Vísir - 11.10.1971, Blaðsíða 3

Vísir - 11.10.1971, Blaðsíða 3
V1 SIR . Mánudagur 11. október 1971. í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Kreisky vann mesta kosninga- sigurinn í sögu Austurríkis Umsjón Haukur Helgason Jafnaðarmenn fengu meira en helming atkvæða Forsætisráðherra Aust- urríkis Bruno Kreisky vann í gær mesta kosninga sigur í sögu Austurríkis, þegar jafnaðarmenn fengu 50,22 af hundraði atkvæða. Hann verður þó enn að bíða í tvo daga, áður en vitað verður með vissu, hvort flokkurinn fær hrein an meirihluta á þingi. Kreisky hefur um hríð verið for sætisráðherra í minnihlutastjóm austurríska sósíalistaflok!ksins, sem FORNARDYRTLOÐA Flóð taka mikinn toll í Asíu, og fyrir skömmu varð eyjan Ceylon fyrir barðinu á miklum flóðum. Á myndinni fómar gömul kona höndum í örvæntingu við hmnið hús sitt. Úrslit í Bremen trausts- yfirlýsing við Willy Brandt er sósíaldemókratískur flokkur. í kosningunum í gær varð flokk urinn hinn fyrsti í sögu Austur- ríkis til að fá hreinan meirihluta í kosningum. Samkvæmt niðurstöð- um í morgun ætti flokkurinn að fá 93 þingmenn kjörna af 183, sem sitja á þinginu. Eftir var þó aö telja 105.314 atkvæði, sem voru send í pósti, og er ekki taliö úti- lokað að jafnaðarmenn tapi einu af þingsætum sínum, þegar þau at- kvseði veröa talin. Auk þess fær stærsti flokkurinn á þinginu venjulega kjörinn forseta þess og forsetinn hefur ekki at- kvæðisrétt. Með því geta jafnaðar menn því misst eitt sætá í revnd. Þá gæti stjómarandstaðan, hægri sinnaði þjóöarflokkurinn og ftels isflokkurinn fengið meirihluta. 1 morgun hafði þjóðarflokkurinn feng ið 80 kjöma og frelsisflokkurinn 10. Þjóðarflokkurinn var í ríkisstjóm frá stríöslokum, þar til jafnaðar- menn mynduðu minnihlutastjóm í marz í fyrra. Flokfcurinn beið nú mesta ósigur sinn og fékk aðeins 42.88 prósent atkvæða. Frelsisflokk urinn fékk 5,4% og kommúnistar 1,36 prösent. Þótt fcommúnistar bættu við sig fylgi, nægði það ekfci til þess að þeir fengju þingmenn kjöma. Bruno Kreisky er sextugur og fram að kosningunum hafði hann orðið að stjórna með stuðning; sex þingmanna frelsi’sfllokfcsins. Hann sagði í morgun, að stjóm armyndun yrði áfcveðin, þegar stjórn jafnaðarmannaflokksins kem ur saman á þriðjudag. Ef sam- steypa verður nauðsynleg ,er gert ráð fyrir að jafnaðarmenn og frelsis flokkurinn taki höndum saman. — Nýnasistar þurrkuðust út Ríkisstjóm Willy Brandts fékk óvænta traustsyfir- lýsingu í gær, þegar jafnað armannaflokkurinn vann yfirburðasigur í fylkis- kosningum í Bremen. — Flokkur Adolf von Thadd- ens, sem sumir telja nýnas Ballettdans- arar farast í flugslysi Niu beztu ballcttdansL. ar í Arg- entfnu fórust í gærkvöldi, þegar flugvél hrapaði i árfarveg skammt frá Buenos Aires. Froskmenn leit uðu í morgun að líkunum. Meðal þeirra, sem fórust var f'Jomm Fontenla, heimsfræg ball- ettdansmær og Jose Neglia dansfé- lagi hennar. istaflokk beið algeran ósig ur og fylfi? hans minnkaði úr 8,8% í 2,8%. Flokkur von Thaddens fékfc nú engan þingmann kjörinn, og hann hefur nú einungis fulltrúa á einu fylkisþingi í landinu Báden-Wtirt- emburg. Talsmaður jafnaðarmanna sagði í nótt að stuðningur 55% kjós- enda væri traiistsyfirlýsing við stefnu Brandts um friðsamlega sambúð og sættir við Austur- Evrópuríkin. Jafnaðarmenn fá nú 59 af 100 þingsætum á fylkisþing inu. Kristilegir demökratar, sem réð ust hart gegn stefnu Brandts í kosn ingabaráttunni, fá 31,56% atkvæða og 34 sæti, sem er aukning um tvo fulltrúa. Frjálslyndir töpuðu og fengu nú 7,1% og misstu þrjá af sínum tíu fulltrúum. Kommúnistar buðu nú fram i fyrsta sinn, en þeir fengu 3.1% og komust ekki upp í þau fimm pró- sent, sem þarf til að fá fulltrúa á þioginu. Jafnaðarmenn bættu við sig níu Bruno Kreisky varð áður að stjóma með minnihlutastjóm. Fornaldar- llfverur vaktar til lífsins Sovézki jarðefnafræðingurinn Nikolaj Tjúdinof hefur lífgað við röskiega 250 milljón ára gamiar lífverur, sem hann fann í kalisalt- krystöUum. Með sérstöbum útbúnaði skapaði hann að nýju þau loftslags- og hita skilyrði, sem einkenndu það for- sögulega ttmabil, þegar hið mikla Permhaf lá miffi Norðurúral og Úkraínu. Ljósmyndavéi skráði öll stig tilraunar Tjúdfnofs, sem tók 73 klufckutíma, unz hið ótrúlega kusk fór að sýna sig í tilraunaglas- inu. Hinar örsmáu lífverur fomald ar vom „vaknaðar" og famar að tímgast. Þannig hefur sannazt sú kenning stofnanda sovézkrar jarð- efnafræði, að Iffið í gróum eöa fræj um geti varöveitzt jarðtímabilum saman. prósentum í þessum bosningum. Franz-Josef Strauss, sem er leið- togi kristilega flokksins í Bayem, segir, að jafnaðarmenn hafi fengið aukinn stuöning vinstri siinna. — Hann segir að Willy Brandt haldi á- fram í vinstri átt. Flokkur Willy Brandts hefur yfirleitt tapað í fylkiskosning um að undanförnu, en í Brem en fékk hann meirihluta. Diplómatinn hættulegur við stýrið Danska utanríkisráöuneytið hef- ur að undanförnu fjallað um mjög „viðkvæmt" mái sem varð ar háttsettan diplómat. Bíllykl- arnir vom teknir af honum á laugardaginn eftir að hann haföi átt þátt í tveimur bílslysum á Norður-Sjálandi, Þetta er Taghi Amid sendiráðs maður frá íran og er sagt að hann hafi verið undir áhrifum þegar lögreglan skipti sér af ferðum hans á laugardag. Þó mun ekki hafa verið um'.áhrif áfengis að ræða. Taghi hefur sjálfur skýrt lög- reglunni frá því að hann nafi hvorki verið sjúkur né hafi hann tekið nein lyf, áður en hann lenti i slysunum. Hins vegar seg ist hann ekkert vita um annað slysið. Slysið sem hann neitar að hafa átt þátt í var þegar bif- reið hans var ekiö á steinvegg í Helsinge. Bifreiðinni var strax ekið áfram en sjónarvottar skýrðu frá númerinu. Lýst var eftir bifreiðinni og tuttugu mínútum síðar fannst hún þá hafði hún lent í árskstri við annan bíl á þjóðveginum til Hombæk. Diplómatinn hafði ekki virt stöðvunarskyldu og ekið rakleitt inn á aðalbraut. Ökumaður bíls ins sem fyrir varð náði ekki að stöðva og þær skullu saman. Lögreglan segir að diplómat- inn hafi setið lengi í bílnum eftir slysið. Þegar hann loks kom út hafði hann virzt „deyfð ur“ og sljór og átt erfitt með að standa á fótunum. Ekkert tjón varö á mönnum. Vegna diplómatískrar stöðu mannsins gat lögreglan ekki gert annað en hindrað hann í að aka burt og var fariö með hann heim til sín.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.