Vísir - 05.07.1972, Síða 2

Vísir - 05.07.1972, Síða 2
2 f ■ s- ■ :: ■ ™ ■■ Saknið þér sjónvarpsins? ■■ Hrafnhildur Ilrafnkelsdóttir,:: nemandi: Nei, alveg örugglega :: ekki. Mér finnst frekar litið varið 55 i það. ■ ■ ■■ ■■ ■■ ■■ ■■ 'Sigurður IOgilsson.nemandi: Já. •; Mér finnst alltaf gaman að horfa •; á sjónvarpið og leiðinlegt þegar •■ það fer i fri. ■■ Áslhildur Klygenring, nemandi: :5 Nei. Ég horl'i aldrei á það. 55 ■■ l*óra Herg.verzlunarst.: Ne-hei. •■ Horfi bara á Kanann. sm l*orvaldur llagnarsson, fulltrúi: ■; Nei það geri ég ekki. Mér finnst ■; ósköp kjánalegt þetta sjónvarp. ;; Það vantar allan neista i það, allt ;; samræmi. ;; Július Agnarsson, stunda- kennari: Nei, ekki get ég sagt > það. Horfi nefnilega bara á Kan- ;; ann. 5: Stórskotahríð að austan Rússneski björninn klórar svo um munar Það var ekki margt um manninn í kaféteriunni á Loftleiðahótelinu um sex leytið í gærmorgun, ekkert um að vera, áhuga og at- vinnumenn í Fischerleikn- um komnir suður á Kefla- víkurflugvöll bíðandi í of- væni eftir komu kappans. Staðreyndir: Fischer var á leið yfir hafið og þotan átti að lenda um sjöleytið. Á leið i bæinn i rauðum taxa Rétt rúmlega sex ganga þeir i salinn Cramer & Co frá bandaríska Skáksam- bandinu. Þeir skima í kringum sig, eru laumu- pokalegir og þegar þeir fá sér sæti þá tala þeir í hálf- um hljóðum. Ég heyri ávæning ,,Hann verður að fá góðan morgunverð'' og svo upptalning og ég nem orðið skyr. Þeir flýta sér, drekka bara kaffi og svo eru þeir horfnir jafn dular- fullir og þeir komu. Liðs- menn Chesters Fox eru komnir á vettvang og eru fúlir yfir að þurfa að hanga hér og bíða. Klukkan rúmlega sjö eða kannske tuttugu mínútur yf ir sjö fer brúnin að hækka á mönnum. Flugvél lent á Kef lavíkurf lugvel li og kappinn á leið í bæinn í rauðum Mercedes Benzfrá leigubílastöð í Keflavík. Kemur hann hingað eða fer hann beint í DAS-húsið? Upp úr hálfátta er saman- kominn dálitill hópur ljósmynd- ara og blaöamanna fyrir utan aöaldyr hótelsins og skimar eftir rauöa taxanum. Loks rúmlega hálf átta rennur Ijós Benz á ofsahraöa i Loft- leiðahlaöiö og út úr honum stekkur brezkur blaöamaður og er honum svo mikið niöri fyrir aö hann má varla mæla: „Lögreglan hefur lokað leiðinni aö villunni" Ekiö langt fyrir ofan hámarks- hraöa inn i Vogarland og sjá: for- ystumenn Skáksambands tslands, Cramer og Co (hann hefur læðzt með skyrið og hitt allt saman hingaö inn eftir) Guðmundur Hermannsson með liöskraft og svo einhverjir ný- komnir útlendingar, þar á meðal prestvigöur maður, og þykist ég þekkja þar skákkappann séra Lombardi, sem kom hér um árið til aö keppa á Stúdentaskák- mótinu. Hvernig er hann klæddur F’riðrik Ólafsson er mæðulegur og segir. að það hafi verið ljóti at- Séra Lombardy skcggræöir við dr. Euwe gangurinn suðrá Velli: ,,Þetta voru eins og grimmir úlfar" segir nann og á við blaðamennina. Fleiri bflar og fólk. Amerisk fréttakona með blitt bros vikur sér að mér og spyr: „Geturðu fengið að vita, hvernig hann var klæddur?” Framkvæmdarstjóri isl. Skáksambandsins verður fyrir svörum og segir hann hafa verið - i molskinnsjakka og rauðum flauelsbuxum. Sú ameriska veröur afskaplega fegin, þegar hún heyrir það. Fölt andlit i svefnherbergisgluggan- um, syfjað og toginleitt, hvimandi augu og horfið á augabragði. Sá bandariski Cramer á harða- hlaupum, æpandi: „Lögreglan verður að fjariægja fólkið, hann er útkeyrður, gjörsamlega upp- gefinn, hann þolir þetta ekki.” Guðmundur Hermannsson bara brosir og það er enginn asi á hon- um. Leikurinn berst aö Hótel Esju Enn einu sinni i anddyri Loft- leiðahótelsins og þar Dr. Euwe með hóp i kring um sig. Þegar ég spyr hann, hvenær hann fari af landi brott, brosir hann breitt og segir „Ó, ó strax i fyrramálið og ég hlakka til”. Og ég spyr aftur: „Nú á Spasski næsta leik, hvað ef hann neitar að keppa? Það kemur á forsetann, hann svarar ekki strax! „No, no it is out of the ■question”. Fund á að halda klukkan ellefu og draga um lit og doktorinn veit ekki hvar fundurinn verður haldinn, hann er vandræöalegur og segir að LotharSchmid ráði staðnum. Það er Hótel Esja, leikurinn berst óðum þangað. Það er létt yfir mönnum og brandarar þjóta um loftið i anddyri Hótel Esju. Fundurinn á að halda á annarri hæð klukkan 11.45 og akkúrat á þeirri minútu koma Spasski og FréUamenn með öndina i aðstoðarmenn hans inn úr rigningunni. Þeir eru þungir á svipinn og fara hratt. Þröng i fundarsalnum á annarri hæð, skær ljós, sjón- varpsmenn i skotstöðum, ljós- myndarar, með vélar á lofti, mikrafónar á borðum en engin spenna, allir rólegir og öruggir um að ekkert óvænt geti borið að. Dómarar, heimsmeistarinn og hans menn, séra Lombardi, lögfræðingur áskorandans og fulltrúar isl. skáksambandsins þinga i næsta sal. Mr. Collins í hjóla- stólnum t ganginum fyrir framan fundarsalinn situr litill, veiklu- legur maður i hjólastól og konan hans gætir hans. Andlit hans ljómar, hann er eins og barn, sem er að biða eftir að kveikt verði á jólakertunum. Þetta er Mr. Collins frá Brooklyn, einskonar skákuppeldisfaðir Fischers. Á blaðamannafundinum á sunnu- daginn þegar allt var upp i loft var hann dapur og niðurdreginn og honum lá við gráti, nú kjaftar á honum hver tuska, draumur hans er i þann veginn að rætast. Skyndilega skothrið: Heims- meistarinn og menn hans eins og fallbyssukúlur fram ganginn og horfnir á augabragði, enginn nær tali af þeim. Skelfing og angist hrislast um loftið og öll andlit eitt spurningarmerki. Forseti al- heimsskáksambandsins og yfir- dómarinn tveir einir inni i þriðja salnum. Bið. „Heimsmeistarinn neitar að draga um lit og mótmælir” segir doktorinn i salnum þar sem pressan biður. Litli maðurinn i hjólastólnum eins og hnigur saman og i augum hans er ekkert nema sorg og vonbrigði. Konan hans reynir að hressa hann upp og hvislar einhverju að honum, en allt kemur fyrir ekki. Intermezzo 1 Grillinu á Hótel Sögu eftir hádegið. Miðborðið við vestur- gluggan stendur autt, lagt á borð fyrir þrjá og rauði fáninn með hamrinum og sigðinni. Ég fæ sæti við næsta borð og klukkan er um hálf tvö. Rétt hjá mér sitja tveir brezkir blaðamenn og eru að berja saman blaðagrein, þeir eru vonsviknir. Þrenn dönsk hjón ganga i salinn og þjónn býður þeim sæti þar sem sovét fáninn stendur. Þetta eru dæmigerðir Danir og eru lengi að velja sér eitthvaö i svanginn og vinseðillinn afgreiddur eftir einar tvær eða þrjár umferðir og jafn margar atkvæðagreiðslur og loks verður ofan á Atinorirauðvin og allir virðast sáttir. Allt i einu rekur ein konan upp skerandi óp hún hefur rekið augun i rauða fánann og henni er svo mikið um hálsinum. það að hún þorir ekki að snerta á honum, segir „Hvar er Danne- brog”. Maðurinn hennar tekur i sig kjark, lyftir Rússafánanum og kallar á þjóninn, sem kemur að vörmu spori og bjargar vand- ræðum. Rauða vinið i glösunum og aftur hlegið og talað hátt á skrollandi dönsku. Kventöfrum beitt Klukkan er nákvæmlega tiu minútur yfir tvö þegar heims- meistarinn i skák birtist i Grillinu og tveir aðstoðar menn með hon- um. Þeir sjá að borðið þeirra er upptekið og tveir þjónar visa þeim leiðina inn að hringborðinu innst austan megin. Brezku blaðamennirnirókyrrastog hætta að skrifa blaðagreinina og þá kemur að borðinu til þeirra eins og engill af himni sendur ung kona brosleit i rauðbleikum kjól. Þeir spyrja hana að bragði hvort hún vilji ekki beita öllu þvi sem hún eigi til af kvenlegum töfrum Collins, skákpabbi Fischers er ýmist hinn hressasti eða hinn daprasti meðan hin taugasiitandi barátta fer fram. og leggja eina spurningu fyrir heimsmeistarann. Sú á rauða kjólnum lætur ekki segja sér tvisvar, liður að hornborðinu, brosir, spyr. Heimsmeistarinn brosir lika og svarar. Hún aftur til kolleganna brezku segjandi ofurlitið skjálfrödduð: „Hann ætlar ekki að fara en honum fannst útilokað að byrja að tefla i dag”. Fréttin hafði borizt á undan mér út á Loftleiðahótelið en þó sá ég undir eins, að einn af viðstöddum hafði ekki heyrt hana og ég stóðst ekki freistinguna að hvisla að Chester Fox þvi sem brezka blaðakonan hafði eftir heimsmeistaranum. Gisli Gests- son kvikmyndatökumaður hafði sagt á blaðamannafundinum á Hótel Esju að þeir hann og Fox hafi sungið i bilnum á leiðinni i bæinn og að Fox hafi fengið sér hænublund i gleði sinni og sigur- vimu. Sá hefur aldeilis vaknað upp við vondan draum. En i and- dyrinu á Hótel Loftleiðum sagði hann i sifellu: „Ekki ásaka ég Boris Spasski og hefði ekki gert þó hann hefði stungið af beint til Rússiá. Hann er sportmaður, ekta sportmaður, en auðvitað varð hann að klóra þeim. Ég ásaka hann ekki og skal aldrei gera.” Mér finnst Chester Fox skemmtileg týpa, opinn og ein- lægur og eiginlega alls ólikur hin- um harðsviraða ameriska bissnessmanni eins og ég hefði imyndað mér hann. Indjána- leikurinn heldur áfram: Blaða- mannafundir, yfirlýsingar og óvissan rikir enn.. 5

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.