Vísir - 22.07.1972, Síða 3
Vlsir. Laugardagur 22. jdli 1972
3
ÉG ER BARA
MINIMILLJÓNARI
— segir Bandaríkjamaðurinn Isador Turover sem ferðast um öll heimsins
höf til að fylgjast með skókmótum
Isador S. Turover heitir hann,
litill og hnellinn kali, sem kominn
er hingaö til aö fylgjast meö ein-
viginu. Hann er raunar frægur
um heim allan vegna áhuga á
skák og er vanur aö fylgjast meö
nær öllum meiri háttar skákmót-
um. Blm. Visis hitti hann aö máli
i gær. Hann er kátur og skemmti-
legur viöræöu og slær á ýmsa
strengi og svo áhugasamur um
tafl, aö hann vill eiginlega ekkí
tala um annað.
„Sástu 3. skákina maöur!?
Spasski átti vinning i stööunni, ég
er viss um þaö. Já, ég er viss um
þaö. En úr þvl ab ekki einu sinni
hönum tókst aö vinna Fischer i
svona stööu, hver getur það þá?”
Turover er mikið niðri fyrir og
hælir keppendum á hvert reipi
fyrir góöa og spennandi skák.
„En Fischer þarf að vanda sig
meira gegn Spasski heldur en á
móti Petrosjan. Hann þarf aö
breyta um stil. Spasski er örugg-
lega sterkasti andstæöingur, sem
hann hefur, fengið.” „Ég hef
fylgzt meö skákinni meira en
margur annar,” segir Turover.
„Ég sá siöasta heimsmeistara-
einvigi milli Spasskis og Petrosj-
an IMoskvu. Þeir eru báðir góöir
vinir minir. Allir góöir skákmenn
eru vinir minir. Það þekkja mig
lika allir. Þetta er mitt hobbi.
Ferðastimániiðtil aö fylgjast meö
skák. Er heima I Washington þess
á milli.” Tefliö þér sjálfur Mr.
Turover? „O já. Ég er búinn aö
tefla i 50 ár. Hef tekiö þátt I
ógrynni af mótum. Ég hefmeiraað
segja teflt viö Alhekine og Capa-
blanca. A ég aö segja þér eitt. Ég
átti einu sinni unnið tafl á móti
Capa, en ég tapaði nú skákinni
samt. Það var ágætt, annars heföi
veriö ætlast til einhvers af mér I
framtiöinni! Þetta var á þeim ár-
um sem hann var heimsmeistari,
liklega um 1925.” Tefliö þér enn-
þá. „Ekki I mótum nei. En mér
finnst alltaf gaman aö taka skák
viö og viö. Maöur slappar ræki-
lega af viö þaö. Mér finnst lika
gaman aö rannsaka skákirnar I
þessu einvigi og setja mig i spor
Sapsskls og Fischers, finna góöan
leik fyrir annan hvorn og Imynda
mér svo, aö ég hafi komiö öörum
hvorum ibobba!” Og Isador Tur-
over skellihlær, en svo segir hann
og þaö færist værö yfir andlit
hans. „Ég skal segja þér það, aö
það er eins og uppskera, eins og
maður sé að taka upp úr
garðinum að vinna skák. Maður
finnur einhverja innri ró, þetta er
eíns og uppskeruhátiö.”
Hvernig finnst yöur svo aö vera
á tslandi? „Það er ágætt. Ég hef
ekki undan neinu aö kvarta. Það
er verst hvaö viö skákgestirnir
erum dreiföir. Viö erum út um
hvippinn og hvappinn. Ég reyndi
aö fá hér hótelherbergi minnsta
kosti 6-8 vikum áöur en einvigið
byrjaði. Það var allt uppfullt.
Annars liöur mér vel þar sem ég
er á Laugarásveginum.”
Turover er sagöur vera mjög
auðugur maður, og viötækur
timbursali i Washington.
„Hvernig fer maöur aö þvi aö
veröa ríkur. „Ég er ekki einn af
þeim stóru,” segir Turover, „ég
er bara mini-milljóneri, aöeins
þægilegur gamall kall, en tii þess
að veröa rikur þá skaltu fyrst og
fremst veröa góöur skákmaöur
og i ööru lagi: Eignastu fast land
undir fótum sem enginn getur
troöiö á nema þú.”
GF
^,Ég va^.einu sinni koipipn með unniö tafl á C'apablanca, en tapaöi sem
betur fer, það er hætt viö þvi aö þaö heföi veriö ætlazt til einhvers af
mér ef ég hefði unniö heimsmeistara!”, segir Isador Turover.
Hvað segja Rússarnir?
„Viðhorf í kauphöll
skóklistarinnar"
— Þú átt leikinn Bobby
Ameriskir hafa veriö ódeigir I aö álasa Fischer fyrir óiþróttamanns-
lega hegöun I einvíginu.
„A Hótel Loftleiöum hefur
myndazt eins konar „kauphöll”,
þar sem fréttamenn skiptast á
upplýsingum,” segir frétta-
maöur sovézku fréttta-
stofunnar APN. „Nefndin, sem
fjatlar um kvartanir, málsskot
og mótmæli, er svefnlaus og
hás. A fundum hennar gerir
Cramer ýmist aö gamni sinu
(„Eigum viö ekki aö skipta á
stórmeisturum?), eöa bölsótast
allt hvaö af tekur.
Fré11 a maöurinn, A.
Srébnitski.segir að menn hafi i
sivaxandi mæli notað oröatil-
tækiö islenzka „skjótt breytist
veöur i lofti” um atburðina i
skákmálum. Ahorfendur geti
ekki reitt sig á, aö setiö veröi
báöum megin taflborösins.
Fischer hafi „gefiö áhorf-
endum langt nef”.
Haft er eftir Júgóslav-
anum Kazic, sem er i
stjórn alþjóöasambandsins aö
kapparnir muni tefla. Allan
Horowitz, fréttamaöur New
York Times, segir, aö ógæfa
Fischers sé, að hann sé einstæð-
ingur og ekki fulltrúi neins
nema sjálfs sin hvorki i skák
eða lífinu sjálfu”.
Loks ræðir sovézki frétta-
maðurinn. um vinsældir
Spasskis á Islandi.
—HH.
LENNON Á NÝRRI LP-PLÖTU:
BURT FRÁ ÍRLANDI,
ENSKU SVÍN
Staöa konunnar og þjóöfélagslegarádeilur eru efni plötu hans aö þessu
sinni.
„Some time in New York City,”
er heiti nýrrar Apple-LP plötu
John Lennons. Þar gagnrýnir
hann hart ástandiö á trlandi I
dag, og I einu laga sinna segir
hann hreint og beint. „Burt úr tr-
landi, ensku svin” Asamt Yoko
sinni Ono taka þau svo fyrir á
plötu sinni stööu konunnar I þjóö-
félaginu I dag, Angelu Davis,
John Sinclair, fangelsisóeiröir i
Attica og fleiri staöreyndir sem
átt hafa og ciga sér staö i
heiminum i dag.
Undirleik á plötunni annast
Plastic Ono Band, Elephant’s
Memory og Invisible Strings, og
alls staðar kemur fram hin mikla
beiskja gagnvart ástandi
heimsins.
Eitt af fyrstu lögunum er
„Woman is the nigger of the
world”. „Við rifum niður sjálf-
stæöistilfinningar hennar meöan
hún er enn ung”, syngur John.
Þarna bætir hann án efa nokkrum
rauösokkunum i aðdáendahóp
sinn.
„Sisters, oh sisters,” heitir
annaö lag plötunnar, sem Yoko
Ono syngur og tekst þar mjög vel
upp segja dómbærir. „Við
verðum að sameinast til þess aö
eignast betri heim, ef viö eigum
lika að geta lifaö," syngur hún af
mikilli innlifun.
Þriðja lagið: „Attica State,
fjallar um óeirðir fangelsins.
„Arangurinn var 43 vesalings
ekkjur” syngja John og Yoko
saman. „Veitið föngunum heldur
örlitla ástúð og umhyggju.”
„Born in a prison,” nefnist
annað lag sem Yoko syngur. Þar
fjallar textinn um þaö að
konurnar lifi alla sina æfi i
nokkurs konar fangelsi, stöðugt
utan við allt.
New York City: Söngur
hjónanna um að fá leyfi til þess að
dvelja i New York borg. „Hér
höfum viö haldið hljómleika, hér
hefur enginn gert okkur neitt, hér
viljum við vera.”
„Sunday, Bloody Sunday,”
nefnist annað lag þar sem John
Lennon gagnrýnir Bretana
skörpngslega: „Burt frá Irlandi,
ensku svin og látiö trum landiö
sitt eftir.” Sennilega verður lag
þetta bannfært af BBC segja
Bretar.
Annaö lag um Irland, „The luck
of the Irish”. Þar er sungið um Ir-
land, landið fallega, sem um 1000
ár hefur verið svivirt af Eng-
lendingum. „Ef þú værir irskur
vildirðu ekki vera á lifi”, syngur.
Lennon.
Eitt lag fjallar um John
Sinclair: „Ef hann hefði skotiö i
. Vietnam eða veriö i CIA, væri
hann frjáls maður.
Angela: Fallegt lag um Angelu
Davis, ein af milljónum fanga um
allan heim, sem fá allt, nema
rétta meðhöndlun.
„We’re all water”. „Takið
Nixon og Mao úr fötunum, og þið
sjáið að þeir eru ekki svo ólikir.
Ekki heldur Elizabeth drottning
og einhver kona einhvers staðar
frá. Þegar við tökum tár þeirra
hellum þeim i flösku og likjum
þeim saman, sjáum viö það.”
Og Yoko og John koma meö
fleiri dæmi þess að raunverulega
er litill mismunur á mönnunum.
Þeir sem eru svo hug-
vitssamir að setja spegla
á bari mega eiga von á
þvi að græða helmingi
meira en þeir sem eiga
speglalausu barina. Enda
eru flestir barir meö
veggi þakta með spegl-
um. Svo segir að minnsta
kosti sálfræðingur viö’
Tuiane háskólann Dr.
Gordon G. Gallup Jr. Dr.
Gallup hefur iikt mönn-
unum við dýrin en hann
hefur rannsakað áhrif
spegla á dýr. Menn til
sæmis borða miklu meira
þegar þeir borða með
öðrum, og það sama er að
segja um drykkjuvenjur.
Speglar hafa nokkurn
veginn sömu áhrif á menn
og annar maöur. Honum
finnst hann ekki vera
einn, þegar hann sér si-
fellt spegilmynd sfna,
jafnvel þótt hann sé eini
bargesturinn I það siunið.