Vísir


Vísir - 08.06.1972, Qupperneq 20

Vísir - 08.06.1972, Qupperneq 20
VÍSIR. Fimmtudagur 8. júnl 1972. Esjugrjót í taflborð Siguröur Hclgason, for- stjóri Stciniöjunnar S. Helgason h.f. heldur hér á sýnishornum af reitum skák- borösins sem kapparnir Fischer og Spasski munu tcfla á. „Þetta er islenzkt gabbró frá Hornafiröi” segir Siguröur, en ég er nú aö fara i lciöangur upp á Gsju til aö finna Ijósara grjót fyrir hvitu reitina. Við munum svo lima reitina á grásteinshellu og er stæröin 52x52 og hver reitur 6,5 á kant.” Gabbróið verður finslipað og matt en ekki gljáandi frekar en taflmennirnir sem teflt verður með. Utan um taflborðið sjálft veröur svo mahoniplata, og leður en Gunnar Magnússon arkitekt hefur teiknað borð- ið. Fischer vinnur afrek í tennis Bobby Fischer kann sitt- hvaö fleira en aö tefla skák betur en nokkur annar. Hann geröi sér lítiö fyrir nýlega í árlegu tennismóti i La Costa i Kaliforniu, þar sem hann dvelur núna, og sigraöi gamlan meistara Hank Greenberg i hörkukeppni. Greenberg. vann þetta mót i fyrrá og þó aö hann sé orðinn sextugur er hann enn hinn sprækasti i iþróttinni. Þaö væri þvi gaman aö sjá þá Fischer og Spasski keppa i tennis, en eins og komiö hefur fram óskar Spasski eindregið eftir þvi aö hann fái hér aöstööu til aö leika tennis og er nú veriö aö út- búa velli fyrir hann. Skákdagbloð Timaritiö Skák, sem gefiö er út mánaöarlega af Jó- hanni Þóri Jónssyni, mun hafa I hyggju aö vcita les- endum sinum og reyndar öll- um þorra landsmanna gott tækifæri til aö fylgjast mcö heimsmeistaraeinvíginu. Eftir hverja skák i einviginu þ.e. strax morguninn eftir, kemur blaöiö út meö skák- inni sem tefld var kvöldið áöur og itarlegum skýring- um frægustu skákmanna sem hér veröa staddir. Blaðið mun verða 16 siður i senn og verður það gefið út á þremur tungumálum, islenzku, ensku og rúss- nesku, og selt i lausasölu á götum úti. Lœknar fengu 30-40% Samkomulag náðist í lœknadeilunni í nótt Samningar tókust I launadeilu sjúkra- hússlækna og ríkisspitalanna i nótt. Þvi má búast viö, að aðstoðarlæknar og sérfræðingar á rikis- spitölunum og Borgar- spitalanum dragi uppsagnir sinar til baka, ef samkomulagið verður samþykkt á félagsfundi hjá Lækna- félagi Reykjavikur. Fyrstu uppsagnirn alr áttu að taka gildi núna um 10. júni. Að þvi er Visir veit bezt munu sjúkrahúslæknar hafa fengið 30- 40% raunhæfa kjarahækkun út úr þessu launastriði sinu, sem er Iangt neðan þess, sem þeir fóru fram á, en allmyndarlegt samt. Grunnlaun lækna hækka um 10% frá siöustu áramótum og um 4% við næstu áramót. Þá greiöir hiö opinbera 3% I lifeyrissjóð lækna frá siðustu áramótum og bætir við öðrum 3 prósentustigum um næstu ára- mót,— 1 samningunum 1966 var umsamið, að læknar sæju sjálfir um lifeyrissjóðsgreiðslur slnar og voru þær þvi innifaldar I kaupi þeirra. Nú hafa sjúkra- húslæknar þvi fengið þessar llfeyrissjóösgreiðslur i ofan- álag. Talsverð hækkun varð á yfir- vinnutöxtum og gæzluvaktar- töxtum, en hækkun á þessu kemur að sjálfsögðu mjög misjafnt niöur hjá læknum. Fyrir yfirvinnu fá læknar nú frá 383 kr. til 440 krónur auk visi- tölu. Fyrir gæzluvaktir, þ.e. læknar þurfa að vera viö sfma, ef eitthvað skyldi koma upp á, en hafa að öðru leyti fri, fá þeir núna 80—100 kr. á klukku stund, en fengu áður 46—56 kr, eftir stöðu og starfsaldri. Læknar geta veikzt eins og annað fólk, en nú fá þeir 3ja mánaða veikindaleyfi á ári á „ fullu kaupi, ef þeir hafa unnið i 4 ár. A fyrsta árinu fá þeir 2 veikindadaga fyrir hvern mánuð, sem þeir hafa veriö i starfi, en mánuð, þegar þeir hafa starfað i eitt ár, Grunnlaun lækna eru samkvæmt samkomulaginu i nótt frá 45.923 kr. fyrir aðstoðarlækna á 1. stigi til 70.545 kr. fyrir sérfræðinga eftir 6 ár. Ofan á þetta bætist visitala Vinnuvikan verður 4 stundir. Allt með öllu samsvarar þetta 30—40% kauphækkun. -VJ Komast ekki með eggin úr bjarginu Tvcir flokkar manna hafa verið undanfariö i Hælavíkur- bjargi i eggjatöku og hafzt viö i tjaldi i hjarginu. Veður hefur hamlað þvi, að mennirnir hafi getað komið eggjunum frá sér, og liggja þau undir skemmdum hjá þeim, meðan súgurinn er of mikill við bjargið til þess að bátum verði komið að. Annar flokkurinn, 3 menn, 1 drengur og ein hjón, hefur verið þar siðan fyrir helgi, og tveir mannanna hafa hafzt við i tjaldi á syllu niðri i bjarginu. 1 fyrravor eyðilögðust hjá eggjatökumönnum i bjarginu um 3000 egg, þegar aldrei gaf á sjó til Jjess að sækja þau. Eggin eru látin siga niður i báta, sem verða að koma alveg upp að berginu. Veðurhorfur fóru þó batnandi á Vestfjörðum og vonir eru til þess að fengnum verði náð seinni partinn i dag eða á morgun. — GP Hernámsandstœðingar marséra aftur llernúmsandstæöingar ætla á sunnudaginn aö ganga úr Hafnar- firöi til Kcykjavikur. „Viö ætlum að ganga um þétt- býliö núna, viljum rcyna mcö þvi móti nö vekja athygli á málstaö okkar", var VIsi sagt á skrifstofu hernámsandstæöinga i morgun, ,,viö ætlum aö safnast saman klukkan 19 á sunnudags- kviildiö á Þórsplani i Ilafnarfiröi. Þar flytur Gunnlaugur Astgeirs son, formaður Stúdentaráðs, ávarp, en siðan verður gengið um Strandgötu og sem leið liggur að Kópavogsbió. Þar áætlum við að vera tveimur klukkustundum siðar. Þar verður stuttur fundur, Guðmundur Sæmundsson, fyrr- verandi ritstjóri Nýs lands, heldur ræðu og Böðvar Guðmundsson, skáld, syngur úr eigin kvæðum. Siðan verður gengið um Kringlumýrarbraut, Miklubraut um Hlemm og niður að Miðbæjarskóla, þar sem fundur er áætlaður frá kiukkan 22, 45 — 23.15. Njörður Njarðvik, formaður Útvarpsráðs verður fundarstjóri, en ávörp flytja Cecil Haraldsson, kennari, i stjórn félags ungra jafnaðarmanna, Elias Jónsson, blaðamaður, úr stjórn ungra framsóknarmanna Kjartan Ólafsson, framkvæmda- stjóri Alþýðubandalagsins og Tryggvi Þór Aðalsteinsson, form. Iðnnemasambandsins”. Hernámsandstæðingar sögðu að starf þeirra hefði um langa hrið legið niðri, og þar sem litill undirbúningur hefði verið unninn i sambandi við væntanlega göngu, þá byggjust þeir ekki við neinum fjölda á sunnudaginn, ,,en þetta stendur og fellur með veðrinu. Við vonum að sólin skini”, sagði starfsmaður á skrif- stofu hernámsandstæðinga, „við ætlum svo i framtiðinni að starfa svolitið inn á við. Halda uppi rannsóknum á sambandi hersins og landsmanna.” Hernámsandstæðingar munu á sunnudaginn leggja áherzlu á kröfuna um brottför hersins frá Keflavik, en ekki mótmæla bein- linis aðildinni að Nató, eða Viet- nam-striðinu. —GG , x ,|;»1 .. - ^ f§Wg!8pf»iB fg | ■ im M . I ■ Guörún dundaöi viö garöyrkjustörf, er Visismenn gengu fram á hana i Mosfellsdalnum i gær. Meö henni eru börn hennar tvö. „Þjóölög ætti eiginlega ekki aö syngja inni i húsi, miklu frekar ætti fólk aö hitta mig hér utan dyra i sólskininu....” , „Bezt að syngja þjóðlög utandyra" — segir Guðrún Tómasdóttir islenzk þjóölög verða á dagskrá Listahátiðar á morgun — og svo undarlega vill til, að hún Guörún Tómasdóttir, söngkona og Ólafur Vignir Albertsson, undirleikari hennar eiga aö flytja dagskrárliö sinn i hádeginu. Þau byrja klukkan korter yfir 12 á morgun I Norræna húsinu og flytja þjóðlög i liðlega klukku- stund. Guðrúnu er óþarft að kynna íslendingum, svo oft hefur hún sungið fyrir okkur — hins vegar kann að vera að útlendingar skynji eitthvað nýtt i sambandi við Island og islendinga, ef þeir hlusta á þessa fornu texta sem Guðrún flytur við ýmis lög. Hún verður og með skýringar á ensku, ,,og þetta eru þjóðlög úr ýmsum áttum og útsett af hinum og þessum”, segir Guðrún, er viö spjölluðum við hana uppi i Mos- fellsdal i gær en þar býr söng- konan, „annars mun ég syngja i liðlega klukkustund, og það er erfitt þegar islenzk þjóðlög eru annars vegar”. Sagði Guðrún að sumt af lögunum sem hún syngi á morgun hefði aldrei heyrzt áður, t.d. lag eitt sem Jórunn Viðar hefur ný- lega útsett „og svo syng ég gamalt Mariuvers, sem engar heimildir hafa fundizt fyrir. Ég lærði það af frænku minni, en hún lærði það aftur af frænda sinum, Sigfúsi Einarssyni, organista og tónskáldi”. —GG

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.