Vísir - 08.06.1972, Page 4
4
VÍSIR. Fimmtudagur 8. júni 1972.
„Þetta er alls
enginn brandari
segir einn of frumkvöðlum Asatrúarmanna
Jörgen Ingi Hansen.
„Viö höfum orðið varir við
geysilegan áhuga á Ásatrú og
ætlum að reyna að halda opin-
beran fund til kynningar trúar-
brögðunum núna i þessum
mánuði.” — sagði Jörgen Ingi
Hansen, kaupmaður, en hann er
einn af frumkvöðlum Asatrúar
(„hinnar nýju”) hér á islandi.
Fyrir skömmu var stofnaður ó-
formlegur félagsskapur til
eflingar og endurvakningar Asa-
trúar og cr formaður eða alls-
herjargoði Sveinbjörn Beinteins-
son skáld, en i framkvæmdanefnd
auk Jörgens er Dagur Þor-
leifsson, blaðamaður.
„Við munum lúta sömu lögumog
sértrúarflokkar, og þannig eigum
við að fá löggildingu á okkar
trúarathöfnum, t.d. giftingu,
skirn og greftrun. Reyndar erum
við ekki alveg sáttir við að teljast
sértrúarflokkur, þar sem við
teljum okkur eldri i landinu.”
„Hafið þið kannski i huga að
lögleiða giftingu svipaðri þeirri
og framkvæmd var i Grábrókar-
hrauni núna i vikunni?”
„Já, mér virðist að þessi athöfn
hafi verið mjög hliðstæð
giftingarathöfnum Asatrúar-
manna til forna, og við munum að
sjálfsögðu fá lögleiddar slikar at-
hafnir. Helgisiðir Asatrúar-
manna eru mjög tengdir
náttúrunni og þess vegna meðal
annars hefur trúin átt mjög sterk
itök i Islendingum. Við munum
einnig fá okkar eigin grafreit,
hliðstæðan kirkjugörðum
kristinna manna, sem verður
helgaður samkvæmt okkar
siðum.”
„Og þið hyggist nú fara að
kynna trú ykkar?”
„Já við vonumst til þess, að
geta haldið opinberan fund i
þessum mánuði, þar sem kynntar
verða af fræðimönnum
siðareglur, helgiathafnir og til-
gangur Asatrúar. Siðan er stefnt
að þvi að skipa 36 goða um allt
land og þá leggst þessi bráða-
birgðastjórn niður.”.
„Tekur fólk þessi trúarbrögð
alvarlega?”
„Það er að sjálfsögðu misjafnt,
sumir hafa fyrst og fremst áhuga
á Asatrú sem fornrar menningar-
uppsprettu, en við þessir 12
stofnendur höfum raunverulegan
trúaráhuga. Takrhark okkar er
að lifa og starfa samkvæmt siða-
Asatrúarmaðurinn Jörgen Ingi
Hansen með skartgrip úr
heiðnum sið, kingju Þóris Aust-
manns.
reglum heiðninnar, eins og þær
koma fram t.d. i Hávamálum.
Þetta er alls enginn brandari
fyrir okkur”, sagði Jörgen Ingi að
lokum. ÞS
Og nú vilja þýzkir fó að
sjó Róbert í Fiðlaranum
Nú vilja Þjóðverjar fá að sjá og
hcyra Róbert Arnfinnsson i hlut-
vcrki Tevje i Fiðlaranum á
þakinu, en á siðasta ári nutu þeir
þess að sjá hann i hlutverki
Zorba.
Það var raunar i Liibeck, sem
liann fór með hlutverk Zorba, og
þeir þar höfðu haft þær áætlanir á
prjónunum að taka það leikverk
til sýningar að nýju á næsta leik-
ári. Þvi var siðar frestað, en
möguleikar kannaðir á að taka
lieldur Fiðlarann til sýningar
þarna i Liibeck. „Og til Þýzka-
lands kemst ég i marzmánuöi
næsta árs til að leika Tevje, en
það verður i Nurnberg, sem ég fer
með það hlutverk. Það snerist
einhvern veginn þannig fyrir
skömmu,” sagði Róbert i viðtali
við Visi i gær
,,0g núna bið ég bara eftir að fá
samningana i hendurnar. Ég er
pannig gerður, að mér finnst
akkert svonalagað tryggt, fyrr en
pað hefur verið fest á samning,”
sætti hann við.
Róbert verður við leik hjá Þjóð-
leikhúsinu næsta vetur þar til i
marz, en hann er fastráðinn hjá
ieikhúsinu eins og kunnugt er.
„Ég get þá leikið i Fiðlaranum i
samfellt fjóra mánuði, eða til
júniloka,” sagði Róbert og bætti
þvi jafnframt við, að hann væri
nú þegar búinn að fá handrit að
Fiðlaranum á þýzku. „En ég hef
bara ekki haft tima til að spreyta
mig á textanum.”
Við spurðum Róbert Arn-
finnsson að þvi hvort það væri
skki rétt, að hann ætti að fara
með hlutverk i kvikmyndinni,
sem gera á i sumar eftir Brekku-
kotsannál Laxness..?? „Ja, það
hefur mér i það minnsta verið
gefið i skyn. Það hefur verið látið
að þvi liggja, að ég eigi að fara
þar með hlutverk Gúðmunds-
ens...”
-ÞJM.
Róbert sem Tcvje i sýningu Þjóðleikhússins
ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í M
Konur fengu útrós
Kvikmyndahátíð var sett í New
York i fyrradag. Þessi hátfð er
eingöngu ætluðkonum —og koma
þær ekki einvörðungu á hátiðina
til að horfa á kvikmyndir, heldur
lika til að fá útrás fyrir lengi inni-
birgða geöilllsku. Þær kasta t.d.
tómötum og fúleggjum i
karaktera eins og Hitler,
Johnson, De Gaulle og Mao. Nei,
— þessir menn komust ekki á
hátíðina, heldur voru sýndar
myndir, þar sem þeir birtust — og
var þá ekki að sökum að spyrja.
Konurnar þoldu ekki að sjá þessa
fanta og létu þá fá það óþvegið.
Þá var og sýnd kvikmynd eftir
sænsku konuna Mai Zetterling.
Mynd hennar er gerð upp úr
Lýsiströtu, griskum gleðileik,
klassiskum, nema hvað Zetter-
ling hressti aðeins upp á orð-
bragðið. „Druslastu til helvítis
feiti api, áður en ég lem hausinn á
þór niður i maga..” o.fl. slikt
vakti lukku kvensanna.
Flugmenn leiðir
ó rœningjum
Samtök flugmanna í
Bandarikjunum lýstu yfir í
gær, miövikudag, að
félagar þeirra, sem eru
31.000 talsins, myndu hér
eftir ekki fljúga til landa
sem veita flugvéla-
ræningjum landvist.
Alpa, en svo nefnast sam-
tökin, sendu Nixon Banda-
ríkjaforseta einnig bréf,
þar sem segir aö Banda-
ríkin eigi ekki að veita
flugvélum landvistarleyfi,
ef séu þær frá löndum sem
veitt hafa ræningjum skjól
— eða neita að vera með í
alþjóðlegu banni gagnvart
þeim er flugvélaræn-
ingjum veita landvist.
„Okkur'er vel ljóst að þessar
gerðir okkar eru róttækar, en
sannarlega er kominn timi til að
stöðva þessar hótanir um rán”,
sagði formaður Alpa, O’Donnell,
sem áleit að ekki yrði tekið fyrir
hin tiðu flugvélarán, fyrr en öll
lönd neituðu að taka á móti flug-
vélaræningjum, og allir gætu
veriðvissirum að ræninginn yrði
tekinn án tillits til lendingar
staðarins. Alpa mun einnig ætla
að biðja alþjóðasamtök flug-
manna, en i þvi eru flugmenn frá
60 löndum; að sameinast um
þessar aðgerðir. Alþjóðaflug-
mannasambandið heldur fund i
London i dag.
KYNLÍF í VOÐA
Liðlega 200 verkamenn við
Vauxhall-bilaverksmiðjurnar I
Luton, Englandi, hafa neitað að
vinna aðfararnótt laugardagsins
n.k. vegna þess að vaktafyrir-
komulagið segja þeir að eyðileggi
alveg kynlif þeirra.
„Við höfum ekki sagt fullum
fetum að við félagar viljum aukið
kynlif, en þetta atriði mun vega
þungt á vogarskálum, næst þegar
samið verður um kaup okkar og
vinnuskilyrði”, segir talsmaður
sambands verkamanna.
Vildi sprengia
Agnew
Lögreglan i Connecticut,
Bandaríkjunum handtók i gær
Jerome Jacobsen, fyrrverandi
hermann. Var maðurinn með
handsprengju á sér og á leiðinni
til borgarinnar Nýju London,
þar sem Spiro Agnew, varafor-
seti Bandaríkjanna var i þann
veginn að hefja ræðuflutning.
Jacobsen, sem er 26 ára, mun
hafa stolið handsprengjunni —
en lögreglan hafði á þriðjudags-
kvöldið fengið bendingu um að
téður Jacobsen lumaði á hand-
sprengju og ætlaði ef til vill að
prófa hana á Agnew.
Jacobsen er sagður vera
félagi i samtökum þeirra fyrr-
verandi Vietnam-striðsmanna,
sem eru harðir i andstöðu sinni
gegn striðinu sem þar stendur.
Treysta
Egyptaland og V-Þýzkaland
munu i dag aftur taka upp stjórn-
málasamhand, að þvi er sagt var
i Kairó i gær.
Egyptaland var eitt 10 Araba-
landa, sem slitu stjórnmálatengsl
við Vestur-Þýzkaland áriö 1965
böndin
þar eð stjórnin i Bonn veitti
israel fjárhagsaðstoð.
Af þessum 10 Arabalöndum
hafa Jórdania, Jemen, Alsir og
Súdan nú þegar tekið aftur upp
samband viö V-Þýzkaland.
Laus staða
Iijúkrunarskóli tslands óskar að ráða
ritara þarf helzt að hafa verzlunarskóla
eða hliðstæða menntun og reynslu i skrif-
stofustörfum.
Laun samkvæmt launakerfi ríkisins.
Umsóknir sendist skólastjóra fyrir 14.
júní.