Vísir - 22.06.1971, Page 10
w
V 1 S 1 R . Þriðjudagur 22. júní l»/i.
í KVÖLD | I DAG 1 IKVQLD
9
I
DAG I IKVOLD
MINNINGARSPJÖLD •
Minningarspjöld Háteigskirkju
eru afgreidd hjá Guðrúnu Þor-
steinsdóttur, Stangarholti 32, —
sími 22501, Gróu Guðjónsdóttur,
Háaleitisbraut 47, sími 31339,
Sigríði Benónýsdóttur, Stigahlíð
49, sími 82959, Bókabúðinni Hlíð
ar, Miklubraut 68 og Minninga-
búðinni, Laugavegi 56.
SKEMMTISTAÐIR •
Þórscafé. BJ. og Mjöll Hólm
leika og syngja.
Röðuli. Hljómsveit Magnúsar
Ingimarssonar leikur, söngvarar
Þuríður Sigurðardóttir, Einar
Hólm og Jón Ólafsson.
Lindarbær. Félagsvist i kvöld
kl. 9.
t
ANDLÁT
Steinunn Ragnheiður Gísladótt-
ir, Hrafnistu, lézt 17. júní, 85 ára
að aldri. Hún verður jarðsungin
frá Háteigskirkju kl. 3 á morgun.
TILKYNNIKCAR •
Prestkvennafé*ag íslands. Há-
degisverðarfundur verður í Átt-
hagasal Hótel Sögu föstudaginn
25. júní n.k., í tilefni af 15 ára
afmæli félagsins. Skemmtiatriði
og aðalfundarstörf. Þátttaka til-
kynnist til Guðrúnar i síma 32195.
Stjórnin.
Kvenfélag Kópavogs. Sumar-
ferð félagsins verður farin sunnu-
daginn 27. júnf. Farið verður að
Keldum á Rangárvöllum, i Fljóts-
hlíð o. fl. Konur eru beðnar að
tilkynna þátttöku fyrir föstudag,
25. júní, í síma 41326 (Agla),
40612 (Þuríður) og 40044 (Jó-
hanna).
jÁsprestakal1. Sumarferð verður
farin sunnudaginn 4. júli n.k. Far-
ið verður að Krossi í Landeyjum,
og messað þar kl, 2. Síðan skoðað
Byggðasafniö að Keldum, Berg-
þórshvoll o. fl. Þátttaka tilkynn-
ist til Guðrúnar í síma 32195 eða
Jóns i síma 33051.
KFUK. Sumarstarf. Leikjakvöld
fyrir 12 ára stúlkur í kvöld kl.
8 í KFUM og K húsinu við Holta-
veg. Mætum allar. Sveita&tjóm-
imar.
*g hvili
með gleraugum frá
Austurstræti 20. Simi 14566.
Orðsending
Jóhannes Geir biöur þá, sem boðskort hafa fengið á
sýningu hans að athuga, að á kortinu á að standa:
miðvikudaginn 23. júní.
Njálsgata 49
Simi 15105
Fíladelfía. Almennur biblíulest-
Uj. í kvöld kl. 8.30. Einar Gíslason
talar. Daníel Jónasson og frú taka
til máls á samkomunni.
Það rignir i dag. Munió eftir
regnkápu útsölunni í Thomsens-
sundi. Örfá skref frá íslands-
banka að austanverðu.
Vísir 22. júni 1971.
8IFREIÐASK0ÐUN @
R-10351 — R-10500.
Þessa mynd tók blm. Vísis á Saltvíkurhátíðinni: Svona lagað er
þó ekki einstakt fyrirbrigði. Síðan Saltvíkurhátíðin var haldin
hafa komið hátfðir þar sem það sama blasti við — eins og t.d.
á þjóðhátíðinni ....
SJÓNVARP KL. 21.20
„SaStvík aðeins
sýningargiuggi"
— fyrir vandamálið, sem við er að etja
Skoðanir manna eru áreiðan-
lega ekkj skiptar um þaö, livort
áfengisneyzla unglinga og jafnvel
barna hafi farið í vöxt á siðustu
áruni. Um þaö eru of mörg tal-
andi dæmi. Hitt er annað, að uppi
eru skiptar skoðanir á því, hvem-
ig vandamálið megi leysa.
Saltvíkur-hátíöin var dýrkeypt
reynsia, sem mikið má læra af.
Hvert verður næsta skrefið, sem
taka skal að fengnum þeim lær-
dómi? Um það og annað þar fram
eftir götunum veröur skipzt á
skoðunum í sjónvarpsþætti Gylfa
Baldurssónar í kvöld.
Ti! þátttöku í þættinum hefur
Gylfi fengiö fjóra málsmetandi
menn, þá Hinrik Bjarnason, fram-
kvæmdastjöra Saltvíkur-hátíðar-
innar, séra Ragnar Fjalar Lárus-
són, Gunnar Frímannsson, félags-
træðing og loks ungan mann úr
hópi ungs fólks, en er Vísir
haföi tal af Gvlfa í gær. haföi
Gylfi ekki fyllile'ta gert það upp
við sig, hver sá ungi maður
eóa kona ætti að vera.
„Þátttakendunum er ekki stillt
upp sem andstæðingum á neinn
hátt,“ sagði Gylfi. „Enda er það
Ijöst, að menn eru á einu máli
um það, að áfengisneyzla ungl-
inga er orðið stórt vandamál. Það
sem mig langár til að fá umræð-
urnar til að snúast um, er það,
hvernig leysa rnegi vandamálið".
„Þótt þátturinr: beri vfirskrift-
ina Saltvfk 71 er ekki þar með
sagt, að sú hátið ein verði til um-
ræðu,“ sagði Gylfi loks. „Salt-
víkur-hátiðina tel ég aðeins vera
sýningarglugga fyrir það vanda-
mál, sem við er aö etja.“ — ÞJM
Áraað
heilla
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband í Neskirkju af séra
Frank M. Halldórssyni, ungfrú
Ragna Sveinbjörnsdóttir og Sig-
uröur Þórðarson. Heimili þeirra
er að Hrísateigi 10 Reykjavík.
(Studio Guðmuridar)
Þann 24/4 voru gefin saman i
hjónaband af séra Þorsteini
Björnssyni, ungfrú Þórunnborg
Jónsdóttir og Guðm. Ragnar Eiös-
son bifvélavirki. Heimili þeirra er
að Bragavöllum Geithellnahreppi,
S. Múl.
(Studio Guðmundar)
Þann 27/5 voru gefin saman í \
hjónaband í Dómkirkjunni af séra
Birni Jónssyni, ungfrú Rósa-
munda Rúnarsdóttir skrifstofu-
mær og Ragnar Marinósson skrif-
stofumaður. Heimili þeirra er að
Tjarnargötu 20, Keflavík.
(Studio Guðmundar)
unBqri