Vísir - 13.07.1971, Síða 1

Vísir - 13.07.1971, Síða 1
I 81. árg. — Þriðjudagur 13. júlí 1971. — 155. tbl. Keflvíkst flugfélag í ferðum milli Istanbúl og Þýzkalands Það virðist enginn hörgull á stúlk- um, sem vilja gerast flugfreyjur með búsetu í Þýzkalandi eða Istan- búl í Tyrklandi, því að svo margar umsóknir bárust vegna auglýsing- ar Flugfélagsins Þórs hf., sem aug lýsti eftir átta stúlkum til flug- freyjustarfa. „Stúlkurnar ráða sig til ársdval- ar“, sagði Jóh’ann Líndal Jóhanns- son, stjórnarformaður Þórs hf., í við tali við Vísi í morgun. „Þær búa annaðhvort í Þýzkalandi eða Istan búl. Við greiðum 25% hærra kaup en gildandi flugfreyjusamningar gera ráð fyrir og auk þess fá stúlk urnar dagpeninga, sem nema um 2200 ísl. kr. fyrir hvern dag, sem þær dvelja utan heimahafnar“. Samningar hafa tekizt milli Flug félagsins Þórs og tyrkneskra aðila um farþegaflutninga rhilli Þýzkar lands og Istanbúl. Farnar verða fjórar flugferðir í viku, og hefjast ferðimar um miðjan septembermán uð. Flugfélagið Þór hefur tekið tvær Vanguard skrúfuþotur á leigu frá brezku flugfélagi til þessara nota. FÍeira er á döfinni hjá Þór hf., svo sem flug milli Lundúna og Kúala Lúmpúr, og flug með land- búnaðarafurðir f Afriku.. Ekki hef- ur þó ennþá verið gengið frá samn ingum á þvt sviði. — ÞB Ólafur Jóhannesson bankar á dyrnar hjá forsetanum. Stjómarskipti ó morgun Jöhann Hafstein Magnús Jónsson Auður Auðuns Ingólfur Jónsson I dag • Ný ríkisstjórn tekur við völdum eftir hádegi á inorg- un. Ráðuneyti Jóhanns Haf- steín heldur sinn síðasta rík- isráðsfund suður á Bessa- stöðum laust fyrir hádegi á morgun eða ki. 11.45 Dg skil- ar þá af sér þeim ríkisráðs- afgreiðslum, sem fyrir liggja. Eftir hádegi, kl. 15,30 lieldur forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn ríkisráðsfund aftur suður á Bessastöðum, cn þá með nýjum mönnum, — ráðu neyti Ólafs Jóhannessonar, sem tekur þá við völdum. Eftir ríkisráðsfundinn á morg- un mun nýja stjórnin gera þjóð- inni kunnugt um máleínasamn- inginn er stjórnarsamstarf flokk anna þriggja á að hvíla á. Búast má við því að fráfar- andi ráöherrar muni nota daginn í dag til að gera hreint fyrir gínum dyrum í hinum einstöku ráðuneyt,.:u, þannig að nýir ráð herrar geti setzt við hreint borð við ráðherrastólana eftir há- degi á morgun. — VJ Myndatexti: Á elleftu stundu í morgun gekk Ólaf' r Jóhannesson á fund forseta íslands, Krístjáns Eld- jáms. Gylfi Þ. Gíslason Emil Jónsson Eggert G. Þorsteinsson Ólafur Jóhannesson Einar Ágústsson Haildór E. Sigurðsson Á morgun Lúðvfk Jósefsson Magnús Hannibal Magnús Torfi Kjartansson Valdimarsson Ólafsson Árásarmenn Sophiu Loren handteknir - Sjá bls. 3 „Leiðindaveður44 55 — segir Veðurstofan F rábært — segir Búnaðarfélagið ,,Það verður rigning og súld allt frá Vík og vestur um land, vestur á Firði", sagðj Knútur Knudsen, veðurfræðingur Vísi í morgun. „Og ég býst við að þetta veður haldist á þessu svæði nokkuð næstu 2 sólarhringa, því miður. Annars er hlýtt, hiti hvergi undir 10 gráð um.“ Hvert eiga sólþyrstir að fara í sumarleyfi? „Það lftur út fyrir að veðrið sé og verði á næstunni skást á SA- landinu og á Austfjörðum. Fyrir norðan verður breytilegt veður, sums staðar rigning, en sem sé leiðindaveður hér fyrir sunnan og ( „Leiðindaveður? Þetta var stór- Pfnt og gat ekki betra verið,“ — sagði Gísli Kristjánsson hjá Bún- aðarfélagi fslands í morgun, „bænd ur eru víöa um land farnir að brýna ljái, því að grassprettan hef ur tekið stórkostlega við sér f súld irini, maður blátt áfram getur séð grasið spretta. Ég hélt reyndar, að það hefð] blómstrað einhvers stað- ar og væri kominn punktur, en það hefur ekki orðið. Grasið var orðið þurfandi fyrir vætuna, kbm inn kyrkingur i sprettuna vegna langvarandi þurrka, þessi væta mátti ekk; seinna koma, en hún kemur líka f góðar þarfir. Nú fara hpir afl cilbS ** — GO „Hún verður dýr, þuð kemur frum í $köftunum## svaraði Visisstrákur Hannibal • „Vísis, Vísir, ný ríkis- stjórn“, hrópaði einn af fjöl- mörgum Vísis-strákum á Snorrabrautinni í gær. Hanni bal Valdimarsson, sem þar var á ferð, snaraði sér að stráksa og spurði: „Hvað kost ar það“. — „Ja, Vísir kostar 12 krónur”. — „En ríkisstjóm in“, spurði Hannibal. „Hún verður dýr, það kemur fram í sköttunum“, svaraði sá stutti að bragði. „Þarna er á ferðinni efni í góðan stjómmálamann", sagði Hannibal Valdimarsson, sem sagði Vfsi þessa sögu f morgun. —VJ Hvað fékkstu út úr sumarfríinu? Það er er misjafnt hvað fólk fær út úr sumarfríinu sínu. Ætl unin með sumarfríi er að menn hvfli lúin bein, „slappi af“ eins og það er vtfst aJmennt kallað. Tókst það í sumarfríinu? Hvem ig var heilsan eftir sumarfríið? Um þetta efni er fjallað á síðu 13 1' dag — Fjölskyldan og heim ilið. Akureyringar fá anga af skatta- lögreglu Skattalögreglan svokal'laða hefur teygt anga sína til Alkúr- eyrar. Upp frá þessu mega Ak ureyringar fara að vara sig og hafa al'lt samkvæmt beztu vit- und á framtalinu sínu. Stutt frétt um þetta og ýmislegt ann að á bls. 4 — í skyndi. Sambýlið erfitt? Það færist æ meir í vöxt hér á landi, ekki sízt f Reykjavtfk og á hinum þéttbýllj stöðum, að menn lifi saman i blokkhús um eða öðrum formum sambýl is. En það getur haft f för með sér vissar hættur, sumir menn eru jafnvel óhæfir til að búa í sambýli við aðra menn. Les- andi einn skrifar á bls. 7 um erfitt sambýli og biður um ráð leggingar. — Sjá Lesendur hafa orðið. Hvar er flotinn? Margir velta því eflaust fyrir sér hvar í ósköpunum allur hinn myndarlegi fiskiskipafloti okkar heldur sig. Einu sinni var stærst ur hluti hans að eltast við síld uppi við íslandsstrendur, — en f dag sinnir flotinn mikíu fjöl- breyttari veiðiskap. Við hringd- um í verstöðvamar f gær, — hljóðið var víðast gott, nema vestur á Patreksfirði. Sjá bls. 9

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.