Vísir - 08.06.1972, Page 3
VÍSIR. Fimmtudagur 8. júni 1972.
3
Þeir slíta upp reytings-
afla af grásleppunni
Það hefur verið góður reytings-
afli hjá trillukörlunum f gráslepp
unni þessa dagana, enda tiðin til
þess.
,,Oh, þetta eru svo sem engin
uppgrip,” sagði Þorgeir Jónsson
járnsmiður, sem var nýkominn
að gömlu verbóðarbryggjunni
þegar okkur bar að i gær. ,,Ég dró
frekar lítið af netum i dag."
En gömul reynsla og fyrri
kynni okkar af grásleppuköllum
hefur kennt okkur að þekkja i
þeim hógværðina þegar talið
4
„Það slagar sennilega hátt upp i
200 kg. af hrognum hjá þér I dag,”
segir Asbjörn, hrognakaup-
maður, (t.h. á myndinni) við
Þorgeir trillukarl um leið og þeir
ýta hrognakerrunni á undan sér
upp bryggjuna.
berstað aflabrögðum þeirra. Þeir
guma ekki af aflanum. Svo að við
gáfum þvi auga, þegar Þorgeir
lagði upp aflann hjá Asbirni
Jónssyni, sem lengi hefur verið
einn umsvifamesti hrognkaup-
andinn við Reykjavikurhöfn.
„Mér þykir þú vera að fá hann.
Þetta eru 187,5 kg hjá þér núna. —
Og þú, sem komst með 360 kg i
gær,” sagði Ásbjörn við Þorgeir,
þegar hann var búinn að bregða
hrognsekkjunum á
vogina. Asbjörn sagði okkur, að
trillukarlarnir hefðu verið að fá
svona um 200 kg i róðri hver, sem
er afbragðs reytingur.
„Þú ert þá sjálfsagt búinn að
salta mikið?”
„Söluhorfurnar á hrognunum
eru það slakar núna i ár að ég
ætlaði að stoppa við 100 tunnur, en
það er útlit fyrir, að ég fari upp
fyrir það,” sagði Ásbjörn.
Hrognkelsaveiðin byrjaði i
april en þá voru veður óheppileg
fyrir trillubátasókn. Aftur á ,móti
hefurmaíreynztgóður. -GP
„Rain, rain, come agoin...!"
Slóttur hafinn
Sá þurrkur,\sem haldizt hefur
hér sunnanlands undanfarna
daga, er allt eins liklegur til að
tefja slátt bænda, sem annars
eiga fullt erindi með slátturvélar
sinar út á vellina.Viðaer nefnilega
að verða of þurrt til að hægt sé að
slá. Einkum þá á sendinni jörð og
harðvelli.
Þeir fyrir norðan nutu hins
vegar nokkurrar úrkomu um
siðustu helgi og biðu þá þeir i
Eyjafirðinum ekki boðanna og
eru nú að gera sig liklega til að
hefja sláttinn.
í gær hófst sláttur á Hvolsvelli,
en þeir þar eru með köggla-
gerðina á hávegum, eins og fyrri
daginn.
Sláttur er óvenju snemma á
ferðinni þetta sumarið, en i fyrra
hófst hann ekki fyrr en upp úr
— þurkarnir
kunna að
tefja sláttinn
miðjum mánuðinum og enn
seinna sumrin þar á undan, en
sjaldnast hefst sláttur fyrr en
eftir sólstöður, eða siöustu daga
júnimánaðar.
—ÞJM
Hvolpaástir og ófreskjur
Bráðskemmtiiegt hugmynda-
flug, feiknarleg aðdáun á knatt-
spyrnuliðum, hvolpaástir og
ófreskjur gefur að lita á stóru og
miklu spjaidi sem komið hefur
verið upp við hlið Menningar-
vitans við Laugardalshöll i tilefni
Listahátiðar.
Spjald þetta, sem næstum
mætti kalla vegg, hafa nokkur ,
börn, sem lagt hafa leið sina á '
þessar slóðir, verið fengin til að
myndskreyta.
Vísismenn lögðu leið sina inn að
Laugardalshöll til þess að lita á
gripinn og er þetta að verða hið.
mesta listaverk.
Teikningarnar eru gerðar með
alla vega litum tússpenna,
rauðum gulum svörtum og
bláum. Einn piltur stóð boginn og
niðursokkinn við að teikna mann
með sfgarettu.og hann sagði að
hann hefði aðeins verið beðinn um
þetta.þegar hann lagði leið sina
inn að Laugardalshöll. -EA
W* W.
Þetta „iistaverk” blasir viö þeim, sem koma að Laugardalshöllinni. Það stendur hjá menningar-
vitanum. — „Það voru einhverjir kariar að setja þetta upp I morgun, og þeir buðu okkur, mér og vini
minum aö gera á þetta myndir eins og við vildum,” sagöi þessi teiknari. — Reyndar hafði heill flokkur
listamanna verið fenginn til aö skreyta þessi spjöld, — nefnilega ein 5 ára deild úr leikskóla.
„Það væri gott að fá hjá þér soðningu, ef þú ættir,” segir maöurinn, og
Þorgeir lumar á nokkrum rauðmögum, eftir sæmilegan róður, og
sendir þá upp á bryggju.
Verður hún ung-
frú Evrópa
Fegurðardrottningin okkar
þetta árið Þórunn Símonardóttir
lagði i gær af stað tii þátttöku I
alþjóðlegri fegurðarsam
keppni^ sem haldin er i
þessum mánuði. Er það keppnin
um titilinn ungfrú Evrópa, sem
fer fram i Lissabon dagana 15.
til 20. þessa mánaðar.
Það var fyrst til Lundúna, sem
Þórunn flaug, en þaðan heldur
hún til S-Portúgal og þvl næst til
N-Portúgal. en hún mun staldra
við i“þrjá daga á hvorum staö.
Þeim dögum ver hún aöeins i að
sleikja sólina á baöströndum og
kynnast hinum Evrópu-
stúlkunum, sem taka munu þátt i
keppninni. Dagana fimm þar á
eftir stendur svo keppnin yfir og
er strangt prógramm, sem henni
er sniðið. Heim aftur kemur
Þórunn svo þann 22. júni. nema
þá að hún komist i úrslit, en þá er
hún tilneydd til að dvelja um
kyrrt i Portúgal mánuð i viðbót
og siðar fara i f jölmörg ferðalög
á þessu ári og þvi næsta.
Þess má geta, að Einar
Jónsson, sem hefur á hendi
umboð allra þeirra ^lþjóðlegu
fegurðarsamkeppná, sem
islenzkar stúlkur taka þátt i
heldur til Lissabon næstkomandi
1972?
þriðjudag, þeirra erinda, aö sitja
i dómnefndinni, sem velja mun
ungfrú Evrópu 1972.
I lok næsta mánaðar fara bæði
Maria Jóhannsdóttir og fegurðar-
drottning ungu kynslóðarinnar,
Katrin Gisladóttir utan tií
þátttöku i Fegurðarsam-
keppnum. Maria fer til New Y.
Los Angeles og loks Puerto Rico,
þar sem hún mun taka þátt i
keppninni Miss Universe. Katrin
fer hins vegar til Tokyo og tekur
þar þátt i keppninni um titilinn
Miss Young International.