Vísir - 22.06.1971, Blaðsíða 4
Laugardalsvöllurinn mjög
að að leika á vellinum. Hann
sagöi:
— Laugardalsvöllurinn er
mjög góður — miklu betrj en
undanfarin sumur — en hins
vegar var hann illa sleginn að
þessu sinni og af þeirri ástæðu
var erfitt að rekja knöttinn.
Þetta átti einkum viö þá kafla
á vellinum, sem ekki voru neitt
lagfærðir Þar var of mikið gras
— en þegar völlurinn hefur ver-
iö sleginn vel verður áreiðan-
lega mjög gaman aö leika á
honum. Hann er miklu betri en
áður — betri en nokkru sinni
fyrr miðað við þann tíma, sem
ég hef leikið á honum.
— Ertu ánægður með leikinn?
— Já, ég er vissulega ánægð-
ur með Framliðið. Þetta var víst
20 leikurinn, sem við höfum leik
ið nú í röð í keppni án taps og
aðeins gert þrjú jafntefli. Það
er auðvitað ánægjulegt, að íeika
með liði, sem gengur svo vel.
Og annað. Margir voru búnir
aö afskrifa okkur, þegar við
kæmum á grasvellina — en ég
held að þessi leikur við Vest-
mannaeyinga hafi sannað, að
Framliðið er jafnvel enn sterk-
ara á grasvelli, en mölinni.
— Og leikur liösins?
— Hann er miklu árangurs-
ríkari en áður. Það má kannski
segja, aö Fram hafi leikið
skemmtilegri knattspyrnu, þeg-
38r þeir Elm^r Geirsson og Einar
Árnason léku meö liðinu,
skemmtilégri fyrir augu áhorf-
enda, en það náðist ekki ár-
angur þá éíns og nú. Og það
er árangurinn, sem gildir í
knattspyrnu sem öðru. — hsím.
Laugardalsvöllurinn er mjög góður — en alltof loðinn eins og sjá má ef myndin prentast vel. —
Þarna skallar Sigurbergur — einn bezti maður Fram — knöttinn.
— sagbi Erlendur Magnússon, Fram, eftir leikinn i gærkvöldi
fram á veflinum áður — og
menn voru því spenntir að sjá
hvernig völlurinn reyndist eftir
hinar gagngerðu lagfæringar,
sem gerðar voru á honum. Og
hann komst vel frá þeirri próf-
raun. Við spurðum einn lands-
liðsmann Fram, Erlend Magn-
ússon, hveriiig honum hefði Mk-
Leikurinn á Laugardalsvell-
inum 1 gærkvöldi er hinn fyrsti
þar f sumar milli lslenzkra liða
— aðeins landsleikurinn við
Frakkland 10. maí hafði farið
Trevino
meistari
Það var Lee Trevino, sem sigraði
á Opna bandaríska meistaramðt-
inu í golfi, sem lauk í gær í Penn-
sylvaníu — en tii þess að hijóta
þann sigur varð hann að leika 18
aukaholur við kempuna fra&gu,
Jack Nicklaus. Lee fðr þær á 68
höggum, en Jack 71.
Eftir hinar 72 holur 1 aðalkeppn-
inni voru þeir jafnir meö 280 högg.
Keppni milli þeirra var mjög jöfn
— en Nicklaus þurfti að fara slð-
ustu holu á þremur höggum til að
jafna. Hann hafði haft forustu
lengi vel slðasta daginn. Og fyrsta
högg hans var stórkostlegt — lenti
12 metrum frá holunni. Síðan pútt-
aði hann, áhorfendur héldu niðri
í sér andanum — en það tókst
ekki — kúlan fór framhjá hol-
unni, þó ekki langt. Aftur pútt og
kúian fór i holuna og kempurnar
voru með sama höggafjölda 280.
Trevino hafði lokið keppninni
nokkru á undan á 69 höggum, en
Nicklaus fór á 71.
Þegar síðasta umferðin hófst —
18 holur — á sunnudag var mikil
spenna meöal áhorfenda. 21 árs
áhugagolfleikari, George Simons,
haifði þá tveggja högga forustu —
hafði leikið umferðina á undan á
65 höggum — og það hefði orðið
ein mesta „sensasion" í bandarísku
golfi, ef honum hefðj tekizt að
halda því forskoti Hann lék vel
lokaumferðina, en ekki nógu vel
og hafnaði I fjórða sæti ásamt
nokkrum öörum — þó langt á und-
an bezta keppandanum utan
Bandarlkjanna á mótinu. — hslm.
Yilborg hnekkti
Isl.meti Hrafn-
hildar í 200 m
Vilborg Júlíusdóttir hnekkti á-
gætu meti Hrafnhildar Guðmunds-
dóttur x 200 m. skriðsundi kvenna
á sundmóti Ármanns, sem háð var
í Laugardalslauginni í gærkvöldi.
Vilboi-g synti vegalenglina á
2:25.3 mín. og bætti met Hrafn-
hildar um þrjá tíundu úr sekúndu
á vegalengdinni.
Vilborg synti ágætlega og naut
góðrar aðstoðar Guðmundu Guð-
mundsdóttur frá Selfossi til að
Staðan í
1. deild
Staðan í 1. deild eftir leik Fram
og ÍBV í gærkvöldi, er nú þannig:
Fram 4 3 1 0 9—4 7
Keflavík 4 3 0 1 11-4 6
Valur 4 2 11 6—4 5
l.B.V. 4 112 7—9 3
Akureyri 4 112 5—9 3
K.R. ' 3 1 0 2 3—5 2
Breiðablik 3 1 0 2 3-5 2
Akranes 4 1 0 3 6—9 2
hnekkja metinu Keppni þeirra var
mikil ailan tímann, en á lokasprett-
inum reyndist Vilborg sterkari og
sigraði. Guðmunda synti á 2:27.0
mín.
Guðmundur Gíslason, Á vann
bezta afrek mótsins í 200 m. fjór-
sundi og hlaut fyrir það afreksbik-
ar Sundsambands Islands. Hann
synti vegalengdina á 2:25.1 mi'n.
— eða var nokkuð frá sínu bezta '
þar.
Annars var he'.dur fátt um fina
drætti á þessu sundmótj — enda
heldur kalt og hvasst í veðri.
Leiknir Jónsson sigraði í 200 m.
; bringusundi á 2:43.3 mín., en ann-
I ar varð Guðjón Guðmundsson frá
Akranesi ,á 2:45:0 mín. í 200 m.
fjórsundi kvenna sigraði Vilborg
á 2:53.6 mín og var nokkuð á
undan Ingibjörgu Haraldsdóttur,
sem syntj á 2:58.3 mín.
Finnur Garðarsson var ekki í
j essinu sínu 1 100 m. skriðsundinu,
| synti á 58.7 sek. og hafði þó nokkra
yfirburði yfir Guðmund Gíslason,
sem synti á 59.8 sek. ! 200 m.
bringusundi sigraði Helga Gunn-
arsdóttir á 3:00.3 mín. og Guð-
mundur Gíslason sigrað: í 100 m.
flugsundi kar'a á 1:04.1 min.
Fimleikastúlkur til Svíþjóðar
Nú í lok mánaðarins held-
ur til Svíþjóðar fimleika-
flokkur, stúlknafflokkur, á
vegum Fimleikasambands
ísiands. í Svíþjóð mun
hópurinn taka þátt i nor-
rænu fimíeikamóti, sem
háð verður í Bönneby, dag
ana 3. til 9. júlí.
Þátttakendur I förinni eru tólf
stúlkur, sem æft hafa undanfarnar
vikur, undir stjórn Hafdísar Árna-
dóttur, leikfimikennara, en hún
mun stjórna flokknum við sýningar
ytra, en þar munu einnig sýna
sams konar flokkar frá hinum
Norðurlöndunum.
För þessi er farin í boði Fim-
leikasambands Svíþjóðar, sem
greiðir kostnað við dvölina ytra, en
ferðakostnað veröa stúlkurnar að
greiða sjálfar.
í kvöld efnir Fimleikasambandið
til skemmtikvölds í Súlnasal Hótel
Sögu, í fjáröflunarskyni fyrir utan-
farana. Kemur þar fram sýningar-
flokkurinn, en auk þess munu
stúlkur og piltar úr Ármanni sýna,
auk hóps frá Þjóðdansafélaginu.
Af öðrum skemmtikröftum má
nefna Ómar Ragnarsson.
Hefst skemmtikvöldið kl. 20.36,
en að loknum skemmti- og sýning-
aratriðum leikur hljómsveit hússins
fyrir dansi tij kl. 1 um nóttina.