Vísir - 20.06.1972, Qupperneq 9
VÍSIR. Þriðjudagur 20. júní 1972.
VÍSIR. Þriðjudagur 20. júni 1972.
Ármann og Valur sigruðu
í fyrstu leikjum
islandsmeistaramótiö i
útihandknattleik hófst við
Lækjarskólann i Hafnar-
firöi i gærkvöldi og voru þá
leiknir tveir leikir. Ármann
og Valur urðu sigur-
vegarar, en alls taka niu
liö þátt í keppninni. i kvöld
heldur mótið áfram á
sama stað og leika þá fyrst
Margir Skaga
'menn meiddir
Skagamenn eiga i miklum
erfiðleikum með lið sitt
vegna meiðsla. i gærkvöldi
léku þeir Matthias Iiall-
grímsson og Benedikt Val-
týsson ekki með liðinu, og ó-
sennilegt er, aö þeir gcti
lcikið næstu vikurnar eftir
þvi, sem Rikharður Jónsson,
þjálfari Akrancss, tjáöi blaö-
inu i gær. Það blæddi inn á
lið á öðrum fæti Matthíasar
og Benedikt slasaðist illa i
leiknum við Breiðablik —
missti margar tennur. i gær-
kvöldi léku þeir Tcitur |
Þórðarson, Björn Lárusson
og Andrés Ólafsson gegn i
Fram þó svo þeir gangi ekki
heilir til skógar.
STAÐAN
Staðan i 1. deildinni er nú
þannig:
kl. átta Víkingur og
Grótta, en 9,15 hefst leikur
Hafnarf jarðarliðanna FH
og Hauka.
Fyrri leikurinn i gærkveldi var
milli Armanns og 1R i A-riðlinum
— tveggja liða úr 1. deild, en
Ármann vann sig sem kunnugt
upp i vor. Þetta var skemmti-
legur leikur og Armenningar
tryggðu sér i upphafi gott forskot.
— komust i 5-1 — og það nægði
þeim til sigurs i leiknum 23-21. I
leikhléi var staöan 13-12 fyrir
Ármann. Nokkra þekkta leik-
menn vantaði i lið 1R.
Siðari leikurinn var milli Vals
og KR i B-riðli og var þar um
hreina einstefnu Valsliðsins aö
ræða, enda leikmenn liðsins
greinilega i góðri æfingu og sex
þeirra taka þátt i æfingum lands-
liösins. Hins vegar var KR-liðið
mjög brotið og margir beztu
leikmenn þess i keppnisför meö
meistaraflokknum i knattspyrnu i
Danmörku.
Valur náði strax miklu forskoti
i leiknum og staðan i hálfleik var
14-5 en úrslit urðu 28-11 Val i vil
eða ellefu marka munur. Það var
mál áhorfenda i gærkvöldi, að er-
— ó íslandsmótinu i
Hafnarfirði í gœrkvöldi
fitt yrði að stöðva sigurgöngu
Valsliðsins á mótinu.
Heimsmet
Annelie Erhard, tvitug austur-
þýzk stúlka, setti nýlega nýtt
heimsmet i 100 m grindahlaupi —
hljóp vegalengdina á 12.5 sek. á
móti i Potsdam. Eldra met á
vegalengdinni átti Karin Balzer,
Austur-Þýzkalandi, ein frægasta
iþróttakona heims, og var það
12.6 sek.
Pressuleikur
ó sunnudag?
Landsleikur i knattspyrnu
verður á Laugardalsvellinum 3.
júli við Dani og nú eru miklar
likur á þvi, að efnt verði til
pressuleiks á sunnudaginn á
Laugardalsvöllinn, sem yrði þá
góð æfing fyrir landsliðskandi-
data okkar fyrir Danaleikinn. Ef
af verður yrði þá leik Breiðabliks
og IBK, sem vera á á sunnudag
frestað.
Fram
Keflavik
Akrancs
Valur
KR
Vestmann.
Breiöablik
Víkingur
Fimmtarþraut
Fimmtarþraut Reykjavikur-
mótsins i frjálsum iþróttum
kvenna verður haldin i sam-
bandi viö tugþrautarlandskeppni
Islands Bretlands og Spánar sem
fram fer á Laugardalsleikvangin-
um dagana 26. og 27. júni.
Þátttökutilkynningar þurfa aö
berast til skrifstofu FRÍ Iþrótta-
miðstöðinni Laugardal eða i póst-
hólf 1099 fyrir næstkomandi
fimmtudag 22. júni.
I9r7iuckc4j
ÚRVALSVÖRUR FRÁ
MARKS & SPENCER
FÁST HJÁ 0KKUR
Fatnaóur á alla fjölskylduna.
Vörurnar, sem eru þekktar og rómaðar
um viöa veröld.
Framleiddar undir strangasta gæóaeftirliti.
er seigur
Jack Nicklaus vann sinn 13.
stórsigur i golfi, þegar hann sigr-
aöi i opna, bandariska meistara-
mótinu um heigina og hefur þá
aðeins einn maður i golfsögunni
fleiri sigra — Bobby Jones.
Nicklaus sigraði á 290 höggum,
tveimur yfir pari, enda var veður
slæmt, hávaðarok. Hann var
þremur höggum betri en Bruce
Crampton, Ástraliu, sem var meö
293 högg. Þá kom Arnold Palmer
með 294 högg og Lee Trevino meö
294.
AUSTURSTR/ETI
Jafntefli
Rúmenia og Italia gerðu jafn-
tefli i landsleik i knattspyrnu i
Búkarest á sunnudaginn 3-3. t
leikhléi stóð 2—1 fyrir ttaliu og 35
þúsund áhorfendur sáu leikinn.
Þorbergur Atlason sýndi mikið öryggi I marki Fram i gærkvöldi, og traustiö, sem aðrir varnarleikmenn bera til hans, virðist ótakmarkað. Hér gripur hann
knöbinn áður en Björn Lárusson nær að skalla. Aðrir leikmenn eru frá vinstri Teitur Þórðarson (nr.9) Hörður, Jón Alfreösson, Erlendur og Marteinn. Ljósmynd
Bjarnleifur.
Viðbragð i 400 m. skriðsundinu. Friörik Guömundsson nær beztu
starti, en Axel á 6. braut var einnig snöggur að koma sér i vatniö. Ljós-
mynd Bjarnleifur.
Stórslösuð
Monika Pflug, hin 18 ára
vestur-þýzka stúlka, sem varð
olympiskur meistari i 1000 m
skautahlaupi i Sapporo i vetur,
slasaðist mjög alvarlega i bilslysi
á sunnudag. Hún var flutt af slys-
staö i þyrlu á sjúkrahús. Miklar
likur voru taldar á þvi, að Pflug
yrði fyrir valinu að tendra
olympiska eldinn i Múnchen i
ágúst og haföi hún tekið þátt i
æfingum fyrir þá athöfn.
Þrumuskallar Fram-liðsins
Nicklaus
Friðrik tók fljótt forustu í
sundinu eins og viö var búizt, en
þeir Axel, Siguröur og Gunnar
voru framan af áþekkir — en
siðan fór Axel verulega að siga
l'ramúr Sigurði og það var óvænt.
Og hann hélt vel i viö Gunnar og
reyndist svo á siöustu 50 metrun-
um mun sterkari, en hinn þraut-
reyndi landsliösmaður og tryggði
sér örugglega annað sæti.
Friðrik sigraði á 4:39.4 min., en
Axel synti á 4:51.7 min. og það er
góður árangur hjá 16 ára pilti i
hyrjun keppnisferils sins. Gunnar
var þriðji á 4:53.9 mín. Sigurður
fjórði á 5:04.1 min. og Hafþór B.
Guömundsson, KR, fimmti á
5:04.2 inin.
Sundmótiö var ekki rismikiö,
þar sem nær alla „loppmennina”
vantaði nenta i 400 m. skrið-
sundinu.
Þó var 100 m. skriösund kvenna
afar skemmtilegt — þó svo
Hrafnhildur Guömundsdóttir
væri ckki með — og árangurinn
lofar góðu fyrir landskeppnina
við Ira. Guðrún Magnúsdottir
sigraði á 1:07.1. min. — Vilborg
Svcrrisdóttir, Sundfélagi Hafnar-
fjarðar, varð önnur á 1:07.6. min.
og baksundsdrottningin Salome
Þórisdóttir, Ægi, þriðja á 1:08.4
in in.
i 200 m. bringusundi karla var
Guðjón Guömundsson, Akranesi,
ekki með og þar sigraði FIosi
Sigurðsson, Ægi, á 2:52.0 min.
Vilhjálmur Þorgcirsson, KR,
varð annar á 2:56.4 mfn. Elias
Guðmundsson, KR, þriðji á 2:57.2
min. og Ari Gunnlaugsson,
Akrancsi, fjórði á 2:58.9. min. en
alll cru þctta ungir piltar og efni-
legir.
Mikið fjölmenni fylgdist með
keppninni og i lokin var keppt i
sundknattleik við mikla
hrifningu.
Einn leikur
og svo kem-
ur Elmar G.
—Já, Elmar Geirsson
kemur heim og leikur lands-
leikinn gegn Ilönum 3. júli,
en heldur siðan til Þýzka-
lands aftur og verður i tiu
daga — þákemurhann heim
aftur og mun leika með
Fram-liðinu, sagði Guð-
inundur Jónsson, þjálfari
Fram, i gærkvöldi.
Fram mun aðeins leika
einn leik i l.deildar keppn-
inni áður en Elmar kemur
lieini — það er gegn Breiða-
bliki á Laugardalsvellinum
(i. Jtli — en gegn tslands-
| meisturum Keflavikur 16.
júli — i Keflavik — ætti
Fram að vera búin að fá hinn
góða liösstyrk, sem Elmar
Geirsson verður áreiðan -
lega fyrir liðið.
gjörsigruðu Akurnesinga!
Fram sigraði 3-0 og öll mörkin voru skoruð með skalla
Skallinn var höfuðástæðan
fyrirþví, að Fram komst aftur
i efsta sæti i 1. deildinni í gær-
kvöldi eftir stórsigur gegn
Akurnesingum á Laugardals-
vellinum 3-0 — hefur nú hlotið
sjö stig i fjórum leikjum, en
islandsmeistarar Keflavíkur
eru i öðru sæti með sex stig.
Fram hafði yfirburði gegn
heldur rislágu liði Akurnesinga
i gærkvöldi og sigurinn var
verðskuldaður — sigur, sem
ekki var marki of mikill, og
það voru þrumuskallar Fram,
sem gerðu út um leikinn — öll
mörk liðsins voru skoruð með
skalla glæsilega.
Fram-liðið var heilsteypt i leiknum,
vörnin sterk, framverðir góðir, og
skemmtilegar fléttur i sókninni gerðu
það að verkum, að Akurnesingar áttu
mjög i vök að verjast enda á lið þeirra
við mikla erfiðleika að etja. En ef
Fram heldur þessu striki áfram
verður erfitt fyrir önnur lið að koma
þvi úr efsta sætinu — ef það þá tekst,
og þrátt fyrir að Fram missti frá sér
góða leikmenn i vor til annarra félaga,
er það sterkara en i fyrrasumar, létt-
leiki meiri og betri samleikur. Og
Fram-vörnin er sú sterkasta hér —
hefur aðeins fengið á sig eitt mark i
fjórum fyrstu leikjum mótsins.
Fyrstu minúturnar i gærkvöldi var
leikurinn daufur og greinileg tauga-
spenna setti mörk sin á leik beggja
liða. Það sást litið af viti — en svo fór
að koma spenna i leikinn. Eftir að
Teitur Þórðars. hafði misnotað fyrsta
tækifæri leiksins fyrir Akurnesinga —
þar sem hann spyrnti rétt framhjá
marki úr tækifæri, sem hann hafði
skapað sér með hraða sinum — fóru
svo Framarar að sýna klærnar.
Á 14. min. lék afar athyglisverður
leikmaður, ungur, i Framliðinu,
Snorri Hauksson, upp miðjuna og upp
að vitateig. Spyrna hans var blokk-
eruð, en knötturinn hrökk út i vita-
teigshornið til Erlends Magnússonar,
sem ekki var að tvinóna við hlutina —
gaf knöttinn strax fyrir markið, og það
kom Akurnesingum i opna skjöldu,
Ásgeir Eliasson skallaði auðveldlega
framhjá Einari Guðleifssyni og
fyrsta mark leiksins var staöreynd.
Næstumin. var oft mikil ólga innan
vitateigs Skagamanna, mest vegna
mjög misheppnaðra úthlaupa Einars
markmanns, og var reyndar furðulegt
að hann skyldi ekki fá á sig mörk i
þessum „skógarferðum" sinum. —
Hann slapp alltaf með skrekkinn. En
vissulega voru þessi gönguhlaup hans
ekki til þess fallin að styrkja taugar
annarra varnarmanna Skagans — sem
voru ekki of sterkar fyrir.
En leikurinn var skemmtilegur.
Skagamenn sýndu af og til aö þeir gátu
verið hættulegir og á 19. min. tókst
Baldri Scheving að bjarga meö harð-
fylgi, þegar Andrés Ólafsson var
kominn i opið færi við Fram-markið —
þar mátti engu muna. En meiri þungi
var i sókn Fram — Einar bjargaði vel
skalla frá Sigurbergi Sigsteinssyni, og
með góðu úthlaupi, þegar Kristinn
Jörundsson komst einn i gegn. Loka-
minútur leiksins sóttu Skagamenn
meira, án þess þó að ógna.
Siðari hálfleikur byrjaði á þvi, að
Hörður Jóhannesson komst óvænt i
„dauðafæri” við Fram-markið, en
taugarnar héldu ekki og hann spyrnti
hátt yfir markið. En hættan varð fljótt
meiri við hitt markið og tiunda
minútan var hrein martröö fyrir
aðdáendur Skagamanna. Knötturinn
dansaði um i vitateig en á einhvern
hátt tókst leikmönnunum alltaf á
siðustu stundu að bjarga — og að
lokum varöi Einar hörkuskot Kristins
út við stöng.
Og svo var það þrumuskalli nr. tvö.
Fram fékk hornspyrnu á 19. min. og
hinir ''sterku miðverðir liðsins,
Marteinn Geirsson og Sigurbergur,
fóru upp i vitateiginn. „Nokkuð djarft
hjá þeim,” sagði ég við félaga minn i
blaðamannastúkunni, en um leið kom
knötturinn hátt fyrir markið úr horn-
spyrnu Eggerts Steingrimssonar —
Marteinn stökk hærra en aðrir og
skallaði frábærlega vel, knötturinn
þaut i netið rétt undir þverslá. Sann-
kallaður þrumuskalli og með fallegri
mörkum, sem sjást.
Framarar voru klaufar og skora
ekki aftur næstu minúturnar. Fyrst
komst Kristinn i færi, en spyrnti
framhjá og svo skeði það ótrúlega.
Asgeir, þessi driffjöður Framliðsins
lék i gegnum vörnina, framhjá mark-
manni og þegar markið blasti við
honum autt og opiö, varð honum á að
spyrna knettinum i hliðarnetið.
Ótrúlegt hjá þessum snilldarleik-
manni.
Þjálfari Fram, Guðmundur Jóns-
son, lék sterkum leik, þegar hann á 25
min. setti Ómar Arason inn fyrir
Eggert til að styrkja enn hina sterku
vörn. Það átti ekki að gefa frá sér
forkcstið — og þetta reyndist sterkur
leikur, þvi Ómar bjargaöi marki, ef
. ekki mörkum, lokaminúturnar.
En áður hafði Fram skorað þriðja
markið — enn skalli. Það var bak-
vörðurinn Ágúst Guðmundsson, sem
lék upp kantinn og gaf vel fyrir. Einar
„fraus” i markinu og það var auövelt
fyrir Erlend að skalla framhjá honum
i markið. Aðeins lifnaði yfir Skaga-
mönnum lokaminúturnar — eöa
réttara sagt Eyleifi, sem litið hafði
sést i leiknum. Þá varð Ómar fyrir
hörkuskoti frá honum — og rétt á eftir
var bjargað við Frammarkið, þegar
Eyleifur fékk knöttinn inn á markteig.
Lið Fram var gott i þessum leik.
Þorbergur, Agúst, Marteinn, Sigur-
bergur, Ásgeir og Snorri léku prýði-
lega, og aðrir leikmenn gáfu þeim litið
eftir.
Skagamenn náöu sér ekki á strik —
Jón Alfreösson og Þröstur Stefánsson,
báru af, en ósköp er Skagaliðið svip-
laust án Matthiasar Hallgrimssonar.
Vörnin var hriplek, einkum hægra
megin og framvarðaleikurinn nú
slakur, nema hjá Jóni.
Dómari var Eysteinn Guðmundsson
og komst vel frá hlutverki sinu.
—hsim.
Austurriki sigraði Sviþjóð IHM I knattspyrnu með 2-01 Vlnarborg og myndin var
tekin, þegar Parits skoraði fyrra mark Austúrrikis I leiknum.
sagði Torfi Tómasson, formaður Sundsambandsins
Kornung systkini úr
Ægi, Þórunn og Axel
Alfreðsson, vöktu lang-
mesta athygli á sund-
móti i Laugardalslaug á
Leystir
úr banni
Tveir enskir atvinnuknatt-
spyrnumenn, landsliðsmaðurinn
Petcr Swan, og Broncko Layne,
sem dæmdir voru i ævilangt
keppnishann fyrir getraunasvindl
1965, þar sem þeim var borgað
fyrir að reyna að tapa leikjum,
voru leystir úr hanninu i gær.
Báðir léku með Sheff.Wcd. og
hafa liug á þvi að hcfja knatt-
spyrnu með liðinu á ný. Swan er
34 ára, Layne 32. Tony Kay, einn-
ig enskur landsliðsmaður, sem
var með þeim hjá Shcff.Wcd. en
siðan kcyptur til Everton fyrir
stórfé, var ekki lcystur úr banni á
sama tfma og hinir. Margir aörir
kiialtspyrnumenn voru viðriðnir
þetla mál.
Þjóðhátiðardaginn — og
þar eru greinilega
óvenjuleg efni á ferð-
inni. Þau urðu i öðru
sæti i þeim greinum,
sem þau tóku þátt i.
Þórunn Alfreðsdóttur, sem er
aðeins ellefu ára, keppti i 200
metra bringusundi og varö þar i
öðru sæti — á eftir Guðrúnu
Magnúsdóttur, KR, en á undan
Elinu Haraldsdóttur, Æ. Timi
Guðrúnar var 3:15.1 min. Þórunn
synti á 3:18.9. min., sem hlýtur aö
vera það langbezta, sem telpa á
hennar aldri hefur synt á hér, og
Elin var þriðja á 3:19.1. min.
— Þessi árangur hennar er
beinlinis stórkostlegur, þetta er
„sensasjón” sagði Torfi Tómas-
son, formaður Sundsambands
tslands eftir sundið.
Rétt á eftir var keppt i 400 m.
skriðsundi og þar var Axel, sem
er 16 ára gamall, og fyrsta árið,
sem hann æfir sund reglulega,
meðal keppenda. Þar var einnig
Islandsmethafinn Friðrik
Guðmundsson, KR, Gunnar
Kristjánsson, Armanni, og
Sigurður Ólafsson, Ægi, svo
nokkrir þeirra beztu séu nefndir.
ARANGURINN ER BEIN-
LÍNIS STÓRKOSTLEGUR