Vísir - 02.11.1971, Blaðsíða 16

Vísir - 02.11.1971, Blaðsíða 16
Þriðjudagur 2. nóvember 1971. feturinn nðeins á Hvernvöllum og Vestfjurðukjúlku Snjókoma var á Hveravöllum f morgun og eins stigs frost og krapahríð norðantil á Vestfjörð um en raunverulegt vetrarveð ur var ekki annars staðar á land inu. Þó má vænta þess, að norð austanáttin sem er á noröan- verðu landinu muni smám sam- an ná sér um allt land og kólni þá í veðri um leið og birtir hér sunnanlands. Jafnvel er búist við vægu næturfrosti. —SB Dýrasta íslenzka frímerkið selt á 211 þús. í New York in út 1897 var verðlögð í listan um á 510 doHara. en fór á 1200 dollara eða rúmlega 100 þúsund krónur. Skildingamerki sem verðlagt var á 120 dollara fór á 240 dolilara. 20 aurar frá 1902 „í gildi“ fóru á 835 dollara og yfirleitt fóru íslenzku merkin gömiu þama á mjög háu verði. —JH Dýrasta íslenzka frí- merkið, sem selt hefur verið fór á uppboði í New York nýlega fyrir 2400 dollara, eða um 211 þúsund krónur. Hefur ekkert stakt ís- lenzkt frímerki selzt fyr ir svo háa upphæð- — Þama er um að ræða 5 aura yfirprentað með 3 frá 1897, óstimplað, en það mun vera eina ó- stimplaða merkið full- takkað af þessari útgáfu sem vitað er um . Yfirleitt fóru íslenzku merk ín á þessu uppboði á mun hærra verði en búizt var við, töiuvert yfir því veröi sem á- ætlað var í verölista. Fjórblokk af samskonar merki stimpluð og gróftökkuð — gef- i - i. Hasshundurinn frægi sætti sig ekki við vinnu aðstöðuna hjá póstinum, varð að fara út á 15 Senda 2 þús. króna víxla til samþykktar — og safna fyrir kirkjubygginguna „Fyrirtækj hafa yfirleitt tekið víxlunum okkar vel, og við höfum begar fengið endursenda sam- ’-iykkta víxla h'rir hundruð þúsunda króna“ sagði Ingvar Pálsson, verzlunarmaður. sem hefur ásamt öðrum annazt fjársöfnun fyrir ~istaðakirkju. Olíuverðið er óbreytt Að, svo miklu leyti sem olíufé Jögunum er kunugt um, verða iekki breytingar á verði olíu og ,.1 bensins á næstu mánuðum ®sagöi Indriði Pálsson forstjón aOlíufélagsins Skeljungs, þegar •Vísir kannaði hjá horium, hvort • hækkanir væru vsðntáhlegar. — ^Svo sem kunnugt er af fréttum J erlendis frá hsfur heimsmarkaðs »verð á olíu hækkað all nokkuð ® vegna aðgerða olíulandanna við o'mtn Miðjarðarhafs. Þessi hækk »un hefur ekki áhrif hér, þar Jsem á sama tíma hefur orðið ai.ækkun á farmgjöldum olíu og *vega þessar breytingar sem ’næst hver aöra upp að sögn tfndriða, — VJ Sóknarnefndin hefur sent fyrir- tækjum í Reykjavík víxla, sem falla 28. nóvember n.k. á vígslu- degi kirkjunnar. Hljóðar víxillinn upp á 2000 krónur, og að sögn Ingvars, hafa menn yfirleitt tekið þessari fjársöfnun ve!. • „Við sendum auk víxilblaðsins kurteislega orðað bréf, þar sem við förum þess á leit, að viðkom- andi fyrirtæki styðji okkur við lokaátakið í kirkjubyggingunni", sagði Ingvar, „einstaka menn háfa raunar ekki kunnað að meta þessa áðferð okkar, og menn hafa senni- lega ekkj iesið eða séð bréfið frá okkur. Við sendum svo húsráðendum í Bústaðasókn umslag og förum fram á að umslaginu verði skilað með ofurlítilli fjárhæð í. Einnig höfum við dreift sparibaukum í hús í Bústaðasókn, en víxlana fá aðeins fyrirtæki". Bústaðakirkja er byggð fyrir söfnunarfé að langmestu leyti, og hafa margir lagt þar þungt lóð á metaskálar en heildarkostnaður við kirkjubygginguna er áætlaður 20 milljónir. — GG „Skotárásin44 reyndist byggð á misskilningi Á leið sinni um Keflavikur- veginn brá ökumanni einum í brún, þegar framrúðan I bíl hans sprakk skyndiiega þegar hann var staddur á móts við Straumsvík. Enginn bíll var nærri og hvergi '■rjót á steinsteyptum veginum og manninum flaug aðeins ein skýr- ing í hug — þegar rúðan brotnaði svona skyndilega alveg upp úr ''urru. — Einhver hlaut að vera 'ð skjóta á bifreiðiná! Eins og hver heilvita maður get- nr skilið. var ökumaöurinn ekki dö tefja á þessum slóðum lengur en hann nauðsynlega' þurfti. þar sem hann vissi sig liggjandj undir ikotbríð. Notfærði hann sér, hve ’atan er bein og breið, og linnti ekki ferðinni fyrr en hann kom i '"'aldskýlið í Straumi. Þar tilkynnt; hann, hvað komið befði fyrir, og var lögreglunni gert Við athugun kom í ljós. að á rúðubrotunum varð ekki fundið neitt kúlufar, og smám saman rann það upp fyrir mönnum. að rúðan hafði ekkj orðið fyrir byssu- skoti. mínútna fresti til aS anda. EKKI HUNDI BJ0ÐANDI AÐ VINNA Á PÓSTINUAA! Hins vegar virtist hún hafa sprungið af sjálfu sér, og eina skýringin, sem mönnum kom f hug, var sú, áð hún hefði verið of þröng í rúðukarminum. — GP — hassbundurinn gat ekki athafnað sig i húsakynnum póstsins i Reykjavik „Maðurinn með hasshundinn“ kom inn á pósthúsið nýlega og þar átti að sjá hvað voffi gæti. En viðskipti voffa við póstþjón- ustuna voru skammvinn, því ekki höfðu hann og förunautur hans verið þár lengi dags er maðurinn kom með þá yfirlýs- ingu, að húsakynnin væru slik, að hundurinn gæti ekki athafnað sig. Þetta þóttj starfsmönnum póstsins katinski ekki ný tíðindi, að það værj ekki hundi bjóðandi að vinna á pósthúsinu; póst- húsið ævagamalt og nær því Kfshættulegt að fará í lyftu þeirri, sem flytur kassa með póstinum í miili hæða, en lyftugarmurinn er alltaf að stoppa á leiðinni og bi!a'r ó- sjaldan, og aðstaöa til vinnu langt frá þvf að nálgast það að vera viðunandi. — SB Landgrunnið allt — eða 50 mílur út Tfu þingmenn Sjálfstæðis- flokks leggja til að fiskveiði- lögsagan skuli látin ná yfir allt landgrunnið en ekki aðeins 50 mílur frá grunnlínum. Erlend- um skipum verði heimilt að stunda veiðar upp að 50 mílna mörkunum í næstu þrjú ár, nema á sérstökum friðunarsvæð um. Flutningsmenn vilja, að sérstök friðunarsvæði yerði ákveðin á mikil vægum uppeldisstöðvum ungfisks á landgrunninu, og gangi reglur um það f gildi 1. marz na-stkornandi. Ennfremur verði á sama tíma settar reglur um friðun ákveðinna hrygn- ingarsvæða innan núgildandi land- helgi. 1 þingsályktunartillögu Sjálfstæð ismanna segi.r, að ytri mörk land- grunnsins skuli vera 400 metra jafn dýpislína, þangað til mörk þess verði ákveðin með lögum, en þó skuli mörkin hvergi vera nær landi en 50 sjómílur. Þá skuli AÍþingi fela ríkisstjórn- inni að halda áfram og auka þátt- töku í samstarfi þjóða til að hind.ra ofveiði og tryggja tslendingum eðiilega hlutdeild í fiskveiöum á út- höfum, þar sem fslenzkir fiskveiði- hagsmunir ná tii. Ríkisstjórnin skuli gera nauðsynlegar ráðstafanir til að koma í veg fyrir skaðlega mengun sjávar við strendur lands- ins og á hafinu umhverfis það. Þingmennirnir benda á, að nú sé viðurkennt, að hvert land eigi allar au"',indir á og í sjávarbotni á öllu land,- -inni sínu, Þess vegna hljóti -,ú •' 'md tslendinga að vera þung á m num, að þeir eigi með sama rétti fiskimiðin á og yfir þessu landgrunni. Alþingi skuli síðar ákveða dag- setningu útfærslunnar. Þar sem nú muni hefjast viðræður við Breta o-g Vestur-Þjóðverja, þyki ekki á- stæða til að ákveða nú dag fyrir Igildistöku útfærslunnar. Nú liggja tvær þingsályktunartil- lögu.r um landhelgismálið fyrir Al- þingi. Ríkisstjórnin hafði lagt fram tiilögu um, að hafizt skyldi handa um stækkun fiskveiðilandhelginnar í 50 sjómílur frá grunnlmum, sem kæmi til framkvæmda eigi síðar en 1. september 1972. Stjórnum Bret- lands og Vestur-Þýzkalands skuli gerö grein fyrir því, að vegna lffs- hagsmuna þjóðarinnar og breyttra aðstæðna geti samningarnir frá 1961 ekki talizt bindandi, og verði þeim sagt upp. Þá skuli tilkynnt, að íslenzk lögsaga sé 100 sjömílur varðandi ráðstafanir gegn mengun. — HH

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.