Vísir - 05.06.1971, Side 1
\
GÓÐ FJÁRFESTING
„Ástandið er mjög alvarlegt,
á því er ekki minnsti vafi",
sögöu þessar hýrlegu og glæsi-
legu stúlkur í gær Þær ræddu
um gróðureyðinguna, sem enn
á sér stað í landinu, — verkefni
sem æskan landsins þarf að
snúa sér aö í framt’iðinni, Og
þær ættu líklega að vita hvnð
þær syngja, þvi báðar starla
hjá Landmælmgum fslands, en
þar eru m. a. gerð gróðurkortin,
sem sýna og sanna hversu
snautt !and okkar er af gróðri,
sem á enn eftir að fara minnk-
andi ef ekkert veröur aö gert.
Föturnar, sem stúlkurnar
halda á, hafa að geyma grasfræ
og áburð, — ekki slæm hug-
mynd að taka eina með, þegar
bensíntankurinn er fylltur, —
reikningurinn hækkar ekkj svo
ýkja mikið við það, — og gras-
ið, sem skýtur upp kollinum á
þeim óræktarbletti úti í nátt-
úrinni, þar sem sáö verður,
verður áreiðanlega hin bezta
fjárfesting. —
Og stúlkurnar? Jú þær heita
Ellen Ingvadóttir, þekkt sund-
kona og ólympíufari, og Sjöfn
Axelsdóttir. — JB'P
„ÞETTA VAR LlKAST
ENCISPRCTTUFARALDRI"
GóBar horfur á markaði
fyrir handfæravinduna
— segir Stefán Bjarnason, verkfræðingur eftir
alþjóðlegu fiskveibasýninguna i Frederikshavn
„Nýjustu niðurstöður af bréfa
viðskiptum okkar við ýmsa, sem
skoðuðu handfæravinduna ís-
lenzlcu á fiskveiðasýningunni í
Frederikshavn í Danmörku,
benda til að stór markaður sé
opinn fyrir vinduna“, sagði Stef-
án Bjarnason, verkfræðingur í
gær í samtali við Vísi um sýn-
inguna á handfæravindunni, sem
Elliði Nordahl Guðjónsson fann
upp.
Sagöi Stefán að sjáanlegt væri
að selja mætti þúsund vindur til
S.-Afríku, annað eins til Noregs,
góðar horfur væri með markað 'i
Mexíkó, Ameríku og Afríku, jafn-
vel enn betrj þar en í S.-Afríku og
Noregi. Mikill bréfafjöldi hefur
borizst eftir sýninguna, safgði Stef-
án.
Á sýningunni í síöasta mánuöi
var vindan meðal þess, sem Island
sýndi, og sá Stefán um sýningu
hennar Höfðu skipstjórar og fiski-
menn gaman af því að láta draga
sig upp eins og „heimska þorska“,
eins og Stefán orðaöi það við þá,
en það var gert til að sýna þeim
styrk vindunnar og hæfni, en jafn-
fram gátu fiskimenn líklega sett
sig i spor fórnardýranna.
Þetta var 7. alþjóðlega fiskveiði-
sýning Dananna, en Stefán kvaðst
hafa saknað allmargra innkaupa-
stjóra m.a. frá Bretlandi og Þýzka-
landi.
Á sýningunni var einnig sildar-
| flatningsvél / héðan, sem og
mikla athygli vakti, svo og fram-
;leiðsla Kassagerðar Reykjavíkur á
, fiskumbúðum, sem vinsælar hafa
reynzt erlendis, m.a. í Noregi.
— JBP
Garbur i Keflavik lagöist i aubn af völdum
grasmaðks, — ibúar
til varnar
Grasmaðkur hefur
hingað til verið álitinn
allra skorkvikinda ó-
merkilegastur og eng-
inn hefur óttazt það kvik
indi.
/ nágrenninu bregðast
vágestinum
Sú er ekki lengur skoð
un Jónasar Guðmunds-
sonar, framkvæmda-
stjóra í Keflavík.
Jpnas býr við Skólaveg, og
kringum hús hans eT stór garð
ur, alls um 1600 fermetrar. —
Fyrir hálfum mánuði fannst
Jónasi grunsamlegt oröið, að á
600 fermetra svæði, sunnan við
húsið, grænkaöi gras ekki, held
ur kom þar upp mosi. Hann
Reyndi öll ráð til að koma gras
inu til. Bar á skarna, tilbúinn á-
burð óg kalk, en allt kom fyrir
ekki. Fór hann þá að veita eftir
tekt grasmaðki í garðinum, og
fannst honum skepna sú tor-
kennileg ,þar sem hann hafði
ekki áður séð slíka.
Maðkinum fjölgar mjög ört,
þar sem hann stingur sér niöur,
og í gærkvöldi, þegar Vísir
hafði samband viö Jónas, sagði
hann að maökurinn lægi í hrúg
um á flötinni, og 600 fermetrar
af lóð hans væru eins og eftir
engisprettufaraldur: „Ég hefði
aldrei trúað þessu. Það er ekk
ert gras eftir, þar sem þessar
milljónir af möðkum hafa farið
yfir. Það stendur ekki stingandi
strá eftir, ekkert annað en grár
mosi. Ég verö að sá í þetta aftur
þegar tekizt hefur að útrýma
kvikindinu. Ég hef fengið garð
yrkjumann bæjarins til að lita á
þetta, og hann ætlar að koma
í fyrramálið og eitra allan garð-
inn og reyndar eina 7—8 garða
í nágrenninu, sem eru í hættu
út af þessu.
Garðyrkjumaðurinn talaöi við
Geir Gígja grasafræðing, og Geir
sagði að það væri Irægt að
drekkja þessum maðki. Ég ætla
að reyna þaö, og stend núna með
garðslönguna í hendinni og úða
vatni yfir ófétin.
Fólk í næstu húsum er mjög
hrætt um grasflatir sínar, og
það úðar einnig vatni, vonandi
tekst að útrýma maðkinum á
morgun".
Grasmaðkur er lirfa ákvéðinn
aT flugutegundar, og þegar fluga
sú fær ofurást á ákveðnum stað
til að verpa, er voðinn vís, að
sögn sérfræðinga. Að þessu
sinnj varð garður Jónasar Guð-
mundssona,- fyrir valinu. —GG
Skáldib og
leikkonan
Hver er hún þessi óþekkta
leikkona, sem kom svo skemmti
lega á óvart f hlutverkum
tveggja 14 ára stúlkna í sjón-
varpinu um síðustu helgi? —
Ómenntuð sem leikkona, 16 ára
Rsvkjavíkursnót, sem við ræð-
um viö f blaðinu í dag, ásamt
höfundi POSTULÍNS — SJÁ
BLS. 9.
VISIR
61. árg — Laugardagur 5. júníl971.—124. tbl.
Bráðabirgðalög heimila
gæzlunni að kaupa byrlu
Forseti íslands hefur að tilhlutan
fjármálaráðherra, gefið út bráða-
birgðalög sem heimila Landhelgis-
gæzlunni að taka lán að upphæð
26 milljónir króna til kaupa á
þyrlu.
Pétur Sigurðsson forstjóri Land
helgisgæzlunnar er nú í Band'aríkj
unum aö skoða þyrlu, sem stendur
til að kaupa. Er sú af Sikorsky
gerð, allmiklu stæiri en þyrlan sem
Landhelgisgæzlan hefur nú, mun
geta borið 6—8 menn. Kaupverð
þyrlurnar er 44 milljón, og er þaö
bandaríska strandgæzlan sem þyrl
an verður keypt af. — GG