Vísir - 08.06.1972, Blaðsíða 7

Vísir - 08.06.1972, Blaðsíða 7
VISIR. Miðvikudagur 7. júní 1972. cTVIenningannál Ólafur Jónsson skrifar um leiklist: við og inni fyrir Leikfélag Reykjavikur: DÓMINÓ eftir Jökul Jakobsson Leikmynd: Steinþór Sigurðsson Tónlist: Magnús Blöndal Jóhannsson Leikstjórn: Helgi Skúlason Sumrinu ’37, siðasta leikriti Jökuls Jakobs- sonar, lauk með fjöl- skyldumynd: hið úrelta og afsérgengna konsúls fólk i leiknum stillti sér upp með hefðarlegu fasi og brosi á vör svo að pater familias gæti tekið af þvi ljósmynd handa frænku þeirra i útlönd- um. Þetta lokaatriði leiksins, svo raunsæis- legt i öllum sinum af- káraskap, varð að minnsta kosti mér minnisstæðast úr sýn- ingu Leikfélags Reykja- vikur 1968. í Dómfnó, hinu nýja leikriti Jökuls Jakobssonar i Iðnó, er ennþá fyrir að fara efnivið, eða efnisleifum raunsæislegs fjöl- skyldu-leiks. Þvi efni eru fyrstu tveir þættir leiksins að mestu helgaðir. Það sem var, það sem er Gestu' - mur i heimsókn, æskuvirur í. arinnar i húsinu. framaðt'' frf akistan - hann er sjálfsagt . i kominn að rifja upp liðna tiö og leita að þvi sem var. Það er að skilja að fyrirtæki konsúlsins, föður frú Margrétar, hafi verið komin á fallandi fót um það er lauk. Hún hefur á hinn bóg- inn gifzt efnilegum plast- fabrikant, manni á uppleið bæði i „rótariinu” og þjóðfélaginu að öðru leyti,manni sem engan veg- inn fullnægir henni og sjálfur býr við innilokun og tilfinningakreppu i hjoi ^bandi þeirra. Margrét hefur vist aidrei vaknað af æsku- di'auml r.Ii'>um um miklu betra og fegu.'ia mc.nnlif en hún sjálf héf- ur megnað að lifa, þau leita dá- litið að upphafi hans, hún og Gest- ur, en finna það ekki, — kannski það sé samidraumur sem nú vak- ir fyrir dóttur hennar ungri, þótt með breyttum formerkjum sé. Það er auðvelt að hugsa sér raúnsæislegan stofuleik, alvöru- gefið sálfræðilegt drama undir niðri gamansamlegu yfirborði sinu, upp úr þessum efnivið sem nú var lauslega lýst. Augljóslega gæti slikur leikur „farið” á ýmsa vegu. En Jökull Jakobsson hefur sifellt verið að verða frábitnari þvi að „segja sögu” i leikritum sinum, lýsa ytri átökum og rás atburða á sviðinu. Leikir hans miða að þvi að grafast fyrir um sálarástand og láta uppi llfsýn sem virðist einkennilega sterk og samfelld rit fyrir rit hans. I leikritum hans, allt frá Hart I bak fyrir tiu árum, má greina alveg glögga, samfellda stll- þróun, orðræðuaðferð sem treyst- ir æ meir á það sem er látið hálf- sagt og ósagt á milli og bak við orðin. Einatt virðist fólkið i leikj- um hans byggja hvert sinn hugar- heim sem það sér hvorki né kemst út yfir. Þar talar hver fyrir sig, sinu máli, framhjá hver öðrum. Kristján i Dóminó kann ekki önnurráð til að ná samb. við annað fólk I leiknum en ráðsk- ast með flöskur og glös og skenkja, skenkja. Gamla frú Lovisa, ekkja konsúlsins, er horf- in inn i fortið sina I eilífri áfengis- vimu. Frú Soffia lifir á og fyrir sinn sjálfumglaða borgaraskap. Gestur og Margrét reyna sífellt að koma orði að draumi sinum, hinum sama draumi um það sem einu sinni var. En þeim tekst það aldrei. Lífið er farið framhjá þeim. Á bak við fólkið Það hefur jafnan virzt styrkur Jökuls Jakobssonar hve létt hon- um er um að að semja ljósan og lifandi texta, einatt fjarska spaugnæm og hnyttin tilsvör og heilar orðræður. Fólk hans tjáir sig á máli sem er raunverulega talað mál. Það er ekki þar með sagt að mannlýsingar, eða öllu heldur: manngerðirnar i leikjum Jökuls séu allténd ýkja raunsæis- lega samdar. En leikir hans eiga fjarska mikið komið undir þvi að náið og natið raunsæi sé lagt við hina ytri umgerð þeirra, sam- hengi fólksins á sviðinu sin á milli, og við umhverfi þess. Það hefur einatt mátt spyrja sig hvort þetta fólk væri I rauninni trúverð- ugt i slnu tiltekna samhengi — húsum og stofum t.a.m. i vestur-- bænum eða við Laufásveg. Afkáralegur og raunsær efnis- þáttur hafa einatt virzt ósamloða og valdið kyndugri togstreitu I mannlýsingum og atburða, tvistringi I hugmyndaheimi leikjanna. 1 þriðja þættinum I Dóminó staðnæmist hin hægfara atburða- rás, eða drög hennar, sem merkja mátti I fyrri þáttunum. Þar er fjölskyldumynd fyrri þáttanna tekin og gaumgæfð öðru sinni, dramanu sundrað og sameinað I nýrri mynd, nýju skáldlegu sam- hengi. Þar mætast draumur og veruleikinn, fortiö og nútið og óumbreytanleg framtið fólksins I leiknum. Hugsýn og veruleikinn Með þessi umskipti leiksins, þar sem hlutverkin vixlast og hugsýn og veruleiki ganga hvert upp I ööru, er verulega haglega farið i sviðsetningu Helga Skúla- sonar i Iðnó, sem mér virtist einnig að öðru leyti unnin með mikilli natni og næmleik fyrir hinni innhverfu, skáldlegu dramatik leiksins. í ljósi þriðja þáttarins skipar sér efni, fólk og atburðir fyrri þáttanna upp I nýtt samhengi sem ytra „raunsæi” skiptir minna máli en samfelld innri lýsing hugarástands og til- finninga i leit að sinu óstöðuga jafnvægi. Þaö er ekki þar meö sagt að allt sé „nýtt” I leiknum. Frú Soffia sem Guðrún Stephensen leikur af röggsemi og verulegri skopvisi ætti t.a.m. jafnvel heima i venju- legri stofu-kómediu með slnum ósýnilega eiginmanni. Frú Lovisa, Þóra Borg, minnir óneit- anlega öðrum þræði á fyrri „öld- unga” I leikjum Jökuls. Annar þátturinn var i langdregnara lagi, þótt hann sé ekki langur I tima talið. Þar er eins og veröi eyður i efnið, lýsing fjölskyldunnar I hús- inu, út á viö og inni fyrir sem endurtekningar duga ekki til aö fylla. En slfk álitamál, sem vel má vera að varði smekksatriði fremur en efnis, skipta minnstu máli á við hitt sem tekst til hlitar. Eins og stundum endranær I leikritum Jökuls Jakobssonar er eins og hlutverkin séu samin um og handa tilteknum leikendum. Svo er um Helgu Bachmann i hlutverki Margrétar, þungamiðju tilfinninganna I leiknum. Jón Laxdal leikur Gest meö mikilli hófsemi og næmleik, sitt veiga- mesta verk eftir heimkomuna. Steindór Hjörleifsson hef ég ekki séð fara betur með annað hlut- verk en Kristján um langan tima. Og Ragnheiður Steindórsdóttir kemur öldungis náttúrlega fyrir I hlutverki ungu stúlkunnar, sem ein á eftir óblekktan lifsdraum — llfsvon 1 vonblekktum heimi leiksins. Einnig ytri umgerö leiks ins, hringlaga og ljóslituð, allt að þvi hvit sviðsmynd Steinþórs Sigurðssonar, hæfir efni hans til hlltar - hinum innilokaða heimi mannlegs tilfinningalifs sem þar er lýst. í áfanga Dóminó er að minni hyggju bezta verk Jökuls Jakobssonar til þessa — þaö leikrit hans sem tekst sin tilætlun til mestrar hllt- ar. Ef til vill er enn meira um þaö verten ella vegna þess hve mark- visri og samfelldri stilþróun leik- rit hans lýsa undanfarin tiu ár. Avöxtur hennar er sá nýi stlls- háttur, frjálsræði leiks á sviði sem nú sýnist blasa við höfundin- um. Dóminó: Þóra Borg, Ragnheiður Steindórsdóttir, Steindór Hjörleifsson, Jón Laxdal, Helga Bachmann. Gunnar Björnsson skrifar umlistahátíð SNILLD OG PRÝÐI Þaö er ósvikinn virtúósa- bragur á Útvarpshljóm- sveitinni sænsku, hvert sæti greinilega skipað snilldar- Sixten Ehrling manni. Stærð þessarar hljómsveitar nægir ein saman til þessað íslending- urinn reki upp stór augu: 30 fiðlurog 20 sellí og bassar, með öðrum orðum álíka margir strengir og hljóm- sveitin okkar er fjölmenn þegar allt er talið. En þá eru ótaldir hjá Svíunum blásararnir og fjöldi slag- verksmanna. Er ekki að orðlengja það, að snilldarleikur þessarar prýðilegu hljómsveitar hreif áheyrandann frá fyrsta til siðasta tóns á hljóm- leikunum i Laugardalshöllinni á þriðjudagskvöldið var. Tónninn er sterkur, mjúkur og hreinn. Ná- kvæmni i samspili fullkomin. Vald yfir andstæðum hljóm- magns algjört og beitt til hins ýtr- asta, hvort heldur er i áttina að fortefortissimó ellegar pia- pianissimó. Þó er hvergi ofgert, en sérhvað hlýtur smekklega fág- Arve Tellefsen un, allt eftir þvi hvað við á. Það er nánast flest, sem kemur á óvart hinum óvana hlustanda, sem aldrei hefur orðið svo frægur að hlýða á alvöruhljómsveit i út- landinu (ég á hér t.a.m. við sjálf- an mig). Strengjahljómurinn er með þeim ólikindum, að ógjörn- ingur er að lýsa. Og ekki er blástursómurinn lakari: hér er, eins og áður er sagt, valinn mað- ur i hverju sæti. „ Sá, sem stýrir þessu glæsilega sigurverki, heitir Sixten Ehrling, maður á sextugsaldri, snaggara- legur og músikalskur drengur, greinilega. Stjórnaði hann öllum verkunum utanað og þar að'auki tveimur glæsilegum auka-,,Iög- um”. Eyrst heyrðum við 5. sinfóniu danska tónskáldsins Carls Niel- sens, sem er mjöj sérstætt tón- skáld og býr yfir afar persónuleg- um tóni. Þessi djúpúöga sinfónia er óhemju vel skrifað verk og ánægjulegt áheyrnar, enda flutn- ingurinn betri en orð fá lýst. Hvert einasta smáatriði fær að njóta sin til fulls: stjórnandinn leiðir okkur um fagra veröld þessarar ágætu smiðar, og þar ber margt yndislegt fyrir eyru. Þá gaf að hlýða á Fiölukonsert Sibeliusar, þetta margfræga snilldarverk. Einleikarinn heitir Arve Tellefsen, hálffertugur Norðmaður, viðförull listamaður og þrá-verðlaunaður. Hlutur hans var frábær. Tónninn er griðar- fagur og berst sérlega vel um hinn viðáttumikla (að ekki sé meira sagt) hljómleikasal, hrein- leikinn hundraðprósent og tækni öll eins og bezt verður á kosið. Siðast á efnisskánni var Bakkus og Ariane, svlta, eftir Roussel nokkurn, franskan impressionista sem einnig mun hafa lært af Stravinsky. Kærkomið tækifæri góðri hljómsveit að sýna leikni sina. Svo sem fyrr er sagt linntu áheyrendur ekki látum, fyrr en tvö aukanúmer höfðu verið flutt: forleikur úr Lohengrin eftir Wagner og forleikur óperunnar Rúslan og Ljúdmila eftir Glinka, hvort tveggja ofboðsleg virtúósa- stykki. Ekki veit ég tölu á áheyrend- um, en i þessu stóra húsi virtust þeir nú ekki mjög margir. Er það leiðinlegt og næsta ótrúlegt, að Reykvikingar og aðrir góðir landsmenn skuli láta tækifæri eins og þetta fram hjá sér fara. Verður vist að játa, að músik- públikum á tslandi er ekki ýkja fjölmennur söfnuður.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.