Vísir - 22.09.1971, Blaðsíða 2

Vísir - 22.09.1971, Blaðsíða 2
Ævisago TÍTÓS á mynd Josip Broz Tito, leiötogi Júgó- slava, er um margar sakir hinn forvitnilegasti kommúnistafor- ingja í Austur-Evrópu. Hann er þeirra elztUr að árum og reynslu og verður sennilega í sögubókum framtíðarinnar talinn markverðastur fyrir að hafa allt frá lokum síðasta stríðs haldið uppi sjálfstæðri stefnu í pólitík Júgóslavíu, óháðri meiningum herranna í Kreml. Nú stendur fyrir dyrum að kvikmynda ævisögu Títós. Vegna þess fóru þau hjón, Richard Burt- on og Elizabeth Taylor í stutta heimsókn til Júgóslavíu að tala við Tító, en Burton á að fara með hlutverk þess gamla skæru- liða. Að sögn fór sérlega vel á með þeim Burton-hjónum og Títós- hjónum. Titó er 79 ára að aldri. Hann er Króati, en fæddist í Austur- ríki 1892, þegar Króatía laut veldi Austurríkiskeisara. Frá 1915 og til 1920 var hann í Rússlandi, lærði þá rússnesku og gerðist eldheit ur kommúnisti. Þegar byltingar- hríðin mesta var gengin yfir í Rússlandi, hélt Titó tý sinna heimahaga, og starfaði lengi sem tæknimaður í bílaiðnaðinum, en var ekki lengi á neinum ábveðn- um stað, því að hann var slæm ur með að æsa menn til verk- falla. Þurfti hann lengst af að ferðast dulbúinn undir fölsku nafni og með falsað vegabréf. Þaö var ekki fyrr en 1934 að hann tók að nota það nafn sem allur heimurinn þekkir hann nú undir: Tító. Taylor og Tító í Júgóslavíu. Tító gaf Taylor dýrindis vindlingamun nstykki og kallaöi hún það: /,-,Fegurstu gjöf sem ég nokkru sipni hef móttekiö". Vonandi aö Burton hafi ekki móögazt, eins og hann hefur reynt að hja^á hána dýrum steinum og menum. 'ít ?.'ý L: • * Aldursmunurinn I I ár - en ástin blómstrar eigi oð siður 57 ára maður kvænist 16 ára stúlku „Fjörutiu og eins árs aldurs- munur á hjónum? Nei, það er sko ekkert til að tala um, þegar okkur þykir vænt hvoru um ann- að“, segir Ej-And Henriksen, 57 ára gamall sAlgætisgerðamiaður í Kaupmannahöfn, sem ætlar sér á næstunni að kvænast 16 ára stúlku, Piu Torp að nafni. Þau hittust fyrir 10 mánuðum og tókust þá þegar með þeim góð ar ástir, og skarta nú bæði með hring á hendi: „Mér Iíður sem væri ég táning ur,“ segir Ejvind, „og nú ætla ég að sjá til þess að Pia setjist í skóla að læra eitthvað gagn- legt, svo að hún geti seinna meir séð fyrir sér sjálfI Einhver vandræði risu út af þv’i, að Pia er enn undir lögaldri og má ekki gifta sig og þar fyr- ir utan var hún undir eftirliti og umsjá barnaverndarnefndar. Var málið leyst með því, að Ejvind Henriksen tók hana í „for eldraumsjá“, og verður þeim svo fljótlega gefið leyfi til að giftast, væntanlega þá með konungsbréfi. Tító og Yolanka, kona hans aö taka u móti Burtonshjónunum. Yolanka kyssir „einhverja feg urstu ömmu í heimi“, eins og Tító skemmti sér viö aö kalla hana. i 1

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.