Vísir - 22.07.1972, Síða 7
Visir. Laugardagur 22. júli 1972
7
Miðbœrinn:
INN1 Í SÍÐAN | Fyrir bíla eða fyrir fólk
Umsjón: Svanlaug Baldursdóttir — þeir Stefán Glúmsson og Davíð Egilsson leggja orð í belg, um umhverfismál — miðbœrinn er ósnortinn ennþá en bíður stórborgarvandamálið á nœsta leiti? spyrja þeir 8
Til þess eru vítin að
varast þau, gætu um-
hverfisverndarmenn sagt,
þegar þeir sjá þessa
mynd. Hún hefur birzt í
blöðum víða um heim, og
sýnir hvernig stórar sam-
gönguæðar geta þokað í
burtu ibúðarhverfum á
stórum svæðum eða
bíllinn mannfólkinu. Þeir
starf sf élagar Stefán
Glúmsson og Davíð Egils-
son staðfærðu myndina að
nokkru leyti, þar sem þeir
fundu nokkra líkingu með
henni og væntanlegum
samgönguæðum í
Reykjavík.
1. Akbrautin upp til
vinstri gæti verið Aðal-
stræti. 2. Gatan þvert á
hana til vinstri
Austurstræti. 3. Stóra
samgönguæðin á ská,
væntanleg samgönguæð
um Túngötu og Kirkju-
stræti. 4 Samgönguæðin
sem kemur í sveigju,
Suðurgatan og framhald
hennar. 5. Hvíta stóra
húsið fyrir enda
„Austurstrætis", Morgun-
blaðshúsið. 6. Hvíta húsið
í hringnum, sem er til
hægri, Hallveigarstaðir.
7. ,,Og síðan er hægt að
sjá fyrir sér Landakots-
kirkju á stöpli í miðri ak-
brautinni og Hallgrims-
kirkju hinum megin",
sögðu þeir félagar um leið
og þeir kvöddu
— Það er gaman að koma
og sjá allt ósnortið. En nú
er ég hræddur um að á
næsta leiti sé verið að
skapa hér stórborgar-
vandamál. Það er eins og
mennirnir ætli að taka við
allri umferð megin-
landsins eða allri umferð
Atlantshafsins, segir
Stefán Glúmsson verk-
fræðingur.
Hann og Davíð Egilsson
jarðfræðinemi komu við á
ritstjórninni og færðu
okkur mynd, sem þeir
segja að hafi birzt í
blöðum og tímaritum víða
um heim, og staðfærðu
hana við hraðbrautirnar,
sem samkvæmt aðal-
skipulagi eiga að koma í
Reykjavík. Til gamansen
með alvöru að baki.
— Ég er i Stokkhólmi viö nám,
segir Stefán og mættum við læra
af þvi öngþveiti, sem hefur
verið skapað þar vegna skipu-
lagsins.
Það var byrjað á þvi að rifa
gamla miðbæjarkjarnanna i
Stokkhólmi, árið 1955. Þá taka
þeirþað, sem kallað er Hötorget
i gegn, rifa niður gömul hús og
reisa 5-6 30 hæða háhýsi i
staðinn. Þar á eftir var byrjað
að rifa heilu hverfin i kring og
allt skrapað niður i berg. Siðan
hefur komið þar eitt steinhús,
þar sem voru tiu áður. Þetta er
nú orðið steineyðimörk.
Annað dæmi, sem má tiltaka
er Klarahverfið i miðborginni,
þar sem var aðsetur ritstjórna
ýmissa blaða áður fyrr, eins
konar „Fleet Street”
Stokkhólms. Nú hefur þetta
hverfi verið rifið. Þetta er það
sem mest hefur verið 'rætt um i
Stokkhólmi i umhverfismálum.
og skipulagsmálúm borgar-
innar. Og þær umræður báru þó
þann árangur, að stöðva átti
umferð i miðborginni, og hafa
lokaðar götur þar sem fólk
getur gengið um en hafa bila-
stæðin i kring. Þarna i mið-
borginni urðu Sviar of seinir á
sér.
Nauðsynin á göngusvæði
blasir við, mengun og hávaði
eykst, jafnt og þétt. Breiðu ak-
brautirnar og veldi bilsins leiðir
sitt af hverju af sér. Það má
nefna sem dæmi litil torg með
trjám, bekkjum og blaðaturni,
sem fólk var vant áður fyrr að
mæla sér mót og setjast niður til
að rabba saman. Nú eru þessi
torg einangraðar eyjar i um-
ferðinni. Þangað kemur enginn
maður og blaðaturnarnir hafa
verið lagðir niður vegna um-
ferðarinnar.
Almenningsálitið hefur áhrif.
Það kom i ljós i sambandi við
Kóngsgarðinn þar sem eru 30
metra há, mjög falleg tré. Þar
er búið að ákveða að leggja
neðanjarðarstöð, og höggva
trén. Þessu var mótmælt og mót
mælin jukust óðum. Það var
jafnt alþýðufólk sem frægir
kvikmyndastjórar, sem lét til
sin heyra og sagði,látið trén
standa og fólk byrjaði að halda
vörð um trén. Þessu var ekki
sinnt og framkvæmdirnar áttu
að hefjast, reyndar að nætur-
lagi til að koma mótmælendum
á óvart. En um nóttina fékk
næturútvarpið simakall og
plötusnúðurinn kom út til-
kynningu sem varð til þess að
fólk dreif að úr öllum áttum til
að mótmæla, skógarhöggs-
mennirnir neituðu að fella trén
og framkvæmdina varð að
stöðva. Þetta varð til þess, að
politikusarnir sáu að i óefni var
komið.atkvæði fólksins i næstu
kosningum myndu falla á annan
veg og strikuð út nöfn manna.
sem að framkvæmdinni stóðu.
Hætt var við hana og trén
standa áfram. Þetta er það eina
sem hefur tekizt svo um muni i
umhverfisverndarmálum i
Sviþjóð. Venjulega er skipað i
nefnd til að annast málið og
siðan beðið nógu lengi þar til
fólk hefur gleymt þvi. -SB-