Vísir - 02.11.1971, Blaðsíða 6
V í SIR. Þríðjudagur 2. nóvember 1971,
Gatan heitir Þjórsárgata og jbað var engu likara en
ÞJÓRSÁ BELJAÐI
NIÐUR LITLU
Ein minnsta gata borgarinn-
ar ber nafn stærsta fljóts lands-
ins — Þjórsárgata heitir hún.
Og um helgina, þegar engu var
iíkara en syndaflóö væri aö
hefjast breyttist gatan skyndi
lega í beljandi á. Loksins stóð
gatan fyllilega undir nafni,
sögöu íbúarnir við þessa götu,
sem er milli flugvallarins og
vörugeymsluhúsa Hafskips, þar
sem áöur var Tfvolí Reykvík
inga.
Borgarstarfsmenn hafa verið
fullsparstunir á niðurföllin, —
aöeins eitt f götunni og allt
rennur niður að þessu eina nið
urfalli. „Við vorum búnir að
benda á hvernig færi," segja
íbúar við götuna, og vísa á
heljarstóra tjörn, sem hafði
myndazt eftir vatnsflauminn,
enda þótt niöurfallinu væri
haldið fríu viö rusl. „Hvað ger
ist í vetur, ef mikiö snjóar og
asahláka veröur?“ spurðu þeir
og engin furða' þótt spurt sé.
Strákurinn á myndinni var
hins vegar ánægður með gang
mála. íklæddur idíánabúningi
öslaöi hann í vatninu og kunni
mætavel við sig.
\
Vanræksla á réttar-
— segir aðalfundur Verzlunarráðs Islands
Afnám aðstöðugjalda og landsútsvara — rýtt
verðmyndunarkerfi meðal kröfugerða þingsins
Verðmyndunarkerfi í líkingu
ð það sem tíðkast hjá ná-
•annalöndunum er ein af kröf
n þeim sem birtast í ályktun
n aðalfundar Verzlunarráðs ís
nds, en fundurinn stóð um
;Igina. Skorar fundurinn á rík-
stjómina ab hverfa frá álagn-
itrarkerfi því, sem ríkt hefur og
fýnzt hefur þióðinni skrðlegt
l jafnframt sljóvgað verðskyn
Imennings, eins og segir i álykt
'in'nni Jafnframt er bent á nauð
syn þess að setja lög um varn-
ir gegn einokun og hringamynd-
un, sem og öðrum samkeppnis-
hömlum.
Fundurinn bendir á, að reynslan
'iafi afsannað þá kenningu að frjáls
ir viöskiptahættir hentuðu ekki hér
I ve^na einhæfs atvinnnlffo og tak-
^ markaöra gjaldeyristekna.
i Meðal þeirra mála, sem aðaífund
ur V.í. tekur fyrir eru gjaldþrota-
mál og átelur fundurinn, að gild-
andi lögum um meðferð gjaldþrota
mála. sérstaklega að því er varðar
rannsókn þeirra hefur ekki verið
framfylgt sem skyldi. Fundurinn
telur að hér sé um alvarlega van-
rækslu á réttargæzlu að ræða.
Þá leggur fundurinn til aö að-
stöðugjöld og.landsútsvöir verði af-
numin, enda tíðkist slíkir skattar
hvergi nema hér og raunar viður-
kennt að þar sé um m.iög gallað
skat'tform að ræöa. Aðalfundurinn
lýsi.r ennfremur því áliti sínu að
'■taðgre!ð-’”,"irfi skrttn heri ekki að
tai’ unp hér með hliðsjón af
reynslu annarra þjóða. — JH
WMWHaMgBBEBM5«aHaaB——t
mmmm
Húsnæðis-
vandræðin
A. Þ., kona
skrifan
í austurbænum
„Vegna fréttar á forsíðu Vísis
27. þ. m. um ung hjón, sem
fengu húsaskjól f geymslu á
Kleppsvegi, langar mig að
senda ykkur nokkrar línur.
Það gerist ugglaust margt
í Reykjavík, sem maöur veit
ekki um. En nú vitum viö,
ReykvYkingar, um svona tilfelli
við bæjardymar hjá okkur. (Og
vej nú þeim, sem segja, að þau
heföu bara getað veriö kyrr í
Hveragerði).
Hér er til mýgrútur af alls
konar mannúðarfélögum, en
þau eru flest, ef ekki öll uppi-
standandi fyrir almenn sam-
skot í mynd merkjasölu, happ-
drættis eða einhverju öðru. En
það virðist vanta eitt góðgerð-
arfélag, sem kalla mætti hús-
næðisvernd.
Hvað um það. Fýrst við skatt
píndu þegnarnir eigum að
standa undir þessu — og gerúm
það yfirleitt meö glöðu geöi,
— þá munar oljkur víst ekki
um að safna handa þessu fólki,
svo að það fái fyrir fyrstu út-
borgun í íbúð. Með öll þessi
blessuð litlu börn fær þaö aldrei
leigt. — Ég skora á Reykvík-
inga að hlaupa undir bagga
meö þeim.“
Fá
Fischer
og
Spassky
hingað?
G. skrifar
„Ég hef verið að velta þvi fyr
ir mér hvort ekki sé möguleiki
fyrir íslenzka skákmenn (með
aðstoð ríkisins) að bjóða þeim
Fischer og Spassky að heyja ein
vígi sitt hér á landi. Fjöldi á-
hugamanna og fréttamanna
fylgir þeim, svo að töiuverður
gjaldevrir ætti að koma inn í
landið.
I framhaldi af þessu má
spyrja, hvers vegna Island hef-
ur ekki verið boðið sem fimdar-
staður fyrir hinar ýmsu sam-
kundur svo sem Víetnam og
Salt-fundina og mai-gar fleiri
ráöstefnur og þar með stuðla að
nálgun heimsfriðar. ísland yrði
í sviðsljósinu og skýrt yrði frá
fréttum frá fslandi í fjölmiðium
víða um heim. Líkur eru á, að
greinar um landið yrðu birtar
og almenningur úti f heimi fengi
betri og meiri vitneskju úm
landið en þá, sem það fær af
nafn; þess, ísland.
Eða er Island ekki nógu hlut-
laust, til að hægt sé að haida
hér pólitískar ráðstefnur??*‘
Formósa
og S.Þ.
S. N. skrifan
„Nú er atkvæðagreiðslu um
aðild Kína að Sameinuðu þjóö-
unum lokið og Formósa úr leik,
að sinni. I sjónvarpinu létu svo
leiðtogar stjórnmálaflokkanna
álit sitt í Ijós um úrslit málsins.
Þess var naumast annars að
vænta en aðstandendur stjómar-
innar væru ánægðir, þótt mis-
jafna áherzlu legðu á þetta.
Einna tilkomumestur þeirra
þótti mér vera herra Arnalds.
Ef látið er óátalið orðbragð
hans um fyrrverandi ríkisstjóm,
sem væntanlega er uppeldinu að
kenna, fannst mér hann samt
furðu skeleggur I mörgu, sem
hann sagöi.
Já, aöild Formósu er sjálfsagt
ærið umdeilanleg og ég er herra
Arnalds samdóma í þvV, að eigi
nokkur að répresentera Kína
þá sé þaö það sjálft en ekki
hluti þess sem Formósa óumdeil
anlega er ennþá, hvað sem síð-
ar kann að verða. En svo kemur
til álita, hvort víkja beri For-
mósu úr samtökunum í stað þess
að gefa Kína tvö atkveeði, þótt
illa kynnu að nýtast sem stend-
ur. Ef litið er á málið þannig,
að ’i samtökum Sameinuðu þjóö
anna skuli eingöngu sitja full-
valda riki með eigin stjóm,
sendiráð o.s.frv. og þannig held
ég aö herra Amalds líti á málið,
þá er alveg Ijóst, að Formósa á
þar ekki heima. En þá kemur
í ljós, að svo mun ástatt um
fleiri. Tveir aðilar hafa dinglað
í samtökunum frá stofnun þeirra
og báðir með sömu ef þá ekki
öllu lakari aðstöðu í ríkismálefn
um sínum en t.d. Texas í USA
eða Manitoba' í Kanada. Þessir
aöilar em Hvíta-Rússland og
Úkranía, sem aðeins em fylki í
Sovétríkjunum og representera
ekki einu sinni sig sjálf, ekkert,
aðeins gjafaatkvæði til Sovét. —
Formósa hefur þó státað af því,
að hafa representerað Kínaveldi
og haft víða sendiráð, en þess-
ara tveggja sovézku fylkja er
yfirhöfuð hvergi getið í heims-
pólitíkinni. Ég vænti því þess,
að herra Amalds takj nú rögg
á sig og vinni ötullega að því,
að þessum sovézku fylkjum
verði vikið úr samtökunum og
sýni með því, að undirlægjur
einskis stórveldis viljum vér ís-
lendingar vera“.
HRINGIÐ í
SÍMA1-16-60
Kl. 13-15