Vísir - 18.05.1971, Síða 8
8
VfSIR . Þriðjudagur 18. nud 1971.
VISIR
OtgefandS: KeyKjaprem nt.
Framkvæmdastjóri: Sveino R Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Krístjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannessoo
Auglýsingar: Bröttugötu 3b. Simar 15610 11660
Afgreiösla- Bröttugötu 3b Simi 11660
Ritstjóra • Laugavegi 178. Simi 11660 f5 tínur)
Áskriftargjald kr. 195.00 ð mánuði innanlands
r iausasölu kr. 12.00 eintakið
Prentsmiðja Vlsis — Edda ht.
Fjölbreytnin hefur sigrað
J>ótt aflinn á vetrarvertíðinni hafi glæðzt undir lok-
in, þegar komið var fram í maí, hefur vertíðin sem
heild brugðizt. Heildartölur um afla við Suðvestur-
land eru mun lægri en þær voru í fyrra. Nú virðist,
hins vegar vera mikið af fiski í sjónum á þessum
slóðum, svo að menn vona, að enn sé tími til að bæta
þetta upp.
Sjómenn eru sammála um, að veiðamar hafi verið
erfiðar á þessari vertíð. Sóknin var mikil, en árangur-
inn lét á sér standa. Áætlað er, að kostnaður við olíu
og net hafi ekki verið minni en í fyrra, en aflatekjurn-
ar hins vegar rýrari. Margur útgerðarmaðurinn er því
í miklum kröggum og margur sjómaðurinn hefur létta
pyngju um þessar mundir.
Það hefur alltaf gerzt við og við, að vertíðir hafa
brugðizt, og það mun vafalaust halda áfram að gerast.
Hið óvenjulega við þessa vertíð er, hve litlum vand-
ræðum aflaleysið hefur valdið á öðrum sviðum efna-
hagslífsins. Undir venjulegum kringumstæðum hefði
sveifla af þessu tagi átt að enduróma um allt þjóð-
félagið. En það gerðist ekki í þetta sinn.
í verstöðvunum sunnan- og suðvestanlands var
ekki einu sinni atvinnuleysi. í öllum kauptúnum og
kaupstöðum á þessu svæði var nóg að gera, þótt ó-
venjulítill vertíðarafli bærist á land. Tölur um atvinnu
leysisskráningu sýna þessa athyglisverðu staðreynd.
Sumpart stafar þetta af því, að minna en áður hefur
streymt af vertíðarfólki úr öðrum landshlutum til
vertíðarstaðanna. í vetur hefur það nefnilega gerzt,
að atvinna er mun meiri og betri á þeim stöðum norð-
anlands, þar sem atvinnuleysi hefur lengi verið land-
lægt. Hvort tveggja hefur gerzt, að afli er mjög góður
á þeim stöðum og að aukin fjölbreytni hefur færzt í
atvinnulífið. Heimafólkið sér því ekki ástæðu til að
fara á vertíð til fjarlægra landshluta.
Sumpart stafar þetta líka af því, að atvinna hefur
verið óvenju fjölbreytt í sjávarplássunum suðvestan-
lands. Þótt hin eiginlega netavertíð hafi brugðizt, er
ekki hægt að segja hið sama um aðrar veiðar. Loðnu-
veiðin var mikil. Og aukin áherzla hefur verið lögð á
nýjar greinar fiskveiða, svo sem veiðar á hörpudiski.
Þessi aukna fjölbreytni í veiðum stuðlar auðvitað að
því að halda atvinnulífinu í jafnvægi.
Þar að auki er vinna vaxandi við aðrar greinar en
fiskveiðar og fiskvinnslu. Iðnaður og þjónustugreinar
kalla sífellt á fleira fólk til starfa. Það er alls staðar
verið að byggja upp ný iðnfyrirtæki og stækka hin
eldri. Um leið eykst og margfaldast þörfin fyrir þjón-
ustu af ýmsu tagi. Þessi iðnþróun á að sjálfsögðu
verulegan þátt í að draga úr sveiflunum, sem venju-
Iega hafa fylgt aflabresti.
Lykilorðið er fjölbreytni. Hún hefur aukizt bæði í
sjávarútvegi og í atvinnulífinu í heild. Þetta er sú
fjölbreytni, sem framsýnir menn hafa stefnt að á
undanfömum áratug. Veri hún velkomin.
Leiðtogaskipti í Austur-Þýzkalandi:
Ulbrichts-tímabilinu lokið
Ulbricht ekki verstur
Einkennilegt er, að í Vestur-
Þýzkalandi, þar sem aðdáenda
hópur Ulbricihts er vasgast sagt
ákaflega fámennur, hefur hvarfs
Ulbrichts af atjórnmálasviðinu
verið minnzt £ hálfgerðum sakn
aðartón. í svissneska blaðinu
„Neue Zuroher Zeitung** segir,
aö margir Vestur-Þjóðverjar
hafí orðið þess varir, að „hinn
hataði Ulbricht er ekki sá versti
í hópnum £ Austur-Beri£n“.
Að sumu leyti er þessi „sökn
uður" sprottinn af þvi, að á-
sjóna Ulbrichts hefur með ánm
um orðið þægilega kunnugleg,
geitarskeggið hans samkvæmt
LcnVn-tízkunni, vel saumuðu föt
in bans, en Ulbricht er skradd
arasonur frá Leipzig, o. fl.
Eftirmaður Uibrichts, Erich
Honecker virðist vera lithi lit-
rikari persónuleiki en fyrirrenn
ari hans, og um hann er ekki
ýkjamikið vitað, þótt hann hafi
tekið þátt í austur-þýzkum
stjómmálum í meira en tuttugu
ár. Hann hefur lengi verið ein-
lægur stuðningsmaður Ul-
briohts, og raunar aðrir fjöl-
skyldumeðlimir hans, því að
Margot kona Honeckers er
menntamálaráðherra £ austur-
þýzku stjóminni.
Vestur-þýzkir stjómmálafræð
ingar lfta á Honecker sem ann
an Ulbricht, það er að segja sem
hugmyndasnauðan en Msiðinn
skriffiim.
Atkvæðamesti kommún
isti síðan Karl Marx
Þrátt fjrrir nlít er ekki hægt
að segja, að Utbricht sé alger-
lega úr leik £ stjómmálunum,
því að enda þótt hann segði af
sér sem aðalritari flokksins
hélt hann eftir öðm starfi sem
formaður ríkisráðsins, þjóðhöfð-
ingi Austur-Þýzkalands. Enn-
fremur var búið til handa hon
um sérstakt embætti, þegar
liann var skipaður heiðursfor-
maður austur-þýzka kommún
istaflokksins.
En stjómmálasérfræðingar í
Bonn eru engu að síður þeirrar
skoðunar, að Ulbricht-tímabil-
inu í stjórnmálum sé endan-
lega lokið.
Einn sérfræðingurinn komst
þannig að orði: „Hinum megin
við vegginn er að hefjast nýr
kapituli þýzkrar sögu. Atkvæða
mesti kommúnisti Þýzkalands,
síðan Karl Marx leið, hefur lagt
árar í bát. Og nú bíðum við
þess, að teningunum verði kast
að.
Leynd merking
Og allt gekk þetta fyrir sig
á svo sléttan og felldan hátt,
að útlendir menn, sem fylgdust
með málum, tóku að stinga sam
an nefjum um, hvort ekki væri
hægt að lesa einhverja leynda
merkingu út úr öllu saman. —
Þeir minntust þess, að hin
snöggu umskipti f Póllandi
(Gomúlka-Gierek) komu Sovét-
mönnum svo á óvart, að Kreml
í kommúnistaríkjum
er slíkt næsta fáheyrður
atburður, þegar valda-
mesti leiðtogi kommún-
istaflokksins fer frá völd
um af fúsum vilja og
hvergi er að finna
minnsta vott um póli-
tíska ónáð. En þá er þess
að gæta, að Walter UI-
bricht hefur alla tíð ver-
ið mjög nákvæmur og
samvizkusamur í störf-
um.
ín var eins og mállaus um hríð.
En aftur á móti bar svo viö
í þetta skipti, að Ulbricht hafði
ekki fyrr sagt af sér en Brésnev
sendi honum hinar vinsamleg-
ustu kveðjur. Úr því að þessi
atburður kom Sovétmönnum
ekki meira á óvart — áttu þeir
þá ekki einihvem þátt í að und
irbúa hann? Var Ulbricht með
alla sína fastheldni á hug-
myndafræðilegar kennisetning-
ar orðinn þrándur í götu fyrir
þeirri ósk Sovétmanna að kom-
ast að einhverju samkomulagi
við Vestur-Þýzkaland? Var það
Kremlín, sem ýtti Ulbricht
(mjúklega þó) yfir á eftirlauna
listann?
Ekki var hægt að ganga alger
lega fram hjá slíkum vangavelt-
um. Og samt benti allt til þess,
Walter Ulbricht, atkvæðamestur þýzkra kommúnista síðan
Karl Marx leið. Við hlið hans situr Erich Honecker eftir|-
maður hans.
Eftir aö hafa veriö æðsti mað-
ur Austur-Þýzkalands i meira
en tvo áratugi viðurkenndi Ul-
bricht í síðustu viku, en hann
er nú 77 ára, að ekki hefði ver-
ið auðvelt að taka þessa ákvörð
un.
„Þvi er nú verr“, sagði hann,
,,að við ellinni finnst engin
lækning. Þannig tilkynnti Ul-
brioht kommúnistaflokki Aust-
ur-Þýzkalands, að hann mundi
vikja úr sæti sem aðalritari
flokksins og fela allsherjar-
valdið í hendur hinum 58 ára
gamla Erich Honecker.sem lengi
hefur verið hans hægri hönd
og útvalinn pólitískur erfingi.
Þessi umskipti eru fyrsta meiri
háttar breytingin, sem hefur orö
ið á valdastöðu stjórnmálaleið-
toga Austur-Þýzkalands síðan
þýzka alþýðulýðveldið var stofn
að eftir heimsstyrjöldina síðari.
að Ulbricht hefði sagt af sér
einmitt vegna þeirra ástæðna,
sem hann tilgreindi — vegna
ellihrumleika. — Nýlega eyddi
hann vetrarleyfi sínu í Moskvu,
þar sem hann leitaði sér lækn-
inga við einhverjum ótiigreind-
mn krankleika.
Vel má vera, að Ulbrioht hafi
valið einmitt þennan tíma til að
segja af sér, vegna þess að
flokksþingið verður haldið í
næsta mánuði, og hann hafi
viljað gefa eftirmanni sínum
nægan tíma til undirbúnings.
„Þú ert orðinn fljótari en ég að múra, félagi Howecker.'