Vísir - 22.07.1972, Blaðsíða 6

Vísir - 22.07.1972, Blaðsíða 6
6 Visir. Laugardagur 22. júli 1972 vísrn Útgefandi: Reykjaprent hf. I Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfssoh ) Ritstjóri: Jónas Kristjánsson ( /Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson ) Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson (' Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson ) Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611 ( Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Simi 86611 ) Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 86611 (5 linur) ( Askriftargjald kr. 225 á mánuöi innanlands ( I lausasölu kr. 15.00 eintakiö. ) Blaöaprent hf. ( Skattalögin í framkvœmd ( Langt er nú orðið siðan fyrst var á það bent hér i // blaðinu, hver áhrif hin nýju skattalög rikisstjómar- ) innar mundu hafa. Blöð stjórnarinnar héldu þvi \ hins vegar blákalt fram, að hér yrði um mikla breyt ( ingu til batnaðar að ræða fyrir allan almenning, / álögur hinna lágt launuðu og gamla fólksins, sem ) sumt hefur ekkert annað en ellilifeyrinn sinn, \ mundu lækka mikið við breytinguna, enda væri það ( fastur ásetningur rikisstjómarinnar að hlifa þessu / fólki við gjöldum langt umfram það, sem áður hefði ) verið gert. \ Hvernig hafa svo efndimar orðið? Þvi getur hver / svarað sjálfur nú, þegar hann hefur fengið skatt- ) seðilinn sinn. Það plagg sannar vist flestum, svo að l ekki verður um villzt, að það var rétt, sem Visir og / fleiri blöð héldu fram. Hækkanimar em stórkost- ) legar, og launafólkið fer sannarlega ekki varhluta \ af þeim. Rikisstjómin þóttist ætla að dreifa skatta- ( byrðinni niður með réttlátari hætti en áður hafði tið- / kazt. Ekki verður séð, að úr þvi hafi orðið, nema ) siður sé. \ Breiðu bökin svokölluðu fá hlutfallslega ekkert ) hærri álögur en áður. Með þvi er ekki sagt, að þau ) hafi ekki verið skattlögð nóg, heldur er hitin svo ( djúp, að seilast verður til allra átta og eins langt / niður i vasa hvers einstaklings sem frekast er talið ) fært, og mun þetta þó ekki duga stjórninni til þess \ að láta endana ná saman eins og fjármálaóstjórn- ( inni hefur verið hagað siðan ógæfan dundi yfir þjóð- / ina i fyrra sumar, þegar ný stjórn var mynduð á ís-) landi. Nú verða allir að súpa seyðið af þeim mistök-1 um. (( A það hefur verið bent, að af hinum nýju útsvars-)) reglum leiðir óhjákvæmilega, að álögumar verða \ þyngstar á hinum tekjulægstu, og svo kemur það til ( viðbótar, að útsvar fyrra árs er ekki lengur frá-/ dráttarbært. Enn kemur það svo til, að álag á tekjur) giftra kvenna hækkar um 30%. En þrátt fyrir þetta \ allt hafa rikisstjórnin og málsvarar hennar sifellt/ verið að klifa á þvi, að breytingin á skattalögunum) hafi verið almenningi til hagsbóta og sérstaklega \ þeim tekjulægstu. Nú talar skattskráin sinu máli( um það. / Sem dæmi um, hve vel skattalög rikisstjórnarinn-( ar koma við gamla fólkið má nefna konu, sem er/ ekkja með ellilaun og nokkur eftirlaun eftir mann) sinn, sem ekki var i háum launaflokki. Tekjur henn-\ ar s.l. ár námu rúmum 250 þúsund krónum. Eftir( nýju lögunum ellefufaldaðist skatturinn en heildar- / álag hennar rúmlega fimmfaldaðist, miðað við) flyrra ár. Þetta kallar rikisstjórnin að gera vel við\ gamla fólkið. Kona þessi hefur vitaskuld engin tök á( að greiða þessar álögur og framfleyta sér jafnframt/ af tekjunum. Henni er þvi nauðugur einn kostur, að) ganga á litla sparisjóðsinneign, sem hún á, en mun\ endast skammt, ef konan lifir i mörg ár undir þessu/ stjórnarfari. ) Dæmi þessu lik eru óteljandi. Og útkoma skatt-í skrárinnar mun áreiðanlega ekki auka vinsældir/ rikisstjórnarinnar. Var þó vart á þann óhug bæt-) andi, sem hún hefur skapað með þjóðinni. \ ísland og önnur EFTA-ríki undirrita í dag NÝJA STÓRVELDIÐ, EVRÓPA, BLÆS ÚT fslendingar undirrita samninga viö EBE I dag, ásamt fleiri EFTA-rikjum. Stórveldiö Evrópa ryður sér til rúms. island gengur aö visu ekki i EBE, og þaö gera Sviþjóö, Sviss (og Lichtenstein), Austurriki og Portúgal ekki held- ur, þótt þau undirriti sérsamning viö bandalagiö. En söguþróunin er augijós. Bandaiögin tvö renna saman i mikilvægum efnum. Stórveldið Evrópa, holdi klætt i EBE, er á góöum vegi meö aö taka algeriega til sin Bretland, Danmörku, Noreg og trland.sem hafa undirritaö samninga um aöild, og hin rikin veröa nátengd likama EBE. Sex Evrópuriki stofnuöu Efnahagsbandalagiö, EBE, áriö 1958. Þar hafa veriö um 200 millj- ónir manna og nú er stefnt til stækkunar upp i 300 milljónir meö aöildog sérsamningum. Getur skotið USA og Sovét ref fyrir rass. EFTA var stofnaö af rikjum, sem höföu oröiö „utan garös” i EBE, einkum Bretum. EFTA- rikin sóttust af kappi eftir tengsl- um viö EBE, og Bretar gerðu hverja atrennuna af annarri til að komast i bandalagiö. Þetta er nú aö takast. Heath forsætisráðherra hefur rutt ljónunum úr veginum I Bret- landi. 1 Danmörku og Noregi verður þjóöaratkvæöagreiðsla látin skera úr um aðildina. Ekki er vist, hvernig úrslitin veröa þar, en Irar hafa i þjóöar- atkvæöagreiöslu gefiö yfirgnæf- andi samþykki viö inngönguna I EBE. 1 sérsamningunum viö Islend- inga og aðrar þjóöir, sem stund- um eru kallaöar „hlutlausar” i fréttum, þótt það sé ekki rétt, er stofnaö til friverzlunarsvæöis með iðnaðarvörur, sem nær yfir nær alla Evrópu vestan tajalds. Þetta svæöi hefur nærri helming- inn af utanrikisviöskiptum i heiminum. Þaö er aö þvi leyti, en ekki i hernaði, sterkara en Bandarikin og Sovétrikin. Af þvi leiöir, aö hugsa má til þess tima að vegna iðnaöarmáttar og mannafla skjóti stórveldið Evrópa risaveldum nútimans ref fyrir rass. Samningarnir taka gildi, þegar Bretland, Danmörk, írland og Noregur munu væntanlega i reynd veröa aöilar aö EBE hinn 1. janúar næstkomandi. Auk þeirra rikja, sem voru nefnd, er búizt við, að Finnland verði með, en þar er sem stendur stjórnarkreppa. Minnihlutastjórn jafnaðarmanna þorði ekki aö sitja, meðan máliö væri afgreitt þar i landi. Kemur ekki til fram- kvæmda, án landhelgis- samninga. Islendingar undirrita viöskiptasamninginn i dag eftir mjögörðugar samningaviðræöur, þar sem landhelgismáliö hefur skipt miklu. Einar Agústsson utanrikisráöherra segir, að hætta hefði getað verið á þvi, að tengsl Islands viö rikin i Evrópu rofn- uöu, ef ekki væri skrifaö undir Samningarnir viö rikin almennt llllllllllll Umsjón: Houkur Helgason miöuöu aö friverzlun meö iðn- aöarvörur, en eins og gerzt haföi i EFTA, telja Islendingar þaö óviö- unandi og fengu fram, að samn- ingurinn næöi einnig til sjávaraf- uröa. EBE stóö hins vegar fast á skil- yröi um landhelgismál, enda aðal,,óvinir” okkar I þeim efnum, Bretar og Vestur-Þjóöverjar, mikils ráöandi i EBE eftir stækk- un þess. EBE berir þvi þann fyrirvara enn þrátt fyrir ha'röa sókn íslendinga, aö Islendingarfáiekki ivilnanir fyrir fiskafuröir, fyrr en lausn finnst á landhelgismálum, sem EBE-menn telji viöunandi. Veltur þvi þessi, og mikilvægasti þáttur samninganna að okkar leyti, á þvi,hvort semst við Breta og Vestur-Þjððverja. Komi til harðrar landhelgis- rimmu, veröur aö gera ráö fyrir, að EBE beiti fyrirvara slnum og láti ekki i té ívilnanir. 1. april 1973 til 1. júli 1977. Samningarnir fela almennt i sér, aö tollar á iönaöarvörum verði felldir niður milli rikjanna á timabilinu 1. april 1973 til 1. júli 1977. Lækkun veröi 20% á ári hvert þessara fimm ára. Timinn til að fella niöur tolla er haföur lengri en þetta um ýmsar vörur sem EBE-rikin telja geta valdið raski i framleiöslu sinni, svo sem pappir,og er þaö einkum vandamál Finna aö hafa ekki fengið betri kjör þar. Þar er gert ráð fyrir ellefu ára timabili til niðurfellingar, en ekki vonlaust um, aö semja megi um skemmri tima. Svipaö og Island fær Portúgal sérstakar ivilnanir fyrir út- flutning sinn á ávöxtum og græn- meti, vini og fleiru. Sameiginleg nefnd skal koma saman tvisvar á ári til aö gera út um vandamál. Alls staöar er gert ráö fyrir að auka megi samstarfiö og færa á önnur svið en þessa beinu við- skiptasamninga. Kunna siðar að ganga i EBE. EFTA-rikin taka til dæmis fram, að þau kunni siðar að ganga i EBE fullum fetum, en all- ir stjórnmálaflokkar hérlendis lýsa yfir að aðild komi ekki til greina að svo stöddu. Viðskiptasamningur Islands og EBE tekur til um 70% af útflutn- ingi okkar þangað. Auk þess eru um 20% af útflutningnum allavega tollfrjáls i EBE, salt- fiskur, skreiö og ný sild. Allar iðnaöarvörur og flestar sjávarafuröir falla undir samn- inginn. Tollur á áli veröur þó ekki felld- ur niöur til fulls fyrr en 1. janúar 1980. Tollar á Isfiski og sumum niðursuöuvörum veröa lækkaðir verulega en ekki alveg felldir niö- ur. Islendingar fella niöur vernd- artolla sina á vörum innfluttum frá EBE, og fyrsta lækkunin verður 30% 1. april 1973, og siöan 10% á ári, svo aö þeir veröa úr sögunni 1. janúar 1980. Striö á striö ofan hafa verið háö milli Þjóöverja, Breta og Frakka — en „ekki lengur”, segja þeir Brandt, Heath og Pompidou.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.