Vísir - 18.05.1971, Page 2
r
með
sérstæðan
lúður
Robert Scott yngri, sem er 12
ára gamall, er ungur maöur með
fágsetan grip í eigu sinni. Ro-
bert, sem Hefur haft áhuga á
lúðrabláestri slðán hann var níu
ára gamall, hefur hingað til spil
að á hljóðfæri, sem hann hefur
fengið að láni hjá Lingelbach-
barnaskólanum í Fíladelfíu, en nú
er hann svo lahgt kominn í námi
að það háir honum að hafa ekki
hUóðfaprið hjá sér allan daginn til
að geta æft sig á það, því að
nemendur f Lingelbachskólanum
þurfa að skiptast á um hljóð-
færin.
Foreldrar hans eru svo fátæk-
ir, að þeir hafa ekki efni á að
kaupa almennilegt hljóðfæri
handa Robert, svo að þeir höfðu
samband við dagblað eitt í heima
borg sinni og tjáðu því vandræði
sin með þeim óvæntu og gleði-
legu afleiðingum, að Louis Arm
strong, sem líka spilar á lúður,
ákvað að gefa þesspm áhugasarna,
starfsbróður sínum hljóðfæri,
sem hann gæti æft sig á og notað
á hljómleikum.
Satchmo mundi nefnilega eftir
atviki úr æsku sinni, þegar hann
var sendur með kornet til King
Olivers, og hljóðfærið var áritað
nafni þessa jasskóngs þeirra
tím'a.
Auðvitað varð Robert Scott
litli ákaflega glaður, þegar hann
fékk þessa gjöf í hendurnar, og
hann var ekk; seinn á sér að
byrja að blása uppáhaldslagið
„Fandango".
„Jú, það er sæmilegt hljóö í
því,“ segir hann um homið.
Þetta er Cleo. Hún er ekki nema
9 mánaða, en hefur samt tileinkað
sér sitthvaö af góðum siðum sannr
ar prinsessu. Hún á heima í Lon-
don, og eigandi hennar er Jack
nokkur Hutchinson. Segir Huchin-
son, að enn hafi Cleo ekki tamið
sér aö tala, þánnig að allir skilji,
en hann sjálfur skilur hana mæta-
vel: Þetta er uppáhalds stelling
hennar, þegar henni mislíkar, seg
ir Hutchinson, þá situr hún svona
og starir á mig, þangað til ég færi
henni kampavín í víðu glasi.
m
/
Hans Tolstrup í hraðbáti, hliðstæðum þeim, er hann ætlar á umhverfis jörðina í sumar. Fyrsti
áfanginn á leiðinni verður Island.
i I hraðbát um-
hverfis jörðu
Hann ætlar að sigla umhverfis
jörðina á 20 feta löngum hrað-
báti. Hann heitir Hans Tolstrup,
26 ára gamal] og er sonur dansks
kvikmyndahússeiganda. Hann er
ekki með öllu óreyndur í
sjómennsku, því að í fyrra-
sumar sigldi hann fyrstur manna
hraðbát kringum Ástralíu.
Hans Tolstrup ætlar að leggja
upp í hringferð um heiminn á
miðju sumri, Mun hann sigla frá
Danmörku til íslands, þaðan til
Grænlands. Síðan fer hann til
Kanada, suður með Ameríku,
gegnum Panamaskurðinn, norður
til Alaska og til Rússlands. Frá
Rússlandi til Japans og heim
gegnum Súezskurðinn sem eklci
er lokaður smábátum.
Toistrup segir að hann sé
vissulega búinn að mæta erfið-
leikum. Hann hafi oft siglt mót
og inn í 17—20 m háar úthafs-
öldur og þær fyllt bát sinn, en
ævinlega hafj hann hrist löörið
af sér og skriðið í gegn: „Versti
hluti leiðarinnar og lengstir á-
fangar verða frá íslandi til Græn
lands og frá Grænlandi til Kana
da,“ segir Tolstrup, þar er
nefnilega rekís á siglingaleið-
inni og þar hvessir oft illa. Ef
ég verð hepninn, verð ég ekki
nema í 40 tima að sigla hvorn
áfanga, en ef illa fer, getur hvor
áfangi tekið mig margar vikur.
Jafnvel smávægilegur blastur
miðað við það sem getur orðið
þarna, getur orsal<aö eldsneytis-
þurrð hiá mér. Þá verð ég aö
láta mig reka fyrir straumum.“
/