Vísir - 08.06.1972, Síða 2
2
VÍSIR. Fimmtudagur 8. júnl 1972.
tfSBSm:
Vitið þér hvað kilóið af
smjöri kostar í dag? (nú-
verandi verð: 196,60)
Svanhildur Þóroddsdóttir, hús-
móðir: Er þaö ekki komið upp i
195 krónur? Það er alltaf verið að
hækka þetta og svolitið erfitt að
fylgjast almennilega með verð-
inu. Annars hef ég nú varann á og
kaupi nokkrar birgðir, sem ég
geymi i frystikistunni minni.
Gunnar lljaltested, sölumaður:
Það er nú frekar að húsmæðurnar
ættu að vita þetta, Ætli það sé
ekki svona 116 krónur ca. Ég hef
ekki fylgzt með þessum sifelldu
hækkunum á smjörinu og reyndar
öðrum matvörum.
Auðunn llalldórsson, innheimtu-
maður: Ég hef bara ekki hug-
mynd um það. Er það ekki komið
hátt i tvö hundruð krónur? Það
hækkar frá degi til dags, svo það
er erfitt að gera sér grein fyrir
verðinu.
Þórhalla Friöriksdóttir, hús-
móðir: Hvernig á maður að muna
það nákvæmlega? Það er svo
vont að festa á minnið þessar ei-
lifu hækkanir á smjörinu og fleiri
vörum.
Jón Nordgulen.sjómaður: Ja, ég
veit ekki, ég er alltaf úti á sjó og
hef ekki haft tækifæri til að fylgj-
ast með verðinu á þvi. Er það
ekki komið i 180 krónur?
Þóranna Ingólfsdóttir, skrifstofu-
stúlka: Nei, það veit ég ekki. Hef
ekkert fylgzt með þvi.
Skrúðgorður í
Smáíbúðahverfið
Sumarsnyrting borgarinnar hafin af
fullum krafti. — Reynt að auka
trjárœkt til muna
,,Við höfum mikinn áhuga á að
reyna aö koma i framkvæmd
uppsetningu skrúögarðs viö
Grundargerði I smáíbúöar-
hverfinu. Og gæti þaö jafnvel
komiö til greina nú seinni partinn
í sumar.”
Svo sagði Hafliði Jónsson,
t sliku sólskini springa rósirnar út
og á þessa rákumst viö inni i
Laugardal núna einn sólskins-
daginn. — ó, ef maður gæti nú
skellt sér I garðyrkjuna nokkra
daga!
garðyrkjustjóri, er við inntum
hann eftir upplýsingum varöandi
snyrtingu og skreytingu borgar-
innar i sumar.
Margt er I bfgerö og þá
auðvitað fyrst og fremst að halda
þeirri stefnu sem verið hefur, að
hafa borgina hreina og snyrti-
lega.
Þess má geta að i gærdag hófst
útplöntun á sumarblómum, og
var byrjaö á Austurvellinum,
siðan verða svæðin tekin fyrir
hvert á fætur ööru.
Við Aðalstrætið,þar sem kirkju-
garður var eitt sinn, en nú er
aðeins gangstigar og smáreitir,
hefjast lagfæringar og hreinsun
innan skamms.
Seint á siðastliðnu sumri var
borginni gefinn svonefndur Eddu-
bær við Elliðaár. Þar eru tals-
verður trjágróður og verður reynt
að auka hann i töluvert, en það
vill oft verða erfitt sökum
skemmdarfýsna einstakra
manna.
Reynt verður mikið að auka
trjárækt hér I bæ>. Seint i sumar
stendur til að ljúka við trjábeltið
við Miklubraut og á það að ná út
að styttu Sigurjóns Ólafssonar við
Miklubrautina.
Einnig verður gróðursett i
Laugardalnum frá Sunnuvegi og
út að Sundlaugavegi.
Þess má svo geta að lokum að
öll skólagarðavinna er hafin og
sömuleiðis Arbæjarstarfssemin. -
EA
Þaö eru ekki bara grænu reitirnir, sem núna hafa lifnaö viö undan
mjúkum meyjarhöndunum — þaö eru ekki bara þeir, sem setja sumar-
svipinn á borgina. Heidur lika þaö ger af ungum meyjum, sem skotiö
hafa upp kollinum á grasbölunum allstaöar um bæinn.
I EINVERUNA A
HVERAVÖLLUM
Farið hefur verið i gegnum þær Það yrði 15. ágúst næstkom-
þrjátiu umsóknir, scm Veðurstof- andi, sem þau hjónin tækju til
unni bárust um starf veðurathug- starfa á Hveravöllum, en þar
unarmanna á liveravöllum næsta hafa starfað siðasta ár kennara-
árið. Efst á blað komust hjónin hjón úr Reykjavik.
Ilaila Guðmundsdóttir og Arni Halla yrði sennilega ekki lengi
Stefánsson, en þau hafa ekki ver- ■ að setja sig inn i veðurathugunar-
ið ráðin formlega enn sem komið störfin, hún hefur starfað við veð-
cr, cn beðið cr cftir úrskurði urathuganir hjá Veðurstofunni i
læknisrannsóknar, scm gerð hef- Reykjavik. Arni, eiginmaður
ur vcrið á þeim hjónum til aö hennar, er hins vegar starfandi
ganga úr skugga um, aö þau séu kennari.
fær i starfið heilsufarsiega. — ÞJM
Auglýst eftir kennur-
um og skólastjórum
Allmargar kennara- og skóla-
stjórastöður hafa verið auglýstar
lausar til umsóknar undanfariö,
þar á meðal kennarastööur viö
Menntaskólann við Hamrahlíð og
staöa skólameistara viö Mennta-
skólann á Akureyri.
, A Fræðslumálaskrifstofunni
fengum við þær upplýsingar, að
ekki væri enn hægt að segja, að
meiri skortur væri á kennurum
nú en áður, en um þetta leyti er
jafnan auglýst eftir umsækjend-
um um margar kennarastöður.
Skólum og nemendum fjölgar
stöðugt og oft er auglýst eftir
kennurum til ráðningar i stöður,
þar sem kennari hefur veriö sett
ur árið áður.
Umsóknarfrestur um kennara-
stöðurnar i Hamrahliðarskólan-
um rennur út 1. júli n.k., en 31.
mai s.l. rann út umsóknarfrestur
um embætti skólameistara á
Akureyri. Umsækjendur voru
þrir, þeir Gunnar Ragnarsson
skólastjóri á Bolungarvik, séra
Skarphéðinn Pétursson frófast
ur i Bjarnanesi og Tryggvi Gisla-
son, lektor i Bergen. þs
ILesendur
J&L hafa
Æf\aréiif‘
Nú sýnum við
okkar rétta andlit
„Undrandi” skrifar:
„Allt er á eina bókina lært i
þessu skringilega samfélagi okk-
ar, þessu Islandi. Við erum kröfu-
hörðustu kvikindi undir sólinni, —
og þau ósveigjanlegustu. Það var
ekki amalegt á dögunum, þegar
blöðin sögöu að margir stærstu
ferða,,heildsalar” Evrópu væru
komnir hingað að kaupa ferðalög
1 stórum stil. Stór frétt fyrir litla
atvinnugrein, sem gæti kannski
orðið stór hér á landi, ef allir aðil-
ar, sem að henni vinna, geta látið
sér koma vel saman. En, æ,æ!
Hvað gerist? Kokkar fara i verk
fallog sýna ferða,,heildsölunum”
rétta andlitið á „ferðamanna
landinu Island”. Ætli hafi ekki
runnið tvær grimur á einhverja
þeirra? Nú, kannski græða
kokksar svo bara á öllu saman?
Jú, færri túristar næstu árin, og
rólegri dagar. Já, svona erum við
þessar sálir hér uppi á skerinu”.
Duflið sem Bretarnir
skutu í kaf
örn Asmundsson skrifar:
„Mikið umstang virðist hafa
orðið út af tundurdufli i höfninni i
Djúpavogi eftir þvi sem ég hef
lesið i blöðum. A sinum tima
horfði ég á það dufl skotiö i kaf af
brezkum hermönnum, og skutu
þeir af 400 metra færi að mig
minnir. Ég held að 300 skot hafi
hlaupiö af, áður en duflið sökk i
sæ hægt og sigandi, og þótti
áhorfendum mikið til koma.
Aldrei varð nein sprenging i
duflinu, enda var þetta það ná
lægt þorpinu, aö Bretarnir hafa
ábyggilega ekki haft neinn hug á
að efna til mikillar sprengingar.
Sennilega liggur duflið þarna ein-
hvers staöar grafið i sandinn eða
þá að straumar og vond veöur
hafa fært það úr stað. En það
liöur mér seint úr minni, hvað
Bretarnir voru lengi að skjóta
duflið i kaf, enda er vont að
reikna út skotmark á sjó frá
landi.”
Hjálparbón
frá Þýzkalandi
Margot Fiebig skrifar okkur frá
Þýzkalandi:
„Mig langar til að biöja ykkur á
Visi að hjálpa mér út úr smá-
vandræðum. Ég sá heimilisfangiö
ykkar i bók sem maðurinn minn á
og datt þvi i hug aö senda linu. Ég
er sjúk i frimerki og þarf nauð-
synlega aö fá nokkur merki frá
Islandi. Maöurinn minn hló alveg
rosalega þegar ég sagði honum,
að ég ætlaði að skrifa til íslands
eftir frimerkjum. Hann sagðist
sannfærður um að enginn tslend-
ingur væri svo vitlaus aö anza
svona bón. Máliö gekk það langt,
að við veðjuöum súkkulaðipartii
um hvort ég fengi svar eða ekki.
Þess vegna bið ég einhvern vel-
viljaðan lesanda Visis að hafa
samband við mig sem allra fyrst
og spandera á mig nokkrum not-
uðum frimerkjum. Þá get ég
komið sigri hrósandi til efgin-
mannsins og látið hann bjóöa mér
út. Hann hefur gott af þvi, nizku-
púkinn sá arna.”
Mrs. Margot Fiebig
Postschliessfach 642,
465 Gelsenkirschen,
Germany.