Vísir - 27.07.1971, Blaðsíða 2
Bæjarfélag
í bindindi
Imyndaðu þér núna, að þú
•igir heima i litlum bæ, kaupstað
úti á land; og að sá kaupstaður
sé í niðurníðslu. Hér áður fyrr,
þegar allt var i betra gengi, var
kaupstaður þinn auðugur bær, og
þar var gott og gaman að búa.
Nú er öldin önnur.
Þeir tóku sig til og lögðu niður
flugvöllinn rétt hiá (ekki átt við
Keflavík í framtíðinni — og
heldur ekki Siglufjörð eftir sild
arárin) og með því að flugvöllur
inn var lagður af, missti bærinn
verulegan hluta allra sinna tekna.
Með hverjum mánuðinum sem
líður flytja æ fleiri burtu, og ef
bærinn á ekki að þurrkast alveg
út af landakortum, þá er greini
legt, að eitthvað róttækt veröur
að gera. Það verður að hrinda
nýjum fyrirtækjum af stokkum,
skapa fólki atvinnu og framleiða
eitthvað til að selja. Setja þennan
bæ í eins konar andlitslyftingu.
Og þetta mun, auðvitað kosta
peninga
JÞegar bæjarstjórnin situr svo
á rökstólum og ræðir þete* alvar
lega mál, gerist það að nsastórt
töbaksfyrirtæki auglýsir í blöðum
og segist vera tilbúið að gefa
hverju því bæjarfélagi, sem vilji
hætta að reykja í heilan mánuð
2.200.000.000. ísl. krónur. Eina
skilyrðið er að allir bæjarbúar
skrifi undir yfirlýsingu um að
þeir muni ekki reykja í 30 daga
— og að eftirlit sé með þv*t haft
að svo verði. Vitanlega á þetta
að vera auglýsingabrelia hjá tó-
baksfyrirtækinu! Stjórnendur
þess þykjast vissir um að slíkt
tóbaksbindindi sé ekki framkvæm
anlegt nokkurs staðar á byggðu
bóli.
Allir nema róninn
Jæja? Hvað myndir þú gera í
svona aðstöðu? Myndir þú — í
þeim tilgangi að bjarga bæjar-
félagj þínu frá hruni — leggja
slíkt bindindi á þig? Samþykkja
að gangast undir bannið og gefa
drengskaparloforð þitt fyrir því,
að reykur skuli ekk,- um vit þín
svífa næstu 30 daga?
Kannski sjáum við þér á ís-
landi einhvern tíma hvernig íbú
arnir í bandaríska smábænum
„Eagie Rock“ brugðust við slíku
tóbaksbindindi. Nú er nýlega far
ið að sýna kvikmynd sem um
þetta fjallar og heitir sú „Cold
Turkey".
Séra Crayton Brooks (sem Dick
van Dyke leikur) er reykingamað
ur sjálfur en hann er sannfærð
ur um að söfnuður hans' hafi til
að bera það viljaþrek, sem dugi
til að fórna tóbakinu í 30 daga
fyrir aMt það fé sefn boðið er.
Vitaniega er honum ijóst hve
erfitt þetta mun; verða, einkum
þegar þess er gætt, að af 4000
fullorðnum íbúum bæjarins. eru
þeir aðeins 29 sem ekki reykja.
Eftir að presturinn hefur svo
að segja þvingað söfnuð sinn út
£ bindindið — alla nema fylii-
byttu bæjarins, sem reykir 3
pakka á dag og lofar í staðinn
að fUytjast burt úr bænum þenn
an mánuð — þá færir sérann
tóbaksfyrirtækinu skjal, undirrit
að af öllutn bæjarbúum, þar sem
þeir lofa að reykja ekk; næstu
30 daga.
Öllum sígarettum er komið
burtu. Sjálfsalar eru tæmdir og
komið er á fót lögreglusveit bind
indismanna, sem fara um ailt og
leita, 'fylgjast vandlega með því
alls staðar, að hverg; sé maður
að kveikja sér í rettu — jafn-
vel ekki í bílum sem gegnum bæ
inn aka.
Snemma kemur spennan í ljós.
Ýmsir menn finna fyrir iliyrmis-
legri streitu Rakarinn í bænum
fer ailt í einu að klippa hár
viðskiptavinanna á hinn undarleg
asta hátt. Kennslukona ein get-
ur ekki á sér setið í kennslustund
um, að bera krítarmolann upp að
vörum sér og láta sem hún reyki.
í örvæntingu og geðvonzku spark
ar karlmaður einn hundi sínum
sex fet upp í loftið á meðan ann
ar maður stendur og ber höfði
sínu við tré í örvæntingu og tó-
baksþrá.
Og svo að segja hver einasti
maður borðar sér tii óbóta, nema
presturinn. sem fær útrás í að
hoppa upp f rúm með konu sjnni
mörgum sinnum á dag og segir
þá fþrótt sem þau iðka þar vera
hina fullkomnu andstæðu reyk-
inga.
Fégræðgi
„Eagle Rock“ (Arnarklettur)
verður iandsfrægur í einu vet-
fangi. Eins konar þjóðhátíðarand
rúmsloft myndast. Bærinn er full
ur af gestum, blaðamenn eru á
hverju strái og hvarvetna glampar
á iinsur sjónvarpsvéla, Aíiir eru
komnir ti; að festa á eða
filmu, viðbrögð bæjarbúa vi» tö-
baksþorstanum eftir því sem nð-
ur á sérhvern reyklausan dag og
annar byrjar.
Peningar fara að hellast yfir
bæjarbúa með þessum fjölda. Og
þeim mun meiri peninga sem bæj
arbúar fá, þeim mun fégnáðugri
verða þeir. Svo gráðugir. að þegar
aðeins ein klukkustund er eftir
af dögunum 30, þá ákveða þeir
að verðlaunafénu skuli skipt jafnt
milli bæjarbúa, þannig að hver
fái um fimmtíu og íimm þúsund
krónur f hlut. f stað þess að láta
alda peningana ganga beint til
bæjarsjóðsins.
Handrit þessarar kvikmyndar
skrifaöi Norman nokkur Lear, og
kemur hann víða við, allt frá tvi'
kvæni til mengunar umhverfis,
en hvort hann hefur ætlað sér að
gera kvikmynd um skaðsemi tó-
baks er vafasamt, enda segja
sumir þeir gagnrýnendur er um
myndina hafa skrifað, að þeir
hafi að aflokinni sýningu verið
fegnir að sjá „venjulega mann-
eskju" með líkkistunagla milili
varanna — heill bær í bindindi sé
geöveikrahæli Mkastur. —GG
e•••<••••••••••••••••••••••••••••••••e•••••••••••••••••••••••••••••■••••••«axii o>••••• •
söngvara
Ethel Kennedy og söngvarinn
Andy Williams ætla bráðum að
ganga í hjónahand — eftir því
sem blöð út um Evrópu boða nú.
Þau eru saman nú öllum stundum,
enda hefur Andy Williams skilið
vlð konu þá er hann hefur nokk
uð Iengi verið kvæntur, Claudine
Longet — og því ekki lengur
neitt því til fyrirstöðu að þau
Ethei demb; sér f bandið.
Ethel er 43 ára orðin, og
Williams er 40. í vor hafa þau
sézt saman við opinber tækifæri,
t.d. eins og þegar Joe Frazier
barði Múhammeð Ali í rot og
varð heimsmeistari í hnefaleik-
um áfram og einnig voru þau
saman þegar Kennedy-listasafnið
var opnað þann 27. maí sl. — Þá
birtu 2 blöð í Evrópu nákvæm
lega samhljóða fyrirsagnir af mál
inu: „Ethel Kennedy elskar Andy
Wiiliams" — voru það blöðin „Ici
Paris“ og „Neue Post“ í Þýzka
landi.
Andy Williams er sagður hafa
staðið sig afskaplega vel í þessu
tilhugalífi sínu og Kennedy-ekkj-
unnar. Hann flýgur stundum oft
í viku frá Los Angeles, þar sem
hann er f skemmtiiðnaðinum og
til “New York tii þess að geta
fylgt Ethel f kvöldverðartíoð.
Hann rífur sig á fætur á morgn-
ana og hjálpar henni að koma
krökkunum 11 í skólann, ekur
þeim þangað og stundum er hann
mættur við skólahliðið síðdegis og
bíður eftir að fylgja þeim heim.
Andy Williams hefur sagt biaða
mönnum, að hann og Ethel hafi
í hyggju að skríða saman í eina
sæng fljótlega. Upphaflega hafi
hann aðeins verið henni innan
handar sem vinur, en svo fór að
lokum, að hin unga kona hans,
Claúdine Longet þoldi ekki hvé
lengi Williams var fjarvistum af
heimilinu og hve oft hann gleymdi
að verma bó’ hennar. Bað hún
hann þá velja roilli sín og Kenn
edy-ekkjunnar. Andy valdi Ethel,
11 bama móður á fimmtugsaldri.
Ethel og Andy Williams, pop-söngvarinn. Þarna eru þau viö opnun Kennedy- Williams og fyrri kona hans, Claudine Longet. Með þeim á myndinni eru börn
listasafnsins í Washington. þeirra.