Vísir - 21.03.1972, Page 7
Vísir. Þriðjudagur 21. marz 1972.
7
Lœknanemar rœða tóbaksreyk-
ingar við skólanemendur
— er nýjasti boðskapur þeirra, sem berjast gegn
tóbaksreykingum — Mun fœrri lceknanemar reykja
en jafnaldrar þeirra á öðrum starfssviðum, en þeim
eru líka kunnari skaðsemi reykinga
— Það er talið, að
60—70% í aldursflokk-
unum 20—30 ára hér á
íslandi reyki. Það var
gerð lausleg könnun á
reykingatíðni meðal
læknanema og útkoman
var sú, að um 20% þeirra
reyktu. Þessi saman-
burður finnst okkur styðja
þá skoðun, að fræðsla
og þekking skipti ein-
hverju máli, segir Guð-
mundur Þorgeirsson for-
maður Félags læknanema.
Samspil milli
heilsufars og
þjóðfélagslegra
aðstæðna
Um helgina lauk vel heppn-
aðri ráðstefnu um ávana og fikn,
sem læknanemar stóðu að og
höfðu verið með i undirbúningi
frá áramótum. Markmiðið var
að koma á framfæri upplýs-
ingum um ávana og fikn, fá sér-
fróða menn til að miðla af þekk-
ingu sinni um ýmsar hliðar
vandamálsins. t fyrra stóðu
læknanemar að ráðstefnu um
geðheilbrigðismál, og nú ætla
þeir enn að færa út kviarnar
með þvi að fara i skólana i vor
og halda fyrirlestra um skað-
semi reykinga.
— Hversvegna?
— Við erum almennt á þeirri
skoðun, að of litill gaumur sé
gefinn að þvi samspili, sem er á
milli heilsufars þegnanna i
landinu og þjóðfélagslegra
aðstæðna, og i mörgum til-
fellum sé hægt að hafa meiri
áhrif á heilsufar með þjóðfé-
lagsaðgerðum heldur en læknis-
fræðilegum, og þar er i raun og
veru átt við að beita ýmiskonar
fyrirbyggjandi aðgerðum, bæði
þjóðfélagslegum og læknis-
fræðilegum.
Þekkingin vopn
Tóbaksreykingar eru út-
breiddar. Það er almenn
skoðun lækna og skýrslur benda
til þess, að það sé ekkert eitt
atriði i umhverfi Vesturlanda-
búa, sem hafi eins mikil áhrif til
hins verra á heilsufar eins
margra og einmitt tóbaksreyk-
ingar. Og t.d. i skýrslu brezka
læknafélagsins, sem er til-
tölulega nýkomin út, er þess
getið, að eitt stærsta mál i allri
heiibrigðisþjónustunni i dag sé
ao araga ur reyKingum.
Okkur fannst þvi þetta vera
kjörið æfingaverkefni i fyrir-
byggjandi læknisfræði og höfum
þess vegna skipulagt fræðslu-
ferðir eða fyrirlestrahald i
gagnfræðaskólum þar sem
krökkunum verði skýrt i máli og
myndum frá áhrifum reykinga
á heilsufar manna. Við stefnum
að þvi að heimsækja alla fyrstu
bekki i gagnfræðaskólunum á
Reykjavikursvæðinu og koma á
framfæri þessum upplýsingum,
sem nýjastar eru og sýna ó
‘tviræðast sambandið milli reyk
inga og sjúkdóma. Okkur er vel
ljóst, að fræðsla er ekki einhlit i
þessum efnum, en ef við höfnum
henni sem vopni i þessari
Umsjón:
Svanlaug Baldursdóttir
baráttu, er vopnabúrið orðið
anzi fátæklegt. En það er stað-
reynd, að eftir að þessar upp-
lýsingar um skaðsemi tóbaks
komu fram, hefur fjöldi lækna
og læknanema hætta að reykja.
Það er vikið að ráðstefnunni
um helgina um ávana og fikn.
— Okkur fannst ráðstefnan
ná tilgangi sinum. Fyrri daginn
var aðsóknin mjög góð. Við
hefðum kannski kosið að fá
þarna meira af ungu fólki úr
menntaskólunum. En bak við
þetta mál og reykingamálið er
svipuð hugmynd: að stefna að
fyrirbyggingu sjúkdóma og þá
með þjóðfélagslegum aðgerð-
um, fræðslu og þátttöku al-
mennings.
—SB—
. . .krökkunum verður skýrt i máli og myndum frá áhrifum
reykinga á heilsufar manna. . . segir Guðmundur Þorgeirsson
formaður Félags læknanema um fyrirhugaðar heimsoknir
læknanefna i skólana.
Viðgerðar-
þjónusta
Viðgerðir á flestum gerðum sjónvarpa,
útvarpa og segulbandstækja. ódýrir sjón-
varpsmyndiampar og mikið úrval vara-
hluta fyrirliggjandi. Fljót og góð af-
greiðsla.
Skóíúvöröuttíg 10 • Keykjavlk • Slml 10450
UTVARPSVIRKJA
MBSTARI
FASTEIGNIR
t __________
Stór húseign á eignarlóð i mið-
borginni til sölu. Tvær 5 herb.
ibúðir og verzlunarpláss með
meiru.
' FASTEIGNAS ALAN
Óðinsgötu 4. — Simi 15605.
Odýrari
en aórir!
5KODH
LEIGAH
AUÐBREKKU 44-46.
SlMI 42600.
xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
« X
X
X
X
X
s
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgata 49 Simi 15105
xxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxxx
Launaút reikningar meC
multa GT {jjj W
ÍVAR
SKIPHOLTI 21
SÍMI 23188.
I jAijíi Ií
Undirskrift
á afmælisdaginn.
Venjulega eru reglugerðir ekki
undirritaðar á heimilum opin-
berra starfsmanna. Undantekn-
ing frá þessu er reglugerðin um
raforkuvirki, nýstaðfest og um-
fangsmikið verk, leysti af
hólmi reglugerð frá 1933. Magnús
Kjartansson raforkumálaráð-
herra undirritar á myndinni, sem
var tekinn heima hjá Jakob
Gislasyni orkumálastjóra, sem
átti 70ára afmæli þennan dag, 10.
marz. Jakob er til hægri á mynd-
inni, en Árni Snævarr ráðuneytis-
stjóri er til vinstri á myndinni.
Björn Þórhallsson
kjörinn formaður LiV
Landssamband isl. verzlunar-
manna kaus nýlega nýjan for-
mann fyrir samtökin, en innan
þeirra eru 20 aðildarfélög með
6023 félaga. Sverrir Hermannsson
alþingismaður baðst undan en-
durkjöri, en Björn Þórhallsson
viðskiptafræðingur var kjörinn
formaður i hans stað. Auk hans
eru i stjórninni: Hannes Þ.
Sigurðsson, varaformaður,
Gunnlaugur Danielsson, ritari,
Ragnar Guðmundsson, gjaldkeri,
Gunnar Kristmundsson, Böðvar
Pétursson, Guðmundur Jónsson,
Guðfinnur Sigurvinsson og Stein-
dór ólafsson.
Sigurður Líndal prófessor
við lagadeild.
Forseti tslands skipaði Sigurð
Lindal hærtaréttarritara nýlega
sem prófessor við lagadeild Há-
skóla tslands frá 15. febrúar að
telja. Sigurður hefur gegnt starfi
hæstaréttarritara frá þvi 1964.
Hvers vegna að fara til Lúxembúrgar . . . ?
PanAm, risinn i fluginu, virðist
sjá ofsjónum yfir gengi „Daviðs
litla”, Loftleiða. Þannig var aug-
lýsingabarátta félagsins i Þýzka-
landi helguð Loftleiðum eingöngu
eins og menn muna. ,,Hvers
vegna hefjið þér flugið i Lúxem-
búrg, þegar þér ætlið að fljúga frá
Stuttgart til Atlanta?” spyr
PanAm, sem kveðst hvarvetna
vera i hástigi lýsingarorða, sama
hvar það sé i flugmálinu. Jú,
skýringin er einfaldlega sú, að
Loftleiðir eru ÓDÝRASTAR. Það
ihástig hefur islenzka félagið
óumdeilanlega. Stern birti á dög-
unum auglýsingu þessa, en senn
mun hún lögð til hliðar, enda mun
hún nálgast atvinnuróg um keppi-
nautinn.
Póskaegg • Páskaegg
Fjölbreytt og glæsilegt úrval.
Verzlunin Þöll Veltusundi 3 (gegnt Hótel
Islands bifreiðastæðinu).
Simi 10775.
Wénn Sie von Stuttgart
nach Aílanta fliegen wollen,
vvamni startenSie
danninLuxemburg?
Verkstœði
83255
☆
Skrifstofa
30435
VÉLALEIGA STEINDÓRS sf.
v.
MÚRBROT - LEIGJUM ÚT:
SPRENGIVINNA Loftpressur
•• Vibrtfsleða
Onnumst hvers konar verktakavinnu. Dœlur
Tima eða ATH.
ákvœðisvinna BREITT SÍMANÚMER