Vísir


Vísir - 24.02.1972, Qupperneq 5

Vísir - 24.02.1972, Qupperneq 5
Fimmtudagur 24. febrúar 1972 5 í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Níu stunda leiðtogafundir Skiptast á stúdentum, vísindamönnum og blaðamónnum — Nixon og Chou mestu mátar. Samið um land- helgi við NV- Grœnland Nixon fór i morgun í skoðunarferö í fyrsta skipti í heimsókninni. Hann hefur alls rætt við Chou En -Lai forsætisráðherra í niu klukkustundir, og leið- togarnir tveir hafa náð samkomuiagi um að halda skuli áfram samskiptum ríkjanna í anda friðsam- legrar sambúðar. Eftir fundinn i gær, sem stóð i fjórar klukkustundir, sögðu menn, að rikin mundu skiptast á stúdentum, visindamönnum og blaðamönnum á næstunni og hafa diplómatiskt samband sin á milli. Nixon og Chou hittast enn á ný klukkan þrjú i dag að Peking- tima. Frostið var átján stig, þegar Nixon og Pat kona hans óku af stað frá Peking klukkan hálf niu i morgun eftir staðartima. Þau skoðuðu kinverska múrinn og fornar grafir norðvestan við borgina. Forsetahjónin voru vel klædd við kuldanum og Nixon hafði'með sér skó með þykkum gúmmisólum, svo að hann gæti klifrað upp á múrinn. Blaðamenn töldu. að þau mundu fara til Chuyungkuan-skarðsins, 56 kiló- metra norðvestan Peking, en þar hefur hluti af 2400 kilómetra löngum múr verið endurbyggður. Þarna var 22ja stiga frost i nótt. Múrinn nær frá Gulahafi til eyðimerkurinnar Góbi. Hann liggur yfir fjöllin eins og grjót- hryggur. Það þurfti ein 300 þúsund manna til að reisa múrinn. Verkið tók 10 ár og var unnið300árum fyrirKristsburð til að stöðva framsókn óvina frá steppum Asiu. Ming-keisaraættin endurreisti múrinn. Margir keisarar liggja grafnir i dalbotni 42 kilómetra norðan Peking. Beggja vegna vegarins, sem liggur til grafanna og listasafna, sem þar hafa verið reist, eru marmarastyttur af filum,ljónum og kameldýrum. Vestrænir sendiráðsmenn i Peking segja, að Nixon og Chou hafi náð mjög verulegum árangri i viðræðum sinum, sem hafa stefnt að þvi að leggja grundvöll fyrir friðsamlega sambúð Banda- rikjamanna og Kinverja. Viður- kennt er, að mikill munur sé á stefnu, en þeir hafi látið i ljós vilja til samstarfs á öllum sviðum til að koma i veg fyrir átök i Asiu. Kinverska sjónvarpið fylgdi fordæmi Dagblaðs alþýðunnar i gær og greindi itarlega frá heimsókn Nixons. Tveir þriðju hlutar af 30 minútna fréttatima fóru i héimsóknina. Nixon var sagður mjög hugsi, þegar hann horfði á fimleika- sýningu i gærkvöldi, og hann talaði litið við Chou En-Lai, meðan nærri tveggja klukku- stunda sýningin stóð. Fimleika- sýningin fór fram i sama iþrótta- húsi og ,,ping-pong þiðan” i sam- skiptum rikjanna varð til i með tenniskeppni i fyrra. Pat Nixon var hins vegar mjög ánægð með fimleikasýninguna. Hún hafði fyrr i gær skoðað kommúnu i útjaðri Peking, þar sem hún sá svinabú og heimsótti fjölskyldu, sem hún bauðað koma til Washington til Hvita hússins siðar meir. Bandariski fáninn við stóra mynd af Maó formanni, táknrænt fyrir för Nixons. Danskir og kanadiskir embættis- ménn hafa náð samkomulagi um takmörk landgrunnsins inilli \ o r ð v e s t u r - G r æ n 1 a n d s o g Norður-Kanada. Samkomulagið byggist á svo- nefndri ,,jafnfjarlægðarreglu”, og það verður lagt fyrir stjórn irnar i Kaupmannahöfn og Ottawa. Þarna eru oliusvæði. Enn Kinverskir verkamenn á leiö heim úr vinnu biða eftir strætisvagni og horfa forvitnislega á bila, sem flytja er ógengið frá eignarrétti á litlu bandariska fréttamenn frá flugvellinum. eyjunni Hans ö. ,Börðu mig eins og aðra farþega' — segir Joseph Kennedy Palestinuskæruliðarnir, sem rændu Lufthansaflug- vélinni, gáfu sig á vald yfirvalda i Suður-Jemen. Þeir slepptu i gærkvöldi seinustu 14 áhafnar- mönnum, sem þeir höfðu haldið lengst. Eftir það var farið með ræningjana burt í lögreglubíl. Atta flugfreyjur, tvær japan- skar og sex þýzkar, voru i þessum siðasta hópi, sem var sleppt, eftir að ræningjarnir höfðu þjarkað i margar klukkustundir við full- trúa stjórnvalda i Suður-Jemen og V-Þýzkalandi. Gislunum var sleppt eftir komu eins stjórnarmanns Lufthansa, Reinhardt Abraham, til Aden, þar sem flugvélin var. Ræningjarnir kröfðust, að þrir Jórdaniumenn, sem eru i fangelsum i VesturÞýzkalandi, fengju að fara frjálsir ferða sinna. Jórdaniumennirnir sitja inni vegna morða i Köln 6. febrúar sl. Flugstjórinn, Erwin Zollner, segir, að flugvélarránið hafi verið það versta, sem fyrir sig hafi komið i þau ellefu ár, sem hann hefur starfað hjá Lufthansa. Zollner hafði ekki rakað sig i tvo daga, og hann var fölur og þreyttur, segja fréttamenn. ,,Guði sé lof, að þessu er lokið,” sagði hann. Dieter Bosse flugmaður segir, að dyr stjórnklefans hafi opnazt 45min. eftir að lagt var af stað frá Nýju Delhi. „Maðurinn kom inn með skammbyssu i hendi. Fyrst hélt ég, að einhver far- þeginn vildi striða okkur, en það kom i ljós, að þarna var ekkert grin á ferðinni. Ég skildi það, þegar maðurinn reif hljóðnemann út úr höndunum á mér.” „Ræningjarnir voru æstir i fyrstu,” heldur Bosse flugmaður áfram. „En þeir urðu brátt rólegri. Fyrst gáfu þeir okkur aðeins stefnu eftir áttavita og sögðu, að við ættum að lenda i eyðimörkinni i Norður-Jemen, austan Rauðahafsins. Við sögðumst ekki geta flogið svo langt, og þá var ákveðið, að lent skyldi hér i Aden.” Japanska flugfreyjan Hiromi Noda varð 20ára i gær. „Við höfð- um kampavin,” segir hún, „en ég get ekki sagt, að við höfum notið þess.” Joseph Kennedy sagði i Frank- furt, að ræningjarnir hefðu brosað ánægjubrosi, þegar þeir fréttu, að hann var með flugvél- inni. „Það var farið með mig eins og aðra farþega, þegar ég gleymdi að halda höndunum upp- réttum, var ég barinn lau:1 með byssu. Sumir hinna farþtganna voru lika barðir’,’ sagði hann. „Eg var hræddur, en þetta rán er samt einhver mesti viðburður, sem fyrir mig hefur komið”. Joseph Kennedy flýgur til Boston i dag. :-:VVVVVVVVJ£VVVVVJ£V^J£VVVG Umsjón: \ Haukur Helgason ^Svvvvvjs<vvvvvxxvvj£xj{v»: Angelu sleppt Angelu Davies hefur verið sleppt úr langelsi eftir 16 mánaða prisund. Ilún var látin laus i gærkvöldi gegn um 9 milljón króna tryggingu. „Laxastríðið búið" — segir CASE Baiularikjaim'iin og Danir háfa náð sainkoinulagi iiin miniikiin laxveiði á liafinu við Gia'iilaml, og með þvi er laxaslriðinu niikla lokið, ef öniiur riki á alþjóðlegu ráðstel niiiini uin liskveiðar á Norður-Allantshafi i Washinton i in ai saniþykkja sa m kom ulag Bandarikjaniaiiiia og Dana. Þá ælli einuig að vera hjá liðin liætlan á kaupbaniii á fiski og fiskafurðuni i Bandarrikjuiium. sem liefði fyrst og fremsl komið niður á iliiiiiini og Norömöniium, segir i NTB-lrétl i inorgun. Fulltrúi samtukanna CASE, sem hafu beitt sér l'yrir verndun laxa i úthafinu, segir, að nú megi telja laxastriðinu við Dani lokið. „Við biðum þess aðeins, að Norð- menn samþykki samninginn.” sagði hann. CASE hel'ur verið potturinn og pannan i tilraunum umhverfis- verndarmanna og sportveiði- manna i Bandarik junum og Kanada til að stöðva reknetaveiði Dana á laxi. Rök þeirra eru. að luxar, sem veiðast i úthafinu, komi úr ám við austurströnd Bandarikjanna. Minnkun laxveiði i þessum ám eigi þvi rætur i vaxandi veiði á hafinu. Aðalatriðin i samkomulaginu, sem tókst i Washington i byrjun þessa mánaðar, er minnkun lax- veiði á hafinu við Grænland úr 300 tonnum i ár i 500 tonn árið 1975. Fiskimenn i Grænlandi geti þó áfram veitt lax innan landhelgi sinnar.. Miili 15 og 20 danskir og 9 norskir fiskibátar voru við lax- veiðar við Grænland i fyrra. Tveir eða þrir sænskir bátar höföu veitt þar áður. en ekki i íyrra. Vestur-Þjóðverjar hafa litið eitt komið við sögu. Norðmenn veiddu 350 tonn i fyrra, og árið 1975 mundu þeir samkvæmt samkomulagi Dana og Bandarikjamanna aðeins geta veitt 130 tonn af laxi á hafinu.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.