Vísir - 22.06.1972, Qupperneq 16
I»aft var handaganí'ur í öskjunni, þegar Spasski kom i gær, enda skákeinvigi aldarinnar i aðsigi.
Spasskí hlammaði sér
undir bandaríska fánann
Feiminn við Vísismenn í morgun
Það varð uppi fótur
og fit igrillinu á Sögu i
gærkveldi þegar Boris
Spasski skeiðaðiiþar inn
ásamt fylgdarliði. Þeir
settust sem sagt við
borð þar sem
bandaríski fáninn var
dreinn að húni.
Starfslið hótelsins brá við
skjótt og þreif þann bandaríska
af boröinu og siðan fengu
Rússarnireigin fána á borðið og
brostu þeir breitt þegar þeir
fengu litið hamar og sigð i stað
þess að horfa á ameriskar
stjörnur.
Visismenn fláöu ekki feitan
gölt i viðureign sinni við Bóris
Spasski i morgun, á Hótel Sögu.
Að loknu morgunkaffinu gengu
þeir hratt út úr grillinu Iivo Nei,
Evfim Geller og Nikulas
Krogius með heimsmeistarann
sjálfan i broddi fylkingar.
Svo snögg voru viðbrögð
þejrra félaga er þeir sáu til
okkar, að ekki festi myndavélin
auga á þá og varla að nokkrum
spurningum væri viðkomið.
Við gátum þó innt Spasski
eftir þvi hvort hann væri full-
komlega ánægður með gang
mála i einviginu og hvort hann
gerði sér aö góðu að tefla á
íslandi.
Boris Spasski svaraði þvi til,
að hann væri mjög ánægður
með keppnisstaðinn og allan
aðbúnað, og þegar við spurðum
hann hvort hann teldi Bobby
Fischer verðugan andstæðing i
einviginu, lyfti hann höndum, og
sagði: ,,No more questions” og
var á augabragði þotinn niöur
stigann til herbergis sins.
—SG
Spasski virtist þreyttur og þráði
mest rúmið.
SKIPIÐ HEFÐI SOKKIÐ STRAX EF
TUNDURDUFL HEFÐI SÖKKT ÞVÍ
Fimmtudagur 22. júni 1972.
FAÐIRINN
FÓRST,
BÖRNIN
SLUPPU
Dauðaslys varð á þjóðveginum
skammt frá bænum Valagcrði á
Stóruvatnsheiði, þegar tveir bilar
rákust þar á i lyrradag.
ökumaður annarrar bitreiðar-
innar, Pétur Eggert Pétursson,
viðskiptafræðingur lézt sam
stundis, en börn hans þrjú, sem
með honum voru i bilnum, sakaði
ekki. Hjón, sem voru i hinum
bilnum, voru flutt nokkuð meidd á
sjúkrahúsið á Sauðárkróki, en 4-
ra ára sonur þeirra, sem með
þeim var, slapp ómeiddur. —GP
Engin fjárbeiðni
frá handrita
nefndinni
Engin umsókn um fjárveitingu
til handa skiptancfnd hand-
ritanna hefur borizt frá prófessor
Westergaard Nielscn. Mcnnta
málaráðuneytið hér hafði sam-
band við menntamálaráðuneytið
danska þcgar eftir að Visir birti
frétt um handritamálið í gær.
Kom i Ijós að þangað hafði cngin
umsókn komið frá Nielscn.
Prófessorinn á að kalla
nefndina saman á fyrsta fundinn,
en hefur ekki sýnt neinn lit á þvi
ennþá. Afhálfu tslendinga hefur
ekkert verið gert enn sem komið
er til að reka á eftir málinu. Hins
vegar þykir mörgum þessi
dráttur á fundarboðun orðinn
óeðlilega langur, þvi ekkert er til
fyrirstöðu af okkar hálfu að hef ja
viðræður.
_________________—SG
Fundur í land
helgisnefndinni
I l.andhelgisnefndin kom saman
til fundar skömmu fyrir hádegi i
morgun. Þar skýrði l.úðvik
Jósepsson frá gangi viðræðnanna
við Breta, en Einar Agústsson
utanrikisráðherra dvelst um
þessar mundir á sjúkrahúsi og>
gat þvi ekki setið fundinn.
Algjör óvissa er rikjandi um
hvort tekst að ná samningum við
Breta áður en til útfærslunnar i 50
milur kemur þann 1. september.
Aformað er að ræða við V-Þjóð-
verja i næstu viku. — SG
Hestur
slœr mann
Það slys varð að bænum Úthlið
i Biskupstungum i fyrradag, að
hestur sló mann i andlit, varð
að flytja hann til Reykjav. á
sjúkrahús. Maðurinn liggur nú á
Landakoti, og kom i ljós að
sprunga var á höfuðkúpunni við
augað, en maðurinn cr á bata-
vegi.
bs
Mótmæla verði
á bolfiski.
Eftir fund verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavikur fyrr i
þessum mánuði var gerö eftirfar-
andiályktun: „Félagið mótmælir
harðlega verðákvöröun yfir-
nefndar verðlagsráðs á bolfiski.
Telur félagið með öllu óviðun-
andi, að verðið skuli satanda
óbreytt á meðan svo ör verð-
bólguþróun á sér stað i landinu.
Er fyrirsjáanlegt, að þessi
ákvöröun rýrir kjör sjómanna
verulega.”
segir Helgi Hollvarðsson
Ef Hamranesið hefði lent á
tundurdufli hefði aðeins verið um
minútur að ræða þar til það sökk,
cn ekki klukkustundir" sagði
llelgi llallvarðsson skipherra i
samtali við Vfsi.
Hann kom fyrir rétt i gær þegar
sjóprófum var haldið áfram
vegna Hamranessmálsins.
Framburður hans varð þess
valdandi að einum af eigendum
togarans var boðið uppá gistingu
á kostnað hins opinbera i viku.
Helgi sagði að i hverju tundur-
dufli væru 200 kg af TNT sprengi-
efni og slikt sprengimagn myndi
hafa tætt skipiö i sundur á svip-
stundu.
Sumir skipverja töldu sig hafa
fundið púðurlykt uppúr lestinni,
Þegar hátiðargestir mættu til
Grevbáckskólans I Hjo i Sviþjóð á
17. júni blöstu við þeim fánar
byltingarinnar auk hins islenzka.
Meðal 400 veizlugesta frá Is-
lendingafélögunum i Oslo,
Malmö, Gautaborg og Stokkhólmi
voru mættir til leiks nokkrir harð-
ir kommúnistar og höfðu hlaðið
borð sin pólitiskum áróðursbók
um og bæklingum, en stórir rauð-
ir fánar voru á borðunum.
Að vonum setti þetta nokkuð
ankannalegan svip á hátiöahöld-
in. Litinn hljómgrunn fengu
piltarnir þó hjá almenningi, sem
almennt ekki höfðu lagt á sig löng
um Hamranesmólið
en Helgi kvað slikt benda til þess
að sprengingin hafi orðið innan-
borðs en ekki utan. Sjóprófum
Lokatilraunir með framleiðslu
á hvalpylsum standa nú yfir og
verða sýnishorn send til tilrauna
til ymissa aðila. Reynist viðtök-
urnar góðar, verður hafin fram-
leiðsla á hvalpylsunum hjá Slát-
ferðalög til að hlusta á eða lesa
áróður af neinu tagi.
Formaöur hátiðarnefndarinnar
kom svo aö boröinu til piltanna og
hafði með sér islenzka fána i stað .
þeirra rauöu, og óskaði jafnframt
eftir að pólitikin yrði geymd um
sinn og pésunum stungið afsiðis.
Ekki vildu kommúnistarnir
fella sig við þetta, — sögðu rauða
fánann vera fána Islands. Um
siðir urðu þeir þó að pakka
varningi sinum niöur, svo og fán-
unum, en þáhöfðu þeir tafið setn-
ingu tslendingamótsins um
klukkustund. Harmaði formaður i
ræðu sinni aö reynt skyldi að
verður haldið áfram i dag hjá
bæjarfógetaembættinu i Hafnar-
firði.
urfélagi Suöurlands, og verða þær
allmiklu ódýrari eii venjulegar
pylsur. Efniö i þessum nýju hval-
pylsum er fitulaust hvalkjöt,
svinafeiti. kjötkraftur, bindiefni
og krydd. þs
hleypa samkomunm upp á þenn-
an hátt.
En enn komu piltarnir til skjal-
anna, nú með gjallarhorn, og nú
dembdu þeir yfir samkomuna
ýmsum af slagorðum sinum. Var
þessu svarað með samtaka bauli
samkomugesta, en kommúnist-
arnir hrökkluðust að lokum burtu
af samkomusvæðinu.
Daginn eftir, á sunnudag, birt
ust piltar þessir enn og i þetta
skipti dreifðu þeir fjölrituðu
plaggi. Segir þar að þeirhafi feng-
ið leyfa fyrir bókaborði löngu
fyrir 17. júni hjá einum nefndar-
manna. Segirog i plaggi þessu að
„einu sinni á ári haldi borgara-
w
Umsetning SIS nam
6,6 milljörðum króna
Nú eru starfandi 47 samvinnu-
félög innan vébanda StS og
félagsmenn eru liðlega 33 þúsund
talsins. Heildarumsetningin á sl.
ári nam 6,6 milljörðum króna og
er það 24% aukning frá árinu áð-
ur. Tekjuafgangur varö 132
milljónir án afskrifta.
Þessar upplýsingar komu fram
i ræðu Erlendar Einarssonar
framkvæmdastjóra SIS á hátiöa-
fundi sem haldinn var i Háskóla-
biói i gærkvöldi til að minnast 70
ára afmælis Sambandsins.
Afskriftir eigna eru 67 milljón-
ir og nettó tekjuafgangur nemur
24 millj. Sjóðir og höfuðstóll Sam-
bandsins hækkuðu mikið á árinu
og námu um áramót 60.9 millj.
króna. Fjárfesting nam 471
milljón króna og þar af eru skipa-
kaup 348 millj.
Aðalfundur SIS er haldinn i dag
og verður þá gerö nánari grein
fyrir rekstri félagsins og kaup-
félaganna út um land. — SG
stétt Islands minningarhátið um
tilkomu og tilveru sjálfstæðis sins
til að arðræna og kúga öreiga
stéttina á Islandi”.
Siöar segir svo: „17. júni i ár i
Hjo varð eftirminnilegur fyrir
alla þá tslendinga, er þjóðhátið-
armótið sóttu. Fyrir borgarana
og smáborgarana var það reiðar-
slag að sjá merki öreigastéttar-
innar haldið á'lofti”.
Annars fór hátiðin hiö bezta
fram og bar Kristján Ingvarsson
námsmaður i Stokkhólmi hita og
þunga dagsins, en hljóðfæraleik-
arar voru fengnir frá Islandi, þeir
Grettir Bjönrsson og Arnþór
Jónsson. — JBP
„ÞETTA ER ISLENZKI FANINN"
/
— sögðu marx-leninistar sem vildu hleypa upp 17. iúní-samkomu 400 Islendinga í Svíþjóð
HVALPYLSUR A
MARKAÐINN?