Vísir - 05.07.1972, Side 10

Vísir - 05.07.1972, Side 10
10 Visir. Miðvikudagur 5. júli 1972. Visir. Miövikudagur 5. júli 1972. 11 Þeir fá þingmann sem þjálfara á Króknum! Ellert Schram norður til Sauðárkróks í gœr til að þjálfa knattspyrnumenn þar Ellert Schram Þeir fá þjálfara ekki af verra taginu strákarnir á Sauöárkróki. Ellert Schram, fyrrum landsliðs- fyrirliði , um margra ára skeið lagði i gærdag af stað norður til þeirra, og þar mun hann starfa í sumar sem þjálfari yngri flokk- anna. „Það hefur ekki verið gengið neitt frá því l»aö fór hcldur að fara um þá i (■arðinum i gærkviildi þcgar llrönn lök að saxa á 1:1 forskot á tvcim siðuslu minútum leiksins við Viði. heimaliðið. i 2 deildinni. deildinni. Ilrönn skoraði þessar tvær minúlur tvö mörk, og lokastaðan varð 4:2, ekki sá stóri sigur sem við heimaliðinu blasti. En þetta nægir Viði þó til forystu eftir fyrri hluta keppninnar, liðið er með 9 hvort ég verð með 3. deildarliðið hjá Tinda- stóli", sagði Ellert, þegar við náðum tali af honum skömmu fyrir brottför hans og fjölskyldu hans. ,,Það var skemmtilegt að fá þetta tækifæri til að komast út á land”, sagði Ellert, sem áreiðan- lega verður fyrsti alþingis maðurinn til að taka að sér aö leiðbeina ungu fólki viö iþrótta- stig eftir 5 leiki, Fylkir með 8 eftir 6 leiki og Stjarnan með 7 stig eitir 6 leiki. Ólafur Tryggvason skoraði þrennu fyrir Viði i gærkvöldi, en Guðm. Knútsson eitt, en beztu menn voru þeir Róbert Magnús- son og Friðrik Karlsson. Fyrir Hrönn skoruðu Guðmundur Karlsson 2 og Sigurður Jakobsson eitt, en þeirra bezti maður var Pálmi Björgvinsson i markinu. —emm— iðkun i sumarfrii sinu. „Þarna skapast tilbreyting og aöstaða til aö sinna ýmsu sem ella hefði kannski setið á hakanum hér syðra”, sagöi Ellert, sem mun verða með þeim á Sauðárkróki fram á haustið. „Ég hlakka sannarlega til að kynnast unga fólkinu á Sauöárkróki og vænti hins bezta af samstarfinu við iþróttafólkiö þar. —Kemur til greina að þú leikir með 3. deildarliði Tindastóls, Ellert? „Ekki held ég það. Satt að segja býst ég i fyrsta lagi ekki við að komast i liöið, er ekki i neinni æfingu, — og svo er allt óvist um félagsskipti hvort þau eru yfir- leitt möguleg fyrir mig. —JBP— Sá bezti í tugþraut Bannister varð sigurvegari á bandariska úrtökumótinu i tug- þraut fyrir Munchen-leikana, hlaut 8120 stig, sem er bezti heimsárangurinn á þessu ári. Bennett varð annar með 8076 stig og Jenner þriðji með 7846 stig. Bannister náði beztum árangri i spjótkasi i keppninni, kastaði 61.24 m, Bennett stökk 5.07 metra i stangarstökki og keppni milli þriggja efstu i 1500 m hlaupinu var mjög hörð. Þar sigraði Jenn- er á 4:16.9 min. Bannister hljóp á 4:25.5 min. og Bennett á sama tima og voru tugþrautarmennirn- ir alveg útkeyrðir eftir þessa sið- ustu grein og höfðu lagt sig mjög fram til að tryggja sér úrslitasæti i Miinchen. Fór um þú í Garðinum! Gamli bakvörðurinn í KR gerðist morkakóngur! Björn Árnason með 10 mörk í þremur leikjum fyrir Þrótt í Neskaupstað Þeir eru ekki margir sem hafa skoraö mörg mörk i deildakeppninni í knatt- spyrnu enn sem komið er, — og líklega er KR-bak- vöröurinn og unglinga- landsliðsmaðurinn Björn Arnason, sem nú leikur fyr- ir Þrótt á Neskaupstað, markakóngur deildanna enn sem komið er a.m.k. Það var ekki aðeins að Björn skipti um félag, hann skipti lika um stöðu, þvi nú leikur hann hlutverk miöbroddsins i fram- linu Þróttaranna, og aldeilis með góöum árangri. Um siðustu helgi skoraði Björn fimm af átta mörkum Þróttar i keppni við knattspyrnulið Héraðsbúanna á vellinum i Nes- kaupstað. Þarmeð hafði Björn skorað alls 10 mörk i þrem leikj- um Þróttar i 3. deildarkeppninni á Austurlandi. í fjórum leikjum i sumar með liðinu hefur Björn hinsvegar skorað 16 mörk. Þrótt- ur virðist ekki eiga neina verðuga mótherja eystra, og greinilegt var á íeik liðsins,, að liðið er mun jafnsterkara en það var i leik sin- um i 2. deild i fyrra. „Það er virkilega spennandi að reyna nýja stööu”, sagði Björn við blaðamann Visis að leik lokn- um. Hann kvað liðsmenn ákveðna i að ná aftur upp i 2. deildina, og allt útlit er a.m.k. fyrir að þeir komist i úrslitin i haust. Talað hefur verið um Þróttarliðiö sem einhverskonar „útlendingaher- deild”. Fréttamaður innti Björn eftir þessu. „Já, þetta hefur farið talsvert i taugarnar á okkur”, sagði hann. „Sjálfur er ég búinn að vera hér talsvert, og Einar bróðir minn enn lengur og starfar hér. Nú, Birgir Einarsson kom hingað frá Keflavik, en er héðan, — var meira aö segja formaður Þróttar áður fyrr.',,Eru þá tveir leikmenn ótaldir, tveir ungir leikmenn úr Reykjavik, markvörðurinn Guð- mundur Stefánsson, úr Viking sem hélt rakleiðis til Neskaup- staðar eftir stúdentsför sina til Júgóslaviu og Jón Geirsson úr Val. Það er ekki einungis að Þróttur sé algjör ofjarl annarra Aust- fjarðaliða i meistaraflokki, i fyrradag, unnu 3. flokksmenn Stöðfirðinga 9:0, 4. flokkur vann Leikni frá Fáskrúðsfirði 4:0 og þeiryngstu i 5. flokki unnu Austra 4:1. „Við setjum markið hátt”, sagði F'riðjón Þorleifsson, formaður Þróttar, „viljum vitan- lega i 2. deildina á ný, og höldum áfram að byggja upp yngri flokk- ana”. Friðjón kvaðst mjög ánægður með það framtak KSl að koma i Austfjarðaheimsóknina, og kvað hana hafa örvaö mjög allt knattspyrnulifið. „Nú þurfum við bara að fá gesti úr 1. og 2. deild, slikar heimsóknir eru nauðsyn- legar, en erfitt er að fá liðin”, sagði Friðjón. Sigrar Faxaflói Celtic í kvöld á Laugardalsvelli? Sigrar Faxaflóaúrvalir Celtic kvöld? — Það er spurningin meðal knattspyrnuunnenda, en þessi unglingalið mætast á l.augardalsvellinum í kvöld á afinælismóti KSi. Leikurinn hefst kl. átta, en bæði þessi lið léku á mótinu f Skotlandi i fyrrasumar, þegar Faxaflóa- úrvalið vann frægan sigur. Annar leikur verður einnig á Laugardalsvellinuin i kvöid á afmælismótinu. Þar mætast úr- valslið landsbyggðarinnar og Reykjavik 1956 — það er úrvals- lið reykviskra pilta 16 ára aö aldri, sem er yngsta lið keppn- innar. Guðjón Guðmundsson — fyrstu Ólympiuleikarnir Guðmundur Gislason — fjórðu Olympiuleikarnir. —Ég var farinn aö efast um eftir landskeppnina i sundinu við ira að ég mundi ná olym- píulágmarkinu. Mér fannst ég vera algjörlega búinn þá eftir að hafa synt 200m fjórsundið og átti þá eftir tvær greinar, sagði Guðmundur Gislason i gærkvöldi eftir að hann hafði sett nýtt islandsmet i 200 m fjórsundi — synt á hinum ágæta tima 2:19.0 mín., sem jafnframt erolympíulágmark í greininni, sem krafizt er fyrir Múnchen. Eldra metGuðmundar i sundinu var 2:19.6 min. og i keppni við trana á mánudagskvöld synti hann þessa vegalengd á 2:20.0 min. —Ég fann eftir það sund að þetta var að koma — timinn að lagast og ég var bjartsýnn nú fyrir sundið. Þetta var rétt, sem var sagt i blöðunum eftir landskeppnina, að islenzka sundfólkið væri enn ekki komið i hámarksæfingu, landskeppnin var aðeins of fljótt. Þetta var 150. tslandsmetið, sem þú setur i sundi i einstaklingsgreinum? —Já, það er rétt og það hefur tekið mig 15 ár að setja þessi 150 tslands- met. Ég setti fyrsta tslandsmetið i febrúar 1957 — þá sextán ára. Þetta er sem sagt tiu met á ári að jafnaði? —Já, að jafnaði, en þetta hefur gengið upp og ofan eftir árum. Mest hef ég sett sautján tslandsmet á einu og sama árinu. Á sundmótinu i gærkvöldi i Laugar- dalslauginni. þar sem írska sund- fólkið keppti einnig, en var langt frá sinu bezta eins og á mánudagskvöld, setti hinn frábæri bringusundsmaður, Guðjón Guðmundsson frá Akranesi, einnig nýtt tslandsmet i 100 m bringu- sundi og synti undir Olympiulág- markinu. Timi hans var 1:10.9., en éldra metið 1:11.1 min. og þetta nýja met Guðjóns er með þvi albezta, sem islenzkur sundmaöur hefur náð. Olympiulág- markið er 1.11.0 min. —Já,þetta er að koma, sagði Guðjón eftir metsundið, ég held aö við eigum sumir hverjir i sundinu oft eftir aö ná lágmarksafrekunum fyrir Miinchen-- leikana. Finnur Garöarsson synti 100 m. skriðsund á 57.0 sek. og sagði eftir sundið. —Nei, þetta er ekki nógu gott hjá méí — en þó i áttina. Ég tapaði miklu úr viö æfingar i vor vegna þess, að ég var i stúdéntsprófi — en vonandi fer þetta nú að koma. Af öðrum árangri á mótinu i gær má nefna, að Sigurður Ólafsson synti 100 m. skriðsund á 57.8 sek. og 200 m. skriðsund á 2:07.5 min. Þá synti Elias Guðmundsson, ungur piltur, bróðir Friðriks Guðmundssonar, 100 m. bringusund á 1:17.0 min. Salóme Þórisdóttir, Ægi, tók þátt i tveimur greinum i gærkvöldi. Hún synti 200m baksund á 2:43.1 minútu og bætti tima sinn um eina sekúndu frá landskeppninni viö Ira — og má af þvi greina, sem árangri Guðjóns og Guð- mundar, að sundfólkið tekur framför- um með degi hverjum. Þá synti Salóme einnig 100 metra baksund og fékk þar timann 1:14.8 min. — hsim. Bjarni f jórði í 200 m. Bjarni Stefánsson, KR, varð fjórði í 200 m hlaupinu á alþjóðamótinu á Bislet- leikvanginum í Osló í gær- kvöldi — hljóp á 21.8 sek. Ágætur árangur náðist á mótinu. Einkum vakti 800 m hlaupið athygli, en þar sigraði Andrzei Upczyk á 1:46.3 mín., sem er pólskt met. Nýja hlaupastjarnan norska Audun Garshol sigraði i 200 m hlaupinu á 21.4 sek. Richard Simonsen varð annar á 21.5 sek. Terje Hellesylt þriðji á 21.7 sek. Bjarni fjórði á 21.8 sek. Tore Bjel- land fimmti á 21.9 sek. og Nils Petter Guldseth sjötti á 22.0 sek., svo þetta hefur verið geysihörö keppni. 1 400 m grindahlaupi sigraði Spánverjinn Manuel Soriano á 50.7 sek. Thorsten Thorstensson, Sviþjóð, varð annar á 51.6 sek. Kaj Anderseen, Danmörku, varö sigurvegari i kringlukastinu með 57.86m, en Tormod Lislerud, sem keppir hér á landi i næstu viku, varð annar með 57.04 m. Heimsmejthafinn Emile Putteman, Belgia, sigraði i 3000 m hlaupi á 7:53.2 min., en Tom B. Hansen, Danmörku, varð annar á 8:02.0 min. Fleming Johansen, Danmörku, sem nýlega varð fyrsti Dani til að stökkva yfir fimm metra i stangarstökki, sigr- aði i stangarstökkskeppninni i Osló, stökk 4.95, en annar varö Salao, Spáni með 4.75 m. Georgi Tichov, Búlgariu, sigraöi i 5000 m hlaupinu á ágæt- um tima 13:39.8 min. Cidpetros, Spáni, varö annar og Jörn Lauen- borg, Danmörku, þriðji og setti nýtt, danskt met, hljóp á 13:42.6 min. Gert Kærlin Danmörku, varð sjötti á 13:45.0 min., og þessi árangur Dana á mótinu i Osló er gott dæmi um hina gifurlegu framför, sem orðið hefur hjá þeim að undanförnu i frjálsiþrótt- um. 1 800 m hlaupinu varð John Davies, Bretlandi, annar á 1:46.9 min. Carlos Gayoso, Spáni, þriöji á 1:47.0 min. Peter Fulleg, Astra- liu, fjórði á 1:48.2 min., en Knud Kvalheim, Noregi, varð aðeins sjöundi á 1:50.1 min. TVEIR SYNTU TIL MONCHEN — Tvö íslandsmet í sundi í gœr og Guðmundur Gíslason setti sitt 150. met á 15 árum! skipamálmng getur varnað því að stálog sjór mætist Sérfræðingar telja að viðhaldi íslenzkra fiski- skipa sé ábótavant, og þess vegna gangi þau fyrr úr sér en nauðsynlegt sé. Viðhald kostar peninga, en vanræksla á viðhaldi er þó dýrari. Málning er einn þýðingarmesti liðurinn í við- haldi skipa. Málningin ver skipin ryði, fúa og tæringu. HEMPELS skipamálning er ein mest selda skipamálningin á heimsmarkaðnum. Það er engin til- viljun. Það er einfaldlega vegna þess hve góð hún er. Tugir vísindamanna í mörgum löndum vinna að stöð- ugum endurbótum á henni, og þeir hafa búið til marg- ar tegundir, sem henta við misjafnar aðstæður, þar á meðal við okkar aðstæður hér á íslandi. Látið mála skip yðar með HEMPELS skipamálningu og réttu teg- undinni af HEMPELS og þér munuð komast að raun um að þér hafið gert rétt. Framleióandi á íslandi Slippfélagið í Reykjavík hf MálningarverksmiÓjan Dugguvogi—Símar 33433 og 33414

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.