Vísir - 18.05.1971, Page 5

Vísir - 18.05.1971, Page 5
V'TSIR •djudagur 18. maí 1971. ísland og Noregur leika lands- Ieik í knattspymu annan miðviku- dag, hinn 26. maí og verður leik urinn á velli knattspyrnufélagsins Brann í Bergen. íslenzka landslið ið heldur til Noregs 24. maí, en kemur heim aftur hinn 27. maí. í förinni veröa 20 menn. fimm- tán leiktnenn- og fimm manna farar stjóm. Aðalfararstjóri verður Al- bert Guðmundsson, form. KSÍ, en aðrir Hörður Felixsson, Jön Magn- ússon, úr stjóm KSÍ, Hafsteinn Guðmundsson. iandsliðseinvaldur og Ríkharður Jónsson, landsliðs- þjálfari. Hafsteinn hefur valiö þá 15 leikmenn, sem fara til Noregs og er veigamesta breyting á liðinu frá landsleiknum v,ið Frakkland á dög unum, að Hermann Gunnarsson, Val, bætist í hópinn — en tveir hverfa úr honum að sinni, Baldvin Baldvinsson, KR, og Sigurbergur Sigsteinsson, Fram. Þessir ieik- menn voru valdir í Noregsförina. Markverðir: Þorbergur Atlason, Fram, og Magnús Guðmundsson, KR. Varnarmenn: Jóhannes Atlason, Fram, Guðni Kjartansson, Keflavík, Einar Gunnarsson, Keflav’ik, Þröst- ur Stefánsson, Akranes og Róbert Eyjólfsson, Val. Framverðir: Eyleifur Hafsteins- son, Akranes, Haraldur Sturlaugs- son, Akranes, Jóhannes Eövalds- Eins og kunnugt er var landsleikurinn við Frakkland liður í undankeppni Ólympíuleikanna í Miinchen næsta ár. Á myndinni sjáum við Albert Guðmundsson, formann KSÍ, kynna leikmenn fyrir Birgi Kjaran, formanni íslenzku Ólympíunefndarinnar. Birgir er að taka í höndina á Jó- hannesi Atlasyni, fyrirliða íslenzka landsliðsins. Aðrir á myndinni eru nýliðarnir Jóhannes Eð- valdsson og Ingi Björn Albertsson, en þessir þrír ieikmenn taka þátt í Noregsferðinni. Lengst til vinstri er norska dómaratríóið — dómarinn i miðjunni, kom í veg fyrir sigur Islands í leikn- um við Frakka, þegar hann dæmdi gott mark Eyleifs af. Stíllir Noregur upp utvinnu • • monnunt stnum gegn — landsleikur i Bergen miðvikudaginn 26. mai |son- Val Ins> Bi°rn Aibertsson, Val og Asgeir Eliasson, Fram. son, Val og Guðgeir Leifsson, Vík-1 Framherjar: Matthías Hallgríms Landsliðið veröur endanlega val- ing. son, Akranes, Hermann Gunnars-1 ið, þegar til Noregs kemur. Island - I * » r *r-> Spjallað og spáb um getraunir: Leikir úr Islandsmótinu næsta seðli! Á næsta getraunaseðli hinum næst síðasta í vor, verða fjórir Ieikir úr íslandsmótinu, sex leikir úr 1. deild í Danmörku, og tveir landsleikir úr brezku képpninni. Þessir leikir verða háðir 22. og 23. maí. Danska keppnin skipar þarna þvi veigamikinn sess og staðan þar eftir leikina á sunnudag er þannig: Hvidovre 7 4 2 1 18—10 10 Vejle 7 4 2 1 21—15 10 Randers 7 4 2 1 14—9 10 Frem 7 4 12 14—12 9 K.B. 7 4 12 16—17 9 B 1901 6 2 3 1 16—11 7 B 1909 7 2 3 2 13—10 7 Brönshöj 7 3 0 4 11—15 6 Köge 7 3 0 4 11—16 6 B 1903 6 1 2 3 9—11 4 A. B. 7 115 10—15 3 Álaborg 7 0 1 6 7—19 1 Og þú skulum viö líta nánar á einstaka leiki: írland—Wales x Leikiö verður í Belfast og þar hafa þessi landslið yfirleitt gert jafn- tefli. Þetta er þó erfiður leikur, því bæði liðin sýndu ágæta leiki í brezku keppninni sl. laugardag. I England—Skotland I Sagt er, að Skotar sjái rautt, þegar WJt mm/4 AlSL’löfrt er þó, að enska liðiö fari að tapa nú á Wembley í Lundúnum. Ensk ir hafa yfirleitt unnið skozka und- anfarin ár þar og ættu að gera slíkt hiö sama nú. l.B.V.—Valur 2 Vestmannaeyingar komast yfirleitt seint í gang t. d. léku þeir fyrsta leikinn á íslandsmótinu í fyrravor við Val á heimavelli og töpuðu. Og sennilega er Valsliðið sterkara nú en þá enda Hermann Gunnarsson byrjaður að leika aftur með liðinu. KR—Í.B.A. x Hið unga lið KR leikur þarna við Akureyringa, sem lítið hafa sést í keppnj í vor, Jafnteflislegur leik ur — en þarna getur þó allt skeð og bezt væri að heiltryggja leik- inn með þremur seðlum. Fram Breiðablik 1 Sigurganga Fram hefur veriö óslit in í vor, og sennilegt, að nýliðarnir i 1. dei'd, Breiðablik, fái eins og önnur lið í vor að kenna á hörku Framara. Í.B.K.—f.A. 1 Keflvíkingar sigruðu Akurnesinga tvívegis i vor á meistarakenpni KSÍ og virðast sigurstranglegri I hessum leik. Frem—Brönshöj 1 Þá er það danska keppnin og fyrst innbyrðis leikur tveggja Kaup- mannahafnarliða. Frem ætti að sigra í þeirri viðureign. B 1909—Vejle x Tvö góð lið þótt Óóinsvéa-liðinu B 1909 hafi gengið heldur illa að undanförnu, eftir nær óslitna sig- urgöngu. Jafnteflislegur leikur. Köge—Hvidovre 2 Tvö sjálenzk lið og Hvidovre í efsta sæti. Köge tapaði illa fyrir AB heima sl. sunnudag og allar líkur, að Hvidovre hljóti þarna bæði stigin. Álaborg—B 1903 x Þessum liðum hefur gengið illa 1 vor, og hefur það komið talsvert á óvart, einkum hvað B 1903 snert ir en liðið sigraði i keppninni í fyrra. Þetta er erfiður leikur — jafntef'.i kannski líklegast. B 1901—A.B. 1 B 1901- er gott Iið á heimavelli og ætti þarna að ná sigri — þrátt fyrir hinn góða sigur AB á sunnu dag. K. B.—Randers 1 Randers eru nýliöar í 1. deild og hafa komið skemmtilega á óvart. En allar líkur eru þó á því, að KB sigri i þessum leik, sem háður verð ur á Idretsparken í Kaupmanna- i höfn. —rhs'im. OIUfHHJId MJ H'á'iVi og Noregur léku landsleik í fyrra- sumar á Laugardalsvellinum og sigraði íslenzka liðið með 2—0. Margir þeirra leikmanna, sem þá kepptu, eru nú í landsliðshópnum. Norðmenn buðu til þessa leiks eft- ir tapið hér heima og hefur frétzt, að þeir muni jafnvel nota eitthvað af leikmönnum, sem eru atvinnu- menn í knattspyrnu, en Norðmenn munu eiga fjóra til fimm sli'ka. Sést af því, að þeir leggja mikla áherzlu á að hefna ófaranna í fyrra — en ólíklegt, að íslenzku leikmennirnir verði á þeim buxun- um að tapa fyrir frændum okkar. Sigurmöguleikar íslands ættu að vera nákvæmlega hinir sömu og í fyrra. Heimsmet í kringlu- kasti Bandaríski kringlukastarinn Jay Silvester vann það afrek i gær á móti f Los Angeles 1 Kaliforníu, að kasta kringlu yfif 70 metra — eða nákvæmlega 70.38 metra og er fyrsti mað- urinn, sem það afrek vinnur. Hann átti sjálfur fyrra heims- meti í greininni — 68.71 metra. Á öðru móti í Banda- ríkjunum í gær var geysileg keppni í m'iluhlaupi milli Liqu- erj og heimsmethafans í hlaup- inu, Jim Ryan Báðir fengu sama tíma 3:54.6 mín., en Ryan var sjónarmun á eftir í mark. Þetta er rúmum þremur sek. lak . ari tími en heimsmet hans, en | hins vegar beztj tími, sem Liqu i erj hefur náð á vegalengdinni. Real Madrid — Chelsea á morgun Á morgun fer fram úrslitaleik urinn í Evrópukeppni bikarhafa milli hins fræga liðs Real Mad- rid, sem tekur nú þátt V þessari keppnj í fyrsta skipti og er kom ið í úrslit, og ensku bikarmeist- aranna frá í fyrrá^ thelSea. Leik 'úfi'nn tférður hðátúi í Aþenu og er mikill áhugi á honum meðal almennings þar. Lið Real Mad- rid hefur enn ekki verið gefið upp, en hins vegar hefur Chel- sea tilkynnt liðsskipan sína og má segja, að allir beztu leik- menn félagsins séu með, að McCredie undanskildum, en hann nefbrotnaði á æfingu fyr ir nokkrum dögum. Liðið verður þannig: Bonetti. Boyle, Harris, Hoiliris, Dempsey, Webb, Well- er, Hudson, Osgood, Cooke og Houseman. Þeir Osgood og Hollings eru nýbyrjaðir að leika aftur eftir meiðsli. Real Madrid hefur sex sinnum sigrað í Evr- ópuképpni meistaraliða — en Chelsea hefur aldrei sigrað í Evrópukeppni. ÁRMANN VANN KR 4-2! Þau óvæptu úrslit urðu á Reykja víkurmótinu í knattspyrnu, að Ármann sigraði KR með 4—2 í allskemmtiiégum leik, þar sem allt var á hápunkti undir lokin og nokkrir KR-ingar ætluðu aö yfir- gefa leikvöllinn, þegar dæmt var vítaspvrna á íiðiðl* En hinum gætn- ari leikmönnum félagsins tókst þó að koma í veg fyrir það. Ármann skoraði fyrsta markið í leiknum og.yar Guðmundur Sigur- björnsson ' þar að ' verki. Atli Þór Héöinsso.n. iafnaði fvjjr KR og um miðjan hálfleikinn náði KR for- ustu með marki Jóns Sigurðsson- ar eftir mistök markvarðar Ár- nianns. Þannig stóð þar til nokkru fyrir hlé, að Smári Jönsson jafn- aði fyrir Ánnann. KR-ingar sóttu mjög niest allan siðari hálfleikinn. en tókst illa að opna ,vörn Ármanns, sem varðist af hörku og leyfðist flest. En svo þremur mín. fvrir leiks’ok náði Ármann snöggu upphlaupi og' brotið var á einum leikmanni rétt við vítateig. Björgvin Bjarnason tók aukaspvrnuna og þrumuskot hans hafnaði beint í marki KR. Leikurinn hófst aö nýju — Ár- menningar sóttu og Smári og Magn ús Guömundsson, markvörður KR, lentu saman innan vitateigs og var dæmd vitaspyrna 'á markvörð inn. sem Smári skoraði úr og hinn óvænti sigur var i höfn — en erfitt áttu margir i liði KR að sætta sig við vitaspyrnudóminn.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.