Vísir - 27.07.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 27.07.1971, Blaðsíða 1
Undirbúa kynningarherferð vegna landhelgismálsins • 1 undirbúningi er nú í utan- ríkisráöuneytinu ailsherjar kynning arherferð á erlendum vettvangi á mðlstað íslendinga í Iandhel«ismál- inu, að því er Einar Ágúst°snn utan ríkisráðherra, sagði í viðtaii við Vísi [ morgun. «----------------------------------- Stefnt verður að því að koma að upplýsingum um nauðsyn íslend- inga til þess að færa út land’helgi sína í öllum helztu fjölmiölum f þeim löndum þar sem við eigum hagsmuna að gæta, svo að almenn- ingur og að sjálfsögðu ráðamenn geti betur gert sér grein fyriir því, hvaða hagsmunamál er hér á ferð- inni fy-rir íslenzkt þjóðarbú og hvers vegna íslendingar muni grípa til einMiða úbfærslu iandhelg- innar í 50 mflur fyrir 1. september 1972 náist ekki samkomulía uns út- færsluna við hlutaðeigandi þjóðir. — VJ „Framhald af baráttu Noregs gegn Hitler" Þjóðaratkvæðagreiðsla stend- ur fyrir dyrum í Noregi um hvort landið skuli ganga í EBE. 30% þjóðarinnar eru sögð óá- kveðin. Andstæðingar aöildar segja að nú eig; aö selja Noreg í ánauð. Sjá bls. 8 Engin vinstri sameining enn Alþýðuflokkurinn skrifaði Al- þýðubandalagi og Samtökum frjálslyndra bréf í upphafi og fór fram á viðræður. Bréfa- hafa legið niðri. bls. 7 egár 4000 manns fóru í bindindi Presturinn í bænum beitti sér fyrir sígarettubindindi allra bæj arbúa. Sjá bls. 2 „Cassius aldrei betri" ,,Ég hef aldrei verið betri,“ j sagði Cassíus Clay í nótt eftir að hann hafði leikið sér að Jimmy Ellis og sigrað hann á j tæknilegu rothöggj í s'iðustu i lotu. Guðmundur Gíslason, Á, hef ur nú sett 141 íslandsmet í sundi og rætt er við hann um nýju metin, sem hann setti á sundmeistaramótin-u Valur vann Breiðablik í 1. dejld f gærkvöldi og var sá sig ur sanngjern en varla sannfær andi. — sjá ibfóttir bls. 4 og 5 Rúðherranefnd EBE býður íslend- ingum fríverzlun með iðnaðarvörur — verndartollar verði úr sögunni 1. júli 1977 — ýmis svið utan við • Ráðherranefnd Efnahags- bandalags Evrópu samþykkti í nótt að bjóða íslendingum, Sví- um, Finnum, Svisslendingum, Austurríkismönnum og Portúgöl um að taka þátt í fríverzlun með iðnaðarvörur. Hins vegar fá þessar þjóðir ekki að hafa áhrif á ákvarðanir á ráðherrafundum. Niðurstöður ráðherrafundarins eru sagðar jákvæðar, en í frétta- skeytum segir, að Svíar hefðu viljað ná samningum á víðara sviði. EBE-menn urðu sammála um, að bezta lausnin mundi vera toll- frjáls verzlun við framangreindar þjóðir, þó yrði ýmsum sviðum hald ið utan við fríverzlunina í fyrstu !otu Meðaj þeirra vara, þar sem toliar verða lækkaðir hægt, eru pappír, járn og stál og úr, en sum HASETAHLUTURINN 150 TIL 200 ÞÚSUND KRÓNUR Vertíðin á Hornafirði hefur geng ið sérlega vel Hásetahluturinn er yfirleitt 150—200 þúsund krónur frá 15. maí í vor. Undanfarin ár hefur sá siður verið uppj á Hornafirði, að öllum flotanum er gefið frí V hálfan mán tsð tan þessa helgi. og þykir sú ;awnn hafa gefizt mjög vel. Sjó aiennirnir hafa þá unnið allar helg ar í sumar og orðnir þurfandi fyr ir almennilegt frí og geta notað svo langt frí sem þetta að eigin geðþótta. Mjög margir reyna að fara úr bænum þennan tíma, og þegar Vísir hringdi til Hafnar í Hornafirði í morgun, var rólegt um að íitast þar og varla nokkur sáila ferli — margir farnir í fríið. Humaraflinn hefur verið góður S sumar en nokkuð farið að draga úr undir lokin. Bátar af Suður- og Vesturlandi hafa mikið verið á humarveiðum þar austur frá, en nú hafa ný mið fundizt rétt við Vestmannaeyjar og þar er nú afli ágætur. —GG Huinaraflanum mokað upp sjá bls. 9. Hélt varla vatni Regnhlífin hélt varla þessum ó- sköpum af vatni, sem dundi allt í einu niður úr himninum — rgningarmyndir hafa verið sjald séðar á síðum blaðanna í sumar eins og rigningin i Reykjvík. — Þess vegna urðu margir steini- lostnir þegar haglél dundi yfir |>á f gærmorgun fylgt af snarpri rigningarskúr — í fjarska höfðu verið þrumur og eldingar. ríkjanna biðja um frekari undan- þágur. Fyrir aðrar iðnaðarvörur er reiknað með. að allir vemdartollar hafi verið afnumdir f viðsldptum milli ríkjanna hinn 1. júlí 1977, að því er segir í frétt norsku frétta- stofunnar NTB. BBE-rfkin vilja hafa vamagla í viðskiptasamningum vrð framan- greind riki, svo að unnt verði að breyta skilmálum, ef fríverzlunin veldur erfiðleikum að þeirra dómi. Fundur ráðherranefndarinnar varð „maraþonfundur". Á fundin- um var einnig tekin ákvörðun um tilhögun viðskipta við Bretland, Noreg, Danmörku og írland, sem sækja um aðild að bandalaginu, frá þeim tíma, sem samningar eru ttnd irritaðir, unz þeir taka gildi. Sem kunnugt er, óska Islending- ar, Svíar, Svisslendingar, Austurrík ismenn og Portúgalar ekki eftir að- ild að Efnahagsbandalaginu, heldur viðskiptasamningum við það. Evrópunefndinni var falið að fjaMa um framkvæmdaatriði við rfkin, sem sækja um aðild, svo sem verðlag á búvöru. Formaðurinn í ráðherranefnd EBE, ftalski utanríkisráðherrann Aldo Moro ,sagði á fundi með blaða mönnum klukkan fjögur f nótt, að samkomulag Efnahagsbandalagsins við hlutlausu rikin í Evrópu mundi draga úr viðsjám f Evrópu. Moro áleit, að ráðherranefndin mundi 1 baust veita Evrópunefndinni umboð til að semja við þessi ríki. Hann taldi, að Bretland, Noregur, Dan- mörk og írland mundu tengjast bandalaginu strax í haust í öllum aðalatriðum, en f lögfrasðilegum skilningi mundu þau ekki verða aðildarríki fyrr en frá janúar 1973. -HH Olíumöl fyrir Austfiröi ,,Það verður eflaust nóg að gera hjá Olíumöl hf, með stóru vélina, sem við höfum nýlega fengið. — Hún hefur undanfarið verið að mala og þurrka ohumöl fyrir Þórisós sf. austur í ölfusi og á sennilega eftir að vera þar í um hálfan mánuð“, sagði Ólafur Einarsson, stjómarfor maður Olíumalar hf. Vísi f gær, ,,að því loknu er enn ekki ákveðið, hvaða verkefnj vélin fær. Við höf um sent tilboð í verk fýrir Istak hf. á Suðurlandsvegi, en eftir er að sjá hvort við fáum það verkefni. Gömlu vélarnar okkar munu hafa nóg að snúast fyrir bæjarfélögin hér sem að Olíumöl hf. standa, — Keflvikingar bíða eftir að fá olíu- möl á götur og Kópavogur, einnig við hér f Garðahreppi". Sagði Ólafur að í bígerð væri að nokkur bæjarfélög á Austurlandi tækju sig saman um að fá ol'íumal- arvél frá Olíumöl hf. austur á firði til að bæta þar ástand gatnamála, en ekki er enn fullákveðið hvort af verður „ef af því verður“, sagöi Ólafur, „þá verður olíumðiin ef- laust flutt á tunnum um borð i akini austur á firði. Það er allt í lagj að flytja olíumölina þannig". — GG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.