Vísir - 08.09.1971, Blaðsíða 6

Vísir - 08.09.1971, Blaðsíða 6
VIS IR. Miðvikudagur 8. september 1971, 6 Hátíðleg stund / Þaö má með sanni segja að það er hátíðleg stund fyrir börn in, þegar skólasetningin fer fram. Eftirvæntingin er áber- andi, e. t. v. örlítið meir; hjá yngstu börnunum, en eftirvænt ing er þó mikil hjá þeim eldri líka. Þessi mynd var tekin vest ur í Melaskóla á mánudaginn, þegar foreldrar mættu meö börn sín til skólasetningar hjá þeim yngstu ís og eldur gefin út í Stokkhólmi Vegleg bók og fallega útgef- in kom á markað i Sviþjóð í gær Is och eld heitir hún, eða ís og eldur. Það er LT-forlagið sem gefur út bókina, en höfund arnir eru Olov Isaksson og Sör en Hallgren, en sá fyrrnefndi reit textann, en Hallgren tók myndirnar. Bókin er gefin út i samráðj við Þjóðminjasafn Sví þjóðar en f safninu verður opn- uð sýning þann 14. september á myndum frá íslandi. Niðursuða í nefnd Vandamál niðursuðunnar á íslandi, einkum þau er snúa að niðursuðu sjávarafurða (ekki grænmetis, s. s grænna bauna) hafa verið afgreidd til nefndar, sem Magnús Kjartansson skip- aði á dögunum. Nefndin er skipuð Ragnari Arnalds, sem er formaður Steingrími Hermanns syni og Ólafi Hannibalssyni. Starfsmaður nefndarinnar er dr. Örn Erlendsson, hagfræðingur. Þá var skipuð nefnd til að fjalla um Hygen-skýrsluna um dökkt útlit vefjariðnaðarins í landinu Hana skipa Gunnar Guttormsson Þorvarður Alfons son, Haukur Björnsson og Jón Ingimarsson. Gáfu sparisjóðsbók með 344 þús. krónum Hjónin Björg Jónasdóttir og Jón Kr. Guðmundsson, Skóla- braut 30 á Akranesi gáfu nýlega Krabbameinsfélagi íslands spari sjóðsbók við Búnaðarbanka ís- lands með öllu innihaldi. — 344.877.60 Er hér um einstæða og rausnarlega gjöf að ræöa og hefur Krabbameinsfélagið beðið fyrir alúðarþakkir Þorgeir fær styrk Hinn 28. ágúst s. 1. var V fjórða sinn veitt viðurkenning úr Minningarsjóði Ara Jósefs- sonar skálds eins og venia hef ur verið á afmælisdegi hans. Þrjátíu þúsund krónur hlaut að þessu sinni sem viðurkenningu Þorgeir Þoroeirsson „fyrir marg háttaða athöfni í,:háeu sósíalískr ar menningar á Isláhdi, en þó einkanlega fyrir gunnreifa og óvægna gagnrýni í garð ísi. áhrifatækja" eins og segir í greinargerð sjöðsstjórnar. Áður hafa hlotið styrk úr sjóðnum beir Þorsteinn frá Hamri Guðbergur Bergsson, Vé steinn T.úðvfksson og Dagur Sig uröarson. G^f'i auk*isnotta Vestmannaevingar virðast á- nægðir með viðskipt,- sín við Nordisk Kabei og Traadfabrik, enda þótt verkið við seinni vatns leiðsluna hafi tafizt nokkuð. Tók NKT allan aukakostnað á áig og afhenti kaupstaðnum að auki 200 metra af varaleiðslu sem var þó ekkj gert ráð fyrir i samningnum við fyrirtækið. — Fyrri leiðslan getur flutt 21 sekúndufitra, en sú seinnj 53 sek.iitray- Samkvæmt spá um vatnsþörf í Evjum á þetta aö nægja til 1994. Vegleg handbðk fyrir húsbypoten^ur í vikunn,- kom út vegleg bók Handbók húsbyggjenda, gefin út af viðskiptabiónustunni í bók- inni er að finna fjöldamargar greinar eftir kunnáttumenn og ættj fólk að verða margs fróðara eftir lestur bókarinnar, sem fæst í bókabúðum. Stunda- skrárnar / skólunum hálfgert húmbúkk Einn á skólaaldrí skrifan „Þaö mundi einhvern tíma þjóta í tálknunum á fullorðn- um, ef ráðskazt væri með þá líkt og okkur, sem erum enn á skólaskyldua’dri. Það sér oft á, að það er varla litið á okk ur sem manneskjur. Við erum bara krakkar og þaö gerir ekk ert til, þótt okkur sé þvælt fram og til baka. Gott dæmi um þetta eru t. d. stundaskrárnar, sem eru hálf- gert húmbúkk. Þær eru þannig úr garði gerðar, að þær ná eng an veginn saman heldur er dag urinn margslitinn sundur hjá okkur, og við þurfum að vera á s'ifelldum hlaupum mestallan daginn í skólann og heim aftur. — Nokkrar kennsíustundir eru hafðar fyrir hádegi, en síöan er matarhlé, og þá er maður sendur heim Svo taka við nokkr ar kennr/istundir eftir hádegi, og þá þarf að fara aftur í skól- ann. Svo heim aftur. þar til kemur að aukafögunum, eins og handavinnu eða leikfimi eöa sundi Þá þarf að arka aftur af stað. Hvað halda menn að sé þá farinn mikill tími í ferðir á milli fyrir þann. sem alltaf þarf að bíða eftir strætó í hvert sinn? Þetta þættj ekki hagkvæmt, e Matsvein, 2. vélstjóra og háseta vantar strax á 200 tonna bát frá Reykjavík. Uppl. í síma 33172 og 11574. ÚTBOÐ Tilboð óskast í gröft og sprengivinnu í lóð Pósts og síma í Breiðholti III í Reykjavík. Útboðsgagna má vitja á skrifstofu Tækni- deildar Pósts og síma, Landssímahúsinu í Reykjavík, gegn 1.000.— kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Tæknideildar Pósts og síma miðvikudaginn 15. september 1971 klukkan 11 f. h. Póst- og símamálastjómin. Frá gagnfræðaskól- um Reykjavíkur Fimmtudaginn 9. september n. k., kl. 3—6 síðdegis, þurfa væntanlegir nemendur gagn- fræðaskóla Reykjavíkur (í 1., 2., 3. og 4. bekk) að staðfesta umsóknir sínar þar sem þeir hafa fengið skólavist. Nemendur þurfa þó ekki nauðsynlega að koma sjálfir í skólana, heldur nægir að aðrir staðfesti umsóknir fyrir þeirra hönd. Umsóknir um 3. og 4. bekk, sem ekki verða staðfestar á ofangreindum tíma falla úr gildi. Umsækjendur hafi með sér prófskírteini. Gagnfræðaskólar borgarinnar verða settir 20. september. — Nánar auglýst síðar. Fræðslustjórinn í Reykjavflc. ef fullorðnir ættu í hlut. Þá mundi einhver telja nauðsynlegt að hagræða stundaskránni bet- ur, og láta kenns'ustundirnar liggja saman til þess að fækka eitthvaö ferðunum á milli. — En þegar krakKagrislingar eru annars vegar þá skiptir þetta ekk; svo miklu Ef menn halda, að þetta séu einhverjar ýkjur hjá mér — að fyrirkomulagið sé svona — þá ættu þeir bara að Kta í stunda skrá barna sinna og sannfær ast með eigin augum. Það mundj ekkert saka, þótt foreldr ar létu sig þetta einhverju varða, Kannski geta þeir þar fundið einhverja skýringu á slælegri frammistöðu barna sinna á prófum. Mér og bekkjarfélögum mín- um væri alveg ósárt um það, þótt foreldrar okkar segðu tvö eða þrjú orð í hreinskilni við skólastjóra okkar og yfirkenn- ara um þetta atriði. Okkur þýð- ir hins vegar ekkert að nefna það þvY að þá erum við bara að brúka munn og ég veit ekki hvaða og hvaða g'æpi við erum aö drýgja um leið. Mér þýðir ekki einu sinni að nefna þetta við njömmu eöa pabba, þvf aö þau taka ekkert mark á því sem ég segi — enda er ég bara krakkj, Eða þau segja bara: „Svona góði hvað heldurðu að þú hafir vit á þessu góði.‘‘ — Og þar við situr svo Maður getur orðiö alveg mátt laus af ergelsi af að tala þannig viö fólk, sem leggur ekki við eyrun, — hvað þá að það hug leiði það, sem mann; liggur á hjarta. Það þýðir ekkert að geyma umræður um svona fram- kvæmdaatriði þar til foreldra- fundir hefjast. því að þá er það orðið um seinan og kennslustarf ið komið í fullan gang. Auk þess fara ekki þessir foreldrar manns á þá fundi til þess að tala máli okkar krakkanna, held ur miklu frekar til þess að hlusta á kennarana lepja í þá kvartanir yfir okkur. Við því eru þeir viðbúnir að gleypa melt ingarlaust.‘‘ Berjatínur skaöræði fyrir Heið- mörk Fríða skrifan „Til mín kom fólk á dögun- um, sem sagðj mér frá því, að margir stunduðu berjatínslu í Heiðmörk með berjatínum. Nú vita allir, að berjatínur fara illa með berjalyngið. Sér staklega ef óvarlega er farið að. og hætt er við, að fæstir þeirra, sem tt’na ber hér f nágrenninu, hlífi mikið lynginu eða hugsi yfirleitt mikið um þá sálma. Ég er sammála þessu fólki, sem sagð: mér frá þessu. að Heiðmörk eigi að vemda fyrir of mikilli átroðslu og þar um leið að friöa bað fyrir berjatín um Þar eru nefnilega skaðræðis gripir Það eru svo margir, sem á- nægju hafa af því, að tína ber í Heiðmörkinni, að það væri synd, ef bað væri eyði'agt með bvY að ganga of nærri lvnginu og tæta bað upp með tínum." HRINGÍÐ í SÍMA1-16-60 KL13-15

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.