Vísir - 18.05.1971, Síða 13
VÍSIR . Þriðjudagur 18. maí 1971.
13
Brosa, brosa, brosa, brosa... Rósa brosir af kurteisi, en ekkert gerist í dagheimilismálum (
stendur á einu veggspjaldinu, sem prýddi veggi á rauðsokkafundinum á laugardaginn. En
þau voru notuð til að túlka enn betur sjónarmið rauðsokka.
Konur hafa áhuga á
starfi utan heimilis
JJauðsokkar i Kópavogi lögðu
fram á laugardag niður-
stöður sínar af skoðanakönnun
um barnaheimilismál, sem fram
fór í Kópavogi á vegum eins
starfshóps rauðsokka. Fengu
uppástungur rauðsokka dregnar
af niðurstöðunum mjög góðar
undirtektir fundargesta og vii
bæjarstjómin fá ailar niður-
stöður, sem má teljast sigur fyr
ir þennan starfshóp. Sýnir það
einnig að brýn þörf er hér á
skoðanakönnunum áður en haf-
izt er handa um ýmsar fram-
kvæmdir og sjáifsagt að leita
álits þegnanna — í þessu til-
felli kvenna, þegar skoða á niður
í kjölinn hvar skórion kreppir
helzt að. Hér er fyrri grein um
þetta mál.
Vikjum aö skoðanakönnun-
inni, sem var mjö.g víðtæk. Rauð
sokkar varpa fram umhugsunar-
verðri spurningu: „I nýgerðu
lagafrumvarpi um grunnskóla
er taiað um, að 9 ára grunnskól-
inn geti orðið til þess, aö nem-
endur Ijúki menntaskóla og fag-
skólanámi fyrr en nú er og er
reiknað út, að ef 1000 nemendur
komi ári fyrr til starfa f þjóð-
lífinu þá mradi það mega reikn-
ast sem verðmæti er svöruðu til
250—300 milljóna króna á ári.
ekki reikna með, að 1000
konur sköpuðu þjóðarbúinu
sömu verðmæti? Mætti ,ekki
byggja dagheimili og leikskóla
fyrir hluta þeirrar upphæðar?
J könnuninni í Kópavogi voru
sendir spurningalistar til
525 ltvenna, en af ýmsum á-
stæðum heltust ýmsar úr lest-
inni, og 430 fengu listann í hend
ur. Af þeim fylltu út listann
344 konur. Á listanum voru 13
spurningar.
Ein vék að starfi kvenna ut-
an heimilis. Það kemur fram,
„að ef konunum er skipt niður
aldri niður f þrjá starfs-
hópa þ. e. fu'Mt starf utan heim-
ilis, hálft starf utan heimilis og
heimilisstörf kemur i ljós, að
stærsti hlutinn af þeim, sem
hafa fulit starf utan heimilis eru
í yngsta flokknum fæddar 1940
—1949, eða 25% én í þessum
hóp eru flestar ógiftu og barn-
lausu konumar, Þær, sem hafa
hálft starf utan heimilis eru
flestar úr aldursflokknum fædd-
um 1920—29 eða 29%. En kon-
ur, sem eru fæddar 1930—39 em
með hæstu % af þeim, sem ekki
vinna utan heimilis. Enda er
eðlilegt að æt'la aö þær séu með
flest börnin á aldrinum 0—12
ára.
Af þessum skýrslum í heild
kemur í ljós, að 36% kvenna
vinna úti nú þegar, en ef við
tökum % af öllum þeim, sem
fá greidd laun í einhverri mynd
og em þær þá með ta'ldar, sem
taka vinnu heim eða vinna hluta
úr ári þá hækka þessi % úr
36% upp í 55%. Þetta er stað-
reynd, sem ekki er hægt að
ganga framhjá. Þeim konum
fjölgar stöðugt, sem koma út í
atvinnulífið og þá framvindu er
ekki hægl að stÖðva. Annars
vegar vinna þær vegna þess, að
þær vilja vera fjárhagslega
sjálfstæðar og hafa áhuga og
ánægju af starfi sínu eða þær
vinna af brýnni fjárhagslegri
þörf.“
Tjá vikja rauðsokkar að barna-
heimilisþörfinni i Kópavogi.
Það kemur fram, að eitt dag-
heimili er þar, sem tekur 40
böm, tveir leikskó'Iar, sem taka
samtals 104 börn. Af þeim hópi,
sem könnunin náði til höfðu 8
konur börn sín á dagheimiíum
12 bö.rn og 7 konur höfðu 11
börn á leikskölum. Það kemur
fram, að opnunartími þessara
stofnana er ekki nógu hentugur
fyrir konurnar. Af þeim, sem
hafa börn sín á leikskóla með-
an þær eru í vinnu sögðu 6
af hinum 7, að starfstími þeirra
samrýmdist ekki vinnutíma
þeirra. Rauðsokkar stinga upp á
vaktafyrirkomulagi á þessum
heimilum og, að þau opni fyrr
á morgnana og loki seinna á
kvöldin. Það kom einnig fram,
að 38 konur voru með 50 böm
á aldrinum 0—6 ára, sem höfðu
ekki pláss á leikskóla eða dag-
heimili, meðan mæður þeirra
em í vinnunni. Börnin dvæljast
ýmist hjá ömmu sinni, skyld-
menni eða vandalausum á með-
an móðir þeirra er í vinnu.
Rauðsokkar reikna það út, að f
Kópavogi vanti e. t. v. 250 pláss
fvrir börn þeirra mæðra, sem
þegar vinna úti, a. m. k. 4—5
dagheimili, ef miðað er við fu'll-
an vinnudag.
Ein spurningin, sem lögð var
fyrir konumar var hvort þær
hefðu áhuga á starfi utan heim-
ilis, ef þær hefðu ömgga gæzlu
fyrir börnin. 78 konur, sem
áttu börn undir 6 ára aldri svör-
uðu þessari spurningu játandi.
I könnuninni vom konumar
spurðar að því hvort þær teldu
að dagvöggustofur vantaði í
Kópavogi og svömðu 96% þvi
játandi.
JJauðsokkar telja að heppílegra
■=é að harnaboímili séu
dfeifð um ibúðahverfin, en ekki
staðsett eingöngu við vinnu-
staði. Börn foreldra af mismun-
andi atvinnustéttum komi þá
saman og ferðir til óg frá dag-
heifnilunr verði bá stýjttrl. Kon-
umar voru spurðar að því hveri-
ir ættu að standa undir kostnaði
við rekstur dagvistunarstofnana.
í hópi þeirra, sem eiga börn á
dagvistunaraldri vom flestar á
þvf, að reka ætti slíkar stofnan-
ir á sama hátt o-g barnaskóla,
þ. e. af rfki og bæ sameiginlega.
Af þeim, sem eiga böm á þess-
um a'ldri og vinna ekki úti höll-
uðust fleiri að þvf að bæjar-
félagið ætti að taka þátt í kostn-
aði eins og nú er.
Ein spuminganna var um það
hvort böm á aldrinum 7—12
ára hafi sótt starfsvelli en beir
eru tveir f Kópavogi, sinn i hvor
um bæjarhluta. 72 kvennanna
eða 33% svöruðu spurningunni
játandi en 133 neitandi eða 61%,
en 14 gáfu ekkert svar. Þá voru
konur í fyrsta hópnum spurðar
að því hvort æskilegt væri að
hafa starfsvellina opna allt árið.
í því sambandi gerðu margar
þá athugasemd, að bömin
sæktu ekki starfsvel'lina vegna
þess, að þeir væm of langt í
burtu. Þá var spurt um aðsókn
á fjóra gæzluvelli, sem em f
Kópavogi og hvort börnin færu
þangað að staðaldri. Þessari
spurningu svöruðu fáar og gera
rauðsokkar þá athugasemd, að
á gæzluvöllum sé ekkert hús
fyrir börnin og þvi engin að-
staða ti'I þess að taka bömin
inn. Þar af leiöi, að notkun
gæzluvalla sé alltaf háð veðri
en ekki hægt að treysta á þá
að staðaldri.
— SB
FALLEGT >f
— gjafaúrval
>f- Handskorinn og mótaður
>f- Bæheimskristall
Vasar á öllum verðum frá kr. 300.—
Konfektskálar m/loki frá kr. 420.—
Kökudiskar 3 munstur frá kr. 539—
Glös, ávaxtadiskar og margt fleira.
VERÐ VIÐ ALLRA HÆFI
Opið laugardaga til kl. 4.
KRISTALL
Skólavörðustíg 16. — Sími 14275.
ÁRBÆR - BREIÐH0LT
FÉLAGSHEIMILI RAFVEITUNNAR V/ELLIÐAÁR:
ÞRIÐJUDAG 18. MA'l KL 20,30
Ræðumenn: Jóhann Hafstein, Geirþruður Hildur
Bernhöft, Gunnar J. Friðriksson.
Fundarstjóri: Magnús L. Sveinsson, verzlunarmaður.
AUSTURBÆR - NORÐUR-
MÝRI - HLÍÐA - HOLTA
TEMPLARAHÖLL:
MIÐVIKUDAG 19. MAI KL. 20,30
Ræðumenn: Jóhann Hafstein, Ragnhildur Helgadótt-
ir, Birgir Kjaran.
Fundarstjóri: Guðlaugur Þorvaldsson, prófessor.
Smurbrauðstofcin |