Vísir - 22.06.1972, Side 7
VÍSIR. Fimmtudagur 22. júni 1972.
7
Vatnshrœðslan stafar
oft af vatnsþvingun
Umsjón:
Þórunn Sigurðardóttir
- og getur orðið að óyfirstiganlegu vandamóli
Frá Norræna
félaginu
Umsóknarfrestur um þátttöku i norrænu
pianókeppninni er framlengdur til 1.
ágúst.
Norræna félagið
I
Með sumarkomunni
fyllast sundstaðir
borgarinnar af börnum
og ætlum við að fjalla
litillega um börn og
vatn i tilefni þess.
Flestum börnum finnst ákaf-
lega gaman að baða sig og
busla. Vatnshræðsla stafar oft
af einhverju smávægilegu slysi,
t.d. hefur barnið óvart lent á
kafi eða runnið i baðkarinu
heima og þannig orðið vatns-
hrætt. En það er lika til önnur
vatnshræðsla og hún er þvi
miður alltof algeng, og hún
stafar af vatnsþvingun. Börn,
sem eru að byrja að átta sig á
umhverfi sinu, eru eðlilega svo-
litið vör um sig. Séu þau ekki þvi
vanari vatninu, verður að fara
mjög gætilega, þegar fyrst er
farið með þau i laug. Jafnvel
börn sem elska að busla i bað-
karinu heima, eru oft mjög
hrædd i stórri laug, ekki sizt við
hávaðann og margmennið.
Þvingið barnið aldrei, — verði
það vatnshrætt er stórhættulegt
að reyna að venja það við vatnið
með hörku. Þess eru dæmi að
fullorðið fólk getur aldrei lært
að synda, vegna óyfirstigan-
legrar vatnshræðslu, sem það
hefur orðið fyrir i æsku. Barn,
sem grætur af vatnshræðslu á
að fara strax með upp úr
vatninu og hugga það, en ekki
að reyna að halda áfram, að
venja það við vatnið. Vatns-
hræðsluna er svo hægt að reyna
að yfirvinna smátt og smátt i
baðkarinu heima. En sé farið
nógu rólega i upphafi, er oftast
hægt að komast hjá vandræðum
og barnið verður smám saman
heimavant i laugunum. Þegar
veðrið er gott og lygnt er hægt
að fara með barn i laugar strax
nokkra mánaða, en ekki er hægt
að ráðleggja slfkt hér á landi.
Smithætta og slæm aðstaða
fyrir smábörn er hér i flestum
laugum. En eftir að barnið er 10-
12 mártaða er hægt að fara að
gera tilraun með laugarferð.
Það er auðvitað skilyrði að
barnið sé vel hraust, ekki mjög
kvefgjarnt og alls ekki með i
eyrum. Veðrið verður að vera
gott og bezt að halda sig i volgu
barnapollunum með barnið, þ.e.
ekki i stóru lauginni, og alls ekki
i heitu pottunum. Þeir eru ekki
fyrir ung börn, þar sem hitinn
getur haft slæm áhrif á hjartað.
Sömuleiðis má ekki fara með
mjög litil börn i gufubað, enda
fá þau oft köfnunartilfinningu i
gufunni. Bezt er að foreldrið
haldi á barninu i vatninu meðan
þaðeraðeins um 1 árs og sleppi
þvi alls ekki, jafnvel þótt grunnt
sé. Svo tr smátt og smátt hægt
að leyfa barninu að busla i
grunnum polli, eftir að það er
farið að ganga vel sjálft. Alls
kynsuppblásindýr eru mjög vin-
sæl, en bezt er að ósynd börn
hafialltaf með sér litinn kork á
bakinu, eða hliðstætt frauð-
plaststykki. Við sjáum hér á
myndunum hvernig bezt og
öruggast er að hafa korkinn.
Litlir kútar eða flotvesti gera
sama gagn. Eftir að barnið fer
að stækka vill það oft fara með
fél. i laugarnar, en slys á
börnum eru allt of algeng á
sundstöðum borgarinnar. Yfir-
leitt ætti þvi alls ekki að leyfa ó-
syndum börnum að fara inn á
sundstaði borgarinnar nema i
öruggri fylgd gæzlumanns sem
þarf að vera vel syndur.
Börn eru mjög misfljót að
læra að synda, en talið er að
stúlkur séu yfirleitt mun fljótari
að ná sundtökunum, en piltar.
Stafar það m.a. af þvi að þær
hafa annað vaxtarlag og
„smjúga” betur i vatninu en
piltar. Fyrstu sundtök barna
eru yfirleitt svokallað ,,hunda-
sund” en það er ekki ósvipað
þvi, sem kallast skriðsund.
Börn, sem byrja á þvi að læra
skriðsund, eru yfirleitt miklu
lengur að ná venjulegu bringu-
sundi.
Og svo að lokum, látið börn
aldrei fara út á bát, nema með
flotvesti. Slik slys eru alltof al-
geng. 1 nágrannalöndum okkar
er t.d. algengt að um 40 börn
drukkni árlega og eru piltar i
mjög miklum meirihluta.
Megninu af þessum börnum
hefði verið hægt að bjarga með
flotvesti. bs
Vorið er timi giftinganna og
hér sjáum við nokkra brúöar-
kjóla, handa þeim sem hyggja á
slikt. Brúðarkórónur hafa nú
vikiö fyrir blómaskrauti gjarn-
an iifandi, slæðum og höttum.
Yfirleitt ber miklu meira á eiu-
földum og rómantfskum
brúðarkjólum, perlur og pall-
íettur eru hverfandi. Hviti litur-
inn er ekki lengur allsráðandi,
sterkir sumarlegir litir hafa
tekiö viö, enda verður þá oftast
meira gagn að kjólnum siðar
mcir. Bómullarefni eru langvin-
sælust, allt frá bómullarblúndu
til þunnra léreftsefna.
Lengst til vinstri á myndinni
sjáum við sterk gulan lérefts-
kjól með hatt úr samskonar efni
og litla stykkið innan undir að
framan er úr hvítu strigaefni.
Tölurnar eru hvitar. Þar næst er
langerma kjóll með spæl i bakið
og hatturinn minnir á enska
heföarkonu frá miðöldum. Efnið
er einlitt þunnt bómullarkrep.
Hatturinn er skreyttur örlitlum
hvitum blómum (t.d. Brúðar-
slör). Þar fyrir ofan sjáum við
ermastuttan, fagurbláan kjól
með samlitri slæðu.
Léreftsblúndan framan á slæð-
unni og kjólnum er ekki ósvipuð
gardinublúndu, með litlum
grófum doppum. Hinirtveirkjól-
arnir eru meira upp á gamlan
máta. Sið, þunn slör með litlum
blómum, kjólarnir með háu
mitti. Takið eftir slörinu, sem er
á miðri myndinni, það er klippt i
mjóar ræmur og laufskorið að
neðan. þs
Starf forstöðumanns
Námsflokka Reykjavlkur
er laust til umsóknar. Launeru rniðuð við
launakjör skólastjóra gagnfræðastigs-
skóla.
Umsóknum skal skila til fræðsluskrifstofu
Reykjavikur fyrir 1. júli n.k.
Fræðslustjórinn i Reykjavik
Rafmagnstæknifræðingar -
Rafmagnsverkfræðingar
Óskum að ráða tæknifræðing eða verk-
fræðing með sérmenntun á sviði rafeinda
tækni til að veita forstöðu mæla- og raf-
eindadeild Álverksmiðjunnar i Straums-
vik. Ráðning nú þegar eða eftir samkomu-
lagi.
Þeim, sem eiga eldri umsóknir hjá fyrirtækinu,er bent á
að hafa samband við starfsmannastjóra.
Umsóknareyðublöð fást hjá bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar, Austurstræti, Reykjavik og bókaúð Oli-
vers Steins, Hafnarfirði.
Umsóknir óskast sendar eigi siðar en 30. júni 1972 i póst-
hólf 244, Hafnarfiröi.
ÍSLENZKA ÁLFÉLAGIÐ H.F.
STRAUMSVÍK.
Verkamenn -
Iðnaðarmenn
Vegna stækkunar Áliðjuversins i
Straumsvik, eru um 100 störf laus til um-
sóknar,umsækjendur þurfa að geta hafið
vinnu i byrjun ágúst, eða eftir samkomu-
lagi.
Við ieitum eftir mönnum i:
Kerskála
Kersmiðju
Skautsmiðju.
Steypuskála
Flutningadeild
Véla- og fartækjaverkstæði
Þeim, sem eiga eldri umsóknir hjá fyrirtækinu,er bent á
að hafa samband við starfsmannastjóra.
Umsóknareyðublöð fást hjá bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar, Austurstræti, Reykjavik og bókabúð
Olivers Steins, Hafnarfirði.
Umsóknir óskast sendar eigi síðar en 7. júlí 1972 i pósthólf
244, Hafnarfiröi.
ÍSLENZKA ÁLFÉLAGIÐ H.F.
STRAUMSVÍK