Vísir - 18.05.1971, Side 1

Vísir - 18.05.1971, Side 1
VISIR ffiU árg. — Þriajudagar B8. maí 1971. — 110. tbl. , « Síðasti vorskólinn „Neeei, við borðum ekki börn. Bara dýr. Ekki hunda og ketti. Bara hesta... og svo líka kind- ur, en ekki Ijón“. Vangaveltur af þessu taginu bárust blaða- manni Vísis til eyma, er hann leit við í vorskðla Kársnesskól- ans í Kópavogi. Síðasta vor- skólans, sem þar verður starf- ræktur, en vorskólanámskeið 6 ára bama leggjast niður um leið og 6 ára bekkimir hefja innreið sína. Næsta haust taka barnaskólarn- ir í Kópavogi í fyrsta sinn til við 6 ára bekkina. Þær bekkjardeildir tóku til starfa í fyrrahaust í bama skólunum !i Reykjavík og í Garða- hreppi, en Seltimingar voru fyrst ir til. — I Hafnarfrrði hafa barna- skólamir aldrei staðið fyrir vor- skólum 6 ára barna, en fyrstu 6 ára bekkina fá þeir til náms næsta haust Það eru um fimmtíu börn, sem vorskóla Kársnesskólans stundaog er þeim skipt niður í tvo bekki. í þeim bekknum, sem gullkornin um mataræði manna komu frá var kennslukonan að sýna nemendun- um skuggamyndir úr sögunni um Hans og Grétu. í hinum bekkn.um voru nemend- umir hins vegar önnum kafnir við að raða saman misiöngum pinnum og móta þannig stafi ellegar hús, dýr eða tré. „Vorskólabörnin dunda sér svona við ýmislegt þá níu skóladaga, sem þau ern hér og á þeim niu dögum er kennurum þeirra ætlað það hlutverk að kanna skólaþroska hvers barns fyrir sig til aö auð- veldara verði að skipa þeim í bekki næsta vetur," sagði okkar sköla- mundsIson!neSSk0lanS’ en» þríburar og heita Nanna, Óia og Agnes Nilsen. Þær eru hér við nám í vorskóla Kársnes- / skólans í Kópavogi, síðasta vorskólans á Stór-Reykjavíkursvæðhm. Brunarústir, naglaspýtur, bréfarusl og brotajárn — ömurleg umgengni víðcr i hofuðborginni — blaðamaður Visis heimsækir ýmsa „ófriðustu" blefti borgarinnar £ Brunarústir, nagia- spýtur, brotajám, sorp, bílflök — í stuttw máli alls konar drasl liggur víðs vegar um Reykjavíkurborg og stór spillir útliti bennar. Sums staðar liggja himinháir haugar af rusM á failegustu blett um borgarinnar. Allmargar ný- legar byggingar eru umkringdar spýtnábraki, sem myndar vig- girðingu timhverfis þær, og ryðgaðir naglar standa út úr þessum hrúgum, sem aö sjálf- sögðu eru eftirsóttir leikstaðir barna, sem eru fíkin í að pri'la og leita eftir einhverju brúk- legu í öbu draslinu. Hreinsunardeild borgarverk- fræðings gaf lóöaeigendum í Reykjavík frest tij 15. mai til að hreinsa tSI á lóðimi síaum. Margir notfærðu sér þennan frest, enda er umgengnin í Reykjavík váða til fyrirmyndar, en nokkrir hafa skellt skolla- eyrum viö ölium beiðnum um að þrífa til á stnum yfirráða- svæðum, sem ekki einasta eru til mikilla óprýöi heldur geta einnig verið bæö óþrifaleg og hættuleg. Ef menn þverskallast við því að hreinsa til á lóöum sínum getur hreinsunardeild borgar- verkfræðings sent menn á vett- vang til að þrífa burt hið hjartfólgna drasl á kostnað eig andans. Þó er ekki gripið tii þess úrræðis fyrr en fullreynt þykir, að viðkomandi timi alls ekki að sjá á bak skrani þvi', sem venjulegu fóiki þætti bezt niðurkomið einhvers staðar úti í hafsauga. Blaðamaöur og ljösmynd&ri frá Vísi fóra í gær í skoðunar ferð um Reykjavík. Ekki þó í skoðunarferð á þá staði, sem gestum er til borgarinnar koma eru sýndir með mestn stoíti, heldur á þá staði, sem borgar- búar hafa helzt ástæðn tfl að skammast sín fyrir. Um þessa ferð ta'a myndimar, hvað skýr- ustu máli. 1 dag birtist að visia aðeins ein, en það er af nógn að taka — þvi' miður. —ÖB Næstu daga bregðwn við upp myndum frá ýmsum sföðum fxrr sem umhvertismengnn a ser sktð .Állt var glatað — og ég beið bara þess, sem verða vildiu — segir pUturinn, sem bjargað var frá drukknun Strákarnir á myndinni eru prílandi á spýtnabraki fyrir utan Menntaskólann í Hamrahlíð. Ryðgaðir naglar standa út úr spýt- unum, svo að stórhættulegt er að vera þarna á stjákli. Slíkur frágangur er því miður ekki mjög óalgengur á lóðum við ný- byggingar, en ólíklegt er að þetta umhverfi hafi mjög þroskandi áhrif á feguröarskyn nemenda Menntaskólans við Ilamrahlíð. „Ég hélt, að allt væri búið — beit bara á jaxlinn og beið þess óumflýjanlega. Vonleysið breytt ist í kæruleysi og mér var næst- um farið að líða bara vel... En þá heyrði ég mannsraddir og vonin vaknaði á ný“, sagði Bald- ur Ómar Friðriksson, 17 ára gamli ökumaðurinn, sem lokað- ist inni í bílnum er hvolfdi í Kópavogslækinn í fyrrakvöld. „Hve feginn ég varð, þegar ég heyrði raddirnar segja: „Allir sam taka nú.“ — Það er ekkert vafa- mál, að þessir menn björguðu lífi mínu. Snarræði þeirra á ég fjör mitt að iaúna,“ sagöi Baldur, sem slapp ómeiddur frá óhappinu að öðru leyti en því, að hann hlaut skurð á hanlegg, sem sauma þurfti nokkur spor í. „Ég er eiginlega hálf hissa á því, hversu vel ég hef sloppið frá þessu á allan hátt. Nú kem- ur mér bara í hug, hvað það var sóðalegt niðri í iæknum, og mig langar lítið til þess að baöa mig í þeim drullupolli aftur!“ — Jú, ég man hvert smáatriði. Hvernig bíllinn fylltist strax af sjó eða vatni, vegna þess að fram rúðan brotnaði, þegar bíllinn rakst á stein á leiðinni út af. Hvemig ég hamaðist á rúðunum til að reyna að komast — árangurs- laust! Hve þröngt var i bíinum, eftir að þakið dældaðist niður Og hvernig skíöi, sem í bílnum voru, bvældust fyrir mér. Og loks, þegar ég neyddist til að viðurkenna fyrir sjálfum mér algera uppgjör. Allt var glatað. „Mannstu hvernig það vildi til, að b'illinn fór út af?“ „Þegar ég var í beygjunni, var blliinn nokkuð innarlega á braut- inni og ég þurfti að víkja fyrir strætisvagni. Þá lenti afturhjöl bíls ins út í lausamöl og líklega hef ég sveigt bílnum of snöggt inn á veginn aftur. — Nema, þegar ég fann að ég stefndi beint á brúar- stólpann, og bíllinn leitaði út af, þá valdi ég heldur þann kostinn að beygia út 'i lækinn,“ sagði Bald- ur. —GP Vertíð sem aldrei hættir Sjá bls. 9 og 16

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.