Vísir - 08.06.1972, Page 6

Vísir - 08.06.1972, Page 6
6 VÍSIR (Jtgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson y Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Rits'tjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 Afgrei&sla: Hverfisgötu 32. Simi 86611 Ritstjórn: Síöumúla 14. Simi 86611 (5 linur) Askriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands I lausasölu kr. 15.00 eintakiö. Blaöaprent hf. Ekki enn tími til leiða Iðnaðarveldi nútimans eru nú að búa sig undir nýja heimsstyrjöld, að þessu sinni ekki hvert gegn öðru eins og áður fyrr, heldur gegn sameiginlegum óvini, mengun og hruni umhverfis þess, sem nútimamað- urinn lifir og hrærist i. Við og við heyrast raddir um, að menn séu orðnir leiðir á þessu sifellda tali um mengun. Of langt megi ganga á sviði umhverfisverndunar eins og á öðrum sviðum. Þetta er aðeins að þvi leyti rétt, að einstaka verndunarmaður hefur haldið þvi fram, að nauð- synlegt væri að stöðva hagvöxtinn, þvi að hann væri orsök hins illa. Hitt liggur i augum uppi, að við þurf- um einmitt hagvöxtinn, þvi að hvergi nema þaðan kemur aflið til að stöðva frekari útbreiðslu mengun- arinnar. Að öðru leyti virðist sjaldnast sem of djúpt sé tek- ið i árinni, þegar rætt er um mengun. Svartagalls- rausið frá þvi i fyrra er orðið að barnahjali i ár. Þeir, sem eru orðnir leiðir á mengunartali, mega búast við erfiðum timum. Áhyggjurnar út af meng- uninni eiga án efa eftir að magnast enn. Hér á íslandi heyrast lika raddir um, að við meg- um ekki láta þessi vandamál koma okkur úr jafn- vægi. Þetta séu vandamál iðnaðarþjóðanna, en hér sé hins vegar hreint vatn og loft og óspillt náttúra. En við megum samt ekki sofa á verðinum, þótt við séum töluvert betur settir en flestir nágrannarnir. Við eigum einmitt að gripa i taumana, meðan lausnir okkar litlu vandamála eru ekki of dýrar, en ekki biða eftir þvi, að kostnaðurinn margfaldist. Sumpart verðum við að vinna ötullega að þvi á al- þjóðlegum vettvangi að koma á fót samstarfi um að stöðva mengun úthafanna og loftsins yfir þeim. Annars verður þessi mengun orðin okkur hættuleg eftir áratug eða styttri tima. Þetta er okkur enn mikilvægara lifshagsmunamál en landhelgismálið. Á hinn bóginn verðum við einnig að gera hreint fyrir okkar eigin dyrum. Mikill skilningur er að vakna á þessu og framkvæmdir eru viða hafnar. Eitt stærsta framkvæmdamálið er bættur frá- gangur holræsakerfis Reykjavikursvæðisins. Borg- arstjórnin hefur látið kanna málið itarlega og feng- ið tillögur að lausnum, sem kosta einn til tvo millj- arða króna. Brátt verður hafizt handa við þessar dýru en mjög svo nauðsynlegu framkvæmdir. Landverndin og baráttan gegn uppblæstri hefur gengið vel, en betur má, ef duga skal. Landgræðslu- stjóri hefur margoft bent á stórvirkari og hag- kvæmari vinnubrögð i þessari baráttu. Þau kosta meira fé i fyrstu, en eru ódýrari, þegar til lengdar lætur. Útbreiðsla hitaveitunotkunar er eitt virkasta vopnið gegn mengun loftsins, Á þessu sviði er að verða mjög ánægjuleg þróun á Reykjavikursvæð- inu, er Hitaveitan hyggst teygja sig yfir sveitar- félögin i nágrenninu. Ef rafmagnsbilarnir, sem nú eru á undirbúningsstigi, koma svo fljótlega til sög- unnar, mætti ætla, að mengun loftsins á Reykjavik- ursvæðinu geti stöðvazt að langmestu leyti. Verkefnin eru mörg og kostnaðarsöm, jafnvel hér á landi. Það er ekki kominn timi til að verða leiður á tali um mengun. VÍSIR. Fimmtudagur 8. júní 1972. Andreas Baader þar sem hann liggur á götu I Frankfurt, særður eftir skot frá lögreglunni. V-þýzka stjórnin hefur lagt blessun sina yfir aðgerðir lögreglunnar og Brandt sendi henni heillaóskaskeyti eftir handtöku Baaders. Stjórnleysingja leitað - borgarbúar skelfingu lostnir vegna sífelldra sprengjuhótana Lögreglan i Vestur- Þýzkalandi hefur undanfarna daga haldið uppi viðtækri leit að félögum úr Baader- Meinhof flokknum, sem um nokkuð langa hrið hefur haldið uppi skærum i þýzkum borgum. Á ýmsu hefur gengið i Þýzkalandi i vetur og vor, og með sumrinu færðist hiti i aðgerðir þessa stjórnleysingja- hóps. Sprengjur sprungu, ollu viða skemmdum, og þar sem ekki var sprengt, var hótað að sprengja. Margar stofnanir, fjölmiðlar, hótel og annað slikt, hafa orðið fyrir dularfullum sim- hringingum — einhver rödd hefur sagt frá sprengju, sem bráðlega myndi valda tjóni. Oft hafa þessar hringingar verið gabb eitt, — en lögreglan vill rekja þær til Baader-Meinhof flokksins. Fyrir siðustu helgi náði lögreglan svo i skottið á tveimur úr hópnum, en auk þeirra líka öörum foringja hans, Andreas Baader. Baader er 29 ára gamall og liggur nú á sjúkrahúsi, þar sem hann særðist i viðureign við lögregluna. Fékk hann skot I sig, þegar lögreglan gerði atlögu að honum óg nokkrum félaga hans snemma morguns i norðurhluta Frankfurt. Meinhof leitað En þótt lögreglan hafi náð I Baader, er viötækri leit haldiö áfram, og beinist nú kastljósiö að hinum foringja hópsins, og raunar heilanum á bak við hann, hinni 37 ára gömlu Ursulu Meinhof. Sprengjuhótunum var haldið áfram i Frankfurt eftir handtöku Andreas Baader. Leitað var i barnaskóla einum og . brautar- stöðinni, þar var lokað á föstu- daginn i siðustu viku, meðan leitað var þar að sprengju. Lögreglan heldur að hún hafi með handtökunum fyrir siðustu helgi náö á sitt vald harðasta kjarnanum úr þessum stjórn- leysingjahópi, Þeir handteknu eru, auk Baaders, menn að nafni Jan-Carl Raspe og Holger Meins. Tvær konur úr broddi flokksins þ*r Ulrika Meinhof_ og Gudrun Esslin, fara nú huldu höföi. ,,KIukkan 13 - 14” Andrúmsloftið i Stuttgart var þrungið mikilli spennu á föstu- daginn vár, þegar lögreglunni hafði verið tilkynnt, að þrjár sprengjur myndu springa i bllum, sem komið myndi fyrir á mis- munandi stööum i borginni milli klukkan 13 og 14 Skólum var lokað þegar í stað og börn send heim, á meðan lögreglan leitaði sem óð væri um borgina að einhverjum bilum. Sprengjur sprungu aldrei, — en lögreglan hafði og fengið til- kynningar áður, að bilar væru á leið frá Frankfurt til Stuttgart og hefðu þeir meðferðis sprengiefni, sem nota ætti i Stuttgart. Þúsundir bila voru stöðvaðir og leitað i þeim. Lögregluvörður var utan við borgina og raunar allt umhverfis hana. Opinberai byggingar voru umkringdar lög- regiuþjónum allan þann dag, þótt sprengja spryngi ekki á ,,til- kynntum” tima. Brandt sendi hamingju- óskir Sambandsstjórn Vestur-Þýzka- lands hefur lagt blessun sina yfir aðgerðir lögreglunnar I Frank- furt gegn stjórnleysingjunum, og Brandt sjálfur mun hafa óskað lögreglunni til hamingju með að ná á sitt vald einum af aðal- mönnum hópsins, Andreas Baader. Brandt sagði i stuttu ávarpi, sem útvarpaö var: „Stjórnleysingjahópar, sem aka um landið allt i lúxusbifreiðum fullum af sprengiefni, geta varla skoðazt sem merki flokka, sem vilja breyta stjórnskipulaginu hér...” Andreas Baader var að eigin ósk fluttur I sjúkraskýli sem i fyrri heimsstyrjöldinni var notað sem skothelt byrgi.. A byrginu eru engir gluggar og veggir mjög þykkir. Aðeins einn inngangur er i það, og heldur lögreglan þar vörð dag og nótt. Byrgi þetta hefur i seinni tiö verið notað sem skurðstofa fyrir læknadeild há- skóla. EBE með viðskiptatilboð — samningar að hefjast með einstökum Efta- löndum — rœtt um fisksölumál Islendinga 19. og 20. jóní n.k Utanrikisráðherrar EBE-land- anna hafa setiö á löngum og ströngum fundum þessa dagana, en hafa nú komiö sér niður á ákveðiö tilboð á grundvelli fri- verzlunar, sem bjóða á þeim Efta-löndum, er nú standa i samningum við EBE. Þessi lönd eru tsland, Noregur, Sviþjóð, Finnland, Austurriki, Sviss og Portúgal. Ntb sagði i gærmorgun, að næstum öruggt væri, að þessi lönd sæju sér ekki fært að ganga ein- hliöa að þessu tilboði, og i gær hófust svo samningafundir ein- stakra landa við EBE. Þannig munu Islendingar ræða um sin mál, fisksöluna, dagana 19. og 20. júni n.k., en stefnt er að þvi, að sérsamningum Efnahags- bandalagsins við ofanskráð lönd verði lokið i júli. Þórhallur Asgeirsson, ráðu- neytisstjóri, tjáði Visi i gær- morgun, að tslendingar gerðu sér vonir um að endanlega yrði búið að ganga frá samningi milli Is- lands og Efnahagsbandalagsins i júli, þótt vitanlega væri vart hægt að segja svo með vissu fyrirfram. Ráðherranefnd Efnahags- bandalagsins hefur setið á fund- um siðustu daga, en nú er eftir að semja við hvert land fyrir sig um þess sérmál. Finnar og Sviar hafa t.d. mestar áhyggjur af pappirsinn- flutningi, og munu þeir fara fram á langan aðlögunarfrest. Fiskút- flutningurinn er hins vegar okkar höfuðverkur. -GG

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.