Vísir - 27.07.1971, Blaðsíða 13
VÍ3ÍR . Þriöjudagur 27. júlí 1971.
13
Fyrr eðu síðar
ber hið óvænta
íyrír augu
— og það er jbað, sem gerir Ijósmyndafóku
svo spennandi, segir blaðaljósmyndari einn
i grein um betri sumarleyfismyndir
”Ef. þú ert meö einfalda mynda
vél máttu ekki búast viö
því, að þú fáir góða mynd af
hreindýri í 100 metra fjarlægð.
Haltu þér við nærmyndimar,
þær eru oftast eins skemmtileg
ar og leyfðu þeim, sem hafa
tæki til þess, að festa fyrir-
myndirnar, sem eru langt í
burtu á filmuna. Gerðu þér ljóst
að hversu fallegt sem útsýnis er,
hversu mikilfenglegir fossar og
fjöll eöa blátt Miðjarðarhafið,
þá er það hvemig við og fjöl-
skylda okkar komu fyrir sjónir
í þessu umhveitfj sem maður seg
ir frá og vill gjaman sýna mynd
»r af heima".
Tjetta segir ljósmyndari norska
blaðsins Aftenposten í grein
um það hvemig fólk eigi að fá
betri sumarleyfismyndir. Hann
gefur mörg fleiri góð ráð m.a.
það að draga mjmdatökurnar
ekki á langinn þannig að si6-
asti dagur sumarleyfisins fari í
æðisgengnar myndatökur og leit
að myndaefni. „Það verður
sjaldan góður árangur af
slíku“, segir hann. — „Láttu
myndavélina fremur vera með
í ferðinni á eins eðlilegan máta
og um væri að ræða einn úr
fjölskyldunni. — En láttu ekki
myndaefnið hræöa þig, „skjóttu
á“ og ef þú hefur tækifæri og
ert óömggur áttu aö taka fleiri
myndir af sama myndaefninu og
breyta ljósastillingunni á mis
munandj vegu..i,r;
Þrátt fyrir það, að meiri
filma eýÉtet með þessu rnóti þá
er sá kostnaður aðeins lítill
hluti útgjaldanna viö sumarleyf
ið — og þú ert jú ekki tilneydd-
ur að láta framkalla allar mynd-
irnaró Pantaðu heldur færri en
stærri myndi, hvort heldur, sem
þær em í lit eða svart-hvítu. Þá
losnarðu við að sýna hrúgu af
smámyndum rneð þessum orð-
um: það eru nokkrar dökkar
inn á milli.
/~kg þegar friinu er lokiö geym
irðu þá að taka síðustu
myndirnar á rúllunni til jólanna
eða páskanna? Þetta er fremur
óviturlegt. Filman versnar ef
hún er höfð í myndavélinni í
lengri tíma, litfilma ekki sízt.
Settu allar filmumar í framköll-
un í einu, þá hefurðu líka tæki-
færi til að vega og meta útkom
una meðan minningin um ljós-
myndatökuna er ennþá fersk og
þú lærir aí reyslunni. Þar að
auki...er alls ekki vis.tr að hæg-
virka og fínkoma filman sem
þú settir í myndavélina fyrir
sumarfríiö við Miðjarðarhafiö
eigi við myndatökur heima að
vetrarlagi.
■Y7"ertu alls ekki hræddur við að
' skipta um filmutegundir eft
ir aðstæðum og losaðu þig við
hræðsluna við svokailaðar hrað
filmur með grófum kornum. Þú
munt að vísu ná mestum skýr-
leika og sléttri áferð með hægri
svart-hvítri filmu eða lit-
filmu en hins vegar eru meiri
möguleikar á að velja mynda-
efni í mismunandi birtu með
hraðari filmu. Með þess konar
filmu er hægt aö ná þokkaleg-
um litmyndum, þegar er skýj-
að úti eða úði — og íyrir venju
legan áhugaijósmyndara leikur
skýrleiki filmunnar eða áferð
ekki mikið hlutverk þegar um
er að ræða myndir, sem eru
- gerðar 1 miðlungsstærð eða sýnd
ar I meðalgóðri sýningarvél.
Lestu aðeins notkunarreglur
um filmuna vel“.
/~|g Ijósmyndarinn segir að
^ þegar áhugamaðurmn um
ljósmyndun ætli að velja sér
Ijósmyndavél eigi hann að vega
og meta þörf sína á myndavél.
Sjá svolítið inn f framtiðina
og hugsa sér sem svo að senni
lega muni áhuginn fyrir ljós-
myndun aukast þannig. að það
borgi sig að byrja með vél, sem
gefi nokkra möguleika. — En
lykillinn að góðu myndunum
liggi samt í þessari spurningu:
„Þekkirðu vélina þfna vel?“
Bam þarf ekki
alitaf aö vera
brosandi á mynd-
nm til þess aö
þær séu góSar.
TTann ráðleggur IjásmyaKÍutum
að astfa sig á vélirmi án
þess að hafa í henni filmu áð-
ur en þeir taki hana í notkun
t.d. eigi þeir að læra utan að
hvemig þeir eigi að fá mynda-
efni f „fókus“ með því að srtóa
skffunni og muna eftir því f
hvaða ábt þeir eigi að snöa
henni til að fá viðfangsefniðnær
eða fjær, einnig aö kunna að
skipta um filmu án þess að
hálfur dagurinn farí í þaö, og
kunna að stilla inn á mismun-
andi myndaefni án þess að taka
leiðarvfeinn fram — „Tilfinn-
inguna fyrir myndavélintri fram
í fingurgómana" segir hann og
síðast en ekki sfzt að hafa vél-
ina ailtaf tiltæka til að taka 6-
vænt myndaefni, sem kann að
ber fyrir augu — þess vegna
verður að skrúfa filmuna fram
á næstu myndatöku strax, þeg-
ar búið er að taka mynd og auð
vitað verður að setja nýja fitme
í vélina um leið og btÍSð er að
taka á þá, sem fyrir er.
„Fyrr eða siðar ber írið ó-
vænta fyrir augn flestra, Iriö
einkennilega og sjaldgæfa og
þá getur það allt eins verRS
áhugaljósmyndarinn sem erhrrm
heppni. Það er það, sem gerir
Ijósmyndatöku svo spermandi".
—9B
(yyyy^yyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyyy^yyyywyyyy^^^yyyyyyi^^yyyy^^^^^yyyyn^i^
AMBASSADOR SflFASETT
Trésmiðjan Víðir
auglýsir
Glæsilegt úrval af vönduðum sófasettum
Verð frá kr. 29.800,—
Hagkvæmir greiðsluskilmálar
Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt
Ný sófasett koma í verzlunina daglega
Verzlið í Víði
Laugavegi 166 — Simar 22229 — 22222