Vísir - 08.06.1972, Page 8

Vísir - 08.06.1972, Page 8
8 VÍSIR. Fimmtudagur 8. júni 1972. SKRIFSTOFA FYRIR NORRÆNT MENNINGARMALASTARF Þrjór deildarstjórastöður Milli Danmerkur, Finnlands, islands, Noregs og Sviþjóðar hefur verið gerður samningur um aukið samstarf á sviði fræðslu-, visinda- og annarra menningar- mála. Undir yfirstjórn Norrænu ráðherra- nefndarinnar, sem stofnuð er samkvæmt samstarfssamningi Norðurlanda, og Nor- rænnar embættismannanefndar, sem komið verður á fót samkvæmt menningarmálasamningnum, skal sett á stofn Skrifstofa fyrir norrænt menningar- málasamstarf. Skrifstofan verður i Kaup- mannahöfn með norrænu starfsliði. Þrjár deildarstjórastöður i skrifstofu þessari eru hér með auglýstar lausar til umsóknar, samtimis i Norðurlandarikj- u n u m ö 1 1 u m . Deildirnar fjalla hver um sig um eitt eftirtalinna samstarfssviða: fræðslumál, visindamál og almenn menningarmál. Að tilskildu samþykki fjárveitingar- stjórnvaida verður störfunum ráðstafað með ráðningarsamningi til þriggja eða fjögurra ára i senn frá 1. janúar 1972 að telja. t undantekningartilvikum kemur tveggja ára ráðning til greina. Heimilt er, að ráðningartimabili loknu, að semja um endurráðningu fyrir annað starfstimabil. Gerður verður sérstakur samningur um launakjör og skipan eftirlauna. Deildarstjórarnir verða ráðnir af emb- ættismannanefnd þeirri, sem sett verður á stofn samkvæmt menningarmála- samningnum. Verður meginhlutverk þeirra að annast, undir yfirstjórn fram- kvæmdastjóra, skipulagningu og stjórn starfa skrifstofunnar á þeim sviðum, er undir deildirnar falla. Upplýsingar um fyrirhuguð verkefni er að finna i nefndarálitinu „Nordiskt kulturavtal”, sem gefið hefur verið út af Norðurlandaráði i flokkunum Norræn nefndaráiit (Nordisk udredningsserie nr. 20/70). Umsóknir, ritaðar á dönsku, norsku eða sænsku, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, skulu stilaðar til Embedsmandskomiteen for nordisk kulturelt samarbejde, og sendar fyrir 4. október 1971 til Birgis Thorlacius, ráðuneytisstjóra, menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik. Taka skal fram við hverja af deildarstjóra- stöðunum þremur umsóknin miðist öðru fremur. Vakin er athygli á, að framangreindur umsóknarfrestur er ekki bindandi fyrir þann aðila, er ráðstafar störfunum, þar sem samkomulag er um það — með hlið- sjón af mismunandi tilhögun i Norður- landarikjunum á ráðstöfun opinberra starfa — að í stöðurnar megi einnig ráða án formlegrar umsóknar. 2. september 1971. Undirbúningsnefnd um framkvæmd norrræns menningarmálasamnings. „Handy facts" á fjórum tungumálum. Þeir Icéland Review-menn gefa i ár út öðru sinni Handy facts on Iceland, 64 siðna vasabók með 36 litmyndum. Endurútgáfa þessi er nú til sölu á fjórum tungumálum, ensku, norsku, þýzku og frönsku. Myndin er tekin úr bæklingnum, en hún á að sýna dæmigerða islenzka fegurð, og sannarlega er þaö ekki fjarri lagi. Hinsvegar vitum við ekki nánari deili á stúlkunni. LISTAHÁTÍÐ I R EYKJAVÍ K Fimmtudagur 8. júni Norræna húsið Kl. 17.00 Finnskt vísnakvöld. Maynie Sirén og Einar Englund (undirleikari.) Bústaðakirkja Kl. 17.00 Nóaflóðið (fjórða sýning). Þjóðleikhúsið Kl 20.00 Lilla Teatern i Helsinki. Umhverfis jörðina á 80 dögum (önnur sýiiing). Fögtudagur 9. júni. Norrænahúsið Kl. 12.15 tslenzk þjóðlög Guðrún Tómasdóttir Undirleikari: Ólafur Vignir Albertsson. Norræna húsið KI. 17.00 Jazz og Ijóðlist. Þjóðleikhúsið Kl. 20.00 Sjálfstætt fólk Laugardalshöll Kl. 20.30 Sinfóniuhljómsveit tslands Einleikari á fiðlu: Yehudi Menuhin Stjórnandi: Karsten Andersen Norræna húsið Kl. 20.30 Visnakvöld Ase Kleveland og William Clauson. Uppselt. Myndlistarsýningar opnar meðan á Lista- hátið stendur. Sýningardagana fást aðgöngumiðar við innganginn. Aðgöngumiðasalan er i Hafnarbúðum. Opið kl. 14—19 daglega. Sirni 2 67 11. LISTAHÁTÍD í REYKJAVÍK! Eigum við heimsmetið? Sennilegt má telja, að tslendingar eigi heimsmet i verkföllum. Varla er búiö að leysa einn hnút- inn i vinnudeilum, áður en annar er kominn til sögunnar. Ófáir vinnudagar glatast þvi — og milljónatugirnir eða hundr uðin glatast þjóðarbúinu. Aust urriki er fyrirmyndarlandið hvað verkföll áhrærir. t yfir tvo ára tugi hefur landið verið meðal þeirra landa, sem minnst hafa haft af verkföllum að segja. Sfð- asta ár var þó það bezta þar i landi, — aðeins 2431 verkamaður var viðriðinn verkfall, glataðar vinnustundir nær 30 þús. Meðal 2.5 millj. verkamanna og starfs- manna nam verkfallstimi 1971 ekki nema 37 sekúndum á vinnu- taka. Kannski ættum við að senda menn til Austurrikis til að læra af þeim i þessum vandræðamálum okkar? Nýjungar i heima- vistinni í M.í. Þegar nemendur viða að af Vest- fjarðakjálkanum mæta til leiks og starfs við Menntaskólann á Isafiröi næsta haust, verður nýja heimavistin væntanlega tilbúin, en hún rúmar 50 nemendur. Það verður að telja frumlega nýjung, að þarna verður heimavistin i einingum, 6,12 og 18 manna, og er hver eining út af fyrir sig, með eigin setustofu og eldunarað- stöðu. Milli 120 og 130 nemendur verða i skólanum næsta vetur. I vetur voru nemendur 75 i 1. og 2. bekk, 73 gengust undir próf og stóðust allir utan 2, en 2 eiga ólokið prófum. Hætta ungir sjálf- stæðismenn í sam- tökum æskunnar? Sú hætta er fyrir hendi, að Sam- band ungra sjálfstæðismanna hætti þátttöku i ÆSl, Æskulýðs- sambandi tslands. Ástæðan er sú, að SUS telur, að stjórn ÆSl hafi þverbrotið lög samtakanna með þvi að samþykkja á fundi tillögu um brottför hersins, úrsögn úr NATO og mótmæla afskiptum Bandarikjamanna i Vietnam. Segja SUS-menn, að i lögum ÆSI standi m.a. i 4. grein: „Sam- þykktir um flokkspólitisk málefni eru ekki leyfðar á vettvangi ÆSI”. Kvefið hörfaði Með hækkandi sól hörfaði kvefið úr Reykvikingum. Annað verður vart lesið úr skýrslu borgarlækn- isembættisins um farsóttir i Reykjavik 14. tii 20. mai, en hún er byggð á skýrslum 11 lækna. Kvefsótt, kveflungnabólga, lungnakvef og iðrakvef hörfuðu og sömuleiðis hálsbólga og aðrar farsóttir. Eskeland fær fola fyrir þýðingar Ivar Eskeland var úthlutað verð- launum, sem félag norskra þýð enda útdeilir ár hvert. Fékk hann verðlaun, styttu af fola, fyr- ir þýðingu á bókinni „Det gode h5b” eftir Færeyinginn William Heinesen. Verðlaun þessi eru nefnd Bastian-verðlaunin eftir gefanda þeirra, sem er mynd- höggvarinn örnulf Bast. Folan- um fylgir einnig nokkur peninga- upphæð. Sviar opnuðu pyngjuna og keyptu 15 listaverk Það voru ék’k'i amalegir gestir, sem komu á norrænu grafik- sýninguna sem nú stendur yfir i Norræna húsinu. Þetta var sænsk innkaupanefnd, sem festi kaup á 15 verkum á sýningunni, en 8 myndir til viðbótar hafa þegar selzt. Sýningin er opin daglega frá 14 til 22. Allt um Reykvíkinginn. Hagstofan hefur gefið út Ibúaskrá Reykjavikur, tvö bindi 1400 bls. i fólióbroti. Reykvikinga er þarna að finna eftir húsum og götum, en margar og miklar upplýsingar má lesa í skránni um hvern ein- stakling, sé táknmálslykillinn rettilega notaður. Eflaust munu margir þeir sem þjást af forvitni kaupa ibúaskrána sem kostar 3300 krónur.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.