Vísir - 12.05.1971, Blaðsíða 16

Vísir - 12.05.1971, Blaðsíða 16
Nýja fjofan heim eftir wma viku Ný 119 farþega þota bætist íslenzka flugflotanum líklega á uppstigningardag 20. mai n.k. Það er hin nýkeypta Boeing 727- 100C þota, sem Flugfélag Is- lands hefur fest kaup á, sem þá er væntanleg til Reykjavíkur. Síðan samningar voru undirrit- aðir hefur verið unnið sleituiaust vestur í Dallas í Texas að því að breyta þotunni, ljúka skoðun á henni, og mála hana einkennislit- um Flugfélags Islands. Áhöfn fer utan nú seinni part vikunnar og er meiningin að reynslufljúga henno eftir helgina að sögn Sveins Sæmundssonar, blaða- fulitrúa F.í. Þaðan verður flogið til Middletown á austurströnd Banda- ríkjanna og stólamir teknir um borð ásamt varahlutum. Flugvélin verður með sérstakar hurðir fyrir fragt eins og Gullfaxi. Hún er 3ja ára- gömul og er minna notuð en Gullfaxi, sem hefur verið nýtt mjög vel, er með 9000 tíma, en nýja vélin með aðeins 6000 tíma og er 8 mánuðum yngri en Gull- faxi. Nýja þotan kemur í góðar þarfir hjá F.I., —enda fer í hönd mesta annasumar í sögu félagsins með meira millilandaflugi en áður hefur tíðkazt. Á aðalannatímanum verða ferðir frá íslandi til útlanda fjöl- margar. t.d. er flogið 9 sinnum í viku til Kaupmannahafnar, tvisvar 'i viku til Osló. Að auki eru fjórar ferðir til Lundúna í viku hverri og 5 ferðir til Glasgow. Þá verða tekn- ar upp ferðir til Frankfurt þann 19. júní, — þær verða vikulega á laug- ardögum. Nýju þotunni verður flogið heim af Antoni Axelssyni, einum reynd- asta flugstjóra F.Í., og áhöfn hans. — JBP Tíu ára telpur fyrir bílum Tíu ára telna varð fyrir bíl í Smyrlahrauni í Hafnarfirði kl. 19 í gær. Hún var að leika fyrir framan heimili sitt og hljóp út á götuna, en ökumaður bílsins, sem bar að rétt í bví, kom ekki auga á hana, fyrr en um leið og hún skauzt framundan vörubíl. sem stóð þarna kyrr. — Telpan hlaut höfuðhögg nokkuð þungt og var flutt á slysa- varðstofuna til aðhlynningar, og var síðan lögð inn á sjúkrahúsið. Önnur 10 ára gömul telpa hafði orðið fyrir bíl réttri klukkustundu áður við gatnamót Kringlumýrar- brautar og Sléttuvegar. En hún slapp án alvarlegra meiðsla. — GP Kjarvalssalurinn opnaður í haust — með sýningu á verkum Kjarvals Stefnt er að því að opna Myndlistarhúsið á Miklatúni um miðjan okt. n.k. með sýningu á verkum Kjarvals, en hann verður 86 ára 15. okt., og á þá austurhluti hússins, sem Kjalvalssal urinn er í, að vera búinn. 1 þeim áfanga hússins sem verður fullbúinn í haust verður ennfremur aðstaöa fyrir garð- yrkju Reykjavíkurborgar, þær deildir sem annast rekstur garðsins, en gengið verður frá eldhúsi og veitingasal seinna. Samkvæmt upplýsingum Páls L'indals borgarlögmanns verður Kjarvalssalurinn hafður undir verk Kjarvals, en einnig sýnd þar önnur listaverk í eigu borg- arinnar, eftir því sem þurfa þykir. 1 sumar verður unnið að því að koma landslagi í kringum húsið í rétt horf og þar verða m. a. settar upp höggmyndir, ein eftir Jóhann Eyfells, sem veröur komið fyrir nálægt hús- inu við sömu hliðargötu og styttan af Einari Benediktssyni stendur við. Þótt Kjarvalssalurinn hafi ekki verið opnaður formlega hafa sýningar verið þar — islenzk myndlistarsýning á Listahátíð- inni I fyrra og næstu daga munu nemendur Myndlista- og líand- íðaskólans hafa þar nemenda- sýningu s'ina. Fyrir skömmu var skipuð hús- stjóm og eiga í henni sæti Ól- afur B. Thors og Jón Amþórs- son skipaður af borgarráði og Páll Líndal skipaður af borgar- stjóra. Eftir er að ráða fram- kvæmdastjóra hússins og sýn- ingarráð, sem mun annast mynd iistarsal, sem mun koma vest- ur af húsinu og taka við af gamla Listamannaskálanum. Hefur verið leitað til Bandalags íslenzkra listamanna um til- nefningu manna í það ráð. — SB '/ d l Hádegis- umferð? Nei! Þetta er ekki hádegis- umferðin í Bankastræti og þetta er ekki heldur frá útisýningu myndlistarmanna á Skólavörðu- holti. Þessir bílar hvíla í friði og spekt í bílakirkjugarði Vöku við Elliðaárvog. Hjalti Stefánsson, forstjóri Vöku, tjáði blaðinu, að í kirkjugarðinum vær i um 50 bVlhræ, en nú ætti senn hvaö líður að taka góða rispu við aö hreinsa til og henda því, sem ónýtt er. „Og það er reyndar allt handónýtt," sagði Hjalti, „bless- aður láttu það koma fram. Það er stundum ekki vinnufriður fyrir þessum fuglum, sem eru að snuðra þarna í von um að finna eitthvað, sem þá vantar.“ Hjalti sagði. að ekki borgaði sig aö flytja hræin út I brota- járnsbræðslu. „Brotajárnsprís- arnir eru láair núna og þá er ekki að tala um, að það borgi sig.“ Aftur á mót: Hia'ti hlynnt ur því, að hér -rði komið upp innlendr; málmbræðslu hið bráðasta. ,,En það. má þá ekki verða einhver helv ... einokun, bannig að bannnö verð! að flytja út brota'árn." sagöi Hjalti. „Enda vnrður það ekki svoleiðis. Maður á alltaf að vera bjart- sýnn." — ÞB „Vildum ekki borgarfulltrúann í briðja sætið" — „viljum dreifa valdinu" segir Bjarni Gubnason um skoðanamuninn i Samtökum frjálslyndra „Skoðanamunurinn í Samtök- um frjálslyndra var ekki um það hvort Hannibal Valdimarsson ætti að skipa fyrsta sætið, enda hafði hann fengið flest atkvæði í skoðanakönnun í félaginu og verið samþykktur einróma á fé- lagsfundi. Skoðanamunur kom upp, þegar Haraldur Henrýsson, sem verið hafði samþykktur í 3. sætið, varð við þeirri beiðni að skipa 1. sæti á lista flokksins í Vesturlandskjör- dæmi. Listinn hafði áður verið 'þannig: 1. Hannibal Valdimarsson, 2. Bjami Guðnason, 3. Haraldur Henrýsson, 4. Inga Birna Jónsdótt ir, 5. Steinunn Finnbogadóttir. — Sumir lögðu þá mikla áherzlu á, að Steinunn Finnbogadóttir skyldi flytjast upp í 3. sætið, upp fyrir Ingu Birnu. Þessi skoðun naut ekki meirihluta fylgis, þar sem stefnuskráratriöi Samtaka frjáls- lyndra er að dreifa ábyrgðinni á sem flesta einstaklinga. Við töld- um ekki rétt. að Steinunn, sem er borgarfulltrúi, tæki einnig sæti svo ofarlega í þingkosningum. En ég vil taka skýrt fram að samtökin telja, að hún hafj staðið sig með mikl- um ágætum í borgarstjóm. Þetta sagöi Bjarnj Guðnason pró fessor, þegar Vísir bað hann skýra frá því, sem raunverulega hafði gerzt í Samtökum frjálslyndra. — „Nú bættist við“, segir Bjami, ,,að Hannibal hafði alltaf haftmikla löngun til að fara í framboð á Vest fjörðum og fengið áskor- anir þaðan um þaö. Hann átti sjálf ur frumkvæðið að því að fara vest ur. Engu að síður leiddj þetta til ó- ánægju ýmissa aðila, og sumir, sem áður höfðu verið á listanum, kusu að vikja af honum af per- sónulegum ástæðum. „Bjami segir að nokkrir hafi farið af listanum aí þessum sökum, en lýst því yfir, að þeir muni styðja flokkinn i kosn ingunum. Magnús Torfj Ólafsson hafi síðan tekið 1. sætið og verið samþykktur einróma á um 100 manna fundi. bls. 10. Flðabit á Reykvíkingum Undanfarið hefur nokkuð borið á því, að fólk hafi leitað til húð- læknis út af óeðHlegum kláða, og þá hefur stundum komið á daginn, að það séu flær, sem kláðanum valda. Að sögn Braga Ólafssonar að- stoðarborgarlæknis er vitað um töluverð mörg dænii þess, að flær hafi komizt inn í híl ' fölks, þar sem starrar hafa gert sér hreiður i loftrásum eða hitarásum húsa eða bá i veggjagöngum. Starrinn ber á sér óværuna, sem síðan leitar inn í húsakynni fólks og getur verið erfið við að eiga. Bragj Ólafsson, aðstoðarborgar- iæknir sagði að helzt væri gríp- andi til þess ráðs, að hreinsa burtu starrahreiður, þar sem þau sjást á fyrrnefndum stöðum eða undir þakskeggi húsa, og koma síðan fyrir þéttriönu vírneti til að fyrir- byggja að fuglinn getj leitað aftur á sama stað, og sömuleiðis er nauð- synlegt að úða með eitri bæði hreiðurstaöinn og húsakynnin, þar sem óværunnar hefur orðið vart. — ÞB

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.