Vísir - 11.10.1971, Blaðsíða 5

Vísir - 11.10.1971, Blaðsíða 5
VÍ S5R. Mftnudagur H. október 1971. VÍKINGUR Á TTILÍTTMEÐ AB SI6RA AKURCYRIN6A — og eru ásamf Akranesi komnir i 3. umferð bikarkeppninnar Víkingur hafði mikla yf- ir’ urði gegn Akureyri í 2. umferð Bikarkeppni KSÍ, en íiðin mættust í gær í hávaðaroki og kulda á Melavellinum en veður- hamurinn virtist lítil áhrif hafa á Víkingana. Þeir sigr uðu með 3—0 og var það frekar of lítill sigur en hitt. Víkingur lék undan rokinu I fyrri hálfleik og var knötturinn nær stanzlaust á vallarhelmingi Akur- eyringa. Tækifæri til að skora voru mörg og góð, en aöeins tvívegis fór knötturinn í mark Akureyringa. Fyrra markið skoraði fyrirliöi Vík- ings, miðvörðurinn Jón Ólafsson, með hörkuskoti frá vítateig, en hið síðara var sjálfsmark Gunnars Aust fjörð eftir að knötturinn hafði dans að um á marklínu Akureyringa og nokkrir Víkingar komizt í dauða- færi, en ekki fór knötturinn í mark- ið, fyrr en Gunnar tók af þeim ómakið. Akureyringar áttu aöeins eitt hættulegt upphlaup í hálfieikn um og það rétt fyrir hlé. Kári Árna son lék þá upp allan kantinn og gaf fyrir til Eyjólfs, sem hitti ekki knöttinn í opnu færi. Áhorfendur, sem voru allmargir, bjuggust nú við að Akureyringar mundu taka völdin í leiknum, þeg- ar þeir nutu aðstoðar vindsins. En það var öðru nær. Leikurinn var þá frekar jafn —og upphlaup Vikings jafnvel hættulegri og undir lok leiksins náðu þeir yfirtökunum. Þá skoraði Þórhallur Jónasson þriðja mark Víkings eftir að hafa brotizt í gegn af haröfylgi. Það fer varla milli mála að Vík- ingsliðið er í mrkilli framför og enn eru hinir ungu drengir, sem sett hafa mikinn svip á leik Faxaflóa- úrvalsins í sumar, ekki komnir í meistaraflokkinn. Vörnin var sterk í þessum leik og einkum virtist Diðrik Ólafsson mjög öruggur í markinu. Þá var Jón Ólafsson traust ur að venju og Guðgeir Leifsson gerir alltaf stórskemmtilega hluti. í heild var liðið gott 'i leiknum, en þess má geta, aö einn bezta mann þess, Gunnar Gunnarsson, vantaði, en hann var settur í eins leiks Knöttinn siglir í mark Akureyringa OF STÓR SIGUR AKUR- NESINGA GEGN ÞRÓTTI sjálfsmark, án þess Árni Stefánsson komi við vömum. Ljósm. BB. Akurnesinga^ sigruðu Þrótt, Reykjavík, með 4—0 í leik liðanna í 2. umferð Bikarkeppni KSÍ á heima- veili sínum í gær. Leikur inn var ekki eins ójafn og lokatölurnar gefa til kynna og voru Þróttarar óheppn | ir að skora ekki að ininnsta I kosti tvisvar í ieiknum. Það var kalt og hvasst, þegar leikurinn var háður og einkenndist hann mjög af þeim aðstæðum. Þróttur lék undan vindj í fyrri hálf- ieik, en tókst ekki að skora, þrátt Jfyrir góð færi og tvívegis tókst j varnarniönnum Akurnesinga að bjarga á marklínu. Akurnesingar náðu af og til upphlaupum og úr einu þeirra tókst Eyleifi Hafsteins- syn; að skora. I s'iðari hálfleiknum snerist allt við og nú voru það Akurnesingar, sem sóttu miklu meira og þrivegis tókst þeim að senda knöttinn í rnark Þróttar. Eyleifur, Björn Lár- usson og Teitur Þórðarson skoruðu. Akurnesingar eru þar með komnir í 3. umferð keppninnar ásamt Vík- ingi. — hsim. keppnisbann vegna bókana i leikj- um. Akureyrarliðið var dauft í þess- um leik og keppnisvilji virtist lítill sem enginn eftir erfitt sumar, þar sem vonbrigöin hafa verið mikil. Fall niöur í 2. deild og nú tap fyrir því liði, sem tekur sæti Akur- eyrar í 1. deildinni. —hsim. Fjölgað í 1. deild Ársþing Handknattleikssam bands íslands var háð um helg ina og voru ýmsar merkar til lögur samþykktar á þinginu m a. um áhugamannareglur, aug lýsingar á búningum félaga og þá var samþykkt að fjölga Iið- unum f 1. deild úr sex í sjö. Ármann og Víkingur munu leika um lausa sætið í deildinni og verða tveir leikir háðir. Verði jafnt að þeim loknum ræður markatala. Stjórnin var endur- kjörin og er Valgeir Ársælsson, formaður Nánar verður sagt frá þingstörfum síðar hér á íþróttasíðunni. /VWWVNAAAAAAAAAAA/V Fram vann Þrótt 13:10 Ekki var hann skemmti legur leikur Fram og Þrótt ar á Reykjavíkurmótinu í handknattleik í gærkvöldi en Fram liðið var þó yfír- leitt sterkara og sigraði með þriggja marka mun — 13—10, en flestir höfðu reiknað með auðveldari sigri liðsins. Þróttur skoraði fyrsta ma'rk leiks ins og var það í eina skiptið sem liðið hafði ’yfir í Ieiknum. Fram skorað,- næstu þrjú,. en þann mun tókst Þrótti að jafna', 3 — 3, og skoraðj Fram þá ekki mark í um 10 mín. Síðar skoraðj Árni Gunn- arsson tvö lagleg mörk fyrir Fram og staðan í leikhléi var 5—4 fyrir Fram Þróttur hélt í við Fram V fyrstu f síðari hálfleik, t.d. var staðan 6—6, en þá skoruöu Framarar nú þannig: Valur 4 4 0 0 60—32 8 næstu fjögur mörk og úrslit voru Fram 4 3 1 0 59—46 7 ráðin. Ekkj urðu miklar breytingar ÍR 5 2 1 2 74—68 5 eftir það og lokatölur eins og áður Víkingur 4 1 2 1 54-47 4 segir 13—10 fyrir Fram. Ármann 5 2 0 3 60—74 4 Arnar og Pálmi skoruðu flest KR 4 1 0 3 55-73 2 mörk fyrir Fram 3 hvor, Árni, Axel Þróttur 4 0 0 4 36—58 0 og Ingólfur 2 hver og Gylfi eitt. Jóhann Frímannsson va'r marka- hæstur Þróttara með 4 mörk, en Halldór, Guðmundur, Kjartan, Er- lingur, Árni og Ölafur skoruðu eitt mark hver. Dómgæzla í ölium leifejunum var til fyrirmyndar þetta le&kvöld, en um flauturnar héldu Björn Krist- jánsson, Karl Jóharmsson (sem dæmdj tvo lerki, en lék þann þriðja), Sveinn Kristjánsson og Óli Olsen. — hsím. Staðan í LyjxJ h:J,V*vr\ ;v .;; handbolta Staðan í Reykjavíkurmótinu er Manch. Utd. hefur tekið forystuna Manch. Utd. hefur tekið forustu í 1. deildinni ensku v eftir góðan sigur í Hudd- ersfield á laugardaginn, þar sem hinir frægu kapp ar, Best, Law og Charlton skoruðu mörk United. — Jafnframt tapaði Sheff. Utd. á heimavelli. fyrir Stoke — fyrsta tap liðsins á Bramall Lane í 15 leikj- um. Manch. Utd. hefur nú 19 stig, Sheff Utd. 18 og Manch. City og Derby 17 hvort lið og öll hafa leikið 12 leiki. Urslit í leikjunum á getrauna- seðlinum urðu þessi: 1 Arsenal—Newcastle 4—2 1 Coventry—Leeds 3—1 2 C. Palace-WB'A 0-2 x Derby—Tottenham 2—2 2 Huddersfield —Manch. Utd, 0 — 3 x Ipswich—Nottm, For. 1—1 x Liverpool-—Chelsea 0—0 1 Manch. City —Everton 1—0 2 Sheff. Utd.—Stoke 2—3 x West Ham — Leicester 1—1 1 Wolves —Southampton 4—2 x Portsmouth—Preston 1—1 Þegar 3 min. voru eftir af leikn- um á Highbury stóð 4—0 fyrir Arsenal, en á þessum lokamínútum skoraði McDonald tvívegis fyrir Newcastle. Chelsea náði í fyrsta skipti stigi í Liverpool á Anfield ji 8 eöa 9 ár. Liverpool hafði mikla ' yfirburði \ leiknum, en Peter Bonn- etti var hreint frábær i marki Chelsea Nánar á morgun. — hsim.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.