Vísir - 18.05.1971, Side 6
6
VlSIR . Þrlðjudagur 18. maí 1971.
Skylt er að hafa það
heldur er sannara reynist
1 dagblaöinu Vísi þ. 12. þ. m.
gerir prófessor Bjami Guönason
grein fyrir skoðanamun í Samtök-
um frjálslyndra 1 Reykjavík varð-
andi framboð til alþingiskosninga
í vor en áður hefði hann birt svip-
aðar hugleiðingar í blaði Samtak-
anna, Nýju landi. Þar sem frásögn
prófessorsins er líkleg til að valda
misskilningi hjá þeim. sem lítt eru
kunnugir málavöxtum, tel ég rétt
að benda á nokkrar staðreyndir,
sem prófessorinn sniðgengur.
Á félagsfundi í Samtökum frjáls-
lyndra, sem haldinn var að Hall-
. veigarstöðum þ. 30. apríl s.l. var
samþykktur fullskipaður framboðs-
listi með Hannibal Valdimarsson í
1. sæti, Bjama Guðnason í 2. sæti,
Steinunni Finnbogadóttur f 3. sæti,
Guðmund Sæmundsson f 4. sæti
og Einar Hannesson f 5. sæti. Eng-
in vefenging kom fram um lög-
• mæti þessarar samþykktar á fund-
, inum. Sunnudaginn 2. maf hafði
verið boðaður fundur í félagsstjóm
Samtakanna. Á þeim fundi kom
það í ljós að 7 af 11 stjómarmönn-
' um er fundinn sátu, vildu ekki
■ una afgreiðslu Hallveigarstaða-
i fundarins á framboðsiistanum.Báru
þeir því við, að sá fundur hefði eigi
verið bær um að gera samþykkt
um 5 efstu sæti listans vegna ó-
' fullnægjandi fundarboðs. en til var
• eldri samþykkt um skipun þeirra.
, 1 tilkynriingu um Hallveigarstaöa-
fundinn í Nýju landi var þó sagt
að rætt yrði um „kosningastarfið
almennt og annað, er mönnum
dettur f hug“. Tilefni þess að fjalla
þurfti um efstu sæti á Hallveigar-
staðafundi var það, að Haraldur
Henrýsson var farinn í framboð f
Vesturlandskjördæmi, og var 3.
sætið þvf autt.
Á stjómarfundinum kváðu sjö-
menningarnir upp úr með það, að
þeir vildu eigi aðeins breyta til um
3. sætið, heldur færðust þeir nú
meira í fang og óskuðu þess að
Hannibal Va'dimarsson viki úr 1.
sæti listans. Hannibal kom á þenn-
an fund að tilmælum félagsstjórn-
ar. Lýsti hann þvl yfir að hann
mundi fara af listanum, ef stjómin
óskaði þess, og það mætti verða til
þess að samkomulag næðist um
framboðið. Var höfð skoðanakönn-
un um þetta á stjórnarfundinum. og
vildu 7 að Hannibal færi, en 4
voru á móti. Má af þessu sjá að
ummæli prófessorsins um að eng-
inn skoðanamunur hafi verið um
það, að Hannibal Valdimarsson
ætti að skipa efsta sæti listans. fá
ekki staðizt Orslit þessarar skoð-
anakönnunar réðu þvf að Hanmibal
er ekki í kjöri f Reykjavfk.
Aö svo vöxnu máli var leitað
hófa um það, að framboðslistinn frá
Hallveigarstaðafundi skyldi standa
óbreyttur eftir því sem gerlegt
reyndist, að undanskildu efsta sæt-
inu sem skipa þurfti að nýju. Við
slíkt var ekki komandj af hálfu
sjömenninganna og var þá aug-
ljóst að þeir hugðu á stórfelldar
breytingar á listanum í heild. Skal
saga þess nýja framboðslista, sem
samþykktur var á félagsfundi þ. 8.
þ. m. ekki rakin nánar. Aðeins ber
að muna það, að samkvæmt nið-
urstöðum skoðanakönnunar í vet-
ur, sem birtar voru á s'inum tíma
í Nýju landi, var röð þeirra 5, er
flest atkvæöi fengu þessi: 1.
Hannibal Valdimarsson, 2. Bjami
Guðnason, 3. Haraldur Henrýsson,
4. Steinunn Finnbogadóttir, 5. Inga
B. Jónsdóttir. Það var því ekki ver-
ið að breyta þeirri röð Steinunni
í vil með þvf að setja hana f 3.
sæti listans að Haraldi frágengn-
um. og þaðan af síður eftir að
Hannibal var líka farinn. Fundar-
menn á þeim félagsfundum, sem
samþykkt hafa að rugla röðinni
frá skoðanakönnun hafa að tölu
til aðeins verið brot af tö!u þeirra,
er tjáðu vilja sinn í skoðanakönn-
un. Það er þVi hæpið að tala um
slíkar fundarsamþykktir sem lýð-
ræðislegan vilja meirihluta félags-
manna.
Það er í samræmi við stefnuskrá
Samtakanna að dreifa störfum og
valdi á sem flesta einstaklinga.
Vera má að Bjarni Guðnason sé
svo bjartsýnn að telja 3. sætið á
framboðslista sínum jafngilda þing
sæti og því sé ótilhlýðilegt að
skipa það borgarfulltrúa. Aðrir
munu telja, að listinn hefði haft
nokkra þörf fyrir að njóta vinsælda
Steinunnar Finnbogadóttur og þess
almenna trausts, sem hún hefur
aflað sér, m. a. fyrir afskipti sín
af borgarmálefnum. Þeir hinir
sömu munu og telja að Bjami
Guðnason gæti fundið sér þarfara
verkefní en að blása að kolum
sundrungar í eigin flokki meö slík-
um blaðaskrifum sem hér hefur
verið vikið að. Mætti hann vel
muna orð Ara fróða og þræða bet-
ur veg sannleikans, en láta ekki
vfgamóðinn hlaupa svo með sig i
gönur að heimfæra megi á hann.
vísupartirin: „Ekki' Sér hann sína
menny,svQ hann. ber þá líka“. ^
Björn Jónsson
Njálsgötu 12 a.
Halla hringdi:
Ég á ekki orð til að lýsa því,
hvað ég hafði gaman af því að
sjá ftölsku bömin syngja í sjón-
varpinu sl. sunnudagskvöld.
Maður varð blátt áfram hug-
fanginn af að sjá og heyra hve
sjálfstæð börnin voru og einlæg,
að ekki sé nú minnzt á, hve
skemmtilegur söngur þeirra var.
Fleiri en ég era áreiðanlega
með á því. að betra sjónvarps-
efni hefur ekki verið boðið upp
á um langt skeið. Þvf er það
ósk mín, að sjónvarpið annað
hvort endurtaki þennan þátt
eða sýni myndina frá undanúr-
slitum söngvakeppni barnanna,
sem manni skildist á kynnin-
um að hefði verið sjónvarpað
l’ika.
0 Hverjir eru þessir
núll-listamenn?
Kjósandi skrifan
„Það er áreiðanlega ekki ég
einn, sem fengið hef áhuga á
Framboösflokknum Þessir núll-
listamenn hafa vakið athygli
allra. og nú hefur vaknað al-
menn forvitni um, hverjir þessir
náungar eru, hverra manna
o.s.frv.
Satt að segja var maður al-
veg orðinn úrkula vonar um,
að við ættum til slíka ágætis-
menn í okkar hópi. Menn sem
koma og bjarga lundinni frá
AÐEIHS 112 KRÓNUR
Á 100 KÍLÓMETRA
Hver hdur eldci þðrf fyrir flest heimilistæld þó að hann eigi bifreiÖV
SKODÁ bifreiðar gera yður klcift fremur öðram að eignast
hvorttveggja.
Miðað við aðra algenga 5 manna bifreið, sparið þér 16.000.00
krónur árlega í benzfni ( miðað .við 20.000 km árlegan akstur).
sem þér getið varið til kaupa á heimilistækjum eða öðru þvf,
sem hugurinn giraist, t.d. sumarleyfisdvöl á Kanaríeyjum.
SKODA 100
Cfatilegt dnm um bagkvcmni og cnxkk. Innréitingar og frígutgar f sérflokfa. Dijkalmnhr
— Tvðfalt breimukerfi — 4ra braða þunfcur — Bamaltesingar — Radial hjðlbarðir
OG EYÐIR ADEINS 7 LtTRUM X 100 XM.
VIÐCERÐAWÓNUSTA — VARAHLUTAWÓNUSTA — S ARA RYÐKASXÖ.
SKODA 100 CA KR. 2fl .000,00
SKODA 100L — KR. 221.000.00
SKODA 110L — KR. 228.000.00
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ
A ISLANDI H.F.
AUÐBREKKU 44 - 46 KÓPAVOGI SlMI 42600
SENDUM
__ BfLINN
TF 37346
<-----------
SlMAR: 11660 OG 15610
drepleiðindunum, sem framund-
an era. Þegar við blasti fúl al-
vara og yfirþyrmandi virðu-
leiki ræðu- og fundarhalda
frambjóðenda stjórnmálaflokk-
anna — nefni'ega eintóm leið-
indi — þá koma bessir og
hressa upp á tilverum..
En svona er það Þegar neyð-
in er stærst, er hjálpin næst.
Oft hafa blöð dregið einstak]-
inga fram f sviðtliósið, kynnt
þá sjálfa. ævi þeirra og afrek
o.s.frv. af minna tilefni en þessu.
Dag eftir dag flettj ég blöð-
unum f von um, að eitthvert
þeirra hafi framtak til þess að
svala þessari forvitni okkar
kjósenda. En nei, það virðist
ekki verá.“
0 Hvor er rétthærri —
maður eða fugl?
Magnús skrifar:
„Mér liggur nú við að segja,
eins og krakkarnir minir. þegar
ég vanda um við þá: Ekkert má
nú!!
Það verður ekki þverfótað
hér f þessari borg fyrir boðum
og bönnum. Maður má ekki
leggja bflnum sínum. þar sem
hægast er fyrir mann, heldur
verður maður að ferðast iangar
leiðir eftir „leyfilegum stæð-
um“. Maður má ekki ganga yfir
götu, bótt hvergi sjáist til b’ils
— bara ef það skín eitthvert
rautt ljós á mótj manni — al-
veg sama þótt um hánðtt sé
og engrar umferðar von.
Maður má ekki á grasi ganga,
og ekkj he'dur teyga úr flðsku
til að svala þorsta sínum —
ekki á almannafæri. Jú, annars
— það má vfst úr gosflöskum,
en ekki hinsegin flöskum.
— Alit á þetta víst að vera
vegna tillitssemi við aðra eða
vegna ðryggis.
Og sjáí maöur hólma úti í
tjörn, sem mann langar til að
skoða ögn betur heldur en úr
fjarska, þá má maður það ekki
heldur. Ekki einu sinni þótt
hólminn sé almenningseign. —
Og vegna hvers ekki?
Vegna fuglanna. Eins og
hólminn sé einhver þinglesin
eign fuglanna.
Það er svo sem hægt að um-
bera og þola hina vitleysuna,
ef það heyrir til kærleika
gagnvart náunganum. En þegar
þrem mönnum er stungið bak
við lás og slá fyrir það eitt að
raska morgunsvefni fuglanna,
þá hlýtur eitthvað að vera bogið
við systemið. — Þegar maður
ékki lengur kemst fetið, vegna
þess að það era einhverjir fugl-
ar þar fyrir mannl, þá er ég
hættur. Farinn.
Eða hvor er rétthærri, maður
eða fugl?“
Ó, já, Magnús. Það er spurn-
ingin. — Kannskl elnhver eigi
f fórum sínum rétta svarið
handa þér. Þeim, sem þennan
plstil annast, er eiginlega svara-
vant.
HRINGIÐ í
SÍMA1-16-60
KL13-15