Vísir - 21.03.1972, Síða 16

Vísir - 21.03.1972, Síða 16
vísm Þriðjudagur 21. marz 1972. Þjófar heimsóttu Gylfa Þ. — en gerðu lítið af sér bjófar lögðu leið sina að Ara- götu 11 i gærkvöldi, þar sem býr Gylfi Þ. Gislason, formaöur Alþýðuflokksins. Munu þjófarnir hafa gert tilraun til að brjótast inn i húsið — en af einhverjum ástæðum séð að sér og létu duga að skarka soldið i einnverju dóti innan kjallaradyra. F'ólkið i húsinu varð varla vart gestakomunnar, og vildi lög- reglan i morgun gera sem minnst úr þessu ónæði, sem mennta- málaráðherrann fyrrverandi varð fyrir. HAMARK HLAUPSINS EFTIR 2-3 DAGA — vatnsmagnið í Skeiðará nálgaðist tvö þúsund teningsmetra Vatnsmagnið í Skeiðará nálgaðist 2000 tenings- metra á sekúndu í morgun. Þykir vísinda- mönnum sennilegt, að hlaupið nái hámarki eftir tvo til þrjá daga. —Við erum að fara vestur að Sandgigjukvisl, en þar er mjög mikið vatn að sjá, til að sjá hvort hlaupið er komið þangað. Það er ekki grunlaust um það. bað er ósvikið hlaupvatn núna i Skeiðará eftir að rigningarnar — vatnsmagnið í Skeiðará nálgaðist tvö þúsund teningsmetra á sekúndu í morgun hættu og mjög mikil fýla af Skeiðará i morgun. Hún hefur hinsvegar ekki brotið neitt úr jöklinum, sagði Sigurjón Rist i morgun. Ragnar Stefánsson bóndi á Skaftafelli sagði, að hlaupið hefði vaxið heldur örar, en vöxturinn sé ekki gifurlegur. Hann sagði, að Osvald Knudsen kvikmyndatökumaður væri nú staddur á Skaftafelli þar sem hann ætlar að taka kvikmyndir af hlaupinu —SB— Fýla i Firðinum Vond pest hefur að undanförnu legið yfir Hafnarfirði, svo sem reyndar oft áður, þegar brætt er af kappi i Lýsi og Mjöl. Voru menn að bera sig upp undan pest þessari við Visi i morgun, og við höfðum samband við verksmiðjuna. Þar var okkur tjáð, að pestin væri varla verri en oft áður, þar sem loðnan, sem nú Fjölgar aftur Sex fangar af þeim 114 sem á Litla-Hrauni voru þcgar eldurinn kom þar upp, sitja nú enn I Keyk- javik. llafa fangarnir verið fluttir aftur austur, eftir þvi sein klefar þeirra hafa komizt i lag, en unnið hefur vérið af miklum krafti eystra við lagfæringar á gamla húsinu sem þvi nýja. Njörður Snæhólm, lögreglu- er verið að bræða, er ekki svo mjög gömul. „Við verðum búnir að bræða þetta i næstu viku. Klárum ef- laust fyrir páska”, sögðu þeir i verksmiðjunni. Og Hafnfirðingar geta þá hlakkað til að fá bráðum ferskt loft i lungun — ekki mengað þvi sem hingað til hefur veriðkallað peningalykt. -GG á Litla-Hrauni maðurinn sem annast rannsókn brunans á Litla-Hrauni sagði að enn lægi lausn gátunnar ekki fyrir. Sagðist hann samt viss um að brennuvargarnir eða vargurinn væri úr hópi fanganna, þar eö húsið hefði allt verið harðlæst. Yfirheyrslum vegna bruna- málsins mun lokið. -GG. Rætt um sveitar stjórn í strjólbýli 1 morgun hófst á Hótel Esju ráðstefna Sambands islenzkra sveitarfélaga um sveitarstjórn i strjálbýli. Páll Lindal setti ráð- stefnuna en siöan flutti Halldór E. Sigurðsson landbúnaðarráðherra ávarp. Ráðstefnan stendur fram á fimmtudag og meðal mála á dag- skrá eru tekjustofnalögin og fram kvæmd þeirra, nýjar atvinnu- greinar i strjálbýli og læknis- ‘ þjónusta i strjálbýli. Siödegis á morgun munu þátttakendur ráðstefnunnar fara i skoöunar- ferð og verður m.a. farið að Ala- fossi og i laxeldisstöðina i Kolla- firði. Yfir 70 manns hvaðanæva af landinu höfðu tilkynnt þátttöku i ráðstefnu þessari. -SG ÞAU SKAPA UST Hvaö gengur á? Jú, þaö er verið að uinbylta öllu f Tónabæ. Gömlu skreytingarnar hafa verið rifnar niður og heilt innrásarlið nem- enda úr Menntaskólanum við Tjörnina vinnur af eldmóði við að koma upp nýjum skreytingum. Verkinu þarf að vera lokið fyrir árshátlð skólans, sem þarna verður haidin í kvöld, en undir- búningurinn að skreytingunum hófst fyrir nær hálfum mánuði. Þótti ekki ráð nema I tima væri tekið. Skreytingar nemendanna eiga nefniiega aö standa eitthvað áfram, eða þar til Tónabær ræðst I að gera gagngerar breytingar á salarkynnunum. Einskonar vor- hreingerningar. Það verður að likindum mikið fjör á árshátið MT i Tónabæ i kvöld. Það er ekki nóg með að hljómsveitin Náttúra leiki fyrir dansi i aðalsalnum. t kjallara hússins, þar sem áður voru leik- tæki hafa verið innréttaðir tveir danssalir til viðbótar. I öðrum salnum verður diskótek, en i hin- um munu þeir Skafti og Jóhannes leika fyrir gömlu dönsunum. Margskonar skemmtiatriði verða svo að sjálfsögðu höfð i frammi meðan á árshátiðinni stendur. —ÞJM. Loksins ísiandsmót kvenna í skák Loksins fær kvenþjóöin að spreyta sig viö skákina, svo að um munar. A isiandsmótinu i skák, verður nú i fyrsta sinn teflt i kvennaflokki um íslands- meistaratitii. tslandi stendur til boða að taka þátt i landsliðskeppni sex þjóða i Þýzkalandi i mai, og þar á einu af sex borðum á að vera kona. Keppni i landsliðsflokki hefst 22. marz kl. 20 og i öðrum flokkum, þar á meðal kvenna- flokki, 25. marz kl. 12.30. 1 lands- liðsflokki eru þátttakendur flestir af beztu skákmönnum landsins. Sigurvegari hefur þátttökurétt á svæðamóti i Finnlandi i sumar. - HH. Glaumbœr of hóreistur — Bygginganefnd stöðvaði þaksmíðina á elleftu stundu Þeir voru rétt um það bil að leggja siðustu hönd á nýja þakið yfir Framsóknarhúsið (Glaum- bæ) er byggingarnefnd Reykja- vikurborgar stöðvaði byggingar- vinnuna. Komið hafði i ljós, að ekki hafði verið farið i einu og öllu samkvæmt teikningunum að gamla þakinu, og þar sem ekki hafði verið sótt um leyfi fyrir breytingunum þótti rétt að stöðva frekari framkvæmdir þar til skorið hafði verið úr um, hvort nýja þakið þætti húsinu hæft. Varðandi framtið Framsóknar- hússins er enn allt á huldu. Guð- jón Styrkársson, formaður hús- nefndar tjáði Visi i morgun, að enn stæðu yfir viðræður við tvo óskilda aðila, sem hefðu áhuga á að festa kaup i húsinu. Akvarðana kvað Guðjón sennilega að vænta mjög bráðlega. -ÞJM Listaverk verða til með ýmsum hætti. Hér má sjá á hve einfaldan hátt ein veggskreytinganna i Tónabæ veröur til. —Viö stefnum að þvi aö gera Tónabæ óþekkjanicgan, segja nemendur Menntaskólans við Tjörnina — og hafa ekki látiö sitja viö orðin tóm. TVEIR DUTTU I SJOINN — erfiðleikar ó Grandagarði Þeir voru á gangi eftir Granda- garðinum og ætiuðu sér.um borð I bátinn sinn. Orönir reyndar svo- litið ryðgaðir i kollinum, drengirnir, enda iangt siðan þeir höföu aimennilega skvett úr klaufunum. Svö komu þeir á móts við Kaffivagninn. Þar hætti annar sér of nálægt bryggjubrúninni — eiginiega allt of nálægt. Hann datt i sjóinn. Félagi hans áttaði sig ekki alveg strax a þvi sem á seyði var, og þegar hann hafði gerPsér grein fyrir þvi að bezti vinur hans busl- aði i grænkolandi skitugum sjón- um þarna einhvers staðar lengst niðri i svartmyrkrinu, ætlaði hann aö gera sitt til aö bjarga lifi hans. En þá var maður kominn þarna að og byrjaður að bjarga — þannig að félaginn sem uppi stóö, varð atvinnulaus i bili — hann vildi samt hjálpa til, teygði sig eitthvað fram af byrggjunni og út i loftið — og ekki að sökum að spyrja! Hann datt lika i sjóinn. Björgunarmaðurinn og sá sem var nýkominn úr heljargreipum ægis, tosuðu hann svo aftur upp, og þeir félagar stauluðust um borð eftir að hafa kvatt björgunarmann sinn kurteislega,- GG.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.