Vísir - 22.09.1971, Blaðsíða 7

Vísir - 22.09.1971, Blaðsíða 7
VISIR. Miðvikudagur 22 september 1971. cTWenningarmál Trúboð í V atíkani Jj’ímsntudagskvöW. Bíósalur norrænahússins er þéttsetinn. Þa'r er komið mennta fólk, grátt í framan af ábyrgðar tiifinningu og hugsanaþunga. Tvö hundruð alvörugefin augu horfa á nokkuð meinlætalegan, gráhærðan Dana, sem stendur V pontunni og greinir þessum valda hópi vitsmunafólks frá þvi hversu ómælanlega mikilvægt starf hann hefur unnið í frí- stundum. Ekkert er mikilsverðara — segir hann — en þetta: að leita uppi einstaklinga, sem ennþá kunna að smíða hluti, sem eng inn hefur nein not fyrir Iengur, seinasta handverksmanninn í dáinni iðngrein, gamlingja. sem ennþá karm skil á hálfgleymdu amboði — og festa þá dýrmætu kunnáttu á fiktra áður en við- komandi tekwr hana með sér í gröfina. Ræðumaðurinn getur þess, að forin hingað til íslands sé eins- iags píla'grímsferð. Hér vill hann boða innfæddum trú þessarar afturhverfu heimildasöfnunar, 9egir hann og brósir göfugmann lega í viðurkenningafskyni við sjáh'an srg. Lfkiega veit hann eidci, að það sem hann er að kyrma löndum vorum er hugs- unarháttur þeirra sjálfra, nokk urs konar andleg landfarsótt, sem lengi hefur herjað þetta land. En semsagt — hann brosir af göfgi þess, sem kominn er í Vatfkanið til að boða kaþólsku. Cvipur mannsins verður þó ^ fljótt aftur strangur og al- varlegur. Hér eru semsé engin gamanmál á ferð. Hafj maður játazt göfugum sjónarmiðum hinnar afturhverfu heimildasöfn unar þá er allt komið í eindaga. Það liggur í hlutarins eðli. — Hvarvetna eru atvinnugreinar að leggjast af. Landvinningar gleymskunnar eru hreint ofboðs Iegir. Og nú slær þessi Jórsala- fari þjóðháttadýrkunarinnar fram stóra trompinu sinu: Það var ekki fyrr en 1953 aö stofnuð voru aiþjóðleg samtök amatöra' í þjóðháttakvikmynd- un — segir hann og gerir kúnst pásu til þess að heilamir eitt, hundrað í salnum fái ráðrúm til að meötaka svo ofboðslegt hneyksli. Hugsið ykkur — segir hann svo — meir en 70 ár líöa frá uppgötvun kvikmyndavélarinn- ar þangað 'tij þetta samfellda á- tak er gert til að nýta hana í þágu heimildanna. Öll þessi ár er hún bara notuð til að skemmta!!! Það má næstum heyra nið- inn af þessari ofboðslegu stað- reynd þegar hún seytlar inní heilana á vitsmunaverunum i' salnum. Maður saknar þess sár- an að enginn hefur hugsað fvrir því að festa þessa sögulegu stund á filmu. Hér situr elítan úr húmanistaframleiðslu há- EFTIR ÞORGEIR ÞORGEIRSSON skóla Isiands og meðtekur sína fyrstu staðreynd um kvikmynda sögu heimsins. Vitaskuld gerir fyrirlesarinn sér grein fyrir mikilvægj stund arinnar enda gerir hann nú langa kúnstpásu, horfir göfugt og fast á miðjan vegginn bakvið hlustendur sína og herpir sam- an varirnar — enda má einbeita sér að því að loka þessu líf- færi ef jaegja skal um þá Lum- iere, Flaherty, Grierson, Vertov og alla hina, sem skráö hafa kvikmyndaheimildir um vinn- andi fólk i heiminum. Dyrnar á norrænahúsinu eru vandlega lokaðar og rennt fyrir gluggann á salnum. Hingað inn slæðast varia neinar staðreyndir, sem utandyraveröldinni heyra. ^ð lokinni þessar; andakt fer fyrirlesarinn nokkrum orð- um um tvö snilldarverka sinna, sem gestirnir hér í kvöld eiga að fá að sjá. Þau fjalla um báta smíði og jámsmíði ,,með gamla laginu“. Heimildamennimir eru nú báðir horfnir áf sjónarsvið- inu svo kunnátta þeirra varð- veitist hvergi lengur nema a þessari filmuspólu, er annað veif iö er tekin ofanúr hillu og sýnd fræðimönnum. Loks undirstrikar höfundur- inn það ennú einn gang, að myndirnar séu iofsöngur hans um horfna verkkunnáttu og um göfgi handverksins. Svo hefst sýningin. Sýningarvélin gengur á 24 römmum á sekúndu. Upptakan hefur bersýnilega veriö gerð á 16 römmum á sekúndu svo myndirnar minna á eldgamla Sjapplín einnegin fyrir það, að upptökutæknin er á líku stigi. Langvarandj sama sjónarhornið. Verkmaðurinn smáþokast úti myndjaðarinn, hrekkur skyndi- lega inn’i miðjan myndflöt eins og fyrir kraftaverk og heldur áfram að bardúsa eitthvað, sem oft ekkj sést af því hann þarf -r- verksins vegna — að snúa rass- inum í myndavélina. Stíll frásagnarinnar einkenn.- ist einna helzt áf nýtni. Ljós- flekkirnir við uppháf og enda hverrar spólu eru ekki einu sinni klipptir frá. Fiiman heggur ögn á samskeytunum. Sem betur fer eru skeytingar fáar.- Loks fer þó allt að skjálfa og titra á tjáld inu og gengur svo langa stund, að fátt verður greint með vissu um framvindu hins göfuga hand verks jullusmiðsins. Loks er sýningin stöðvuð. Þegar hún fer í gang aftur er einnig búið að leiðrétta sýningarhraðann. Samt verða enn nokkrar truflanir og stöðvanir Slíkt' er ekki nema eðliiegt — hugsar rnaður — enn eru til milliónir sýninaar- manna í fullu fiöri um allan heim svo ekkert liggur á því að kynna sér réttu handtökin. Áhorfendur eru jafnbolinmóð- ir hvort heldur myndin sést á tjaidinu eða stööva'st. uesiur iMorræna nussms: /vage KornenDorg Þó segir doktorinn vió hlið- ina á mér í kennaratón við konu sína: \ „Það passar ekki saman vél- in og filrnan”. endanum lýkur þó þessari merku kvikmyndasýningu. I þvögunni á útleiöinni má heyra pröfessor einn segja: — ,,Það er fengur að fá þessi sjón armið frá viðurkenndum, erlend um fagmanni". En minn fengur er bara ein spurning: Getur-innilokun eiginlega kom izt á æðra stig en þetta, að gera iofsöngva um göfgj handverks ins án lágmarksvitundar um eig ið handbragö? Norrænahúsiö á svo vitaskuld margfaldar þakkir mínar og annarra fyrir að bafa lokað rétta aðila inn; með þessum sér stæða danska snillingi. Gunnar Gunnarsson skrifar um kvikmyndir: og dólgum Háskólabíó (mánudagsmynd) „Óþokkinn Accatone“ Leikstjóri: Pier Paolo Pasolini Aðalhlutverk: Franco Sitti Silvana Corsini. ★ ★★ „Óþokkinn Accatone" er fvrsta mynd Pasolinis, sem leik- stjóra. Hún var gerö árið 1961, en fram til þess tíma, hafði Pas olini fengizt við rjtstörf. Á full- orðinsárum fékk hann svo auk- inn áhuga á kvikmyndinni, en eftir sem áður er yrkisefni hans hið sama: kjör fólks, umhverfi þess og örlög, sem aðstæður bjóða mönnum. Nokkrar myndir eftir Pasolini hafa verið sýndar hér á síð- ustu árum, svo sem Mama Roma, sem Laugarásbíó sýndi á þessu ári. „Accatone” er raunsæ ádeilu mynd. Látin gerast f næsta viö urstyggilegu borgarhverfi í út- jaðri Rómar, þar sem mætist ó- býggt land og kofaræksni sem bas'llýður borgarinnar hefur hróflaö yfir sig úr svo sem ekki neinu. Aðalhetja myndarinnar, Accatone, er ungur maður, en nokkuð framgjarn — þ.e. hann hefur hug á að eiga í sig að éta. Og með þrennu móti er hægt að strita fyrir brauði í fátækra- hverfj Rómaborgar: Að slfta sér út í verkamannavinnu fvrir smánarlaun. Að gera út lag- lega stelpu, eða stunda smá- hnupl. Pasolini dregur upp ó- hugnanlega mvnd af hinum von lausa, tækifærislausa lýð, sem býr bjargarlaus í hreysum stór- borgar, bölsýnislýsing hans er þó að minu viti hvergi yfirdrif in. — Hann kryddar samræður slæpingjanna mjög með hund- ingslegri kímni og gálgahúmor, svo við liggur að hrollur fari um mann hér í velferðarsælunni. „Accatone" er auðskilin hverju hami, og þrátt fyrir of- boð litla væmni, einkum þó í enda myndarinnar, er hún eng in tárafióðsmynd á borð við vell una sem bfóið sýnir 6 daga vik unnar. Um er. að ræða hroll- kalda lýsingu á venjulegu ítölsku fólki í venjulegu ítölsku umhverfi. Kannski svoiitið þvælt efni núorðið, en þá er að gæta þess, að myndin var gerð árið 1961 og síðan hefur hróður Pasolinis vaxið stórum. Vilji menn eyða kvöldstund í að horfa á listaverk, þá væri ekki úr vegi að skreppa i Hiá- skólabíó næsta mánudag. Þráinn Bertelsson, sem skrif að hefur um kvikmyndir fyrir Vísi um nokkuð langa hrið, hef ur nú hætt því pári, og hefirr . orðið úr að undirritaður reym eftir getu að skýra leseödum þessa blaðs nokkuð frá þvl, hvað kvikmyndahús hafa að bjóða fólki. Ekki veröur fjaUað um kvik- myndir af neinni sérCræðiþefck- ingu — hún er ekki til staðar — fremur sem alþýölega skemmt un manna hér í komandi skamm degisrökfcri. Enginn skyidi ætla aö hægt ' sé að skrifa um allar myndir sem bjóðast í Reykjavik, til þess þyrfti her manns, en reynt verður að sinna þeim myndum, sem einhvers þykja veröar. Blaðburðarbörn óskast í eftirtalin hverfi: LAUGAVEG LINDARGÖTU BLESUGRÓF Vinsamlegast hafið sambaod viðafgreiðsluna Dogblaðið Vísír

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.