvikudag slegið því
föstu með fullri vissu, að glæpa
hringurinn stæði á bak við eitt
meiriháttar rán I Vestur-Þýzka-
landi, en þaö var framið af glæpa
manni. sem frægur er um allar
jarðir. Honum tókst að flýja lög
regluna, en áður hafði hann kom
ið með flugvél erlendis frá til að
framkvæma ránið og að þvf
loknu yfirgaf hann Vestur-Þýzka
land.
Sérstakri deild vestur-þýzku
lögreglunnar er þabkaö, að kom-
izt skuli hafa upp um bennan
glæpahring, en deildin var stofn
uð fyrir nokkrum árum I þeim til
gangi, að hún fylgdist vandlega
með alþjóðlegri glæpastarfsemi.
Rafeindasmásjáin, sem sést
hér I bakgrunni myndarinnar, er
ekki notuð til að stækka upp
hluti, heldur til að minnka þá,
það er að segja til þess upplýs
ingar taki e.ins lítið rúm og mögu
Jegt er.
Með rafeindasmásjánni er hægt
að pjappa myndum saman, þann-
ig að auðvelt er að koma einni
milijón ljósmynda fyrir á þynnu,
sem væri 5x5 millimetrar að
stærð.
Sömuleiðis er hægt að minnka
bækur allt að þvi óendanlega
mikið. Á 25 fermillimetrum er
hægt að geyma eitt þúsund bæk
ur, sem væru jafnþykkar og
biblían.
Þegar upplýsinganna er þörf
er rafeindasmásjáin notuð við að
stækka myndirnar. Ein slík mynd
sést hér í forgrunninum, en hún
er ein úr því milljón mynda
safni, sem geymt er á 25 fer-
millimetrum.
Síðastliðinn fimmtudag fann
þýzka lögreglan peningaprent-
smiðju sem var I eigu nokkurra
óráðvandra einstaklinga en ekki
stanfrækt I þágu ríkisins. Það var
alþjóðlegur glæpahringur, sem
átti og starfrækti þessa prent-
smiðju. Glæpahringur þessi átti
víða í seli og stundaði margar grein
ar glæpsamlegrar fjáröflunar, —
svo sem peningafölsun, rán,
vopna- og eiturlyfjasmygl og
manndráp.
Glæpahringnum er stjórnað af
frönskum og ítölskum afbrota-
mönnum og hann hefur útibú I
Rómaborg, París, Brussel, Amster
dam og Frankfurt.
Slðan peningaprentsmiðjan
fannst hafa 38 meðlimir glæpa-
samtakanna veriö handteknir, en
gefin hefur verið út handtöku
heimild á 56 manns I viðbót, sem
virðast ekki vera of spenntir fyr
ir að segja lögreglunni frá högum
sínum, því að það er eins og þelr
hafi horfið gersamlega af yfir-
borði jarðar.
Stórfrétt
Sérfræðingar Interpol, eða al-
þjöðalögreglunnar, í peningaföls-
un segja, að fundur peningaprent
smiðjunnar sé stórfrétt frá sjón
armiði lögreglunnar, því að það
peningaprentsmiðju