Vísir - 18.05.1971, Side 16
estfas
HMhCÉHÉÍ
Þríðjufiagur 18. maí Mí?l.
Taflið
kostar
hálfa
milljón!
Dýrasta tafl, sem komið hef- !
! ur til íslands er postulínstaflið, ;
; sem Aron Ritz, sölustjóri Bing ■
og Gröndal kom með til lands- ;
ins, — verksmiðjan á tvö slík, .
og eru það einu töflin sinnar!;
tegundar í heiminum. — Hefur !
verksmiðjunni verið boðið mikið !
fé fyrir töflin, — 50 þús. dansk •
ar krónur, en vill ekki selja. —1!'
Töflin eiga að varðveitast í safni ’
B & G. !
„Það hefur mörgum verið ;
freisting að setjast að þessu ■
tafli“, sagði Ritz, „sjálfur hef !
ég gert það. en það er hætt við!;
að í hita leiksins gæti einhver .
,,drepið“ nokkuð hrottalega, — ;
þannig að einhver mannanna ■
Ibrotnaði“.
Það var listamaðurinn Kai Nil!;
sen, sem gerði þessa taflmenn á •
sínum tíma. ;
Ritz mun sýna taflið ásamt ■
ýmsum munum frá fyrirtækinu !
á Sögu i kvöld kl. 21, en á Alkur ;
eyri á fimmtudagskvöld. — JBP !
BSRB-fjölskyldur mynda
sumarborg í Borgarfírði
Um helgina verða 26 nýir sumar-
bústaðir opnaðir / Munaðarnesi
Heilt þorp er risið að Mun-
aðamesi, Stafholtstungna-
hreppi í Borgarfirði. Þorpið,
sem er enn mannlaust saman
stendur af 26 húsum og eitt
af þeim er veitingahús, þar
er rafmagn í húsum, skolp-
veita og búið að gera götur.
Þetta er orlofsheimilahverfi
Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja, og hafa 18 aðildar-
félög bandalagsins hús til um
ráða. Húsin verða formlega
afhent bandalagsfélögunum á
laugardaginn með athöfn. —
Þann dag og á sunnudag verð
ur orlofsheimilahverfið sýnt
almenningi og þeim, er heim
sækja staðinn er boðið upp á
kaffi í nýja veitingahúsinu,
sem tekur 80 manns í sæti.
Vísir talaði við Kristján
Thorlacius formann bandalags-
ins í morgun. Sagði hann aö
megintiigangur meö orlofsheijn
ilahverfinu fyrir utan orlofsdvol,
væri að það verði miðstöð fyrir
fræðslustarfsemi bandalagsins.
„Við teljum að sá þáttur, sem
lýtur að félagslegri fræðslustarf
semj hafi verið mjög vanrækt-
ur hjá launþegasamtökunum.
Það hefur verið reynt að bæta
úr því með númskeiðum og nú
á að auka þann þátt með þvi
að hafa þarna fræöslunámskeið
fyrir félaga samtakanna, að vori
og hausti utan orlofstímans.
Fyrsta sporið í þá átt verður
norrænt fræðslunámskeið, sem
verður haldið þarna dagana
4.—5. júníí.“
Kristján sagði, að bygginga-
framkvæmdir á staðnum hefðu
hafizt um miðjan ágúst 1969. 1
hverfinu er gert ráð fyrir mik-
illi þjónustu þar sem er veit-
ingaskálinn, en jafnframt eru
fullokmin eldhús í hverju húsi
þannig, að fólk getur válið um
hvort það eldar eða sléppir því
þann vikutíma, sem hver fær
til dvalar í 'hverfinu. Þá er gert
rúð fyrir tjaldstæöi og snytri-
aðstöðu fyrir félaga bandalags-
ins. Húsin verða leigð til or-
lofsdvalar frá 5. júní og taldi
Kristján að búið væri að veru
legu leyti að skipa í húsin í
sumar, mánuðina júní til sept-
ember. „Hins vegar höfum við
i hyggju að hafa húsin starf-
rækt aö vetrinum og til dvalar,
en þar sem húsin eru upphituð
eru þau það vei útbúin að þau
eru fullnothæf að vetri til.“
—SB
Þarna eru nokkur húsanna, sem opinberir starfsmenn og fjöl
skyldur þeirra fá til afnota nú um helgina.
NÝR FARKOSTUR í FLOTANN. Þaö er alltaf stór stund, þegar nýr farkostur bætist í flotann,
hvort heldur það er fiskiskip eóa fragtskip. 1 gærkvöldi sigldi eitt þessara nýju skipa inn á
Reykjavíkurhöfn. Forráðamenn Eimskipafélagsins voru mættir á hafnarbakkanum tll að fagna
hinum nýja Mánafossi, sem kom þá heim úr sinni fyrstu siglingu.
Nú munar aðeins einu tonni
— Enn barátta milli aflakónga / Grindavik
— Flestir netabátar að taka upp
Lokin eru grenriilega komin á
æssari vetrarvertíð. Síðustu neta
bátamir á Suðurnesjum voru í gær
og í dag að taka upp síðustu tross
urnar. Fiestir Grindavíkurbáta, sem
haldið hafa út til þess voru að taka
upp í morgun. Bátamir lönduðu
tveggja nátta fiski í gær. Afla-
hassti bátúrinn var þá Arnfirðingur
með 22 lestir, en Albert var með
tæpar 17 lestir. Þessi skip eru nú
langaflahæst yfir landið, og hefur
aðeins munað örfáum tonnum,
hvort yrði hærra á lokadag, þann
15. Albert hafði þá vinninginn meö
1370 tonn, en Arnfirðingur var
með 1363. Nú hefur Arnfirðingur
sem sagt fengið 1385 tonn en Al-
bert 1386, eða svo og munar að-
eins einu tonni. Skipstjóri á Ai-
berti er Þórarinn Ólafsson en á
Arnfiröingi Ölafur Finnbogason.
- Jl l
Tveir drengir
stálu 40 þús. kr.
Tveir drengir 12 og 10 ára
urðu uppvísir að því að hafa
stoiið um 40 þúsund krónum úr
íbúð að Reykjalundi, en þeir
höfðu byrjað að hnupla úr íbúð-
inni rétt fyrir páska, og síðan
farið þangað fleiri feröir, en
stálu mest kr. 25.000 í einu.
Þegar þeir gerðust svo stór-
tækir, saknaði eigandinn pening-
anna, sem voru mánaðarkaup henn
ar, en hún geymdi þá i kommóðu.
Gerði hún þá lögreglunni viðvart.
Þegar upp um drengina komst,
gájtu þeir skilað kr. 23 þús. aftur
af þýfinu, en hinu, sem þeir höfðu
stolið fyrr, voru þeir búnir að
eyða. — GP
„Eins og
rýmingarsala
— segja reiðhjólakaupmenn
//
„Þetta er eins og á rýming-
arsölu. Hér áður fyrr kom
það varla fyrir, að fullorðið
fólk keypti sér reiðhjól. Nú
önnum við ekki eftirspurn“.
Þessi svör fékk blaðamaður
Vísis, þegar hann spurði eftir
því í reiðhjólaverzluninni
„Örninn“, hvort ekki færðist
i vöxt, að fullorðið fólk
keypti sér reiðhjól til að
rækta heilsuna og komast
leiðar sinnar.
1 „Fálkanum" var sömu sögu
að segja:: „Við erum því sem
næst lens með reiðhiól handa
fullorðnum. Þetta hefur varla
komið fyrir áður en nú er fólk
sífellt að spyrja um reiöhjól.
Meira að segja er algengt að
hjón komi inn í verzlunina og
fari síðan hjólandi burt.“
í reiðhjólaverzlunum voru
menn á einu máli, að þessi þró
un væri aideilis nýtt fyrirbrigöi,
því að til þessa hefur verið
næsta fátítt að sjá fullorðið
fólk á reiðhjólum á götum borg
arinnar.
Um verð á reiðhjólum er það
að segja, að hjól kosta frá því
um sex og upp í t’iu þúsund.
Þau dýrari eru með gírum og
nýtízkulegum útbúnaði. Gömul
reiðhjól er erfitt að fá núorðið,
að sögn þeirra í „Fálkanum" en
þar eru gerð upp nokkur gömul
reiöhjól fyrir veturinn, en þau
seldust upp á skammri stundu
núna snemma vors.
Ekki vpr hájgt að fá upplýs-
ingar um, hversu mörg reiðhjól
hefðu selzt í vor, en þau skipta
örugglega hundruðum. —ÞB