Vísir - 18.05.1971, Síða 3

Vísir - 18.05.1971, Síða 3
VlSIR . Þriðjudagur 18. maí 1971. í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND f MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Umsjón: Gunnar Gunnarsson Engu er líkara en Rogers, utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafi sáð sæði ósættis í Egyptalandi er hann var þar á ferð fyrir nokkr- um dögum. Rétt fyrir komu hans rak Sadat burtu Sabry, vara- forseta landsins, og varla var Rogers burtu floginn, en Sadat rak eina 7 ráðherra úr stjórn landsins, barði niðúr upphlaup, tók að sér yfirstjóm lögreglu og pólitísks flokks! Sadat stórtækur: Hefur rekið burtu alla andstæðinga Sadat egyptski lætur nú skammt stórra högga á milli: Á mánudag lýstt hann sjálfan sig yfirmann allrar Iögreglu í landinu. Hafði Sadat þá áður dundað sér við það á 10 dögum að reka úr stjórninni 7 ráðherra vinstri sinnaðra. í gær kom Sadat á nýrri yfir- stjóm Hins sósíalíska arabíska bandalags, þ. e. til bráðabirgða, en Sósíalíska sambandið er eini leyfði stjórnmálaflokkurinn í Egyptalandi, flokkur Nassers og nú Sadats. Bráðabyrgðastjórn flokksins er nú ákaflega einföld í sniðum, enda hef ur Sadat rekið aila fyrrverandi stjórnarmenn flokksins út í hafs- auga. Núna stjórna flokknum 9 menn og er varaforsætisráðherra landsins, dr. Aziz Sidky aðalritari en einnig eru 3 ráðherrar, sem Sad- ad enn þolir nærri sér að hafa í miðstjórninni. 28. S% launahœkkun — sænskir sömdu um helgina 350.000 bæjarstarfsmenn í Sví- þjóð eru nú aftur farnir að sækja vinnu eftir langvarandi verkfall. Var samið við þá um 28,5% Iauna- hækkun, sem kemur til fram- kvæmda á 3 árum, en að 3 árum Látum trén í friði — borgaryfirvöld létu undan Þegar borgaryfirvöld í Stokk- hóltni ákváðu að láta höggva niður öll álmtrén í kóngsgarðinum reis upp hörð mótmælaalda, en fyr- ir henni stóöu aðailega unglingar. Fjölmenntu ungmenni tii móts við skógarhöggsmenn og lögreglu, þegar höggva átti trén og létu dynja á þeim grjóthríð. Sá lögreglan þá ekki annaö ráð vænna en koma sér í skjól og í morgun gaf borgarstjórn- in út tilskipun um að engin álmtré skýldu höggvin upp f bráð, allar r. ðgerðir látnar bíða fram á haust. Mótmælaaðgerðir gegn niður- skurði trjánna voru sérlega rót- tækar. Meðal annars tóku 3 piltar sig til að sváfu í trjákrónum alla s. 1. nótt, ætluðu ekki að láta skógarhöggsmenn komast upp með r.ð höggva trén í skjóli nætur. liðnum er samningur þessi upp- segjanlegur. Fyrsta árið, þ. e. nú strax fá starfsmennirnir 12% hækkun, 1972 fá þeir til viðbótar 10,5% og 6% 1973. Þessar launahækkanir þýða geysi iega útgjaldaaukningu fyrir bæjar- og sveitarsjóði í Svíþjóð, en hvert einasta prósent sem launin hækka^ um, merkja alls 90 miljónir króna úr sjóðum samtals.Þessi launahækk un merkir þvf, að bæjarfélögin verða að bæta á sig útgjöidum sem svara 1 milljarði sænskra króna. Víetnamstríði ai Ijúka ': 7^ — bandariskir eygja nú þann dag er þeir verða allir komnir heim úr striði Einhver þau áhrifarík- ustu mótmæli gegn stríð- inu í Víetnam fóru fram fyrir helgina í Washington D. C., er meira en 200.000 manns þrömmuðu fyrir hvíta húsið þar í borg með mótmælaspjöld. Var það markmið þeirra er að göng unnu stóðu, að skapa einu sinni ærlega umferðar- hnúta í þeirri miklu borg, Washington, þannig að enginm kæmist hjá því að taka eftir því að til er fólk í heiminum sem ekki vill stríð. Og í broddi nefndrar 200.000 manna göngu fóru fyrrverandi Víetnamkapp- ar með medalíur og orður framan á sér, en gjarnan akandi í hjólastólum, hand leggja eða fótalausir. Lögreglan sá ekkert ráð betra að beita gegn mótmælendum en að þoka mest allri hersingunni inn á íþróttavöll og þar var fólkið látið dúsa í 18 klukkustundir upp á vatn og brauð. Ekki skal það fullyrt hér, hvort það var vegna þessara mótmæla aðgerða að !i gær sagði James Res- or, ritari í vamarmálaráðuneytinu bandaríska, að 70% allra hermanna í Víetnam kæmu ekkert nálægt bardögum í Víetnam-stríðinu og myndi ekki koma nærri „loka- bardögum“. Resor þessi er nýlega kominn heim frá skoöunarferð um S-Víet- nam, en hann gat ekki nefnt mönn- um þann dag, er allir bandariskir hermenn verða í brottu frá Indó- kína, en hann sagði að herinn í S-Víetnam, þ. e. her sá er inn- lendir menn kosta, myndi í sumgr taka allt frumkvæði í stríðsmálurh eystra í sínar hendur. „Stærsta fangelsi í heimi“ sögðu sumir — og létu það gott heita þótt lögreglan héldi þeim innilokuðum á fótboltavelli í 18 klukkustundir. Menn sveipuðu sig teppum og reyndu að sofna. Ræningja leitað í Tyrklandi — rikisstjórnin hótar að drepa alla mannræningja i framtiðinni í Istanbul gengur nú lög- regla og her berserksgang við að leita að mönnunum 5, sem rændu hinum sex- tuga konsúl, Ephram Elr- om úr herbergi hans í Ist- anbul. Lögreglan hefur sett upp hindranir á alla helztu vegi út úr borginni, og fær eng- inn maður að hreyfa sig að marki um borgina, nema hann sé tilbúinn að sýna lögreglumönnum vegabréf. Fimm klukkustundum eftir að Elrom hafði veriö rænt, var send út tilkynning gegnum tyrknesku sfmastöðina og var sú tilkynning um að ísraelski konsúllinn yrði skotinn til bana, væru ekki allir þeir tvrkneskir skæruliðar sem fangelsaðir hafa verið, látnir lausir fyrir klukkan 17 á fimmtudaginn kemur (fsl. tfmi). Tilkynning þessi var undirrituð af „miðstjórn Frelsishers tyrknesku þjóðarinnar" Þessi Frelsisher er vinstrisinnað baráttuafl og hefur áður tekið að sér að koma úfclend- ing-um í hann krappann þar í Tyrk- landi meðal annars fimm banda- rískum flóttamönnum í Tyrklandi. Þessir flóttamenn voru seinna meir látnir lausir án þess að þeim væri nokkuð gert. Tyrkneska stjórnin sat í fimm klukkustundir og ræddi hvað gera skyldi í máli þessu í gærkvöldi. Var síðan ákveðið að herða mjög á löigregluaðgerðum og lög'leiða síðan dauöarefsingu sem beifet skyldi gegn öllum þeim, sem nema óvið- komandi persónur f brottu. V-ÞYZKIR HEIM- SÆKJARÚMENÍU Heinemann. Gustav Heinemann, forseti Vest- ur-Þýzkalands er nú kominn til Rúmeníu í opinbera heimsókn. Þvk- ir það til tíðinda teljast að vestur- þýzkur ráðamaður fari þangað aust ur fyrir járntjald, hefur ekki einn einasti v-þýzkur ráðamaður farið f heimsókn þangað síðan það merki- lega jámtjald var reist. Voru móttökurnar á flugvellin- um í Búkarest mjög svo hjartan- legar þúsundirmannakomu til móts við þýzka forsetann og fögnuðu honum með lúðraþyt, ópurn og söng. Á mánudaginn spjallaði Heine- mann við Ceausescu um pólitík, en talsmaður vestur-þýzku stjórnar- innar, Conrad Ah'ler vildi ekkert segja fréttamönnum um hvað þeir hefðu rætt, enda er ekki enn að því komið að þeir Heinemann og Ceausescu ræði saman formlega, en það ætla þeir að gera seinni partinn í dag. Vestur-þýzki utanrfkisráðherr- ann, Walter Scheel, kom svo til Búkarest í gær með konu sinni, en hann náði því ekki að verða sam- ferða Heinemann í flugvélinni aust- ur, þar sem hann lenti f umferðar- slysi í Bonn rétt í því hann ók af stað á flugvöllinn. aÞu utanríkis- ráðherrahjón sluppu úr þeim á- rekstri með skrámur. en bílstjóri bifreiðar þeirra sem'þau óku á, lét lífið. Þeir Heinemann og Scheel verða í Rúmcníu fram á fimmtudag. Ceausescu.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.