Vísir - 28.09.1971, Blaðsíða 3

Vísir - 28.09.1971, Blaðsíða 3
V I S I R . Þriðjudagur 28. september 1971. 3 í MORGUN UTLÖNDI MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Danir nálgast EBE-aðild Danir eru að því komnir *að undirrita samning um aðild að Efnahagsbanda- lagi Evrópu, og verður það væntanlega í desember, að sögn fréttamanns norsku : fréttastofunnar NTB í Briissel. Hann segir að bú- ið sé að ryðja úr vegi ýms- um minni háttar hindrun- um, eftir fund ambassa- dora í gær, og þeim hindr- unum, sem eftir séu, verði líklega rutt burt í október og nóvember. Enn hafi ekki verið gengið frá þeim reglum, sem skuli gilda um fiskveiðar Færeyinga og Græn- lendinga. Það verði að bíða, þar til búið verði að semja endanlega um sjávarútvegsmál í EBE eftir stækk un bandalagsins. Danska sendinefndin í Briissel lét í ljós áhyggjur yfir því, að sjáv arútvegsmálin séu enn óleyst. — Nefndin segir, að ekki komi trl greina að geyma það vandamál rneð öllu, þangað til aðildin að EBE sé orðin raunveruleiki. Leysa verði úr þessum vanda mjög fljótlega, og finna verði sanngjarna lausn, þar s^m kostir og ókostir jafnist. Landbúnaðarráðherrar EBE-ríkj- anna ræddu í gærkvöldi um þá örðugu aðstöðu, sem fljótandi gengi ýmissa ríkja valda stefnunni í land búnaðarmálum. Evrópunefndin, ein stofnun Efnahagsbandalagsins, hef ur látið í ljós ótta um, að kerfi með útflutningsstyrkjum og innflutnings gjöldum geti komið samkeppnisað- stöðu ríkjanna úr skorðum. í ráði er, aö þjóöaratkvæða- greiðsla fari fram í Danmörku, þeg ar til þess kemur, að opinberir ful'l trúar hafi samið um aðild að EBE. Umsjón Haukur Helgason Fyrsti gervi- hnöttur Japana Japanir skutu f morgun fyreta gervíhnetti sínum á braut um jörðu. Hnettinum var skotið með fjög- urra þrepa eldflaug, og er tilgang- ur hans að senda vísindalegar upp lýsingar tij jarðar. Sífellt óeirðir í ALLTAF FLEIRI A HJÓLUM Þeim fjölgar stöðugt, sem taka reiðhjólið fram yfir bifreiðina í stórborgunum erlendis. í Banda ríkjunum má nú orðið sjá kunna forustumenn í viðskiptum og stjórnmálum á langri leið til vinnu á reiðhjóli, og borgaryfirvöld láta gera sérstakar hjólreiðagötur. Fjöidi hjólreiðamanna í Banda ríkjunum hefur margfaldazt á einu til tveimur árum. — Myndin sýnir áhugafólk á götum New York. Suður-Víetnam Átök urðu í morgun milli lög- reglu og kröfugöngumanna, sem mótmæltu þvf f Saigon að Thieu sé eini fnambjóðandinn f forsetakosn ingunum. Lögreglan beitti táragasi gegn 200 uppgjafarhermönnum og stúdentum, sem reyndu að ryðj- ast inn í miðhluta borgarinnar. Fjórir bflar voru brenndir. — Kröifugöngumenn köstuðu grjóti. Einn af forystumönnum þeirra segir, að byssukúla hafi hæft öx’l manns, serni var að flýja frá ein- um bílanna, en lögreglan segist ekki hafa beitt skotvopnum. Á sama tfma brenndi annar hóp ui gamalla hermanna og stúdenta áróðursspjöld Thieus, og skoruðu þeir á fólk ð sitja heima f foreeta kosningunum 3. október. Óeirðir hafa verið nær daglegt brauð, síðan í Ijós kom, að Thieu verður einn f framboði án andstöðu. KARON SAMTÖK SYNINGAFOLKS í HERMANNAGÖNGU MEÐ LlKKISTUNUM Þrjú þúsund stuðnings- menn kaþólska skæruliða- flokksins írska lýðveldis- hersins (IRA) þrömmuðu í gærkvöldi í hergöngustíl með líkkistum stúlku og pilts, sem biðu bana, þegar þau handfjötluðu sprengju í Belfast. þrömmuðu ungir lýðveldissinnar á eftir þeim. Um fimmtán þúsund Norður-írar og brezkir hermenn voru við út- förina. Unga fólkið var grafið hlið við hlið. Lögreglan í írska Iýðveldinu lok- aði í gær landamærunum til Norð- ur-írlands, eftir að tonni af sprengi efni haföi verið stolið í sements verksmiðju, sem er sunnan landa- mæranna. Seinna var sagt, að mik itl hluti sprengiefnisins hefði kom ið i leitimar. Á meðan halda forsætisráðherrar Bretlands, N-Irlands o-g Irska lýð- veldisins áfram fundum um ólguna á N-írlandi. Kínverjar oðsfoðo N-Vietnam 1. NÁMSKEIÐ f almennri framkomu, snyrt ingu og hárgreiðslu kennt verður við: Hreyfingar, fataval, mataræði og fleira. 2. NÁMSKEIÐ fyrir sýningarstúlkur og fyrirsætur. Kennt verður samkvæmt hinu brezka kerfi, YOUNG LONDONER, sem fylgir kröfum tímans hverju sinni í allri tækni varðandi þessi störf. Rosina Mary Curry, 18 ára, og Gerard O’Hare, 17 ára, létust I sprengingu í húsi skammt frá heim ili sínu í rómversk-kaþólska Falls Road-hverfinu í Belfast á fimmtu- daginn. Þegar líkkistur þeirra voru bomar til Milltown-kirkjugarðsins, Kína og Norður-Víetnam hafa undirritað samning um hernaðar- og efnahagsaðstoð Kínverja, að sögn fréttastofunnar Nýja Kína í morgun. Er sagt, að kínverska aðstoðin skipti sérstaklega miklu máli í ár vegna eyðilegginga, sem flóð hafa valdið í Norður-Víetnam. Mao Tsé Tung formaður kommúnistaflokks Kína og Chou En-Lai forsætisráö herra hétu stjórn N-Víetnam fyrir skömmu að veita henni alla hugs- anlega aðstoð. Kennsla hefst mánudaginn 4. október. Innritun og upplýsingar í síma 38126 dag- lega frá kl. 20—23. HANNA FRÍMANNSDÓTTIR.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.